Morgunblaðið - 08.12.1996, Síða 26

Morgunblaðið - 08.12.1996, Síða 26
/ 26 SUNNUDAGUR S. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR/Sambíóin og Háskólabíó sýna nýjustu mynd Francis Ford Coppolas, Jack, en í henni leikur stórleikarinn Robin Williams tíu ára strák sem eldist líkamlega fjórum sinnum hraðar en andlega. Mis- tækur meistari FRANCIS Ford Coppola hefur jafnan verið talinn til helstu kvikmyndaleikstjóra Bandaríkjanna síð- ustu áratugina. Myndirnar um Guðföðurinn eru senni- iega þær kvikmyndir sem haldið hafa nafni Francis Ford Coppola hvað hæst á lofti, en alls hefur Coppola leikstýrt rúmlega tuttugu myndum frá því hann leik- stýrði fyrstu myndinni sinni árið 1962. Auk þess hefur hann framleitt fjölda annarra mynda og skrifað hand- rit að myndum sem aðrir hafa leikstýrt. Á meðal þeirra mynda sem Coppola hefur gert er að fmna nokkur meist- araverk sem hlotið hafa mikla aðsókn, en jafnframt mynd- ir sem hafa kolfallið og ýtt undir þá ímynd að Coppola s æði mistækur og að ekki sé alltaf á hann að treysta. Undanfarin tíu ár hefur heldur hallað undan fæti hjá Coppola og hefur hann aðeins leikstýrt fimm myndum á þessu tímabili, auk þess sem hann vinnur að gerð þeirrar sjöttu um þessar mundir. Er það myndin The Rainma- ker, sem gerð er eftir sögu Johns Grishams. Reyndar hafa fæstar mynda Coppola frá því hann gerði Ápoc- alypse Now árið 1979 gert það sérlega gott hvað að- sókn snertir. Þar á meðal eru myndirnar One From the Heart, The Outsiders, Rumble Fish, The Cotton Club og Gardens of Stone. Hann fékk hins tækifæri til að snúa blaðinu við þegar hann far sæmilegs gengis The Godfather: Part III 40 milljónir dollara til að gera kvikmynd eftir vinsælli skáldsögu Brams Stokers um Drakúla greifa, sem líkleg þótti til að höfða til Sú von hans rættist því þrátt fyrir gagnrýni sem myndin hlaut í byijun skilaði hún geysimiklum hagnaði. Síðan þett- a gerðist árið 1992 hefur Copp- ola ekki leikstýrt mynd þar til hann gerði Jack, en hann hefur hins vegar framleitt nokkrar mynd ir á þessu tímabili. Meðal þeirra eru Mary Shelley’s Frankenstein, The Secret Garden og Don Juan DeMarco. Francis Ford Coppola fæddist í Detroit 7. apríl árið 1939, en hann ólst hins vegar upp i New York. Hann lauk námi í kvikmyndagerð frá Kalifomíuháskóla og árið 1962 gerði hann fyrstu mynd sína í fullri lengd, The Playgirls and the Bellboy. Árið 1970 stofnaði hann fýrirtækið American Zoetrope ásamt Georg Lucas og fýrsta mynd- in sem Coppola framleiddi var THX- 1138, en það var einmitt frumraun Lucas sem ieikstjóra. Coppola fram- leiddi einnig American Graffiti, sem Lucas leikstýrði, og var hún tilnefnd til fimm óskarsverðlauna. Það var síðan árið 1972 sem Coppola gerði Guðföðurinn, sem varð ein tekju- hæsta kvikmynd sem þá hafði verið gerð, og hlaut hún Óskarsverðlaun- in sem besta mynd ársins. Tveimur árum seinna var annar hluti Guð- föðurins sýndur og sópaði hún að sér verðlaunum, en Coppola fékk þá Óskarsverðlaunin sem besti leik- stjóri, framleiðandi og handritshöf- undur, og sama ár gerði hann The Conversation. Apocalypse Now, hið epíska verk um Víetnamstríðið, leit svo dagsins ljós árið 1979, og var Coppola tilnefndur til óskarsverð- launa sem framleiðandi, leikstjóri og handritshöf- undur. Næstu myndir hans voru sem fyrr segir heldur rislágar fyrir utan þriðju myndarinnar um Guðföðurinn, sem hann hlaut enn eina tilnefningu til Óskarsverðlaunanna fyrir, og gerðu þær lítið til að halda nafni Coppol- as á lofti sem kvikmynda- gerðarmanns i fremstu röð. Drakúla varpaði þó ljóma á nafn hans á nýjan leik og Jack hefur notið vinsælda frá því myndin var frum- sýnd í ágúst síðastliðnum. ROBIN Williams hóf feril sinn sem skemmti- kraftur í nætur- klúbbum og hef- ur hann gjarnan verið kallaður grínisti af guðs náð. I næturklúbbunum þró- aði hann sennilega fágæta hæfileika sína til að leika af fingr- um fram, en sagt er að hann njóti sín best þegar hann er ekki rígbundinn af því sem lagt er upp með í handriti, heldur sé gefið svigrúm til að breyta og bæta að eigin smekk. Oft á tíðum verður þetta með fyrirvaralausum uppákomum sem koma samleikurum hans jafnt og leikstjóra í opna skjöldu. þáttunum Happy Days, sem aft- ur varð þess valdandi að skapað- ir voru sjónvarpsþættirnir Mork and Mindy í kringum Williams. Um svipað leyti hófst ferill hans sem kvikmyndaleikari. Fyrsta myndin sem hann lék í hét Popeye og í kjölfar hennar komu The World According to Garp, The Survivors, Moscow on the Hudson og svo Good Morning, Vietnam, en fyrir þá síðastnefndu var hann í fyrsta skipti tilnefndur til Óskarsverð- launa. Upp frá því hefur hann einbeitt sér að kvikmyndaleik og leikið í úrvalsmyndum á borð við Dead Poet’s Society og The Grínisti af guðs náð Williams hefur leikið í tugum kvikmynda á löngum ferli sínum og meðal þeirra nýlegri má nefna myndirnar Aladdin, þar sem hann ljáði andanum rödd sína, Mrs. Doubtfire, Jum- anji og The Birdcage. Hann hefur einnig unnið til Grammy-verðlauna fyrir tvær hljóm- plötur (Reality - What a Concept og Robin Williams Live atthe Met), leikið í hinni vin- sælu sjónvarpsþáttaröð Mork and Mindy, leik- ið í fjölmörgum leikritum og skemmt með svokölluðu uppistandi (stand up). Hann fædd- ist í Chicago í Bandaríkjunum og stundaði leiklistarnám við Julliard-skólann í New York undir leiðsögn Johns Houseman. Uppistands- ferill hans hófst í San Francisco og var fljót- lega viðurkenndur sem einn besti gamanieik- ari Bandaríkjanna. Hann fékk hlutverk í sjón- varpsþáttum á borð við The Richard Pryor Show, The Great American Laugh-Off og Laugh-In. Frammistaða hans í þessum þáttum varð þess valdandi að hann fékk hlutverk í sjónvarps- Fisher King, en hann hlaut Ósk- arstilnefningar fyrir þær báðar. Einnig hefur hann leikið í mynd- unum Hook undir leiksljórn Stevens Spielbergs, Toys eftir Barry Levinson og Awakenings, en í henni Iék hann á móti Ro- bert De Niro. Williams hefur verið sérstaklega iðinn við kol- ann síðustu misserin og á þessu ári hefur hann leikið í sex mynd- um og unnið að gerð þriggja til viðbótar sem frumsýndar verða á næsta ári. Auk þess að leika í Jack og Birdcage, sem frum- sýnd var fyrr á árinu, lék hann í The Secret Agent, sem gerð er eftir sögu Josephs Conrads, Hamlet undir leikstjórn Kenn- eths Branaghs og Father’s Day, og loks léði hann rödd sína í teiknimyndina um Aladdin og konung þjófanna. Ungur í anda DRAUMUR hins tíu ára gamla Jacks um að ganga í skóla með jafnöldrum sínum rætist að lokum. J ACK er haldinn sjúkdómi sem veldur því að líkami hans eldist fjórum sinnum hraðar en eðlilegt er. JACK er einskonar dæmisaga um fallvaltleika lífsins, en í myndinni er heimurinn séður með augum tíu ára drengs (Robin Williams), sem fæðst hefur með þeim ósköpum að líkami hans eldist fjórum sinnum hraðar en venjulgt er. Jack lifir í heimi barnsins þó hann sé hnepptur í líkama fullorðins manns. Foreldr- ar hans, þau Brian (Brian Kerw- in) og Karen (Diane Lane), hafa lengst af haldið honum fjarri umheiminum, og hefur hann not- ið kennslu og leiðsagnar einka- kennarans hr. Woodruffs (Bill Cosby). En Jack vill lifa lífinu á sama hátt og öll eðlileg börn og hann dreymir um það að fá að ganga í skóla með jafnöldrum sínum. Að lokum fer svo að ósk- ir hans rætast og hann tekst á við mesta ævintýri lífs síns, nefnilega að byija í fimmta bekk í grunnskólanum. Leikstjóri Jack er Francis Ford Coppola og er myndin harla ólík þeim viðfangsefnum sem hann hefur tekið sér fyrir hendur hing- að til. Hann segir að verkefnið hafi boðið upp á ýmsa möguleika og kannski ekki síst þann að fá að starfa með Robin Williams, en það hafi hann lengi langað til að gera. Þeir voru þó alls ekki ókunnugir áður en gerð myndar- innar hófst, því vinátta þeirra nær langt aftur í tímann og eiga þeir saman veitingastaðinn Rubicon í San Francisco ásamt Robert De Niro. Coppola hreifst líka af verkefninu af persónuleg- um ástæðum sem tengjast barn- æsku hans, því níu ára gamall veiktist hann af lömunarveiki og þurfti að vera rúmliggjandi í eitt ár. „Mig hungraði í að leika mér við aðra krakka, og þegar ég las handritið að Jack þá snart það mig að hann átti.einmitt við sama vandamál að stríða,” segir Copp- ola. Robin Williams segir söguna um Jack einnig vekja upp minn- ingar um hans eigin barnæsku. Foreldrar hans voru lengi á far- aldsfæti og því þurfti hann oft að skipta um skóla. „Ég minnist þess að hafa verið beittur ofríki, og strákar hrintu mér gjaman til og frá,“ segir hann. „Handrit- ið vakti bæði upp góðar minning- ar og sársaukafullar minningar um að vera útundan og vinalaus, og síðan að ná tengslum við aðra hægt og með erfiðleikum." I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.