Morgunblaðið - 21.02.1997, Side 2

Morgunblaðið - 21.02.1997, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Frystingu að ljúka Grindavík. Morgfunblaðið. LOÐNUGANGAN er nú úti fyrir Grindavík og koma loðnubátar Fiskimjöls og Lýsis hf. hver á fætur öðrum drekkhlaðnir með loðnu til frystingar. Jón Sigurðs- son GK kláraði að landa um há- degisbilið í gær og var kominn aftur inn upp úr kvöldmat með fullfermi. Oddeyrin EA, skip Samherja, fyrrum Albert GK frá Grindavík, var einnig komin inn um hádegisbil í gær með full- fermi og á myndinni sést hvar japanskir eftirlitsmenn eru að fá sýni frá einum skipverjanum svo hægt sé að meta hvort farmurinn sé hæfur til frystingar. Að sögn Hermanns Guðmunds- sonar, verksljóra í frystihúsi Fiskimjöls og Lýsis hf., var farmur Oddeyrarinnar mjög blandaður eða með 55 til 60 stykki í kilói sem er á mörkum þess að vera frystingarhæft. Hermann sagði einnig að þetta væri síðasti eða næstsíðasti sólar- hringurinn sem væri verið að frysta fyrir Japansmarkaðinn þar sem loðnan væri að verða ófrystingarhæf vegna hrogna- fyllingar. Formanni Félags ferskra fjárbænda vísað úr Kaupfélagi V-Húnvetninga Rekinn vegna kjötvið- skipta sinna við Hagkaup ; EYJÓLFI Gunnarssyni, bónda á Bálkastöðum í V-Húnavatnssýslu og formanni Félags ferskra fjár- bænda, hefur verið vísað úr Kaup- félagi V-Húnvetninga á þeim for- sendum að hann hafi leynt og ljóst unnið að því að telja félagsmenn kaupfélagsins á að flytja viðskipti sín frá félaginu og því geti hann ekki verið þar félagi. Eyjólfur seg- ist undrandi á þessum vinnubrögð- um og segir ástæðuna m.a. vera þá að Félag ferskra fjárbænda eigi viðskipti við Hagkaup með sauð- fjárafurðir og hafi beitt sér fyrir áburðarkaupum beint frá Áburðar- verksmiðjunni fyrir félagsmenn sína. Gunnar V. Sigurðsson, kaupfé- lagsstjóri KVH, sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki vera til við- ræðu um þetta mál. „Þetta virðist allt snúast um það að við [sauðfjárbændur í V-Húna- vatnssýsluj gerðum samninginn við Hagkaup í fyrravor, sem gekk alveg einstaklega vel í fyrrasumar og haust og var endurnýjaður nú um áramótin undir merki nýrra samtaka, Félags ferskra fjár- bænda. Þetta virðist fara svona óskaplega í taugarnar á mönnum hér að þeir reyna að höggva alls staðar eins og hægt er,“ sagði Eyjólfur. Afsláttur á áburðarverði í Félagi ferskra fjárbænda eru rúmlega 70 sauðfjárbændur í Dala- sýslu, Strandasýslu og V-Húna- vatnssýslu, og er Eyjólfur sá eini þeirra á félagssvæði Kaupfélags V-Húnavatnssýslu sem vísað hefur verið úr kaupfélaginu. Hann segir að athugun Félags ferskra fjár- bænda á sameiginlegum innkaup- um á áburði þar sem bændum hafi verið boðinn 10% afsláttur hafi leitt til þess að kaupfélagið hafi boðið sama afslátt og jafnvel betur. „Þeir fá miklu meiri afslátt frá Áburðai-verksmiðjunni heldur en við, sem segir okkur auðvitað ákveðna sögu um viðskiptalegt sið- ferði Áburðarverksmiðjunnar. Þeir þurfa því ekki að óttast neina sam- keppni hafi þeir áhuga á að taka á móti okkur, en það virðist bara vera viðkvæðið hjá þessum ágætu mönnum að reyna að höggva ein- hvem veginn í okkur út af þessum afurðasölumálum. Ég held hins vegar að þeir séu að skjóta sig í fótinn með þessu.“ Búseta ekki skýring á brottvísun Eyjólfur er með búskap á Bálka- stöðum i V-Húnavatnssýslu en hann á lögheimili á Brú í Hrúta- firði, sem er í Strandasýslu. í bréfi kaupfélagsstjóra KVH, þar sem Eyjólfi er tjáð að hann hafi verið tekinn af félagaskrá í kaupfélaginu um síðustu áramót, er einnig til- greind sú ástæða að hann búi ekki á félagssvæði kaupfélagsins. „Þetta tel ég bara vera yfirklór vegna þess að ég hef alla tíð átt | lögheimili á Brú á meðan ég hef ■ verið í kaupfélaginu. Það er því * fjarri lagi að þetta sé einhver skýr- ing á því að mér hefur verið vísað úr félaginu. Þetta breytir engu fyrir mig, heldur hvetur þetta mig einungis enn frekar til dáða. Sam- starfið við Hagkaup hefur verið einstaklega gott og ljúft, og þetta hvetur mig enn frekar til að stuðla < að bættum hag sauðfjárbænda eins og Félag ferskra fjárbænda er stofnað til,“ sagði Eyjólfur. | Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Ragnar Aðalsteinsson lögmaður Sævars M. Ciesielski Tel lagaskilyrði til endurupp- töku uppfyllt RAGNAR Aðalsteinsson hæstarétt- arlögmaður mun í dag ieggja grein- argerð sína fram í Hæstarétti til stuðnings beiðni um endurupptöku svokallaðra Guðmundar- og Geir- finnsmála. Ragnar var að ósk Sæv- ars M. Ciesielski skipaður talsmaður hans fyrir um ári, en Sævar var dæmdur fyrir að hafa orðið mönnun- um að bana ásamt öðrum. Ragnar hefur unnið að söfnun gagna fyrir greinargerðina um eins árs skeið og segir undirbúninginn hafa verið miklu viðameiri en gert var ráð fyrir í upphafi. Pjöldi skjala fylgir greinargerð hans. Engin hliðstæða hérlendis „Niðurstaða mín er sú að lagaskil- yrðum til endurupptöku sé full- nægt,“ segir Ragnar en kveðst ekki vilja greina frá þeim að svo stöddu, enda eigi eftir að taka greinargerð- ina til athugunar og um margvísleg og flókin atriði sé að ræða. Ósk um endurupptöku í eins viða- miklu máli á sér ekki hliðstæðu hér- lendis, en Ragnar segir ýmis dæmi frá útlöndum um endurupptöku mála af sambærilegum toga. Lög um endurupptöku hafa ekki breyst efnislega frá 1920, andstætt því sem víða hefur gerst erlendis og segir Ragnar að mun auðveldara sé að bera fram slíka beiðni í t.d. Nor- egi og Danmörku, einkum síðar- nefnda landinu. „Hér virðist þetta ekki vera dóms- mál, heldur stjórnsýsluathöfn. Hæstiréttur sendir greinargerðina til umsagnar til setts ríkissaksókn- ara, Ragnars H. Hali og í kjölfar þess verður tekin ákvörðun um hvort beiðnin verður tekin til greina eða ekki. Verði henni hafnað er mögu- legt að æskja þess sama að nýju seinna,“ segir Ragnar Aðalsteinsson. Stofnun Vilhjálms Stefánssonar Rekstrar- kostnaður 20-25 millj. LAGT hefur verið fram á Al- þingi stjórnarfrumvarp um að sett verði á fót stofnun kennd við Vilhjálm Stefánsson. Henni er ætlað að sinna um- hverfisrannsóknum á norður- slóðum. Gert er ráð fyrir að starfsmenn stofnunarinnar verði sex þegar hún verður komin í fullan rekstur og er kostnaðurinn áætlaður 20-25 milljónir króna á ári. Aðsetur stofnunarinnar verður á Ak- ureyri. í greinargerð með frum- varpinu segir að stofnun Vil- hjálms Stefánssonar muni meðal annars vera samstarfs- vettvangur um rannsóknir á áhrifum mengunar og á nýt- ingu náttúruauðlinda og sinna alþjóðasamstarfi á þessu sviði á norðurslóðum. Frá árinu 1995 hefur verið starfandi níu manna samvinnunefnd um málefni norðurslóða og hefur hún unnið að undirbúningi stofnunarinnar. Þjóðhagsstofnun fyrir VR og VSÍ Verulegt svig- rúm til að auka | framleiðni ÞJÓÐHAGSSTOFNUN sendi frá sér í gær minnisblað um laun, verð- lag og atvinnu sem var tekið saman að beiðni Verzlunarmannfélags Reykjavíkur og VSÍ vegna yfir- standandi kjaraviðræðna. Þjóð- hagsstofnun leggur ekki mat á kjarakröfur VR en lýsir áætluðum launa- og verðlagsbreytingum í ríkj- um OECD og fjallar um samband verðlags og launa hér á landi. Meðallaunahækkanir innan ESB 5% í ár og 4,2% á næsta ári Fram kemur á minnisblaði Þjóð- hagsstofnunar að áætlað er að ár- legar meðallaunahækkanir í flest- um ríkjum innan OECD á árunum 1997 og 1998 verði á bilinu 2-5% og verðbólga á bilinu 0-3%. í lönd- um Evrópusambandsins er áætlað að laun hækki að meðaltali um 5% á þessu ári og um 4,2% á því næsta. þjóðhagsstofnun segir erfitt að segja fyrir um hvort samband verð- lags og launa verði svipað hér á landi á næstu árum og það hafí verið að undanförnu en vafalítið sé verulegt svigrúm í hagkerfinu til aukinnar framleiðni og hagræðing- ar. Það svigrúm nýtist þó varla nema áfram ríki stöðugleiki ogjafn- vægi í hagkerfinu. „Til þess að saman geti farið stöðugleiki, næg atvinna og al- mennar launabreytingar umfram það sem gerist að jafnaði í sam- keppnislöndunum er nauðsynlegt að framleiðni og afköst aukist meira hér á landi en annars staðar. Því verður ekki svarað með óyggjandi hætti hvort svo verði á næstu árum en viðunandi jafnvægi í þjóðarbú- skapnum eykur líkur á árangri, sem ( meðal annars gæti birst í minni | verðbólgu en spáð er eins og gerst . hefur undanfarin ár. Rétt er að ' ítreka að hér er fjallað um meðalt- öl. Það liggur í hlutarins eðli að staða fyrirtækja og svigrúm þeirra til að hagræða og auka framleiðni er mismunandi. Fyrir vikið eru að- stæður til launahækkana misjafn- ar,“ segir á minnisblaði Þjóðhags- stofnunar. Viðræður VR og VSÍ hefjastídag * VR hefur ekki átt viðræður við ^ samtök vinnuveitenda frá 10. febr- úar þegar kröfugerð félagsins var lögð fram en ákveðið hefur verið að næsti samningafundur verði haldinn í dag kl. 10.30. Félagið hefur átt viðræður undanfarna daga við nokkur stór fyrirtæki sem eru ekki aðilar að samtökum vinnu- veitenda s.s. 10-11 búðirnar, Félag 1 stórkaupmanna og Stöð 2. Magnús I L. Sveinsson, formaður VR, segir ( að umfjöllun Þjóðhagsstofnunar sé í samræmi við þau gögn sem VR notaði sem grunn að kröfugerð sinni. „Það kemur ekkert fram á minnisblaði Þjóðhagsstofnunar sem hrekur eitt einasta atriði af því sem við höfum notað sem grundvöll að okkar kröfugerð. Það er mikilvægt ( að fá það fram,“ segir Magnús. Kona í varðhald aftur HÆSTIRÉTTUR felldi í gær úr gildi þann úrskurð héraðsdóms að réttmætt væri að láta lausa konu sem handtekin var skömmu eftir áramót í tengslum við rannsókn á umfangsmiklu smygli á hassi. Konan hafði þegar verið látin laus úr haldi, en nokkuð er síðan gæsluvarðhaldsúrskurður yfír henni rann út. Lögreglan óskaði eftir lengra gæsluvarðhaldi en héraðsdómur sinnti ekki þeirri beiðni. Eftir úr- skurð Hæstaréttar þarf að setja konuna aftur í gæsluvarðhald. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðins eru talin svo sterk rök ( fyrir sök konunnar, að ástæða þykir til að hún sitji bak við lás og 1 slá. .. ,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.