Morgunblaðið - 08.12.1996, Page 4
4 SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Vikan 1/12 - 7/12
► SOPHIA Hansen hitti
dætur sínar tvær í fyrsta
sinn í fjögur og hálft ár.
Tyrkneska lögreglan
hyggst reyna að tryggja að
umgengnisréttur Sophiu
verði virtur framvegis.
► NÝTT „punktakerfi"
verður tekið upp á næsta
ári til að reyna að fækka
umferðarlagabrotum, eink-
um hjá yngri ökumönnum.
Punktum ökumanna fækkar
við hvert umferðarlagabrot
og missi þeir alla punktana
tapa þeir jafnframt ökurétt-
indum í þrjá mánuði.
► NÓVEMBER síðastliðinn
var bæði sá kaldasti og sól-
ríkasti í Reykjavík frá því
mælingar hófust í höfuð-
borginni.
► NÝ KÖNNUN verður
gerð á frákasti afla hjá
fiskiskipum. Þorsteinn Páls-
son sjávarútvegsráðherra
segir of mikið um að fiski
sé hent.
► RÍKISENDURSKOÐUN
gagnrýnir að lögfræðingar
innheimtudeiidar Tollstjór-
ans í Reykjavík séu bæði
launþegar og verktakar, en
þeir fá sérstaklega greitt
fyrir vörzlusviptingar og
fjámám;
► DAVÍÐ Oddsson forsæt-
isráðherra segir að breyt-
ingar á Lánasjóði islenzkra
námsmanna muni hafa i för
með sér samtimagreiðslur í
einhverri mynd og lækkun
á endurgreiðsluhlutfalli
námslána.
Kaupa bréf í ÚA fyrir
1.205 milljónir
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihúsanna
hefur keypt 13% hlut Akureyrarbæjar
í Útgerðarfélagi Akur-
eyringa fyrir 660 millj-
ónir króna. Þá hefur
hópur fjárfesta undir
forystu Burðaráss,
eignarhaldsfélags Eim-
skipafélagsins, keypt
11,3% hlut Kaupfélags Eyfirðinga í
félaginu fyrir 545 milljónir. Akureyrar-
bær á áfram 20% í UA.
Barnaníðingur hand-
tekinn á Akureyri
MAÐUR á sextugsaldri er í haldi lög-
reglu á Akureyri, en hann hefur játað
að hafa misnotað litlar stúlkur kynferð-
islega, tekið myndir af þeim og miðlað
til annarra með aðstoð alnetsins. Mað-
urinn hefur áður verið grunaður um
kynferðisbrot gegn ungum börnum.
Stefna í fíkniefna-
málum samþykkt
RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt
heildstæða áætlun í fíkniefna-, áfengis-
og tóbaksvömum, sem felur m.a. í sér
að stofnað verði sérstakt áfengis- og
vlmuvamaráð, fjármunir til forvarna
auknir, tollgæzla og löggæzla efld og
stutt við ungmenni í áhættuhópum. Þá
verður lögð áherzla á alþjóðlegt sam-
starf gegn fíkniefnum, neyzlu þeirra
og sölu.
Jafnaðarmenn
stærstir?
NIÐURSTÖÐUR skoðanakönnunar,
sem Félagsvísindastofnun hefur gert
fyrir þingflokk jafnaðarmanna, sýnir
að sameinað framboð núverandi stjóm-
arandstöðuflokka myndi fá 39,5% at-
kvæða í þingkosningum. Framsóknar-
flokkur fengi 23% og Sjálfstæðisflokk-
ur 37,5% miðað við þær forsendur að
aðeins þessir þrír listar yrðu í framboði.
Albright nýr
utanríkisráðherra
BILL Clinton Bandaríkjaforseti til-
nefndi á föstudag sendiherra Banda-
ríkjann hjá Sameinuðu þjóðunum, Mad-
eleine Albright, I
embætti utanríkis-
ráðherra en Warren
Christopher hyggst
láta af störfum. Al-
bright, sem er 59 ára
og fædd í Prag, verð-
ur fyrsta konan til
að gegna þessu vald-
amikla embætti í
sögu landsins. For-
setinn tilnefndi einn-
ig repúblikanann
William Cohen í emb-
Madeleine
Albright
ætti vamarmálaráðherra en repúblikani
hefur ekki fyrr verið í stjóm Clintons.
Viðbrögð við mannaráðningum Clint-
ons voru yfirleitt mjög jákvæð, kvenna-
hreyfíngar fögnuðu sérstaklega frama
Albright og helstu leiðtogar repúblik-
ana lýstu einnig ánægju sinni.
Milosevic hopar
SLOBODAN Milosevic, forseti Serbíu,
lét á fimmtudag undan kröfu stjórnar-
andstæðinga og var hæstarétti falið að
kanna kjörgögn til að hæg> yrði að
skera úr um það hvort stjómarandstað-
an hefði hreppt meirihluta í Belgrad
og fleiri borgum I sveitarstjómarkosn-
ingum nýverið. Einnig hét forsetinn
námsmönnum og lífeyrisþegum bætt-
um kjörum og vék nokkrum embættis-
mönnum frá störfum. Hundruð þús-
unda manna hafa undanfarna daga
andmælt stjóminni á götum Belgrad
en stjómvöld svöruðu m.a. með því að
loka útvarpsstöð sem hlynnt er stjóm-
arandstæðingum.
► UM 300 lögreglumenn á
Italíu réðust á föstudags-
morgun inn í húsakynni
Antonio Di Pietros, fyrrver-
andi rannsóknardómara,
sem frægur varð fyrir að
fletta ofan af spillingu og
stjórnmála- og efnahagslífi.
Saksóknarar fyrirskipuðu
aðgerðina vegna ásakana á
hendur Di Pietro um laga-
brot við spillingarrannsókn-
ir hans.
Þ- RÁÐSTEFNU um frið i
Bosníu lauk í London á
fimmtudag og voru leiðtog-
ar deiluaðila varaðir við þvi
að landið fengi ekki efna-
hagsaðstoð i framtíðinni
nema staðið yrði að öllu
leyti við Dayton-friðar-
samningana. Samþykkt var
að efla striðsglæpadómstól-
inn í Haag.
► ÖRYGGISGÆSLA var
stórefld í Frakklandi í vik-
unni vegna sprengjutilræðis
sem varð tveim að bana í
París á þriðjudag auk þess
sem 88 særðust. Talið er að
alsfrskir hryðjuverkamenn
hafi verið að verki.
RÁÐSTEFNU Öryggis-
og samvinnustofnunar Evr-
ópu, ÖSE, lauk í Lissabon á
þriðjudag með yfírlýsingu
um að stefnt skyldi að friði
og samvinnu á næstu öld.
Rússar ítrekuðu á ráðstefn-
unni andúð sína á stækkun
Atlantshafsbandalagsins til
austurs.
► EINN af þingmönnum
Ihaldsflokksins breska
sagði skilið við þingflokkinn
á föstudag og hefur ríkis-
stjórn Johns Majors ekki
lengur meirihluta í neðri
deildinni. Talið er að sljórn-
in geti reitt sig á stuðning
norður-írskra sambands-
sinna fram að kosningum
næsta vor.
FRETTIR
Halldór Ásgrímsson um deilur um túlkun EES-samningsins
Öryggisákvæði aðeins
beitt í stórmálum
DEILAN um túlkun öryggisákvæðis
samningsins um Evrópska efna-
hagssvæðið kom enn upp á yfirborð-
ið á fundi EES-ráðsins í Brussel á
föstudag, en í því sitja utanríkisráð-
herrar aðildarríkja Evrópusam-
bandsins og EFTA. Ráðherrar
EFTA-ríkjanna ítrekuðu mótmæli
sín við því að ESB beitti ákvæðunum
til að setja lágmarksverð á norskan
lax í fyrra. Halldór Ásgrímsson ut-
anríkisráðherra segir að málið sýni
að ísland geti ekki beitt öryggis-
ákvæðinu nema í mjög stórum mál-
um.
Fyrir réttu ári setti Evrópusam-
bandið lágmarksverð á norskan og
íslenzkan lax á Evrópumarkaðnum,
með tilvísun til öryggisákvæðanna
í 112. grein EES-samningsins, en
þar segir að komi upp „alvarlegir
efnahagslegir, þjóðfélagslegir eða
umhverfíslegir erfiðleikar í sérstök-
um atvinnugreinum eða á sérstök-
um svæðum, sem líklegt er að verði
viðvarandi,“ geti samningsaðili grip-
ið til „viðeigandi ráðstafana“.
ESB telur að þetta hafi átt við
vegna meints undirboðs Norðmanna
á markaði fyrir eidislax. EFTA-ríkin
telja hins vegar að öryggisákvæðin
eigi ekki við um þá bókun EES-
samningsins, sem fjallar um við-
skipti með sjávarafurðir. íslending-
ar hafa óttazt fordæmisgildi þessar-
ar túlkunar ESB. „Það kynni að
skaða okkur í sambandi við ýmsar
fisktegundir, til dæmis þorsk, yrði
þessu beitt aftur með sama hætti,“
segir Halldór. „Við höfum þó á til-
finningunni, þrátt fyrir yfirlýsingar
ESB, að sambandið sé hikandi við
að beita þessu ákvæði aftur.“
Öryggisákvæðið í 112. grein var
upphaflega sett í samninginn að
kröfu EFTA-ríkjanna, m.a. vegna
ótta íslendinga við búferlaflutninga
útlendinga til landsins og fjárfest-
ingar þeirra hér. „Það öfugsnúna í
málinu er að við báðum um þetta
öryggisákvæði, en ekki ESB. Fram
að þessu hefur það fyrst og fremst
beinzt gegn okkur, sem er alvar-
legt, þótt það hafi ekki komið niður
á íslenzkum hagsmunum," segir
Halldór. „Þetta sýnir hvað það væri
erfitt fyrir okkur að beita öryggis-
ákvæðinu nema í meiriháttar mál-
um. Við teljum að það sé rangt að
beita því í minniháttar máli eins og
þessu og eingöngu eigi að beita því
í mjög stórum málum.“
Meiri áhrif á
ákvarðanatöku
Halldór segir að fundurinn hafi
að öðru leyti gengið mjög vel. Þetta
hafi verið síðasti fundurinn í for-
mennskutíð íslands I EES og
ánægjulegt hafi verið að utanríkis-
ráðherrar allra ESB-ríkjanna
fímmtán hafi sótt hann, en slíkt
hafí ekki gerzt áður í sögu EES.
„Þetta sýnir að okkur hefur tekizt
að koma meiri alvöru í þessi póli-
tísku samskipti, sem við höfum lagt
mikla áherzlu á,“ segir hann.
Halldór segist telja að ísland hafí,
fyrir hönd EFTA-ríkjanna í EES,
náð verulegum árangri á árinu, sem
er að ljúka. „Við höfum komizt að
í fleiri nefndum ESB og getum tek-
ið meiri þátt í ákvarðanatöku en
áður var.“
SUNDLAUGIN í Grafarvogi verður byggð við
íþróttamiðstöðina Dalhúsi 2.
ÁÆTLAÐ er að sundlaug Grafarvogsbúa verði
tilbúin í byijun árs 1998.
Sundlaug byggð í Grafarvogi
FYRSTA skóflustungan að sund-
laug I Grafarvogi verður tekin
um miðjan desember og er áætl-
að að taka hana í notkun byrjun
árs 1998.
Heildarkostnaður við fram-
kvæmdina er áætlaður 375
milljónir króna og var tilboði
Valar hf. í jarðvinnu tekið, sam-
kvæmt upplýsingum frá bygg-
ingadeild borgarverkfræðings.
Stærð sundlaugarinnar með
böðum, búningsklefum, af-
greiðslu og göngugötu er 1.533
fermetrar án kjallara, leiðslu-
ganga og vaktturns. Laugarker-
in verða tvö, það er 25 metra
útilaug fyrir almenning og 12,5
metra innikennslulaug. Á úti-
svæði verða pottar, stór nudd-
pottur og vaðlaug.
Arkitektar eru Guðmundur
Þór Pálsson og Vilhjálmur
Hjálmarsson.
Forseti íslands heimsótti Coldwater
Samkeppni verði
ekki of grimm
HR. plafur Ragnar Grímsson for-
seti íslands og frú Guðrún Katrín
Þorbergsdóttir heimsóttu á föstu-
dag aðalstöðvar Coldwater Sea-
food skammt frá New York í
Bandaríkjunum. Ólafur Ragnar
segir að fróðlegt hafi verið að
kynnast þeim vandamálum sem
við er að glíma á bandarískum
matvælamarkaði. ólafur sagði
að íslendingar þurftu að huga að
því hvernig þeir tryggðu það að
íslenskar sjávarafurðir yrðu áfram
samkeppnisfærar á þessum mikil-
væga markaði. „Auðvitað getur
það verið gott að við keppum á
þessum markaði, en við þurfum
að passa okkur að keppa ekki svo
grimmt að það komi niður á mark-
aðsstöðu okkar í heild.“
Harðnandi samkeppni
Ólafur segir að sér hafi komið
á óvart hversu mikil samkeppnin
er á markaðnum. „Hún virðist
hafa farið mjög harðnandi á síð-
ustu 12-18 mánuðum og það þarf
meiri kraft og skipulag og atorku
til að tryggja hlutdeild okkar. Ég
held að það sé með fleiri á íslandi
eins og mig að ég taldi að markað-
ur okkar fyrir sjávarafurðir vestra
væri orðinn svo rótgróinn að fátt
gæti haggað honum, en mér sýn-
ist á þeim upplýsingum sem við
höfum fengið hér að það sé fyrst
og fremst atorka sölukerfísins og
hin daglega glíma sem tryggir það
að við höldum okkar hlutdeild. Það
er greinilega vaxandi sókn frá
öðrum matvælum og öðrum fram-
leiðendum á sjávarafurðum, til
dæmis frá þorski sem Bandaríkja-
menn veiða sjálfir."
Heimsókn fors^tahjónanna til
Bandaríkjanna lýkur í dag.
Slitu við-
skiptum við
Meistarann
>
í
i
i
i
STJÓRNENDUR Hagkaups og
Fjarðarkaups hafa ákveðið að
hætta viðskiptum við Meistarann.
Guðrún Bjömsdóttir, framkvæmda-
stjóri Meistarans, telur ástæðuna
vera þá að Meistarinn hefur opnað
eigin verslanir með kjötvörur.
Meistarinn opnaði á föstudag
þrjár verslanir, en þær em staðsett-
ar í Hafnarfirði, Kópavogi og
Reykjavík.
Hagkaup sagði upp viðskiptum
við Meistarann í síðustu viku og
Fjarðarkaup gerði það sama á
föstudag og óskaði eftir að kjötvör-
ur Meistarans yrðu fjarlægðar úr
versluninni. Guðrún sagði að Meist-
arinn hefði átt í viðskiptum við
þessar verslanir í mörg ár.
„Ég tel að þeir hafi tekið þessa
ákvörðun í kjölfarið á því að við
fómm út í smásölu. Við erum að
reyna að komast nær markaðnum
og fækka milliliðum um einn. Ég
tel að þetta séu þeirra viðbrögð við
samkeppninni,“ sagði Guðrún.
!
I
I
t
I
4