Morgunblaðið - 08.12.1996, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1996 41
BRÉF TIL BLAÐSINS
Kjarkmaður
Kolbeinn í Dal
Athugasemdir við greinina „Síðasti
bærinn í dalnum“
Frá Kolbeini Sigurbjörnssyni:
SUNNUDAGINN 24. nóvember
birtist í Morgunblaðinu grein undir
nafninu „Síðasti bærinn í Dainum".
Þar viðhefur Kjartan nokkur Helga-
son slík ummæli um langafa undir-
ritaðs að ekki verður hjá komist að
gera við þau athugasemdir og
mælst er til þess að þær verði birt-
ar í sunnudagsblaði Morgunblaðsins
í þeirri von að þær komi fyrir sjón-
ir sem flestra þeirra sem kunna að
hafa lesið greinina sem merkt var
sem viðtal Rúnars Vignis Helgason-
ar við Kjartan Helgason.
Afkomendur Kolbeins Jakobs-
sonar eru að vísu orðnir ýmsu van-
ir hvað varðar sögur af Kolbeini í
Dal, en hafa fram til þessa lítt hirt
um að gera við þær athugasemdir.
En nú þegar vegið er að mannorði
og æru látins manns verður ekki
þagað lengur.
Svo virðist sem meitluð ummæli
Magnúsar sýslumanns Torfasonar
er hann réttaði yfir Kolbeini, á þá
lund að kjarkmaður væri Kolbeinn
í Dal, hafi orðið svo fieyg við Djúp
að hver sögumaðurinn á fætur öðr-
um, allt fram á þennan dag, hefur
talið sér skylt að barna söguna þar
til fjöðrin var orðin að minnsta kosti
fimm hænum. Svo langt hefur sögu-
burðurinn gengið að ein útgáfan
var prentuð í árbók Ferðafélags
íslands, riti þar sem yfirleitt er
vandað til heimilda.
En nú tekur steininn úr. Sagan
er í meðförum Kjartans Helgasonar
og skrásetjara hans orðin á þá lund
að Kolbeinn hafi verið „kallaður
fyrir sýslumann út af þessum um-
svifum sínum, en sór af sér kvenna-
farið. Þá varð sýslumanni að orði:
Kjarkmaður Kolbeinn í Dal.“
Það er einkennilegur kjarkur að
sverja af sér hlutina!
Sögumaðurinn Kjartan Helgason
og skrásetjari Rúnar Helgi Vignis-
son setja fram í þessari blaðagrein
getsakir um að „Kolbeinn hafí losað
sig úr klípunni með því að láta
vinnumenn sína gangast við lausa-
leikskrógunum."
Ég held að öllum sögum af Kol-
beini, hversu vitlausar sem þær
annars eru, beri saman um að hann
hafí hiklaust og einarðlega gengist
við þeim bömum sem hann átti.
Þær umsagnir sem viðhafðar eru í
títtnefndu greinarkorni eru því í
einu orði sagt: Rógburður.
Mér finnst raunar að nóg sé
komið af söguburði um langafa
minn, og held að menn við Djúp
sem annars staðar ættu að fara
að leggja af skáldskapinn, og sjá
sóma sinn í því ef þeir á annað
borð finna hjá sér hvöt til að segja
eða skrá af honum sögur, að þeir
gæti þess að rétt og satt sé sagt
frá en láti ekki frá sér fara órök-
studda sleggjudóma og Gróusögur
á borð við þær sem bornar voru
fyrir lesendur í greininni „Síðasti
bærinn í dalnum“.
KOLBEINN SIGURBJÖRNSSON,
Lerkilundi 16, Akureyri.
Um „hvítar
fyllingar“
Frá Hannesi Ríkarðssyni:
TILEFNI þess, að ég rita þessar
línur, eru þær ótal spurningar sem
ég hef verið spurður um þetta efni.
Mér væri heldur ekki á móti skapi,
ef umræða á vitrænu plani hæfist
um þetta mál og önnur sem varða
tannlækningar. I gangi eru margar
tröllasögur um þennan geira heil-
brigðiskerfisins.
Það er deginum ljósari, að allir
vilja „eðlilegar" hvítar tennur, einn-
ig þær viðgerðu. Síðustu árin hefur
umræða um silfurfýllir.gar verið
hávær. 99% af þeirri umræðu hefur
verið á „Greenpeace-nótum" eða
eins og um trúmál væri að ræða.
Ekki ætla ég að rekja alla þá vit-
leysu, sem þar hefur verið rædd og
rituð, hér. Frekar vil ég benda á
möguleikana sem fyrir hendi eru í
dag og hvað þeir, um það bil, kosta.
Ollum almenningi er ljóst, að
hvítar plastfyllingar hafa verið not-
aðar í framtennur með góðum ár-
angri síðustu árin. Þegar ekki er
lengur hald fyrir fyllingar er smíðuð
postulínskróna. Krónur þessar eru
oftast gerðar úr málmkjarna sem
þakinn er postulínshúð. Málmlausar
krónur eru að ryðja sér til rúms.
Vandamálið liggur í meðhöndlun
jaxla og þá sérstaklega bakjaxla.
I dag er almennt notast við þrár
gerðir hvítra fyllingarefna. Tvær
þeirra, plastfyllingarefnin og gler-
jónaefnin eru mótaðar í tönninni
af tannlækni („blandað á staðn-
um“). Þriðja efnið er postulínið.
Postulínsfyllingar eru gerðar í
samvinnu við tannsmið og er þar
um sömu fyrirhöfn að ræða og hjá
krónunum. Gæði postulínsfyllinga
hafa aukist á undanförnum árum
en verðið hefur ekki lækkað. Þær
kosta í dag á bilinu 30-45.000 kr.
Hægt er að gera við alla stórar
skemmdir með postulínsfyllingum.
Gleijónaefnið er nýjast. Það hefur
þann eiginleika að gefa frá sér flú-
or. Því skemmist síður meðfram
fyllingum af þessu tagi. Gallinn er
bara sá, að slitstyrkurinn og brot-
styrkurinn er ekki nógur. Því er
þetta efni mest notað í tannhálsa
og sem undirfylling, auk þess er
það mjög oft upplagt í barnatenn-
ur. Plastfyllingarnar hafa tekið
stórstígum framförum en ekki nóg-
um samt. Vinnsla þeirra er vanda-
söm. Ekki er lengur deilt um notk-
un þeirra í litlum holum í bitflötum
fram- og bakjaxla, en þegar fyll-
ingin fer að ná yfir brúnir tann-
anna þá fara lærðir að deila. Deil-
an magnast, því innra sem komið
er í tannröðinni. Hér segja sumir
bara silfur eða postulín, aðrir nota
aldrei silfur og hinir vega og meta
eftir nefinu. Plast- og glerjónafyll-
ingar kosta frá 3-11.000 kr. og
fer það eftir staðsetningu og um-
fangi. Ljóst er að frá sjónarhóli
tannanna fylgja færri vandamál
silfrinu. Útlit þess og neikvæð
umræða hafa gert það að upp-
sprettu alls ills hjá sumum. Jafnvel
hafa sumir læknar stungið upp á
að bora út allt silfrið þegar þeim
hefur tekist illa upp við sjúkdóms-
greininguna. Ég hef engan hitt
enn, sem hlotið hfur bata af slíkri
meðferð. Plastfyllingarnar eru fal-
legar framan af og stundum lengi,
en að meðaltali endist silfrið leng-
ur. Mun fleira fólk hefur ofnæmi
fyrir plastefnunum en silfrinu.
Geri fólk sér grein fyrir annmörk-
um platsfyllinganna og sætti sig
við að þurfa að endurnýja þær oft-
ar en gamla silfrið er fátt sem
mælir gegn notkun plastsins.
Að lokum skal ítrekað, að stærð
og staðsetning holunnar ræður úr-
slitum um val á meðferð tannarinn-
ar.
HANNES RÍKARÐSSON,
Kjarrvegi 1, Reykjavík.
Lofgjörð fáfræðinnar
Frá Vilhelm Sigmundssyni:
Á LIÐNUM misserum hafa birst í
sunnudagsblaði Morgunblaðsins
pistlar eftir Einar Þorstein Ásgeirs-
son, hönnuð. Hafa þessir pistlar
verið hin- besta skemmtan og er
ljóst að þar er á ferð einn mesti
háðfugl þjóðarinnar. Er það von
mín að orð þessi megi verða til
þess að sem flestir fái að njóta
hinnar yfirgripsmiklu þekkingar og
djúpu visku sem Einar Þorsteinn,
hönnuður, augljóslega býr yfir, en
umfram allt hins leiftrandi húmors
og þeirrar stórkostlegu gamansemi
sem einkennir skrif hans. Hér væri
hægur vandi að nefna mýmörg
dæmi, en grein hans 17. nóvember
sl. um „vatnsbílinn“ kemur fýrst í
hugann, enda sýnir Einar þar ber-
lega undraverðan skilning á ýms-
um þeim náttúrulögmálum sem
misvitrir vísindamenn hafa í fá-
visku sinni talið sig þekkja út í
æsar; má þar til dæmis nefna lög-
málið um varðveislu orkunnar og
annað lögmál varmafræðinnar.
Ekki einasta eru pistlar Einars
ritaðir á svo frábærri íslensku að
hugsanlega fer það fram hjá les-
endum að efni þeirra er þýtt beint
úr erlendum málum án þess að
gagnrýnin rökhugsun hafí komið
þar nærri, heldur tekst Einari svo
snilldarlega upp í stíl og framsetn-
ingu að það er jafnvel möguleiki
að fáfróðir lesendur Morgunblaðs-
ins, eins virtasta dagblaðs lands-
ins, láti blekkjast af gríninu og
haldi að hér sé rætt um hluti eins
og orkuvinnslu bílvéla úr vatni eða
grunneðli lífvera af skynsemi og
þekkingu. Hér kemur einmitt ber-
lega í ljós færni Einars sem grín-
ista: Velflestir lesendur láta gabba
sig og telja að hér sé um hlutina
rætt í fullri alvöru meðan aðeins
örfáir skilja húmorinn og hlæja
með Einari að hinum auðtrúa og
fáfróða almúga; vita sem er að
sögur um eilífðarvélar hafa löng-
um þótt trúlegar, svo dæmi sé
tekið. Aðalbrandarinn er þó sá að
sjálft Morgunblaðið lætur hafa sig
að fífli og féþúfu.
Það er vissulega algeng sjón að
sjá athygliþurfandi og auðtrúa ein-
staklinga með of mikinn frítíma
setja saman - að því er virðist
gripnar úr lausu lofti - „nýjar
uppgötvanir" og „kenningar" í
stórkostlegu þekkingarleysi um
bæði grunneðli vísinda og grund-
vallarþekkingu nútímans. Þetta
eru gjarnan augljós fyrirbæri sem
mörgum kynslóðum þröngsýnna
vísindamanna hefur yfírsést þrátt
fyrir að viðkomandi tilraunir megi
jafnan gera með einföldustu tækj-
um og eldhúsáhöldum. En svo er
aldeilis ekki háttað með Einar
Þorstein, hönnuð.
Þeir sem fylgst hafa með skrif-
um Einars skilja mætavel hvað
hér er átt við, því fáar fræðigrein-
ar nútímavísinda hafa sloppið við
beitt háð hans; sér í lagi er snilld
hvernig Einari tekst að ýja að
dularfullum samsærum og hinum
velþekkta blekkingarvef vísinda-
manna sem teygir sig um öll
skúmaskot nútíma þekkingar. Þeir
sem skilja ekki gamansemi Einars
halda að hann sé að skrifa um
málefni sem hann veit ekkert um
og þykir ef til vill sem skrif hans
séu svo óhugnanlega úr tengslum
við raunveruleikann að helst mjnni
á ævintýr Munchausens. Jafnvel
hafa manna á meðal vaknað upp
spurningar um hvað þessi skrif
Einars séu að gera á síðum jafn
ábyrgs prentmiðils og Morgun-
blaðsins, sem ætla mætti að hefði
ákveðnum skyldum að gegna
gagnvart lesendum sínum á þann
veg að þar birtist ekki hvaða vit-
leysa sem furðufuglum útí bæ
dettur í hug að senda blaðinu.
Sumir geta ómögulega skilið hvað
ritstjórn Morgunblaðsins gengur
til, að kveðja skynsemina með svo «*>
afgerandi hætti, því það hljóti að
vera sjálfsögð krafa að dálkahöf-
undar vandi til verka og láti ekki
frá sér texta sem svo augljóslega
er gripinn beint úr erlendum
tungumálum að sárt er að lesa.
Og burtséð frá málfari þykir ýms-
um lesendum einnig lágmarks-
krafa að ritstjórn blaðs á borð við
Morgunblaðið - blað allra lands-
manna - hlífí lesendum sínum við
augljósum rangfærslum og bein-
um ósannindum.
En þeir sem gagnrýna Einar
Þorstein, hönnuð, á þessum mis-
skildu forsendum eru augljóslega
að gelta upp eftir röngu tré þvt^r
það er Einar sjálfur sem hlær síð-
ast og best. Hann veit sem er að
Galileo Galilei (1564-1642) var
misskilinn af þorra sinna samtíðar-
manna og eins er farið með Einar;
líkt og Galileo var misskilinn snill-
ingur þá er Einar Þorsteinn, hönn-
uður, líka misskilinn snillingur. En
svo virðist sem snilligáfa hans sé
einkum á sviði gamanseminnar.
VILHELM SIGMUNDSSON,
pizzusendill, ^
Hraunbæ 74, Reykjavík.
Það er alltaf gaman að eiga fallega borðstofu ef gesti
ber að garði. f Húsgagnahöllinni ertil mikið og breitt
úrval af fallegum borðstofum frá Evrópu og Ameríku.
-Sjón er sögu ríkari-
Tegund. Arlington Borðstofusett með 2 armstólum og 4 stólum án arma,
Veggskáp með glerhurðum og skenk.
Kr. 381.640,-
Vcrið vclkomiti til okkar.
Alltaf heitt á könnunni og næg bílastæði.
Opið í dag Sunnudag frá kl. 13-18
Munið okkar góðu greiðslu-
kjör til margra mánaða.
V/SA
HÚSGAGNAHÖLLIN
Bíldshöfði 20-112 Rvik - S:587 1199