Morgunblaðið - 21.02.1997, Page 6

Morgunblaðið - 21.02.1997, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Rætt um að Rússland fái fulltrúa í herstöðvum NATO Ekki komið til tals að Rússar verði í Keflavík HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra segir að ekki hafi komið til tals að fulltrúar rússneskra stjórnvalda verði í varnarstöðinni í Keflavík. Madeleine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur lagt til að liður í auknu sam- starfi ríkja Atlantshafsbandalags- ins og Rússlands verði að fulltrúar NATO og Rússa starfi saman í herstöðvum bandalagsins. „Það hefur ekki verið rætt og ég sé slíkt ekki fyrir mér í náinni framtíð, enda byggist starfsemi varnarstöðvarinnar á varnarsamn- ingnum við Bandaríkin," segir Halldór. „Við leggjum mikið upp úr því að viðhalda þeim samningi og það gera Bandaríkjamenn líka. Við höfum ekki verið með neinar óskir um breytingar á honum.“ Halldór segir að hins vegar sé staðreynd að næsta sumar verði haldin hér á landi almanna- vamaæfíngin Samvörður ’97 á vegum Friðarsamstarfs NATO, sem sveitir frá Rússlandi og mörg- um öðrum fyrrverandi austan- tjaldsríkjum muni taka þátt í. Aldrei að vita hvert þróunin leiðir „Það er því aldrei að vita hvert þessi þróun leiðir. Það er alveg ljóst að öryggismálum í Evrópu verður ekki komið í viðunandi horf án Rússa,“ segir Halldór. „Með samstarfí við þá í Bosníu hafa menn öðlazt mikla reynslu og segja má að opnazt hafi alveg ný sýn í þessum efnum, sem enginn sér fyrir endann á. Það er því engin leið að fullyrða hvað geti gerzt. Ef um það næst samstaða að vinna sameiginlega að auknu öryggi í Evrópu, hlýtur það meðal annars að felast í að starfa saman og vera saman að ákveðnu marki.“ Formaður Bandalags háskólamanna Vilja fresta breyt- ingu á launakerfi MARTHA Á. Hjálmarsdóttir, for- maður Bandalags háskólamanna, segir að BHM-félögin séu almennt þeirrar skoðunar að fresta eigi umræðum um breytingar á launa- kerfi opinberra starfsmanna fram á næsta samningstímabil. Samn- ingsaðilar þurfi lengri tíma til að vinna að svo viðamiklum breyting- um sem samninganefnd rikisins hafi kynnt. „BHM-félögin eru almennt þeirrar skoðunar að það sé ekki mögulegt að vinna svo hratt að breytingum á launakerfinu eins og samninganefnd ríkisins gerir tillögur um. Við teljum að það sé ekki hægt að semja um þessar breytingar í yfirstandandi samn- ingaviðræðum. Tillögur samninga- nefndar ríkisins fela í sér lélega þýðingu á dönsku kerfi sem er í smíðum og verður ekki prufukeyrt fyrr en í apríl á næsta ári. Ég tel að nefndin sé komin fram úr sjálfri sér og viti ekki frá degi til dags hvað hún er að meina. Þetta trufl- ar verulega samningaviðræðurnar núna og þess vegna fer best á því að geyma þessa vinnu. Þörf á nýju launakerfi Félögin eru hins vegar almennt þeirrar skoðunar að það þurfí nýtt launakerfí, en það þarf að vinna að því milli samninga þannig að það sé hægt að búa til kerfí sem geti staðið einhvern tíma og fólk sé sátt við. Við höfnum þeim hug- myndum sem ríkið er með. Við viljum að samningsaðilar reyni að nálgast hvor annan frá jafnréttis- sjónarmiði þannig að báðir aðilar komi með hugmyndir inn í viðræð- urnar,“ sagði Martha. Út að borða? Q Select ALLTAF FERSKT Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson PALLI með krökkunum á Kirkjugerði um borð í bátnum Gogga sem stendur á lóð leikskólans. Tuskubrúðan Palli á lands- homaflakki BIRTA Baldursdóttir vegur salt með Palla á leikskólanum Kirkjugerði. Með á myndinni eru Laufey og Bragi sem sáu um heimsókn Palla til Eyja. Vcstmannaejjum. Morgunbladið TUSKUBRÚÐAN Palli var í heimsókn í Vest- mannaeyjum fyrr í vik- unni en undanfarnar tvær vikur hefur Palli flakkað milli landshluta. Ferðalag Palla um land- ið er til komið vegna verkefnis sember heitið Landið okkar Island og er hópvinnuverkefni um ísland sem fimm og sex ára börn á leikskólanum Kjarrinu í Garðabæ eru að vinna. Að sögn Jón- ínu Ásgeirsdóttur, starfsmanns á leikskól- anum, kviknaði þessi hugmynd, þegar verið var að vinna að verkefn- inu sem miðar að því að fræða börnin á Ieikskól- anum um Island, um að senda tuskudúkku i ferðalag um landið og afla þannig upplýsinga um hina ýmsu staði sem dúkkan kæmi á. Tusku- brúða, sem fékk nafnið Palli, var búin ferðaföt- um og bakpoka sem í er dagbók og í hana átti að færa allt sem á daga Palla drifi. Jónina sagði að mæð- ur tveggja barna á leikskólanum væru flugmenn hjá Flugleiðum og hefðu þær tekið að sér að sjá um að Palla yrði komið milli staða með vélum Flugleiða og hefði verið ráðgert að hann heimsækti alla áætlunarstaði fé- lagsins. Jónína sagði að öll börnin á leikskólanum vissu af ferðalagi Palla, þótt einungis þau elstu ynnu að verkefninu og allir væru spenntir að fá fréttir af honum. í dagbókinni sem fylgir Palla sést að hann hóf ferðalag sitt 6. febrúar sl. er hann flaug með Fokker í áætlunarflugi til Akur- eyrar. Hann dvaldi fyrst á Akur- eyri en síðan ferðaðist hann víða þaðan. 9. febrúar fór hann til Vopnafjarðar og Grímseyjar og í töskunni var viðurkenningar- skjal til staðfestingar á að hann hefði komið norður fyrir heim- skautsbaug. Þann 11. lá leiðin til ísafjarðar og degi seinna var ferðast til Kópaskers og Raufar- hafnar. 13. febrúar fór Palli frá Akureyri til Egilsstaða og þaðan ferðaðist hann með rútu til Nes- kaupstaðar með viðkomu á Reyð- arfirði og Eskifirði. í dagbókinni sést að ferðin frá Egilsstöðum til Neskaupstaðar tók langan v tíma sökum ófærðar. Palli staldraði Iengi við á Nes- kaupstað og lenti í ýmsum ævin- týrum. Meðal annars fór hann í heimsókn um borð í flutninga- skipið Alexöndru frá Nassau á Bahamaeyjum og heimsótti leik- skólann Sólvelli. Á þriðjudaginn kom Palli til Eyja eftir að hafa verið strandaglópur í Reykjavík þar sem ófært var til Eyja. Far- ið var með hann í skoðunarferð um Eyjar og hraungrýti úr Eld- felli sett í tösku hans til minja um skoðunarferðina. Þá var far- ið með hann í sundlaugina, á Náttúrugripasafnið og í heim- sókn á leikskólann Kirkjugerði. Þá var farið með hann niður að höfn til að skoða drekkhlaðna loðnubátana. í Eyjum gisti Palli hjá Laufeyju og Braga starfs- mönnum Flugleiða sem sáu um PALLI kíkir út um stýrishúss- gluggann á Gogga VE á lóð- inni framan við Kirkjugerði. PALLI rogginn með bakpok- ann troðinn af upplýsingum að af landinu. dvölinni í Eyjum Palli hélt frá Eyjum síðdegis á miðvikudag með áætlunarvél Flugleiða. Jónína Ásgeirsdóttir, starfsmaður leikskólans Kjarrs- ins, sagði að þegar Palli kæmi til Reykjavíkur yrði athugað í dagbókinni hvort hann væri bú- inn að ferðast til allra áætlunar- staða Flugleiða og ef svo væri kæmi hann á leikskólann með bakpokann sinn og farið yrði að vinna úr þeim upplýsingum sem Palli hefur aflað. Jónína sagði að þótt flakki Palla um ísland væri nú að Ijúka væri hann síður en svo hættur að ferðast því framundan væru ferðalög til útlanda. Næsta verk- efni sem unnið yrði að á leikskól- anum yrði verkefni sem héti Heimurinn okkar og þá yrði Palli gerður út af örkinni á ný til að afla upplýsinga. Hann færi því í nokkurskonar heimsreisu því þá myndi hann ferðast til áætlunar- staða Flugleiða bæði í Evrópu og Ameríku. I \ i ! í t r t i i i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.