Morgunblaðið - 08.12.1996, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1996 17
Fjölskyldu-
leikrit með
jólaboðskap
FURÐULEIKHÚ SIÐ frumsýnir á
sunnudag íj'ölskylduleikritið „Jólin
hennar Ómmu“ í Möguleikhúsinu við
Hlemm klukkan 16. Leikarar eru:
Margrét Kr. Pétursdóttir, Eggert
Kaaber og Ólöf Sverrisdóttir. Hand-
ritið er eftir Margréti Kr. Pétursdótt-
ur og tónlistin er eftir Valgeir Skag-
íjorð. Leikmynd er í höndum Kristín-
ar Björgvinsdóttur og um lýsingu sér
Geir Magnússon. Leikstjóri er Gunn-
ar Gunnsteinsson.
í leikritinu segir Sigríður amma
okkur frá því þegar hún var ung
stúlka og Grýla tók Óiaf, besta vin
hennar og ætlaði að éta hann. Sigríð-
ur þarf að hraða sér upp í fjöll til
að reyna að bjarga honum. Á leiðinni
hittir hún Stekkjarstaur sem er á
leiðinni til byggða til að hrella bónd-
ans fé. Stekkjarstaur bjargar Sigríði
fýrir tilviljun og fær að launum rauða
skotthúfu, en í gamla daga voru jóla-
sveinarnir öðruvísi klæddir en þeir
eru í dag. Sigríður fræðir Stekkjar-
staur um Jesú og af hveiju við höld-
um upp á jóiin og í sameiningu reyna
þau að fá Grýlu ofan af því að éta
börn á jólunum. Kannski getur Grýla
iært að fyrirgefa?
I þessu leikriti er leitast við að
blanda saman þjóðtrúnni um jóla-
sveinana og kristilegum boðskap jól-
anna. Um fyrirgefninguna og hvernig
jólasveinarnir eignast jólasveina-
spariföt. Leikritið er um þijátíu mín-
útur í flutningi.
» ♦ ♦-----
Tímarit
• ÚTJERkominn 17. árgangur
Sagna, Tímarits um söguleg efni.
Sagnir innihalda að vanda rannsókn-
ir af sagn-
fræðilegum
toga mest-
megnis gerðar
af nemendum
i sagnfræði við
Háskóla ís-
lands auk þess
sem fræði-
menn birta
niðurstöður
forsiða biaðs rannsókna
breska setuliðsins sinna. Markm-
194°' iðiðmeðút-
gáfu Sagna er að gefa innsýn í það
sem ungir fræðimenn eru að fást við.
Það er komið víða við í 17. ár-
gangi Sagna. Jón Jónsson ræðir um
trú á vættir og vofur í upphafi 19.
aldar. Hugmyndir um stofnun varn-
arliðs á 19. öld eru til umfjöllunar
í grein Þrastar Sverrissonar. Tvær
greinar eftir þær Kristrúnu Höllu
Helgadóttur og Sigrúnu Sigurðar-
dóttur gefa mynd af því hvernig
notst megi við einkabréf frá 19. öld
í sagnfræðilegum rannsóknum. Ár-
mann Guðmundsson kannar undir-
stöðu tónlistarlífs Islendinga í byijun
19. aldar og Davíð Logi Sigurðsson
telur sig hafa fundið fyrsta íslenska
frímúrarann. Á erlendum vettvangi
19. aldar veltir Dagfinnur Svein-
björnsson fyrir sér eldskírn marx-
ismans í byltingunum árið 1848. Dr.
Vilborg Auður Isleifsdóttir flytur
nokkur orð um siðbreytinguna og
kirkjuordinanzíuna frá 1537 og Egg-
ert Þór Bernharðsson fjallar um
samskipti íslenskra kvenna og er-
lendra hermanna á stríðsárunum.
Ristjórar eru Skarphéðinn Guð-
mundsson og Davíð Logi Sigurðsson.
Sagnir eru 92 blaðsíður og gefnar
út af Félagi sagnfræðinema. Krist-
ján Guy Burgess sá um hönnun en
Steindórsprent/Gutenberg prentaði.
iwp im I94Qif:np<«in
Söngkvartettinn
Rúdolf í Gerðarsafni
SÖNGKVARTETTINN Rúdolf
verður með tónleika í Listasafni
Kópavogs - Gerðarsafni, þriðju-
daginn 10. desember kl. 20.30.
Rúdolf-kvartettinn var stofn-
aður árið 1992 og er þetta 5.
starfsár hans. Rúdolf sérhæfir sig
í flutningi á jólalögum án undir-
leiks, bæði íslenskum og erlend-
um og starfar eingöngu um jóla-
hátíðina.
Söngstíli kvartettsins er fjöl-
breyttur, allt frá hefðbundnum
fimmunda söng, sem einkennt
hefur íslenska söngtónlist, til
flókinna fjórradda útsetninga.
Stór hluti efnisskrárinnar er sér-
útsettur af Skarphéðni Hjartar-
syni, einum af meðlimum Rúdolfs.
Rúdolf hefur komið fram bæði
í útvarpi og sjónvarpi og hefur
einnig sungið jolatónlist fyrir
matargesti á veitingastöðum
borgarinnar. Kvartettinn skipa;
Skarphéðinn Hjartarson, Jóhanna
Halldórsdóttir, Þór Ásgeirsson og
Sigrún Þorgeirsdóttir.
Verð aðgöngumiða er 1.000 kr.
og verða þeir seldir við inngang-
inn.
Inniseríur
10 Ijósa kr. - -99 40 Ijósa kr. - -869
20 Ijósa kr. - 1 89 tilboí 80 Ijósa kr. - -1299
35 Ijósa kr. - -340 120 Ijósa kr. — -2125
50 Ijósa kr. - -449 240 Ijósa kr. — -4190
100 Ijósa kr. - -865 480 Ijósa kr. — -7990
35 Ijósa 40 Ijósa stærri skrúfperur
(kúluperur) kr. - -689 m. straumbreyti kr. - -2550
20 Ijósa 20 Ijósa stærri
stærri perur kr. - —1239 perur kr. — -2995
35 Ijósa 120 Ijósa
stærri perur kr. - -1890 blikksería kr. — -3780
'BláMOm / - lá
Utíseríur
Sérfilboð
fimmtudag til sunnudags
Grenilengja
(2,75m)
kr. 499
20 ljósa innisería
kr. 189
Ljósahringur
í glugga (49 ljósa)
kr. 799
Sogskálar fyrir
gluggaseríur
kr. 199
ÚÁ/
Enn meira úrval - enn betra verö
HÖNNUN OÐDI HF.