Morgunblaðið - 16.02.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1997 B 11
DÆGURTÓIMLIST
Ferskur David Bowie í nýju
gervi; táknrænt fyrir ástandið í
bresku þjóðlífi.
TÓNLIST UR NORÐURKJALLARA
EINN HELSTI tónleika-
staður höfuðborgarinnar,
Norðurkjallari Menntaskól-
ans við Hamrahlíð, lætur
ekki mikið yfir sér, en þó
hafa þar verið haldnir marg-
ir merkustu tónleikar neð-
anjarðarsveita síðustu miss-
era. Til að fagna því halda
aðstandendur mikla tón-
leikahátíð sextán sveita í
kjallaranum næstkomandi
föstudag og verða þeir tón-
leikar hljóðritaðir til útgáfu
í vor.
Bogi Reynisson verður
fyrir svörum þegar
leitað er eftir upplýsingum
um væntanlega tónleika og
segir að líflegt starf
Norðurkjallarans sé helst
til komið vegna áhuga
nemenda á öflugu tónleika-
haldi, aukinheldur sem
góður skilningur hafi verið
fyrir hendi hjá skólayfir-
völdum.
„Það hjálpar líka að í
Norðurkjallaranum er frá-
bær tónleikaaðstaða og
mæting hefur yfirleitt verið
góð,“ segir Bogi, „þó hún
sé vitanlega misjöfn eftir
hljómsveitum, sumar sveit-
ir, eins Ham sáluga,
sprengja utan af sér húsið
á hverjum tónleikum en
minni sveitir fá kannski
nokkra tugi áheyrenda,“
segir Bogi en skemmst er
að minnast pönkhátíðar-
innar Pönk ’97, sem haldin
var í Norðurkjallaranum
með miklum bravúr um
miðjan janúar og komust
færri að en vildu.
„Tónleikarnir á föstudag
eru ekki síst til þess að
draga athyglina að minna
þekktum hljómsveitum,"
segir Borgi, en verst allra
frétta af því hvaða sveitir
muni spila.
„Það er ekki fullákveðið
enn, en það verður stans-
laust straumur sveita á
svið allt kvöldið og eins og
komið hefur fram verða
tónleikarnir hljóðritaðir og
stendur til að gefa út úrval
laga í apríl.“
MITUPAC Shakur var
skotinn til bana seint á síð-
asta ári eins og mörgum er
í fersku minni. Móðir hans,
Afeni, stendur nú í stappi
við útgáfu Shakurs, Death
Row, og hefur krafið hana
um milljón dali vegna sölu
á ýmsum varningi með
nafni Shakurs. Fleiri vilja
þjarma að eiganda Death
Row, Marion „Suge“
Knight, því nú stendur op-
inber rannsókn á fyrirtæk-
inu vegna gruns um ýmsa
glæpastarfsemi. Skammt er
síðan Knight var sakfelldur
fyrir að hafa rofið skilorð
vegna níu ára fangelsis-
dóms sem hann hlaut fyrir
alvarlega líkamsárás fyrir
Ljósmynd/Katrin Eliasdóttir
Aðstandendur TÚNS,
Tónlistarúr Norður-
kjallara, Örvar, Haukur
Már, Björn, Valgerður,
Stefán Ingi og Bogi.
hálfu öðru ári, en þá
hamaðist Knight að tveimur
ungum röppurum. Skilorðið
rauf hann með því að mæta
ekki í lyfjapróf, sem þó var
skylda í ljósi dómsins, og
að lenda í handalögmálum
við ónefndan mann í Las
Vegas kvöldið sem Shakur
var veginn. Knight heldur
fram sakleysi sínu en þegar
dómarinn sá myndbands-
upptöku af atburðinum, og
fór ekki milli mála að
Knight var að sparka í liggj-
andi mann, sagði hann
Knight alræmdan ofstopa-
mann sem væri best
geymdur á bak við lás og.
slá. Málið verður tekið fyrir
annan föstudag og segja
lögvísir að Knight megi
búast við fimm til níu ára
fangelsisdómi. Annað skil-
orðsbrot bíður umsagnar
dómara, en það er vegna
dóms sem Knight hlaut fyr-
ir tveimur árum vegna skot-
vopnabrasks. Lögmaður
Knight segist undrandi á
umstanginu; Suge Knight
sé stólpi samfélagsins, góð-
ur við fátæka, liðtækur í
kirkjukórnum og að auki
hafi hann bara verið að
stilla til friðar, því honum
þyki ekkert eins miður og
að horfa upp á lita beijast
við lita.
Enn dtt stökídð
tugur. ólíkt öðrum rokkstjömum sem náð hafa svo
virðulegum aldri er Bowie langt frá því að gefast upp
á tónlistinni eða fastur í gömlum lummum eins og
sannast á nýútkominni breiðskífu hans Earthling, en
i kjölfar skífunnar hyggst hann halda f heimsreisu.
Iupphafi þessa áratugar
var sem David Bowie
hefði beðið sama listræna
skipbrotið og flestir jafn-
wmmmmmmmm aldrar
hans.
Breið-
skífuna
Never
Let Me
Down,
sem
eftir Amo kom út
MatthíQsson 1987
má telja með lélegustu
plötum níunda áratugar-
ins og Tin Machine-sam-
starfið sem fylgdi í kjöl-
farið var hreinræktaður
hryllingur, ekki síst tón-
leikaplatan sem sveitin
sendi frá sér í lokin. Sjálf-
ur segist Bowie hafa ver-
ið að því kominn að setj-
ast í helgan stein undir
lok síðasta áratugar, en
Reeves Gabrels, sem
stofnaði með honum Tin
Maehine, kveikti aftur
með honum áhuga á tón-
list. í dag segir Bowie að
Tin Machine hafi verið
nauðsynleg meðferð fyrir
tónlistarmann sem gefist
hafði upp á tónlist. Breið-
sklfa síðasta árs, Outside,
sem Bowie kynnti meðal
annars hér á landi, kom
slðan skemmtilega á
óvart fyrir frumleika og
ferskar hugmyndir, og
fyrir stuttu kom út áður-
nefnd Earthling sem
sannar að hann hefur náð
áttum.
í nýlegu viðtali við
breska tónlistartímaritið
Q lýsir Bowie því að hon-
um hafi þótt svo gaman
á Outside-tónleikaförinni
að hann skellti sér í hljóð-
ver um leið og tónleika-
haldi lauk til að taka upp
nýja breiðskífu, enn með
Gabrels á gítar. Varla var
búið að hljóðblanda þá
skífu að Bowie lagði aftur
upp og framundan er
mikil heimsreisa.
Á plötunni nýju má
heyra að Bowie hefur tek-
ið enn eitt stökkið framá-
við í tónlist; fer ekki á
milii mála að hann hefur
dregið líka ályktun af þró-
un síðustu missera og U2;
áttað sig á að næstu ár
eiga eftir að markast af
danstónlist. Þannig er að
fmna á Earthling ýmisleg
jungle-krydduð lög í
bland við hefðbundnari
Bowie-tónsmíðar. Fyrstu
merki um nýja tíð var
smáskífan Telling Lies,
sem gefin var út á alnet-
inu I þremur útgáfum, en
Little Wonders, sem
magnað myndband er við,
gerir einmitt góðlátiegt
grín að hinum gamla
Bowie eins og sjá má í
myndbandinu, um leið og
það er einskonar úttekt á
tónlistarlífi Bretlands í
dag. Aðal plötunnar er
kannski vísanir í eldri
verk, settar fram af gam-
ansemi; greinilegt að
Bowie hefur sæst við fyrri
gervi, þó hann segi í áður-
nefndu viðtali að hann
muni lítið frá sumu því
sem hann hefur sent frá
sér. Meðal annars segist
hann hafa hlustað á Stati-
on to Station sem væri
hún eftir annan tónlistar-
mann og líkað vel. David
Bowie er því búinn að
hreinsa til á háaloftinu
og sanna að hann hefur
enn sitthvað að segja.
UFREMSTI rappflokkur
Bandaríkjanna er án efa
Wu-Tang gengið frá Stat-
en Island í New York, sem
hann kallar reyndar Shaol-
in. Undanfarin ár hefur
hver gullskífan af annarri
komið frá Wu-Tang liðum,
en veldi hans hófst með
breiðskífunni 36 Charn-
bers fyrir margt löngu. Sú
fór hægt af stað en tók
síðan flugið og seldist í
bílförmum þegar upp var
staðið. Sólóskífur liðs-
manna flokksins hafa og
selst vel, allar náð gullsölu.
Annarrar breiðskífu Wu-
Tang-flokksins hefur verið
beðið með mikilli óþreyju
og loks hillir undir hana
því síðustu fréttir herma
að hún komi út í marslok,
verði tvöföld og heiti Wu
World Order. Meira Wu-
Tang efni er í burðarliðn-
um, því ný skífa frá Meth-
od Man er væntanleg með
vorinu og O’l Dirty Bast-
ard, sem heitir nú Osiris,
sendir einnig frá sér skífu
á árinu ef að líkum lætur,
aukinheldur sem fleiri fé-
lagsmenn hyggja á útgáfu.
Það hefur reyndar gengið
fjöllunum hærra að O’l
Dirty Bastard/Osiris verði
ekki með á skífunni tvö-
földu, en fæst ekki stað-
fest.
~ J V. *,?