Morgunblaðið - 16.02.1997, Side 13

Morgunblaðið - 16.02.1997, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1997 B 13 . HEIMA í ELDHÚSI. Yfirleitt er Ingibjörg, mamma Kalla, ekki heima á daginn þegar hann kemur heim úr skólanum heldur sér aðstoðarkona um að taka á móti honum og vera með honum fram eftir degi. Hér er verið að mata Kalla sem er duglegur að borða en einn af uppáhaldsréttum hans er Engjaþykki. VERKEFNAVINNA í SKÓLANUM. Einbeitingin skín úr svip Kalla þegar hann glímir við að lesa og tengja saman orð og myndir undir hand- leiðslu Helgu Ragnheiðar Gunnlaugsdóttur sérkennara. færið og sögðum að þau yrðu að tala lægra. Einhvem veginn hefur þetta þróast í átt að rólegri og yfir- vegaðri umgengni." Jákvæðari nemendur í fyrra var lögð fyrir viðhorfs- könnun af sálfræðingi fræðsluskrif- stofunnar. Var hún gerð yfir allan skólann. Þar var spurt hvernig nem- endum liði innan og utan skóla, hvort vinnufriður væri í skólastof- unni, spurt var um stríðni o.fl. í ljós kom að útkoman í 4. 25 stakk mjög í stúf við aðra bekki. Krakk- arnir þar sögðu að alltaf væri vinnu- friður í skólastofunni og þau lenda mjög lítið í útistöðum frammi á gangi eða úti á skólalóð. „Þau virð- ast því forðast árekstra og taka tillit hvert til annars. Þessi dýr- mæta reynsla á eftir að koma þeim betur áfram í lífinu," segir Ingi- björg Haraldsdóttir og bætir við að ekki megi gleyma því að þegar ró og næði sé í tímanum fái þau betri kennslu, því kennarinn hafi meiri tíma til að sinna þörfum þeirra. Þess má einnig geta að frammi- staða 4. 25 í samræmdum prófum í haust var til fyrirmyndar. Þar komu skólar í nágrenni Reykjavíkur best út, en 4. 25 var fyrir ofan meðallag þar. Vinir í heimsókn Nú er skóladeginum lokið og Kalla er ekið heim í bíl ferðaþjón- ustu fatlaðra. Þar tekur Dalrós Halldórsdóttir á móti honum og er með honum fram til klukkan fimm en Helga Hjálmarsdóttir félagsráð- gjafi er með Kalla hluta úr laugar- degi eða sunnudegi. Dalrós segir að þá daga sem vin- ir Kalla koma ekki í heimsókn eða hann fer ekkert út, t.d. vegna færð- ar, þá spili þau, tefli eða hún lesi fyrir hann. Þeim virðist aldrei leið- ast. Kalla finnst þó skemmtilegast þegar hann fær heimsókn og þegar blaðamaður var staddur á heimili hans eftir skóla komu einmitt þeir Villi, Fúsi og Stefán. Eitt sinn þeg- ar litið var inn í herbergi Kalla lá hann á dýnu á gólfinu og vældi, en Villi var ekki lengi að bæta úr því. „Jæja, Kalli, eigum við að koma í slag?“ sagði hann, henti sér á gólfið, tók hönd Kalla og setti hana utan um háls sér. Síðan hófst „slag- urinn“ og ekki var annað að sjá en báðir skemmtu sér hið besta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.