Morgunblaðið - 21.02.1997, Page 1

Morgunblaðið - 21.02.1997, Page 1
72 SIÐUR B/C 43. TBL. 85. ÁRG. FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Kínveijar taka andláti Deng Xiaopings með stillingu — útför hans gerð á þriðjudag Lítil hætta talin á mikilli valdabaráttu á næstunni Peking, Hong Kong. Reuter. KÍNVERJAR syrgðu í gær leiðtoga sinn, Deng Xiaoping, manninn sem lyfti þeim úr fátækt og gerði Kína að efnahagslegu stórveldi. Athygli vekur þó hvað landsmenn hafa tekið fráfalli hans með mikilli stillingu og er það meðal annars haft til marks um þá breytingu, sem orðið hefur á kínversku samfélagi á síðustu árum. Fréttaskýrendur telja lítil líkindi á valdabaráttu í Kína á næstunni en það þykir nokkur vísbending um sterka stöðu Jiang Zemins forseta, sem Deng vildi, að tæki við foryst- unni, að hann var skipaður formaður nefndar, sem mun sjá um útför Dengs á þriðjudag. Yfirvöld í Kína hafa fyrirskipað sex daga þjóðarsorg og fánar voru í hálfa stöng á opinberum bygging- um. Að öðru leyti gekk flest sinn vanagang og einkareknir markaðir voru opnir. Sögðu sumir, að það væri engin óvirðing við manninn, sem hefði brotið hlekki maótímans og iýst yfir, að það væri eftirsóknar- vert að verða ríkur. Minningarathöfn um Deng verð- ur í Alþýðuhöllinni í Peking á þriðju- dag að viðstöddum 10.000 manns en að kínverskum sið verður fulltrú- um erlendra ríkja ekki boðið til hennar. Viðhöfnin verður þó meiri en Deng vildi sjálfur en lík hans verður brennt og öskunni kastað á sjó að hans ósk. Ánafnaði líffæri í bréfi, sem ekkja Dengs og börn hafa sent Jiang forseta, segir að hann hafi óskað eftir því, að horn- himnur augnanna yrðu gefnar augnbanka og jafnvel önnur liffæri nýtt til læknisfræðilegra rann- sókna. Jiang Zemin verður formaður 459 manna útfararnefndar og hann þyk- ir líklegastur til að taka við leiðtoga- embættinu en hugsanlegir keppi- nautar hans eru til dæmis þeir Qiao Reuter OFT er margt um manninn á Tiananmen-torgi í Peking þegar þjóðfáninn er dreginn að húni snemma morguns og svo var einnig í gær. Það kom þó mörgum á óvart, að fáninn skyldi fyrst dreginn að húni og síðan í hálfa stöng en fæstir höfðu þá frétt af því, að Deng Xiaoping hefði látist um nóttina. Á minni myndinni er verið að minnast Dengs i borginni Shenzhen í Suður-Kína. Shi, fyrrum yfírmaður öryggislög- reglunnar og núverandi forseti kín- verska þingsins, og Li Peng forsæt- isráðherra. Li Lanqing, varaforseti Kína, lýsti í gær yfír stuðningi við Jiang sem arftaka Dengs og benti á, að á síðasta áratug hefði þjóðar- framleiðslan í Kína tvöfaldast og hún hefði tvöfaldast aftur á fyrra helm- ingi þessa áratugar. Þakkaði hann Jiang þann árangur. Samvirk forysta Winston Lord, fyrrverandi sendi- herra Bandaríkjanna í Kína, spáði því í gær, að þing kínverska komm- únistaflokksins í október í haust myndi staðfesta, að Jiang væri „fremstur meðal jafningja". Hann myndi hins vegar aldrei fá ráðið jafn miklu og Deng og Maó áður, heldur yrði hann aðeins formaður í eins konar tæknikratanefnd. í Hong Kong þar sem dauða Dengs hafði verið beðið með nokkr- um kvíða hafði hann þó lítil áhrif þegar til kom og margir sögðu það létti, að óvissunni væri lokið og hægt að horfa til framtíðar. Af þeim sökum voru viðbrögðin á Qár- málamarkaði þar og annars staðar í Asíu fremur jákvæð. Þjóðarleiðtogar víða um heim minntust Dengs með virðingu í gær og lofuðu hann sem höfuðsmið hins nýja Kína. ■ Valdaskipti/20 Chirac segir Rússa geta sætt sig við útþenslu NATO Sagðir faliast á stækk- un gegn samningum Búkarest, Moskvu. Reuter. JACQUES Chirac, forseti Frakk- lands, sagði í gær, að Rússar væru reiðubúnir að fallast á, að allt að fímm ný ríki fengju aðild að Atl- antshafsbandalaginu, NATO, gegn því, að bandalagið gerði sérstakan samning við þá. Chirac, sem fer í opir.bera heim- sókn til Rúmeníu í dag, sagði í við- tali við dagblaðið Adevarul í Búkar- est, að Rússar hefðu fallist á, að aðildarríkjum NATO yrði fjölgað um allt að fímm ef bandalagið gerði við þá sérstakan samning. Rússar hafa raunar ýjað að þessu og Sergei Jastrzhembskí, talsmaður utanríkisráðuneytisins, sagði í gær, að hugsanlegur samningur ætti að „draga sem mest úr neikvæðum afleiðingum af stækkun NATO“. „Ekki annars flokks borgarar" Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom til Moskvu í gær og átti þá viðræður við Víktor Tsjernnmyrdín forsætisráðherra og Jevgení Prímakov utanríkisráð- herra Rússlands. Einn aðstoðarmanna Albrights nefndi hins vegar hugsanlega samning við Rússa en lagði áhersiu á, að í NATO yrðu ekki neinir ann- ars flokks borgarar og ekki kæmi til mála að semja á kostnað nýrra aðildarríkja. Fulltrúar NATO í Vínarvið- ræðunum um samdrátt í hefð- bundnum herafla sögðu í gær, að bandalagið væri tilbúið til að draga úr sameinuðum herafla sínum til að sefa ótta Rússa við stækkun þess. Reuter SÉRFRÆÐINGAR á vegum Bandaríkjaþings eru í Pól- Iandi til að kynna sér pólsk hermál en Pólverjar vonast til að fá aðild að NATO. Af þessu tilefni var efnt til her- æfinga fyrir gestina. Fílharmónían í Vínarborg Konur fáekki aðgang Vín. Reuter. FORSTJÓRI Fílharmóníunnar í Vín sagði í gær, að heldur myndi hann leysa upp þessa frægustu hljómsveit í Austur- ríki en hleypa konum að hljóð- færunum. „Þetta er einkaklúbbur og ef það á að neyða okkur til einhvers munum við heldur leysa hann upp,“ sagði Werner Resel, forstjóri hljómsveitar- innar, í viðtali við austurríska ríkisútvarpið. Sagði hann, að hljómsveitinni hefðu borist mörg hótunarbréf, einkum frá Bandaríkjunum. „Hinn helmingurinn" Fílharmónían í Vín er raun- ar einkaklúbbur að forminu til og ber félögum hennar engin skylda til að greiða um það atkvæði hvort konur fái að- gang. Austurrískir stjórnmála- menn, þar á meðal Viktor Klima kanslari, hafa hins veg- ar hvatt til, að hljómsveitin nýti sér „hæfileika hins helm- ings mannkynsins". Meðal þeirra raka, sem Res- el nefndi fyrir afstöðu sinni, var að yrði konum hleypt að gæti svo farið, að hljómsveitin yrði stundum ófær um að leika. Átti hann þá við, að konurnar forfölluðust margar í senn vegna þungunar. „Hollusta“ rauðvínsins einangruð London. Reuter. RAUÐVÍN í hófí hefur hin bestu áhrif á hjarta og æðar að því er vísindamenn segja og nú geta bind- indismenn notið þess líka. í Bret- landi hefur nefnilega tekist að ein- angra „hollustuna" frá vínandanum. Norman Williams og Alan How- ard við Papworth-sjúkrahúsið skammt frá Cambridge segja, að þeim hafí tekist að skilja út efnin í rauðvíninu, sem sögð eru koma í veg fyrir hjartaáfall, og ætia að setja þau á markað fljótlega í drykk með sólbeijabragði. Vonast þeir sérstaklega eftir góðum viðtökum í löndum múslima þar sem trúin bannar mönnum víndrykkju. Hindrar oxun Við rannsóknir sínar á efninu, sem þeir unnu úr rauðvíninu, not- uðu þeir Williams og Howard 20 sjálfboðaliða og gáfu þeim ýmist rauðvín, efnin, hvítvín eða óáfengan drykk daglega í tvær vikur. I ljós kom, að rauðvín og efnin unnin úr því komu í veg fyrir oxun en hún veldur aftur æðaþrengslum og hjartaáföllum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.