Morgunblaðið - 21.02.1997, Side 8

Morgunblaðið - 21.02.1997, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ í kerfínun r&tAuKio ÞAÐ hefði nú varla breytt miklu í subbuskapnum, Gunna mín, þó þeir hefðu fengið sér- staka umbun fyrir viðvikið að rölta sjálfir út í fínu jeppanasína . . . Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson Ljósmyndasýning Morgunblaðsins Mósambík og framtíðin Ófrjósemisaðgerðir Óleyfilegt gjald innheimt MISMUNANDI er milli heilbrigðis- stofnana hvort greiða þarf fyrir ófrjósemisaðgerðir en samkvæmt lögum eiga þessar að aðgerðir að vera sjúklingum að kostnaðar- lausu. A Landspítalanum og ýmsum fleiri heilbrigðisstofnunum eru þær ókeypis, en á Sankti Jósefsspítala í Hafnarfirði hafa konur þurft að greiða rúmar 14.500 krónur fyrir þessa aðgerð. Þetta kom fram í fyrirspum Guðrúnar Siguijóns- dóttur, varaþingmanns Alþýðu- bandalagsins, á Alþingi. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð- isráðherra staðfesti að gjald hefði verið tekið fyrir ófijósemisaðgerðir á ákveðnum heilbrigðisstofnunum, en að það hefði verið leiðrétt í kjöl- far fyrirspumar þingmannsins. Hún sagði að þeir sjúklingar sem hefðu þurft að greiða fyrir aðgerðirnar ættu rétt á endurgreiðslu. Aðspurð taldi hún þó ekki ástæðu til að auglýsa þann rétt sérstaklega. MÓSAMBÍK er eitt fátækasta land heims og illa leikið eftir langvinn- ar styijaldir og alræðisstjórn. En þetta stóra Afríkuríki er engu að siður land möguleikanna. Ýmsar líknar- og hjálparstofnanir hafa verið að leggja landsmönnum lið við að bæta lífskjörin. Á meðal þeirra eru Hjálparstofnun kirkj- unnar og Þróunarsamvinnustofn- un Islands. Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, ferðaðist nýverið um Mósambík og fylgdist m.a. með brunnagerð og jarðsprengju- hreinsun auk þes sem hann beindi linsum sínum að litskrúðugu mannlífinu. I anddyri Morgun- blaðsins, Kringlunni 1, hefur verið komið upp yfirlitssýningu á völd- um myndum sem teknar voru í ferðinni. Sýningin hefst í dag og lýkur föstudaginn 7. mars. Hún er opin á afgreiðslutima blaðsins kl. 8-18 alla virka daga og laugar- daga kl. 8-12. Allir myndir á sýningunni eru til sölu. Safnkortshafar fá að auki 3% afslátt í punktum. nllt tit tí//s Gagnvegi * Skógarseli • Stórahjalia * Ægisiöu ■ Lækjargötu Hafnartiröi Ráðstefna um nýgræðinga í flórunni Nýjar skuldbind- ingar um plöntu- innflutning Heiðrún Guðmundsdóttir FELAG garðyrkju- manna stendur fyrir ráðstefnu um inn- flutning plantna og sögu og áhrif innflutnings og hugsanlega framtíð hans þessa dagana. Að sögn Heiðrúnar Guðmundsdótt- ur, sem séð hefur um fræðslumál félagsins, er þessari ráðstefnu ætlað að gefa bæði fagmönnum og áhugamönnum innsýn í sögu flóru íslands og hvernig hún hefur þróast eftir landnám. En skyldi flóra Islands hafa tekið miklum breytingum? Það eru menn ekki alveg sammála um, en vitað er að búsetu manna fylgja ákveðnar illgresistegundir, einnig er vitað að landn- ámsmennirnir tóku með sér plöntur bæði til ræktunar, lyfja- gerðar og til að bragðbæta mat. - Hvaða tegundir sem við not- um í dag tóku landnámsmennirnir með sér? Talið er að þeir hafi tekið með sér ætihvönn, ertublóm, svo sem fuglaertur, en sú planta eykur uppskeru grasa. Taiið er að þeir hafi einnig tekið með sér bygg og villilauk sem finnst á mjög afmörk- uðum svæðum á landinu. Garða- brúða er líka talin hafa komið hing- að til lands með landnámsmönnum. Hún inniheldur efni sem verkar slævandi, hún hefur líklega verið notuð sem svefnlyf. Mjög mikið af þeim plöntum sem almenningur flokkar sem illgresi eru nytjaplönt- ur á þann veg að þær innihalda mörg efni sem notuð voru í lækn- ingaskyni. í bókinni íslenskar lækningajurtir má fræðast um þetta efni t.d. - En hvað um helstu nytjaplönt- ur nútímans, svo sem kartöflur? Þær komu flestar miklu seinna, kartöflurnar eru ættaðar frá Suð- ur-Ameríku og kom hingað frá Danmörku fyrir um 200 árum. „Illgresið“ njólinn nam hér land á 17. öld. Sagt er að Danakonungur hafi sent Islendingum njólann sem matjurt, hann er næringarrík hail- ærisfæða og mjög harðgerður. Blöð hans og rætur voru borðaðar en hafa varla þótt herramanns- fæða, í það minnsta eru þeir fáir sem borða njóla í dag. Njóli og rabarbari eru skyldar tegundir. - Frá hverju verður sagt á fyr- irhugaðri ráðstefnu? Fjölmargir fyrirlestrar verða haldnir á ráðstefnunni sem verður í húsi Ferðafélags íslands í Mörk- inni 6 og hefst klukkan 10 árdegis í dag. Helstu fyrirlesarar eru Hörð- ur Kristinsson, sem talar um upp- runa íslensku Flórunn- ar. Jóhann Pálsson, garðyrkjustjóri Reykja- víkur, talar innflutning gróðurs í garða og merkur. Þorsteinn Tómasson, forstjóri Rannsóknarstofnunar landbúnað- arins, talar um aðfluttar tegundir, kynbætur og yrkisrétt. Aðalsteinn Sigurgeirsson skógerfðafræðingur ræðir um innflutning plantna til landgræðslu og skógræktar. Sig- urður H. Magnússon plöntuvist- fræðingur talar um ágengar teg- undir, einkenni og hegðun. Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Nátt- úrufræðistofnunar, talar um al- þjóðlegt samstarf og þróun þess og Ámi Bragason, forstöðumaður rannsóknarstöðvarinnar á Mógilsá, ræðir um hvers vegna alþjóða- samningar eru gerðir um skóg- rækt. Amorgun snúum við okkur að markmiðum gróðursetningar og ►Heiðrún Guðmundsdóttir fæddist á Akureyri árið 1957. Hún lauk verslunarprófi árið 1976 frá Verslunarskóla Islands. Tveimur árum seinna lauk hún garðyrkjprófi frá Garðyrkju- skóla ríkisins. Hún bjó tvö ár í Álaborg og starfaði þar við garðyrkj ustörf. Stúdentsprófi Iauk hún frá Flensborgarskól- anum árið 1982. Prófi sem líf- fræðingur lauk hún frá Háskóla Islands í febrúar 1994. Heiðrún kenndi um tíma við Garðyrkju- skóla ríkisins og forfallakennslu við Flensborgarskóla en hefur starfað mikið að félagsmálum hjá Félagi garðyrkjumanna. Heiðrún er gift Guðmundi Gunn- arssyni, verkfræðingi hjá Brunamálastofnun, og eiga þau einadóttur. notkun gróðurs. - Verður eitthvað rætt um framtíð innflutnings á plöntum? Já, einkum með tilliti til plöntu- sjúkdóma og meindýra. Einnig verður rætt um erfðabreyttar plöntur og nafngiftir ræktaðra plantna. Fyrirlestrar verða haldnir um hlutverk grasagarða í innflutn- ingi garðplantna, notkun þeirra hjá einkaaðilum og bæjarfélögum og hvaða áhrif framtak einstaklings- ins getur haft á útbreiðslu plantna. - Skógrækt er heitt mál hjá garðyrkjumönnum í dag? Flestir garðyrkjumenn hafa áhuga á skógrækt og landgræðslu og einn fyririestur verður m.a. um markmið og ábyrgð skógræktar. -Er haft eftirlit með innflutn- ingi plantna? Nei, það er ekki gert nema að um lifandi plöntur sé að ræða. Ekkert eftirlit eða skráning er með fræinnflutningi. Nátt- úrufræðistofnun íslands er að byija að taka sam- an og skrá hvaða er- lendu plöntur séu hér í görðum. Erlendis eru nú uppi harðar kröfur um að ræktendur hafi leyfi fyrir viðkomandi plöntu og stjórnvöld hafi undirritað alþjóðlega samn- inga um plöntuinnflutning. Við höfum undirritað slíka samninga en ekkert í íslenskum lögum skyld- ar menn til að fara eftir þeim nema hvað snertir sjúkdómavamir, en þetta mun breytast fljótlega. - Hvaða hagnýtt gagn getur áhugafólk haft af þessari ráð- stefnu? Það getur fræðst um íslensku flóruna, hvaðan hún er komin og um uppruna garðplantna og skóg- ræktarplantna. Farnar hafa verið söfnunarferðir víða um heim og frá þeim verður sagt þama. Ekkert eftirlit eða skráning er með fræ- innflutningi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.