Morgunblaðið - 21.02.1997, Page 12

Morgunblaðið - 21.02.1997, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Aleið heim úr skólanum MIKIL snjókoma var á Akur- eyri í gær og var því vetrar- legt um að litast í bænum, ekki síst í eldri hverfunum, þar sem trén eru stór og stæðileg. Veturinn hefur fram til þessa verið snjóléttur og til að mynda unnu starfs- menn bæjarins við að fylla upp í holur í malbiki fyrr í vikunni. Enn lifir nokkuð eftir af febrúarmánuði og vetur konungur ætlar greini- lega að sýna svolítið hvað í honum býr áður en Norðlend- ingar geta farið að vænta vorsins. Meirihluti stjórnenda fyrirtækja vill í stærra húsnæði Bjartsýni um vöxt starf- seminnar á næstu árum FORSVARSMENN um fjórðungs fyrirtækja sem þátt tóku í atvinnu- málakönnun telja sig vera í óhentugu húsnæði og var það einkum áber- andi meðal þeirra sem starfa við matvælafyrirtæki. Þetta er á meðal niðurstaðna í könnun sem unnin var að frumkvæði Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri og Atvinnu- málaskrifstofu Akureyrarbæjar en nemar á 2. ári í rekstrardeild háskól- ans gerðu könnunina. Svör bárust frá 161 fyrirtæki á Akureyri. í könnuninni er bent á að það sé verðugt að skoða hvort það hamli starfsemi fyrirtækjanna að búa við óhentugt húsnæði eða hvort það hafi áhrif á hagkvæmni í rekstri. Sérstaka athygli vekur hve stórt hlutfall matvælafyrirtækja er í óhentugu húsnæði að mati stjórn- enda þeirra, en möguleg skýring gæti verið sú að kröfur til hús- næðis matvælafyrirtækja hafa verið að aukast að undanförnu og fyrir- tækin ef til vill ekki brugðist við þeim enn. Þörf á auknu húsnæði Hvað varðar væntingar um hús- næðisþörf telur mikill meirihluti stjórnenda eða 88% þeirra að fyrir- tæki þeirra þurfi á auknu húsnæði að halda á næstu tveimur árum. Helsta skýringin sem gefin var á því voru væntingar um aukna sölu á vörum eða þjónustu á næstunni, en 65% svarenda nefndu það atriði. Viss bjartsýni virðist þannig ríkja meðal stjórnenda fyrirtækjanna um vöxt í starfsemi á komandi árum, en nefnt er í skýrslunni að fátt í svörum þeirra bendi til fyrirætlana um þróun í vöru- eða þjónustufram- boði, 16% þeirra nefna þó aukna framleiðslu sem skýringu á þörf fyr- ir aukið húsnæði. Fáir þurfa að fjölga starfsfólki Fæstir stjórnendanna búast við breytingum á starfsmannafjölda á næstu tveimur árum. Nokkrir búast þó við að þurfa að fjölga starfsfólki á tímabilinu og þá helst í kjölfar aukinnar sölu á þeim vörum sem framleiddar eru hjá fyrirtækinu. Mjög fáir gera ráð fyrir samdrætti og þá eingöngu vegna hagræðingar en ekki minnkandi sölu. Morgunblaðið/Kristján Aukasýning á verkinu Undir ber- um himni SÍÐASTA sýning Leikfélags Akureyrar á Undir berum himni eftir Steve Tesich var áformuð í kvöld, föstudags- kvöldið 21. febrúar. Löngu er uppselt á sýninguna. Þar sem fjöldi fyrirspurna hefur borist um hvort ekki verði fleiri sýningar á verkinu hefur nú verið ákveðið að efna til aukasýningar laugardaginn 1. mars. Arnar Jónsson og Þráinn Karlsson fara með aðalhlut- verkin, Eyvindur Erlendsson leikstýrði og Magnús Pálsson gerði leikmyndina. Undirbúningur að sýningu Leikfélags Akureyrar á Vefar- anum mikla frá Kasmír hefst á Renniverkstæðinu strax á mánudagsmorgun. Atvinnumálanefnd og Ferðafélag Akureyrar Morgunblaðið/Kristján HELGA Bryndís Magnúsdóttir leikur ásamt fleiri píanóleikurum á vígslutónleikum nýs konsertflygils Akureyringa á morgun. Nýr Steinway konsertflygill formlega vígður Samningur um út- gáfu gönguleiðakorta Morgunblaðið/Margrét Þóra HELGI Jóhannesson forstöðumaður Atvinnumálaskrifstofu, Guð- mundur Stefánsson, formaður Atvinnumálanefndar, og Ingvar Teitsson, formaður Ferðafélags Akureyrar, undirrita samning um útgáfu korta með gönguleiðum á Eyjafjarðarsvæðinu. SAMNINGUR hefur verið gerður milli Atvinnumálanefndar Akur- eyrar og Ferðafélags Akureyrar vegna útgáfu korta með gönguleið- um á Eyjafjarðarsvæðinu og munu þau verða gefin út síðar á þessu ári. Þá hefur einnig verið undirrituð viljayfirlýsing þess efnis að nefndin styrki félagið vegna útgáfu nokk- urra korta sem gefin verða út á þessu og næstu tveimur árum. Við undirritun samningsins kom fram í máli Ingvars Teitssonar, for- manns Ferðafélags Akureyrar, að nú í vor verður endurútgefið kort af Glerárdal, þar sem verður að fmna 8 gönguleiðir auk afbrigða af nokkr- um þeirra. Um er að ræða endur- bætta útgáfu af kortinu, en það var gefið út fyrir nokkrum árum og er nú ófáanlegt. Bakkar Eyjafjarðarár og gömul þingmannaleið Þá verður einnig gefíð út kort af svæðinu austan Eyjafjarðarár og austan Akureyrarpolls ásamt upp- lýsingum um áhugaverða staði á þeim gönguleiðum sem þar verður lýst. Meðal gönguleiða sem lýst verður í bæklingnum má m.a. nefna leið inn bakka Eyjafjarðarár, frá gömlu brúnum yfír Leirur inn að brú yfír Eyjafjarðará hjá Hrafnagili, göngu- leið fram Garðsárdal, yfir Góngu- skarð og í Reyki í Fnjóskadal. Einn- ig leiðina yfir Bíldsárskarð frá Leifs- stöðum í Fjósatungu og gömlu þing- mannaleiðina yfír Vaðlaheiði frá Kaupangi að Hróarstöðum, sem og einnig leið um gamla veginn undir klettabeltinu ofan Hallands á Sval- barðsströnd upp á Steinaskarð. Síðar, eða á árunum 1998-’99, stendur til að hugað verði að út- gáfu korta á svæðum vestan Akur- eyrar. Guðmundur Stefánsson, formaður Atvinnumálanefndar, sagði samstarf við Ferðafélag Akureyrar ánægju- legt og vel heppnað. I kjölfar þess sem og væntanlegs samstarfs við hestamannafélagið Létti um útgáfu reiðleiðakorta myndu liggja fyrir greinargóðar og fjölbreyttar upplýs- ingar um leiðir { nágrenni bæjarins. NÝR konsertflygill Akureyringa verður formlega vígður á tónleikum í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju á morgun, laugardaginn 22. febrúar og hefjast þeir kl. 14. Á tónleikunum verður einleikur á píanó, samleikur á selló og píanó og kórsöngur við píanóundirleik. Þeir sem fram koma eru píanóleik- ararnir Daníel Þorsteinsson, Dórót- hea Dagný Tómasdóttir, Guðrún Anna Kristinsdóttir og Helga Bryn- dís Magnúsdóttir, Hólmfríður Bene- diktsdóttir sópransöngkona, Stefán Örn Arnarson sellóleikari, Kór Akur- eyrarkirkju undir stjórn Björns Steinars Sólbergssonar og tríóið Skipað þeim en í því eru Gunnar Gunnarsson píanóleikari, Árni Ketill trommur og Jón Rafnsson bassi. Umræður um kaup á nýjum kon- sertflygli hafa staðið um nokkurt árabil, en Petrof-flygill Tónlistarfé- lagsins þykir ekki lengur gegna því hlutverki að vera tónleikaflygill Ak- ureyringa. Hann var smíðaður 1954 og kom til bæjarins 1960 en margir frægir píanóleikarar hafa leikið á hann, s.s. Rudolf Serkin, Philip Jenk- ins, Vladimir Askenasy, Martin Berkovski og nú síðast András Schiff. Flyglinum hefur verið komið fyrir í nýjum sal Menntaskólans á Akureyri. Margir hafa lagt hönd á plóg Nýi flygillinn er af gerðinni Steinway D, eða af stærstu gerð frá þessum þekktasta flyglaframleið- enda heims. Þeir Jónas Ingimundar- son píanóleikari og Leifur Magnús- son hljóðfærasmiður fóru gagngert til Hamborgar til að velja flygilinn úr nokkrum sem til greina komu og verksmiðjan hafði tilbúna. Flygillinn, sem kostaði um 6,5 milljónir króna, var að hluta keyptur fyrir fé sem safnaðist á minningar- tónleikum um Ingimar Eydal tónlist- armann sem haldnir voru síðasta haust, en Ingimar var það hjartans mál að Akureyringar ættu góðan flygil. Fjölmargir hafa lagt sitt af mörkum til að af kaupunum gæti orðið, fjöldi listamanna sem fram kom á tónleikunum og fyrirtæki gerðu þá mögulega, en einnig má nefna að bæjarstjórn Akureyrar lagði fram þrjár milljónir króna í Minningarsjóðinn. Eimskip flutti flygilinn endurgjaldslaust frá Ham- borg til Akureyrar, Hljóðfæraversl- un Leifs Magnússonar útvegaði flygilinn og gaf með honum vandað- an píanóbekk og ábreiðu, Slippstöðin gaf efni og vinnu við að smíða bún- að til að auðvelda flutning hljóðfær- isins. Þá rann hagnaður af sölu tveggja geisladiska, „Kvöldið er okk- ar“ og „Skálm“ í sjóðinn, auk þess sem Tónlistarskólinn á Akureyri og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands lögðu fram fé og Tónlistarfélag Akureyrar lagði fram andvirði gamla Petrof-flygilsins í sjóðinn. Staðsetning ákveðin síðar Flygillinn var fyrst notaður á ný- árstónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands þar sem Snorri Sigfús Birgisson frumflutti ásamt hljóm- sveitinni nýjan píanókonsert eftir sig. Endanleg ákvörðun um stað- setningu flygilsins hefur ekki verið tekin, en athugun hefur farið fram á því hvernig hann hljómar í safnað- arsal Glerárkirkju og kirkjunni sjálfri og tekur nú við samskonar athugun í Safnaðarheimili Akur- eyrarkirkju þar sem flygillinn verður fyrst um sinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.