Morgunblaðið - 08.12.1996, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 08.12.1996, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1996 51 j ] I 3 í : < I i i i ( ( ( í I ÍÞRÓTTIR KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN 2002 Havelange óánægður með fyrirkomulagið Joao Havelange, forseti Alþjóða knattspyrnusambandsins, seg- ist ekki vera ánægður með þá ákvörðun að HM í knattspyrnu árið 2002 verði leikin í tveimur löndum, Japan og S-Kóreu. Hann segir ákvörðunina hafa tengst stjórnmál- um og það séu bæði gömul sann- indi og ný að stjórnmál og íþróttir fara ekki saman. „Það sem er gott í stjórnmálum er ævinlega slæmt fyrir íþróttir,“ segir Havelange. „Hvernig á að skipta liðunum á milli landanna?" spyr hann einnig. „Allir vilja sjá Brasilíu, Ítalíu, Arg- entínu, Þjóðveija og jafnvel Níger- íu. Það verður ekki auðvelt að skipta þessum þjóðum á milli landanna og hver á að gera það. Á kannski að gera það í drættinum." Þá hefur Alþjóða knattspyrnu- sambandið einnig til athugunar að draga knattspyrnu út sem keppnis- grein á Ólympíuleikum. Havelange sagði knattspyrnuna ekkert hafa hagnast fjárhagslega á því að vera keppnisgrein á Ólympíuleikum. „Á Ólympíuleikunum í Atlanta var leik- ið út um allt land, enginn leikur fór fram í Atlanta. Áhorfendur voru 1,4 milljónir, sem er meira en aðrar íþróttir drógu að sér til samans og við fengum ekkert í staðinn." Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson UEFA vill vemda yngri leikmenn Fengu gull- úr fyrir 20 landsleiki VANDA Sigurgeirsdóttir, lands- liðsþjálfari, lék 37 landsleiki í knattspyrnu og Ásta B. Gunn- laugsdóttir 26 leiki og fengu þær gullúr frá KSÍ fyrir. A ársþingi sambandsins fengu fjórar stúlk- ur sams konar viðurkenningu fyrir að hafa farið yfir 20 leikja markið. Á myndinni eru þær f.v.: Ásthildur Helgadóttir (22 leikir), Ragna Lóa Stefánsdóttir (29), Guðrún Sæmundsdóttir (36) og Margrét Ólafsdóttir (23). Framkvæmdanefnd Knatt- spyrnusambands Evrópu, UEFA, hefur lagt til að félög geri langtímasamning við yngri leikmenn og að þeir verði samningsbundir fyrsta félagi þar til þeir verði 24 ára. Hugs- unin með þessu er að vernda minni félög og tryggja að þau fái greiðslur fyrir unga og efni- lega leikmenn sé sóst eftir þeim. „Hugmyndin með tillögunni er að félög, sem hafa eytt pen- ingum og tíma í að byggja upp unga leikmenn, geti haldið þeim á samningi lengur en þau geta samkvæmt gildandi fyrirkomu- lagi,“ sagði Markus Studer, að- stoðarframkvæmdastjóri UEFA. „Vilji leikmaður yngri en 24 ára taka tilboði annars staðar frá fær félag hans greitt fyrir hann samkvæmt tillögunni.“ Morgunblaðið/Golli Ómar og „Gulldrengirnir“ MANNLÍFSSTIKLUR eftir Ómar Ragnarsson, fréttamann, eru komnar út. Þetta er fimmta bók Ómars, tvær þær síðustu voru Manga með svartan vanga og Fólk og firnindi. Bókin Mannlífs- stikiur, sem Fróði gefur út, hefur undirtitilinn: Spámaðurinn, gulldrengirnir og fleira fólk. Bók- in er 317 blaðsíður, prýdd fjölda mynda. Ómar býður lesendum með sér í ferðalag og fer fram og aftur. Fyrst greinlr frá Oskari Magnússyni á Helllsheiðl og þá segir Ómar ítarlega frá af- reksmönnum í íþróttum - „gulldrengjunum'* svokölluðu. Þeir sem koma mest við sögu eru Örn og Haukur Clausen, Gunnar Huseby, Finnbjörn Þorvaldsson, Hörður Haraldsson, Ásmund- ur Bjarnason, Torfi Bryngeirsson og Guðmundur Lárusson. Á myndlnnl hér fyrlr ofan er Omar með okkrum „Gulldrengjum" sem koma við sögu - frá vinstri: Hörður, Guðmundur, Magnús Jónsson, Ásmundur, Omar, Örn, Haukur, Finnbjörn og Guðmundur, sonur Torfa heitins. JðLAFERfl Síðasta helgarferðin i ar Örfá sæti laus vegna forfalla WS4 EURQCARD Jl? W/ðSÍ jjy/UA, • Sdmviiiiiiifepðir-Laiiilsýii Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 5691010 • Simbrél 552 7796 og 5691095 Telex 2241 • Innanlandsferðir S. 5691070 Hótel Sögu við Hagatorg • S. 562 2277 • Sfmbréf 562 2460 Hatnarfjöröur: Bæjarhrauni 14 • S. 565 1155 • Símbréf 565 5355 Keflavík: Hafnargðtu 35 • S. 421 3400 • Sfmbréf 421 3490 Akranes: Breiðargðtu 1 • S. 431 3386 • Simbréf 4311195 Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 462 7200 • Simbréf 461 1035 Vestmannaeyjan Vestmannabraut 38 • S. 481 1271 • Simbrél 481 2792 Einnig umboðsmenn um land allt HVÍTA HÚSIÐ / SÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.