Morgunblaðið - 08.12.1996, Side 1

Morgunblaðið - 08.12.1996, Side 1
120 SIÐUR B/C/D/E/F STOFNAÐ 1913 282. TBL. 84. ÁRG. SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Atlantshafsbandalagið Ræða aukin tengsl við Rússa London. Reuter. RÁÐAMENN hjá Atlantshafsbandalag- inu, NATO, íhuga nú hvort þeir eigi að bjóða Rússum að gerður verði við þá sérstakur samningur um öryggis- mál. Þjóðveijar eru helstu hvatamenn tillagnanna en samkvæmt þeim yrði samstarfi NATO og Rússlands skipt í þrennt eftir eðli viðfangsefnisins. • NATO tekur ákvörðun en lætur Rússa vita áður en henni er hrint í framkvæmd. • Fulltrúar NATO og Rússlands ráðg- ast við um sameiginleg hagsmunamál. • Tekin er sameiginleg ákvörðun beggja aðila og i þeim tilvikum hefðu Rússar í reynd neitunarvald. Breskir embættismenn segja að eftir sem áður komi ekki til greina að Rúss- ar fái neitunarvald í tengslum við inn- göngu nýrra aðildarríkja. ■ Verkefnin næg/6 Bjargið litla karlinum! ÍBÚAR Austur-Þýskalands sem var eru ekki alltaf ánægðir með þær breytingar sem sameiningin hefur haft í för með sér. Nýjasta deiluefnið er að yfirvöld eru byijuð að skipta um merkingar á götuvitum til að samræmi sé í þeim efnum. Austur-Þjóðveijar hafa í þrjá áratugi vanist litlum, grænum karli með hatt er táknaði að ganga mætti yfir götuna. Nú er byrjað að nota stíl- fært og kynlaust tákn eins og annars staðar í Þýskalandi (og á Islandi) sem engum getur þótt vænt um. Barátta er hafin gegn umskiptunum. Framleiddir eru bolir með mynd litla karlsins, póstkort og plaköt, rokk- hljómsveit er búin að semja lag til heið- urs honum. Stuðningsmenn hafa tekið alnetið í þjónustu sína, netslóðin er http://www.interactive.de. Bent er á að framleiddir hafi verið 5.000 ljós með karlinum á þessu ári, varla geti verið rétt að fleygja þeim á haugana áður en karlarnir fái að þjóna sínu hlutverki. Reuter Aurskriða í Japan BJÖRGUN ARMENN í Nagano-héraði í Japan færa til vörubíl sem lenti í mikilli aurskriðu nálægt hverasvæði í brattri fjalls- hlíð við skiðaþorpið Otari í miðhluta landsins. Vitað var með vissu að sjö fórust í skriðunni á föstudag og átta slösuðust, þar af einn lífshættulega. Sjö var enn saknað í gær. Fórnarlömb- in voru flest verkamenn er unnu að viðgerð á vegi. Um 1.400 manns tóku þátt í björgunaraðgerðum og hundar voru notaðir við leit að hinum týndu. Vaxandi stjórnmálaókyrrð í Búrma og flokkar hermanna til taks Fjöldahandtökum beitt gegn stúdentum í Rangoon Rangoon. Reuter. HERFORINGJASTJÓRNIN í Búrma fullyrti í gær að búið væri að láta lausa flesta þeirra 264 stjórnarandstæðinga sem handteknir voru aðfaranótt laugardags eftir mikil mótmæli í grennd við háskólann. Flestir mótmælendanna voru stúdentar og beittu hermenn og lögregla kylfum og háþrýstisprautum slökkviliðs til að sundra mannsöfnuðinum. Allt virtist með kyrrum kjörum í Rangoon í gær. Fæstir íbúanna vissu um atburðina um morguninn en fjöldi vörubíla með hermönnum var á hinn bóginn til taks í grennd við helstu vegamót og samgönguleiðir í grennd við há- skólann og Tækniskóla Búrma, í um sex kíló- metra fjarlægð frá miðborginni. Talsmaður stjórnvalda sagðist gera ráð fyrir að allir yrðu lausir úr haldi um kvöldið. Enn væri verið að kanna skilríki hinna handteknu. Látið var til skarar skríða skömmu fyrir sólarupprás þegar hópur stúdenta, er sest hafði við vegamót skammt frá háskólanum, neitaði að hverfa brott. Lögreglan sagðist að sögn sjónarvotta ætla að handtaka „pólitíska undirróðursmenn" úr röðum fólksins. Vilja fá að stofna samtök Um 2.000 stúdentar efndu á mánudag til mestu mótmæla sem herforingjarnir hafa þurft að beijast við frá haustinu 1988 er friðarverð- launahafinn Aung San Suu Kyi varð leiðtogi stjórnarandstöðunnar. Mótmælin voru þá kæfð í blóði, ári síðar var Suu Kyi sett í stofufang- elsi sem hún losnaði úr í fyrra. Athafnafrelsi hennar er þó mjög skert og nýlega réðust nokkrir menn á hana á fundi en hún siapp ómeidd. Stjórnarandstaðan telur mennina hafa verið handbendi stjórnvalda. Stúdentar krefjast þess að fá að stofna sjálf- stæð hagsmunasamtök í skólanum og jafn- framt að um 80 félagar þeirra, sem sitja í fangelsi, verði látnir lausir en ekki er vitað hvar þeir eru í haldi. Talsmenn stúdenta segja að engin bein tengsl séu á milli aðgerða þeirra og flokks Suu Kyi sem er leyfður að nafninu til en fær ekki að starfa. IIASIil AKOLASKAGA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.