Morgunblaðið - 16.02.1997, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1997 B 25 ■
Kynningar og sala
Snyrti- og/eða förðunarfræðingur, vanur sölu-
störfum, óskast til sölu- og kynningarstarfa
í snyrtivöruverslanir og apótek.
Um hlutastarf er að ræða.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
20. febrúar, merktar: „Sjálfstæð - 1134“.
Tölvukennari
- einkaskóli
Einn stærsti tölvuskóli landsins óskar eftir
tölvukennara.
Umsóknum skal skila til afgreiðslu Mbl. fyrir
26. febrúar nk., merktar: „Tölva - 2000“.
Lögfræðingur
Laus er til umsóknar staða löglærðs fulltrúa
við embætti sýslumannsins á Blönduósi.
Umsóknarfrestur er til 25. febrúar 1997.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
sem allra fyrst.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður í
síma 452 4157.
Blönduósi, 13. febrúar 1997.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
Kjartan Þorkelsson.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
óska að ráða eftirtalið starfsfólk í neðan-
greindan leikskóla:
Ösp/lðufelli
Þroskaþjálfi óskast í 100% stöðu.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Kristín
Sæmundsdóttir, í síma 557 6989.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími552 7277.
Bókhald
Sterkt innflutningsfyrirtæki á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu óskar eftir að ráða manneskju til
starfa. Starfið felst í að færa bókhald og að
sjá um innheimtumál fyrirtækisins, en að
auki vinna létt skrifstofustörf. Reynsla nauð-
synleg. Viðkomandi þarf að hafa gott við-
mót, vera samvinnufús og tilbúin(n) að tak-
ast á við krefjandi starf með ábyrgð.
Tungumálakunnátta í ensku og einu norður-
landamáli æskileg. Tölvukunnátta í ritvinnslu
og töflureikni skilyrði. Starfið er 50% starf
og vinnutími er samkomulagsatriði. Vinnu-
staðurinn er reyklaus. Starfsbyrjun er sam-
komulagsatriði. Farið verður með allar um-
sóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum
verður svarað.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. merktar:
„Töluglöggur einstaklingur - 567“.
KÓPAVOGSBÆR
Starfsmaður
á Félagsmálstofnun Kópavogs
Félagsmálastofnun Kópavogs óskar eftir að
ráða starfsmann í hálft stöðugildi við rekstr-
areiningu stofnunarinnar. Leitað er eftirtölu-
glöggum einstaklingi með góða þekkingu í
rekstri, bókhaldi og tölvunotkun. Um ræðir
fjölbreytt og krefjandi starf í góðu og
skemmtilegu starfsumhverfi.
Nánari upplýsingar veitir yfirmaður fjöl-
skyldudeildar og félagsmálastjóri
í síma 554 5700.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar nk. og
skal umsóknum skilað í afgreiðslu Félags-
málastofnunar.
Starfsmannastjóri.
Ritari
Vanur ritari óskast. í hlutastarf strax.
Þarf að hafa góða íslenskukunnáttu og vera
töluglöggur. Reyklaus vinnustaður.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
20. febrúar nk., merktar: „Rit - 616“.
Sjúkranuddari
Löggildur sjúkranuddari óskast á Sjúkra-
nuddstofu Akureyrar sem fyrst.
Upplýsingar í síma 462-5530 milli kl. 12-13
virka daga.
Lögmenn/
lögg. fasteignasalar
Fasteignasala óskar eftir samstarfsmanni og
samnýtingu húsnæðis með lögmanni eða
löggiltum fasteignasala. Einnig kemur til
greina að ráða lögg. fasteignasala sem sölu-
mann. Farið verður með allar fyrirspurnir
sem trúnaðarmál.
Áhugasamir leggi inn nafn og síma á af-
greiðslu Mbl. fyrir 20. feb., merkt:
„Samstarf".
Prentþjónustu-
fyrirtæki í London
óskar eftir Mac snillingum í skönnun/Photos-
hop og Mac/PC fólki með Quark, lllustrator,
Freehand og Photoshop kunnáttu. Gott auga
fyrir lit, reiprennandi enska og reynsla af filmu-
vinnslu er æskileg. Kaup fer eftir reynslu.
Viðtöl fara fram í Reykjavík 1 .-2. mars.
Sendið starfsferilsskrá (Curriculum Vitae) til
Kathleen Hall, P.O. Box 6559, London N3
1HB, England. Faxið til 00 44 181 343 2186
eða e-mail global@dircon.co.uk.
Árbæjarsafn
Sumarstarfsfólk
Óskað er eftir starfsfólki við gæslu safnhúsa
og leiðsögn frá júníbyrjun til ágústloka.
Bæði er um að ræða heilsdagsstörf og
helgarafleysingar.
Þekking á sögu Reykjavíkur og/eða hinum
ýmsu handiðnum æskileg.
Umsóknarfrestur er til 3. mars.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á
skrifstofu safnsins á virkum dögum frá
kl. 8-16. Sími 577 1111.
Landvarsla 1997
Náttúruvernd ríkisins auglýsir eftir landvörð-
um til starfa á eftirtöldum stöðum sumarið
1997: Þjóðgarðinum í Skaftafelli, þjóðgarðin-
um í Jökulsárgljúfrum, Mývatnssveit, Herðu-
breiðarfriðlandi og Öskju, Hvannalindum,
Lónsöræfum, Friðlandi að Fjallabaki, Gull-
fossi og Geysi, Hveravöllum, Búðum og
ströndinni við Stapa og Hellna, Vatnsfirði
og Hornströndum. Landvarsla verður á tíma-
bilinu 1. júní til 31. ágúst.
Þeir einir verða ráðnir landverðir, sem lokið
hafa námskeiði í landvörslu.
Umsóknarfrestur er til 7. mars.
Frekari upplýsingar er að fá á skrifstofu
Náttúruverndar ríkisins í síma 562 7855.
„Au pair“
Skemmtileg 4ra manna fjölskylda (tvö stálp-
uð börn) í Reykjavík, óskar eftir „au pair“,
íslenskri eða erlendri. Verður að hafa bíl-
próf. Létt hússtörf og matreiðsla. Ráðning
sem fyrst. Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl.
merktar: „AU - 1420“. Öllum umsóknum
svarað.
Sölumaður
Öflugt fyrirtæki á sviði upplýsingamiðlunar
óskar eftir sölumanni til starfa strax.
Sjálfstæð vinnubrögff, eigin bifreið og hæfni
til að skila árangri í starfi eru nauðsynlegir
kostir umsækjanda. Boðið er upp á góða
vinnuaðstöðu, námskeið og laun við hæfi.
Umsóknir sem kynna söluhæfileika viðkom-
andi, sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
föstudaginn 10. janúar nk., merktar:
„Framtíð - 1997“.
Skrifstofustjóri
Búðahreppur auglýsir eftir skrifstofustjóra á
skrifstofu Búðahrepps.
Laun fara eftir kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og FOSA.
Skriflegar umsóknir, þar sem greinir frá
menntun og fyrri störfum, sendist skrifstofu
Búðahrepps, Hafnargötu 12,
750 Fáskrúðsfirði.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar 1997.
Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri
Búðahrepps í síma 475 1220.
Sveitarstjóri.
Kvennakór Reykjavíkur
Stjórnandi
Kvennakór Reykjavíkur óskar að ráða stjórn-
anda frá og með haustinu 1997.
Kórinn hefur starfað í fjögur ár og hefur frá
upphafi staðið fyrir blómlegu starfi. Félagar
í Kvennakór Reykjavíkur eru nú um 120 tals-
ins.
Æft er tvisvar í viku, auk þess sem kórinn
heldur tónleika reglulega og stendur fyrir
öðrum uppákomum.
Skriflegum umsóknum, með upplýsingum
um menntun, reynslu og fyrri störf, skal skila
í afgreiðslu Mbl., merktum: „K - 1464“, fyrir
28. febrúar nk. Öllum umsóknum verður
svarað og farið með sem trúnaðarmál.
Kvennakór Reykjavíkur.
Sölufulltrúi
Sæplast hf. óskar eftir að ráða
sölufulltrúa í sölu- og markaðsdeild
fyrirtaekisins.
í starfinu felst m.a. sala og ráðgjöf til
I—a»éi viðskiptavina fyrirtækisins bæði
51X6r|<9m51; innanlands og erlendis.
Sæplast hf.er framsækiö Krafist er góðrar menntunar, þekkingu
fyrirtækiiplastiönaöi. g sjávarútvegi og fiskvinnslu auk
Framleiösla fyrirtækisins góðrar tungumálakunnáttu.
er seld um allan heim og
erþvilögö mikiláhersla Upplýsingar veitir Gylfi Dalmann.
á atþjóöteg viöskipti.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir
til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.
merktar „Sölufulltrúi 089" fyrir
24. febrúar n.k.
Hagvangur hf
Skeifan 19
108Reykjav(k
Sími: 581 3666
Bréfsími: 568 8618
Netfang:
hagvang@tirÆkyrr.is
Veffang:
httpý/www.apple.is
/hagvangur
HAGVANGUR RAÐNINGARÞJÓNUSTA
Rótt þekking ó róttum tíma
-fyrir rétt fyrirtæki