Morgunblaðið - 21.02.1997, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÚR VERIIMU
Sala hljómplötuframleiðenda árið 1996
/ milljónum króna (í heildsölu án vsk.)
Skífan 0
Skífan-eigin framl. C
Polygram c
EMI-Virgin
BMG
Innfl. án einkaumb.
Önnur innlend
MSO
Castle
Önnur erlend
20
40
60
80
100
J 60,38
Spor-eigin framl.
Sony Music
Warner Music
Önnur erlend
mm 8,89
CjZD 8,21
P 0,75
0,00
3 54,69
3 54,52
Onnur innlend
Time Life
Music Collection
Soulheimar
0,09
4,70
3,63
52,78
2,40
Grétar Orvarsson @2,36
Toco International b 1,39
Bergey 01,29
Innfl. án einkaumb.
Japis
Önnur innlend
Önnur erlend
Japis-eigin framl.
Eyrað
Innfl. án einkaumb.
Naxos
Smekkleysa
Pop
R&R Music
Hljóðsmiðjan
114,13
132,72
Samtals 225,790 millj. kr.
«50,74
Samtals 208,297 millj. kr.
92,07
14,05
3 3,69
Rymur 01,50
ísl. Tónv.miðst.
Eigin framleiðsla ■ 2,61
24,13
19,77
13,05
12,05
10,83
■ 9,93
6,58
5 36,84
Samtals 142,405 millj. kr.
fsl. Tónv.miðst.
0,5%
K 39 ífan Spc ,0% 36,C »% i
Sala hljómplatna
jókst um tæp 13%
SALA geislaplatna, hljómplatna og
hljómsnældna í heildsölu nam alls
579 milljónum króna á árinu 1996
og jókst um 74 milljónir eða 12,7%
frá árinu á undan. Seldust alls
643.729 eintök á árinu sem svarar
til um 13% aukningar. Ef miðað er
við að smásöluálagning hafi verið
45% að meðaltali fæst sú niðurstaða
að veltan á smásölumarkaðnum hafi
verið um 1.045 milljónir með virðis-
aukaskatti á árinu.
Þetta kemur fram í skýrslu Hag-
vangs hf. um hljómplötumarkaðinn
á síðasta ári, sem unnin er úr tölum
frá stærstu framleiðendunum og
dreifingaraðilunum, þ.e. íslenskri
tónverkamiðstöð, Japís hf., Skífunni
hf. og Spori hf.
Samkvæmt skýrslunni jókst sala
á innlendu efni um 15,5% en á er-
lendu efni um 10,3%. Kemur fram
að áberandi mikil aukning sé meðal
smærri inniendra framleiðenda.
Samkvæmt skýrslunni er hiutur Skíf-
unnar í sölu hljómplatna 39%, hlutur
Spors 36%, hlutur Japis 24,6% og
íslenskrar tónverkamiðstöðvar 0,5%.
Flugleiðir kaupa
Island Tours
FLUGLEIÐIR hf. hafa keypt helm-
ings hlut meðeigenda sinna í fyrir-
tækjunum Island Tours í Þýskalandi
og Islandsferðum. Félagið hefur ver-
ið hluthafi í Island_ Tours frá árinu
1991 ásamt þeim Ómari Benedikts-
syni, Böðvari Valgeirssyni og Skúla
Þorvaldssyni. Það jók hlut sinn í 50%
í fyrra og hefur nú eignast allt fyrir-
tækið.
Isiand Tours var stofnað í Þýska-
landi árið 1986 og annast svonefnda
ferðaheildsölu. Fyrirtækið hefur sér-
hæft sig í að útbúa og selja skipu-
lagðar ferðir til íslands. Það ruddi
brautina á ýmsum sviðum, t.d. með
því að bjóða upp á dýrar hótelferðir
um ísland, áramótaferðir og vetrar-
ferðir.
Aðalskrifstofan er í Hamborg í
Þýskalandi, en einnig eru skrifstofur
í Frankfurt og Múnchen og auk þess
í Sviss og Hollandi. Þá hefur fyrir-
tækið haft umboðsaðila í öðrum
löndum, þ. á m. í Austurríki, Lúxem-
borg og Belgíu. Flugleiðir munu
ekki hafa sérstök áform um breyt-
ingar á starfseminni erlendis, en
ekki liggur fyrir hvernig starfsemi
íslandsferða hér innanlands verður
háttað í framhaldi af þessari breyt-
ingu.
Vilja sameigmlegt
boð í Thomson
París. Reuter.
FRANSKA stjórnin hefur hvatt fyr-
irtækin Alcatel Alsthom og Lagard-
ere til að bjóða sameiginlega í raf-
eindafyrirtækið Thomson, sem er í
ríkiseigu, og mynda þannig stórfyr-
irtæki, sem keppt gæti á alþjóða-
markaði. Lagardere og Thomson
framleiða rafeindavörur fyrir her-
gagnaiðnaðinn.
Franska stjórnin bauð aftur út
58% hlut í Thomson í fyrradag en
í fyrra útboðinu í október sl. tók
franska stjórnin boð Lagarderes
fram yfir boð Alcatels. Þegar það
kom hins vegar ljós, að Lagardere
ætlaði að selja Multimedia, sem er
ein deildin í Thomson og framleiðir
rafeindavörur fyrir almennan mark-
að, til Daewoo í Suður-Kóreu, var
hætt við söluna. Nú hefur verið
ákveðið, að Multimedia verði selt
sérstakiega.
Alcatel hefur fengið til liðs við
sig flugiðnaðarfyrirtækin Aerospat-
iale og Dassault og viðbrögð fjár-
máiamarkaðarins við því eru þau,
að hann vill heldur Alcatel en Lag-
ardere. Sérfræðingar hafa þó hall-
ast þó að því, að ríkisstjórnin muni
ekki vilja viðurkenna, að sér hafi
ef til vill skjátlast í október og
muni því draga taum Lagardere
áfram.
Yfirlýsing frönsku stjórnarinnar
um að fyrirtækin bjóði saman í
Thomson getur að sjálfsögðu breytt
stöðunni en talsmenn þeirra höfðu
ekki tjáð sig um hana í gær.
0,4% minni hagvöxtur vegna lítillar loönufrystingar
á Japansmarkað á núverandi vertíð
Margt annað kann
að vega áhrifin upp
MIÐAÐ við horfur í loðnufrystingu
fyrir Japansmarkað er líklegt talið
að tekjumissir frá því sem gert
hafði verið ráð fyrir í þjóðhagsspá
geti numið allt að þremur milljörð-
um króna sem þýðir hagvaxtar-
minnkun upp á rétt innan við hálft
prósent af landsframleiðslu.
„Ef ég met bara áhrifin af því
að menn geta ekki fryst nema mjög
lítið brot af því sem áætlað var
fyrir Japansmarkað, eru áhrifin um
það bil 0,4% af landsframleiðslu.
Það má hins vegar ekki gleyma því
að margt annað er að gerast í efna-
hagslífinu. Meðal annars eru menn
að skoða aðra markaði, sem kunna
að vega þetta upp að hluta þannig
að nettótapið verði í reynd ekki jafn
mikið og 0,4% gefa til kynna. Þeg-
ar litið er á loðnuvertíðina alla og
þá framleiðslu, sem fæst af þessum
veiðum, þá verður nettótapið
hugsanlega minna vegna þess að
það er einnig verið að framleiða
fyrir aðra markaði og þar verður
hugsanlega aukning," segir Þórður
Friðjónsson, forstjóri Þjóðhags-
stofnunar.
1% meiri hagvöxtur
vegna stóriðjuáforma
Að sögn Þórðar var í síðustu
þjóðhagsspá hvorki gert ráð fyrir
fjárfestingu Columbia Ventures
Corporation í nýju álveri hér á landi
né stækkun verksmiðju Járnblendi-
félagsins. „Ef þeim áformum hvor-
um tveggja verður hrint í fram-
kvæmd í ár, eins og áætlanir eru
um, er ljóst að hagvaxtaráhrifin af
þeim yrðu miklu meiri en sem nem-
ur brottfalii Japansmarkaðar eða
um 1% strax á þessu ári, og vegur
álverksmiðjan í því samhengi mun
þyngra.“
Þjóðhagsstofnun vinnur nú að
nýrri þjóðhagsspá, sem væntanlega
verður gefin út eftir nokkrar vikur.
„Við viljum vita það með vissu hvort
af þessum stóriðjuáformum verður
áður en við gefum út nýja og endur-
skoðaða þjóðhagsspá auk þess sem
mikilvægt er að fyrir liggi eitthvað
meira um kjarasamningana en nú
gerir svo að hægt sé að taka saman
þjóðhagsáætlun á sæmilega traust-
um forsendum."
Þjóðhagsstofnun gerði í síðustu
spá sinni fyrir árið 1997 ráð fyrir
að Japansmarkaður gæfi svipaða
Hagvaxtaráhrif
stóriðjuáforma
mun meiri en sem
nemur brottfalli
Japansmarkaðar
niðurstöðu og í fyrra þegar fram-
leidd voru á þann markað um 37
þúsund tonn af frystri loðnu. Þórður
segir að í ljósi markaðsstöðunnar
og mikilla birgða, sem fyrir voru í
Japan, mætti ef til vill orða það svo
að um ofmat hafi verið að ræða í
þessu samhengi.
„Að hluta til lá að baki hjá okkur
sú staðreynd að menn höfðu auga-
stað á því að vinna frysta loðnu
einnig fyrir aðra markaði og það
sem við gerðum í raun og veru var
að gera ráð fyrir því að mjög svip-
uð nýting yrði á ioðnunni í frystingu
og bræðslu og var á síðasta ári.
Við gerum hins vegar ekki sérstaka
áætlun fyrir Japansmarkað, heldur
áætlum við hlutfall loðnu sem fer
annars vegar í bræðslu og hins
vegar í frystingu. Reyndin sýnir
náttúrulega að líklegt er að við
höfum ofmetið það hlutfall, sem
átti að fara í frystingu.
Verðmæti þess, sem fer í fryst-
ingu og síðan til Japans er nálægt
því að vera tífalt hærra heldur en
þess hráefnis sem fer i bræðslu.
Þess vegna er þetta hlutfall milli
bræðslunnar og frystingarinnar svo
mikilvægt í þjóðhagsspám. Við vor-
um hins vegar ekki með neitt ná-
kvæmt yfirlit um það hvort eitt-
hvert verulegt magn yrði fryst fyr-
ir Rússlandsmarkað eða aðra mark-
aði í formlegri áætlanagerð okkar.
Það kann að vega þessi áhrif upp að
hluta.“
Tilkostnaður mestur
við Japansfrystingu
Aðspurður hve mikið þyrfti að
frysta á aðra markaði til þess að
vega upp tekjutap í Japan, svaraði
Þórður því til að það þyrfti að vera
mun meira en sem næmi því magni,
sem á Japansmarkað vantaði, ein-
faldlega vegna þess að verðið væri
mun lægra á öðrum mörkuðum.
Ef Japanir borguðu að meðaltali
þrefalt verð á við Rússa, væri ekki
óeðlilegt að ætla að frysta þyrfti
þrefalt það magn fyrir Rússland
sem ætlað hefði verið fyrir Japan.
Á móti kæmi hins vegar að mun
minni tilkostnaður væri samfara
framleiðslu á frystri loðnu fýrir
Rússlandsmarkað en til Japans-
markað.
„Japansmarkaður er kröfuharð-
asti markaðurinn og það þýðir
ósköp einfaldlega að kostnaður við
það að vinna fyrir þann markað er
meiri heldur en að vinna fyrir aðra
markaði. Það eru því nettótölurnar
en ekki brúttótölurnar sem skipta
máli þegar verið er að meta efna-
hagslegt tap,“ segir Þórður.
Fjárfest í samræmi
við tiltekna þróun
Þjóðhagsstofustjóri sagði að ekki
væri hægt að svara því á einfaldan
hátt hvort menn hafi farið offari í
fjárfestingum að undanförnu. „Eg
treysti mér ekki til þess að halda
því fram að menn hafi endilega
farið of geyst í fjárfestinguna.
Menn gerðu ráð fyrir tiltekinni þró-
un og fjárfestu í samræmi við það.
Þó að komi tímabundin frávik frá
þeim forsendum, þá fer það eftir
því hversu varanleg þau verða hvort
farið hefur verið of geyst í hlutina.
Það er auðvitað alveg ljóst að
menn telja að gríðarlega mikið af
loðnu muni berast að landi á þessu
ári og reyndar eru horfurnar taldar
vera góðar fyrir loðnuveiðar á
næstu misserum. Það hefur áreið-
anlega verið kominn tími til að end-
urbæta framleiðslutæki í loðnu-
bræðslum, en sé hins vegar miðað
við að framleiðsla á Japansmarkað
verði í einhverri lægð á næstu árum,
þá hafa menn kannski farið of geyst
í fjárfestingu til loðnufrystingar.
Um þetta er ekki hægt að fullyrða
fyrr en séð verður hvernig markað-
ir þróast, t.d. í Rússlandi. Þar kunna
að vera góð tækifæri í framtíðinni.
Vertíðin kann að verða okkur hag-
stæðari á næsta ári og það kann
að vera að við náum því að frysta
fyrir aðra markaði þó ekkert sé
fast í hendi eins og er.
Það er náttúrlega mjög mikil-
vægt fyrir okkur að geta í framtíð-
inni nýtt loðnuna í ríkari mæli í
frystingu en í bræðslu vegna þess
gríðarmikla verðmætaauka sem
felst í frystingunni," segir Þórður.
Mjög góð loðnuveiði á
Herdísarvíkinni í gær
Japanir slaka á kröfum um flokkun o g stærð loðnunnar
MJÖG góð loðnuveiði var í gær
inni á Herdísarvík og fylltu skipin
sig þar hvert af öðru. Að minnsta
kosti tvö skip kældu hluta aflans
niður og héldu með hann til fryst-
ingar fyrir Japansmarkað á Aust-
fjörðum, en þangað er um sólar-
hrings sigling. Loðnan er enn smá
og hafa Japanir dregið úr kröfum
sínum um flokkun og kaupa meira
en ætlunin var af smárri loðnu.
Heildarfrysting fyrir markaðinn
í Japan er líklega orðin um 8.000
tonn. Um 5.000 tonn hafa verið
fryst hjá framleiðendum innan SH,
en alls frystu þeir um 22.000 tonn
á vertíðinni í fyrra. Veiðin er enn
nær eingöngu úr vestustu
göngunni, sem komin er að
Reykjanesi, en loðnan úr henni
hefur verið smá. Þá er hún eitt-
hvað farin að „leka“, en þá er
hrognafylling orðin það mikil, að
loðnan þolir ekki frystingu.
Hrognavinnsla gæti þá hafizt upp
úr helgi.
Halldór G. Eyjólfsson, sölustjóri
hjá SH, segist vonast til að fryst-
ing standi fram yfir helgi, en á
þeim tíma sé hægt að frysta veru-
legt magn. Veiðin er eins og áður
sagði úr vestustu göngunni, en
loðnan í hinum austari er einnig
smá, en styttra komin á leið til
hrygningar.
Hólmaborgin er væntanleg nú
fyrir hádegið til heimahafnar á
Eskifirði með 2.400 tonn. Þar af
eru um 800 tonn í kælitönkum.
Beitir NK frá Neskaupstað er
einnig með ioðnu í kælitönkum,
en þegar svo löng sigling er til
heimahafnar er kæling forsenda
þess að hægt sé að frysta loðnuna.
Jóhann Kristjánsson, stýrimað-
ur á Hólmaborginni, lét vel af
veiðinni í gær. Hann sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að það væri
loðna allt frá Papey og vestur að
Reykjanesi. Menn héldu sig þó
vestast við veiðarnar, því þar
gengi veiðin bezt. Síðan færu
menn að huga að veiðinni eitthvað
austar.
I
|
)
\
I
I
)
I
I
>
>