Morgunblaðið - 21.02.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 23
LISTIR
Morgunblaðið/Júlíus
„HVAR er betra að sýna blómamálverk en í Blómavali? Þar skreppur
heimurinn saman enda var „interflóran", svo sem kunnugt er, til löngu
á undan „internetinu“,“ segir Tolli.
Stefnumót
við fjöldann
TOLLI opnar sýningu á
stórum olíumálverkum og
vatnslitamyndum í glænýju
galleríi í verslun Blómavals
við Sigtún í dag kl. 18. Er
hann fyrsti myndlistarmað-
urinn sem ryður sér til rúms
þar á bæ en sýningin stend-
ur til 2. mars næstkomandi.
„Þessi sýning fellur inn í
þá „taktík" sem ég hef við-
haft undanfarin ár við að
kynna verk mín,“ segir Tolli
sem er hvergi smeykur við
að fara ótroðnar slóðir við
val á sýningarrými. Nægir
þar að nefna Kringluna og
hálfkarað leikhús á Sel-
fossi. „Ég er alltaf að leita
að nýjum snertiflötum við
samfélagið."
Listamaðurinn sækir
yrkisefni sitt að þessu sinni
í jiirtaríkið - nema hvað!
„Ég hef alltaf veigrað mér
við að mála blóm þar til nú
að ég ákvað að láta það eft-
ir mér. Og hvar er betra
að sýna slík verk en í
Blómavali? Þar skreppur
heimurinn saman enda var
„interflóran", svo sem
kunnugt er, til löngu á undan
„internetinu“.“
Að sögn ToIIa er tilvalið að
eiga stefnumót við fjöldann á
„markaðstorgi blómanna".
Galleríið, sem innréttað var
sérstaklega fyrir sýninguna í
einum garðskála Blómavals, sé
„flott“ og minni um margt á
Listamannaskálann. „Þarna
hittir maður fyrir fjöldann all-
an af fólki sem annars fer ekki
á myndlistarsýningar og ég er
sannfærður um að þetta á eftir
að verða vinsæll sýningarstað-
ur í framtíðinni."
Tolli segir að gróskan í ís-
lenskri myndlist hafi sjaidan
verið meiri en einmitt nú - virk-
um myndlistarmönnum fari sí-
fellt fjölgandi. Það segi sig því
sjálft að menn verði í auknum
mæli að beita hugmyndafluginu
við leit að sýningaraðstöðu -
ekki geti allir verið á sama stað.
Segir hann galleríin ekki geta
leyst vandann nema að hluta,
og að sum þeirra séu orðin að
aktu taktu búðum og ekkert
nema gott um það að segja, því
að fjöldi listamanna hafi lífsvið-
urværi sitt af því að selja gegn-
um þessi gallerí. Það er
þörfin og markaðurinn sem
býr til gallerí af þessu tagi.
„Listamenn mættu því gera
miklu meira af því að leita
uppi húsnæði. Ekki til að
selja á laggirnar stofnun,
heldur búa til „festival" og
hverfa siðan á braut.“
í þessu samhengi kveðst
listamaðurinn hafa auga-
stað á nokkrum byggingum
í Reykjavík og mun hug-
myndin fráleitt vera bundin
við myndlist eingöngu. Þarf
það vart að koma á óvart,
þar sem hann hefur verið
ötull við að skipuleggja list-
viðburði af ýmsum toga hin
síðari misseri. „Tónlist,
ljóðlist, myndlist - ég er
opinn fyrir öllu!“
Tolli gengur meira að
segja svo langt að halda því
fram að listin sé alls staðar
- allir séu á sinn hátt lista-
menn. Því til staðfestingar
má geta þess að hann sér
rithönd blaðamanns í list-
rænu ljósi en hún hefur til
þessa eingöngu verið upp-
spretta forvitni, undrunar
- og hláturs.
„Uppeldishlutverk“ lista-
safna, listfræðinga og annarra
aðila sem beint eða óbeint eru
í aðstöðu til að hafa áhrif á skoð-
anir og smekk almennings dreg-
ur Tolli jafnframt í efa. Leggur
hann því til að öllum listasöfnum
í landinu verði Iokað í tilrauna-
skyni í eitt ár eða tvö og allir
opinberir styrkir lagðir niður
„til að finna fyrir andrúminu".
„Ég held að aðgerðir af þessu
tagi myndu ekki skaða ónæmis-
kerfi menningarlíkama þjóðar-
innar, auk þess sem það væri
feikilega forvitnilegt að sjá hvað
myndi gerast!"
TOTEM leikhúsið - ævintýra-
leikhús án orða - sýnir Rap-
unzel sunnudaginn 23. febr-
úar kl. 14 í Norræna húsinu.
Norræna húsið
Barnaleikhús
frá Finnlandi
TOTEM leikhúsið - ævintýraleikhús
án orða - sýnir Rapunzel sunnudag-
inn 23. febrúar kl. 14 í Norræna
húsinu, þetta er barnaleikhús frá
Finnlandi.
„Leikritið Rapunzel er byggt á
einu Grímsævintýranna og hefst á
því að fátæk hjón skipta á dóttur
sinni, Rapunzel, og hatti fulium af
káli frá galdrakarli sem þau hitta.
Rapunzel elst upp hjá galdrakarlin-
um sem heldur henni innilokaðri í
turni í dimmum skógi. Einn daginn
á prins leið um skóginn og sér flétt-
urnar hennar hanga út um turn-
gluggann og vekur þetta forvitni
hans. Þar með hefst prinsinn handa
við að bjarga Rapuzel. Galdrakarlinn
er auðvitað ekki ánægður með þetta,
en allt fer nú samt vei að lokum,“
segir í kynningu.
Totem leikhúsið hefur starfað í
10 ár og farið víða með sýningar
sínar.
Sýningin er ætluð börnum á aldr-
inum 4 ára og eldri. Teater og Dans
í Norden styrkti komu þeirra til Is-
lands. Aðgangur er ókeypis.
Sjáver Bjarna
SJÓNÞING, Sjáver, Sjónver, Ísvís
verður opnað í Nýlistasafninu,
Vatnsstíg 3b, laugardaginn 22.
febrúar nk. kl. 14.
Frumkvöðlar Ísvís og aðstand-
endur Sjónþingsins eru þeir Bjarni
H. Þórarinsson og Guðmundur
Oddur Magnússon.
Sjónþing er skilgreint serm
nýtt menningarfyrirbrigði, nýr
vettvangur nýjunga í listum,
hönnun, heimspeki og vísindum.
Sjónþingið hefst kl. 14. Þar
heldur frumkvöðull Sjónþings,
Bjarni H. Þórarinsson fyrirlestur
um Vísiakademíu.
Kl. 16 verður svo formleg opn-
un myndlistarsýningar á Sjón-
þinginu.
Kl. 17. kveður við nýjung - Sal-
þing, þingleikar í fræðum, spjall-
stefna, spjallborðsumræður um
Vísiakademíu og benduvísifræði
með þátttöku fjölda listamanna
og fræðimanna.
Guðmundur Oddur Magnússon
stýrir umræðunni. Þinggestum
gefst kostur á að taka til máls.
Sjónþingið er opið alla daga
nema mánudaga frá kl. 14-16
og því lýkur 9. mars.
Amerískar fléttimottur.
Qv/rka
-Á.v Mörkinni3, s. 568 7477.
HELENA RUBINSTEIN
Kynnum vorlitina
ídag.
Skemmtileg snyrtibudda
ásamt vöru fylgir þegar keyptir
eru tveir eða fleiri litir úr nýju
litalínunni. Komdu og fáðu
prufu af nýja „Softwear"
farðanum.
H Y G E A
dnyrtivöruvertflun
Austurstrœti, s. 511 4511
(SNYRTIVORUVERSLUNIN
GLÆSHÆ s. 568 5170
n á myndinni kostar 55.620 kr. án hurða
Tvær hæðir
Margar breiddir
Margir litir
Mikið úrval hurða
Homskápar
Pax klæðaskápasamstæða
l- A X
K k i- lK Lv
Komdu í verslun
IKEA og kynntu
þér möguleikana
Afgreiðslutími
Mán.-fÖStud.: 10:00-18:30
Laugardag: 10:00-17:00
Sunnudag: 13:00-17:00
IKEA Holtagörðum •
l'yrir tilln sttjalla
Sími: 568 6650