Morgunblaðið - 21.02.1997, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 21.02.1997, Qupperneq 45
1 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 45 FRÉTTIR Hafnarfjarðarkirkja Síðustu hjóna- og sam- búðarnámskeið vetrarins Málþing um þarfir langveikra barna UMHYGGJA, félag til stuðnings sjúkum börnum, heldur málþing um þarfir langveikra barna laugardag- inn 22. febrúar í tengslum við aðal- fund félagsins fyrr um daginn. Markmið málþingsins er að upplýsa hvaða þarfir skapast þegar barn greinist með alvarlegan sjúkdóm, hvernig þeim er mætt í samfélaginu og að hvetja til átaks í að bæta aðbúnað langveikra barna og fjöl- skyldna þeirra. Málþinginu verður skipt í tvo hluta. í fyrri hluta munu fulltrúar nokkurra foreldrahópa sjúkra barna halda stutt erindi um eigin reynslu og sjónarmið. Má þar nefna hópana „Einstök böm“ (foreldra barna með sjaldgæfa sjúkdóma), Neistann (styrktarfélag hjartveikra barna), Foreldrafélag axlarklemmubarna, PKU-félagið (félag um arfgenga efnaskiptagalla) og Foreldrafélag sykursjúkra barna og unglinga. Síðari hluti er pallborðsumræður þar sem fulltrúar frá stofnunum, samtökum o.fl., sem hafa með mál- efni langveikra barna að gera, taka þátt. Þar er um að ræða heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Tryggingastofnun ríkisins, mennta- málaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, ASÍ og BSRB. Málþingið verður haldið að Hótel Loftleiðum og hefst kl. 13.15. For- seti íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson og eiginkona hans, frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir munu heiðra Umhyggju og málþingsgesti með nærveru sinni. Stjórnandi málþingsins verður Elín Hirst. Málþingið er öllum opið á meðan húsrúm leyfir og er aðgang- ur ókeypis. Náttúrufræð- ingar ræða um- brotin eystra NÆSTI fræðslufundur Hins ís- lenska náttúrufræðifélags á þessu ári verður mánudaginn 24. febrúar kl. 20.30. Fundurinn verður haldinn í stofu 101 í Lögbergi, Lagadeildar- húsi Háskólans. Fundarefnið verður helgað undan- gengnum umbrotum í Vatnajökli og á Skeiðarársandi. Á fundinum flytja þeir Haukur Jóhannesson, jarðfræð- ingur á Náttúrufræðistofnun íslands og Árni Snorrason, vatnafræðingur, forstöðumaður Vatnamælinga Orku- stofnunar, fræðslufyrirlestra í tilefni þessara stórbrotnu náttúruhamfara. Haukur nefnir erindið sitt Vatnajök- ulsgosin 1902-1910 í ljósi síðustu umbrota. Þar segir hann frá heimildakönn- un frá þessum tíma þar sem málin I skýrast í ljósi síðustu atburða. Gos varð í Bárðarbungu síðla árs 1902 með hlaup í Skjálfandafljót og Jök- ulsá á Fjöllum og einnig til Gríms- vatna sem hljóp úr sex mánuðum síðar en því fyljgdi mikið stórgos í Grímsvötnum. A næstu árum varð vart við eldgos öðru hvoru á þessum slóðum fram til 1910. Árni fjallar hins vegar um jökulhlaupin í fræðslufyrirlestri sínum sem hann nefnir: Skeiðarárhlaup í nóvemeber 1996. í erindi sínu mun Árni segja frá hinu tröllslega hamfarahlaupi sem kom í kjölfar eldsumbrotanna í Bárð- arbungu sem hófust um mánaðamót- in september til október í haust. Meira vatn safnaðist í Grímsvötn en áður hefur mælst þar og hlaupið ruddist fram sneggra og aflmeira en áður hefur gerst á þessari öld. Talið er að hlaupvatnið hafi verið meira en hálfur fjórði rúmkílómetri I og hámarksrennsli á Skeiðarársandi hafi verið um 55.000 rúmmetrar á i sekúndu. Fræðslufundir HÍN eru öllum opn- [ ir og aðgangur ókeypis. FRÁ ÞVÍ í október á liðnu hausti hafa verið haldin námskeið um hjóna- bandið og sambúðina. Nú eru aðeins tvö námskeið eftir á þessum vetri. Hið fyrra verður haldið 25. febrúar en hið síðara 11. mars. í vor verður síðan öllum er hafa tekið þátt í nám- skeiðunum boðið að taka þátt í fram- haldsnámskeiði í Skálholti. „Hvert námskeið stendur eitt kvöld og hefur aðsókn verið mikil. Hafa pör þurft að skrá sig fyrirfram og fá 12 pör aðgang í hvert skipti. A námskeiðunum er leitast við að skoða stöðu sambúðarinnar og benda á leið- Landsfundur „Islensks dagsverks“ ÍSLENSKT dagsverk ’97 efnir nú til þriðja landsfundar síns. Að þessu sinni fer hann fram að Hallanda, skammt austan við Selfoss, helgina 21.-23. febrúar. íslenskt dagsverk er samstöðuverkefni sem náms- mannahreyfíngarnar í samvinnu við Hjálparstofnun kirkjunnar hafa unn- ið að allt frá því í maí 1996. Höfuð- markmiðið er að ungt fólk á íslandi sýni samstöðu með jafnöldrum í lönd- unum í suðri, gefi sér tíma til þess að setja sig inn í aðstæður þeirra og beiti sér fyrir því að auka tæki- færi þeirra til náms, segir í fréttatil- kynningu. Þann 13. mars nk. verður botninn sleginn í verkefnið með því að nem- endur í skólum landsins yfirgefa skólana og taka að sér þess í stað að sinna ýmislegum verkefnum í fjár- öflunarskyni. Afrakstur dagsins rennur í sjóð sem notaður verður ti! þess að koma á laggirnar kennslu í nokkrum iðngreinum í tveimur hér- uðum í suðaustur hluta Indlands. Á fundinum að Hallanda verður farið í saumana á ýmsum tæknileg- um atriðum sem varða framkvæmd verkefnisins og einnig boðið upp á fyrirlestra. Jóhanna Eyjólfsdóttir frá íslandsdeild Amnesty Intemational fjallar um mannréttindi og ástandið í þeim efnum á Indlandi og Jónas Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálp- arstofnunar kirkjunnar, flytur erindi um starfsemi samstarfsaðila á Ind- landi (SAM og UCCI). Þetta er þriðji og síðasti lands- fundurinn sem haldinn verður í tengslum við verkefnið. Á hann mæta fulltrúar frá 20 framhaldsskól- um allstaðar að af landinu. Myndás flytur í miðbæinn MYNDÁS ljósmyndamiðstöðinn hefur flutt í miðbæ Reykjavíkur, Skóla- vörðustíg 41. Þar verður aðstaða til að halda ljósmyndasýningar og ætlun- in er að koma á fót miðstöð ljósmynd- unar í borginni. í Myndási eru seldar ljósmyndavör- ur frá helstu framleiðendum. Einnig er þama almenn framköllunarþjón- usta.Á laugardag 22. febrúar kl. 14 verður búðin formlega opnuð. Ljós- myndaklúbburin Ljósálfar verða með slide-sýningu og kynningu á klúbb sínum. ir fram á við til úrbóta þar sem slíkt þarf og til að gera gott betra hjá þeim er þannig stendur á fýrir,“ seg- ir í tilkynningu frá Hafnarfjarðar- kirkju. Leiðbeinendur á þessum námskeið- um em sr. Þórhallur Heimisson, prestur við Hafnarfjarðarkirkju, og Halla Jónsdóttir, fræðslufulltrúi á Biskupsstofu. Enn er hægt að skrá sig á nám- skeiðin sem eftir em. Þau sem hafa áhuga geta skráð sig í síma Hafnar- fjarðarkirkju. Tekið skal fram að námskeiðið er ókeypis. SKÖMMU eftir áramótin 1972 var Öldungadeild Menntaskól- ans við Hamrahlíð stofnuð og eru því um þessar mundir 25 ár frá því að starfsemi hennar hófst. I tilefni af því efna kennarar og nemendur Öldungadeildar- innar til málþings um Öldunga- deildina þar sem ætlunin er að gera upp að einhverju leyti starfið sl. 25 ár og þó enn frek- ar að Hta til framtíðar og reyna Búnaðarþing Bændasam- takanna BÚNAÐARÞING 1997 verður sett í Súlnasal Hótel Sögu sunnudaginn 23. febrúar nk. og hefst kl. 15 stund- víslega. Tekið verður á móti gestum frá kl. 14.30. Ari Teitsson, formaður Bænda- samtaka íslands, flytur ávarp og setur þingið auk hans flytja ávörp Guðmundur Bjamason, landbúnað- arráðherra og Drífa Hjartardóttir, formaður Kvenfélagasambands ís- lands. Samkórinn Björk úr A-Húnavatns- sýslu syngur nokkur lög undir stjórn Peters Weelers, Sólrún Ólafsdóttir bóndi flytur ljóð, boðið verður upp á kaffí, kynntar margvíslegar landbún- aðarafurðir; frá Eggerti feldskera, ístex, Mjólkursamsölunni, Osta- og smjörsölunni, Blómamiðstöðinni, Blómasölunni, Sölufélagi Garðyrkju- manna, Goða, SS, Höfn-Þríhymingi og Ferðaþjónustu bænda. Landbúnaðarráðherra veitir nokkrum bændum viðurkenningar í lok samkomunnar. Þingið er opið Vitni að árekstri óskast LÖGREGLAN óskar eftir að ná sam- bandi við vitni að árekstri sem varð á gatnamótum Sæbrautar og Skeið- arvogs í gær, 19. febrúar klukkan 10.43. Málsatvik eru þau að bifreiðinni XM-082, sem er af gerðinni Volkswagwn Jetta, var ekið suður Sæbraut og Peugout fólksbifreið af gerðinni ZJ-942 var ekið austur Skeiðarvog og beygt áleiðis norður Sæbraut. Á gatnamótum þessum eru umferðarljós og greinir ökumenn á um stöðu þeirra er atburðir gerðust. Helgarskákmót hjá TR TAFLFÉLAG Reykjavíkur gengst fyrir helgarskákmóti um næstu helgi, 21.-23. febrúar, og er teflt í félagsheimilinu í Faxafeni 12. Keppnisfyrir- komulag er þann- ig að tefldar verða sjö umferð- ir eftir Monrad- kerfi. Fyrstu þijár umferðirnar verða með 30 mínútna umhugsun- artíma en fjórar síðari með l'A klst. á 30 leiki og síðan 30 mín. til viðbót- ar til að Ijúka skákinni. Öllum er heimil þátttaka í helgar- skákmótinu. að gera sér grein fyrir því með hvaða hætti ber að þróa starf deildarinnar með tilliti til breyttra tíma og nýrrar tækni. Málþingið hefst í sal MH laugardaginn 22. febrúar nk. og stendur til kl. 16. Nemendur og kennarar Öldungadeildar MH bjóða alla velkomna sem vilja hlusta á erindi og taka þátt í umræðum um framtíð fullorðinsfræðslu í MH og land- inu öllu. almenningi og allir velunnarar land- búnaðarins eru velkomnir, segir í fréttatilkynningu. Andlegt og lík- amlegt ofbeldi gegn konum MALÞING vegna kynferðisofbeldis heldur áfram í Háskólabíói nk. laug- ardagsmorgun, 22. febrúar, frá kl. 10-13. Yfirskrift þessa fundar er Andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn konum. Meðal fyrirlesara verða: Ásta Júlía Amardóttir sem mun fjalla um „Hvaða úrræði konur hafa sem búa við ofbeldi". Heidi Greenfield mun fjalla um ofbeldi sem stjórntæki. Gabriela Sigurðardóttir um meðferð ofbeldismanna. Ingólfur Gíslason um ábyrgð karlmanna og Vilborg G. Guðnadóttir um mikilvægi samvinnu. Yfirskrift fundarins 1. mars er nauðgun, síðan verður fjallað um vændi, klám og kynferðislega áreitni 8. mars og að lokum verða almennar pallborðsumræður 15. mars. Allir eru velkomnir á málþingið meðan húsrúm leyfir, enginn að- gangseyrir. Fyrirlestur um „algildi mann- réttinda“ DR. LUDGER Kúhnhardt, prófess- or í stjórnmálafræði við Albert- Ludwigs háskóla í Freiburg og for- seti stjórnmálafræðideildar háskól- ans, heldur erindi á vegum Mann- réttindaskrifstofu íslands og aðild- arfélaga hennar laugardaginn 22. febrúar kl. 17. Fundurinn verður á Litlu Brekku á Kornhlöðuloftinu. Heiti erindisins er: Algildi mann- réttinda og hlaut hann doktors- gráðu hina meiri (Habilitation) fyrir verk sitt. Frá 1985-1987 var dr. Kúhnhardt dósent við stjórnmála- fræðideild Bonnarháskóla. Á árun- um 1987 til 1989 var hann ræðurit- ari Richards von Weizáckers, for- seta Þýskalands. Að því loknu vann hann að fræðistörfum við St. An- tony’s College í Oxford og sinnti stöðu gestaprófessors við háskólann í Bonn, Jena og Höfðaborg. Dr. Kúhnhardt var gestaprófessor við Evrópuháskólann í Brugge 1984-85 og árið eftir starfaði hann við Hooverstofnunina við Stan- dfordháskóla (Institution on War, Revolution and Peace). Ludger Kúhnhardt hefur skrifað um tuttugu bækur. Helstar þeirra eru: Revolutionszeiten. Das Um- bruchjahr 1989 im geschichtlichen Zusammenhang, Wirklichkeit, Bonn 1996; Beyond divisons. Essa- ys on democracy, the Germans and Europe, Frankfurt/New York 1996. Dr. Ludger Kúhnhardt fæddist 4. júní 1958 í borginni Múnster í Vestfalen í Þýskalandi. Helgaratskák- mót Hellis TAFLFÉLAGIÐ Hellir hefur ákveðið að endurvekja helgaratskákmót sem félagið hélt í samráði við önnur félög á höfuðborgarsvæðinu fyrir nokkrum misserum. Mótið hefst í kvöld kl. 20 og verð- ur framhaldið á morgun kl. 14. Mót- ið fer fram í Þönglabakka 1 í Mjódd- inni. Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi, 3 umferðir á laugar- deginum og 4 á sunnudeginum. Tímamörkin eru 25 mínútur á skák. 1. verðlaun eru 15.000 kr., 2. verð- laun 9.000 kr. og 3. verðlaun 6.000 kr. Þátttökugjald fyrir félagsmenn er 800 kr. fyrir fullorðna og 15 ára og yngri 500 kr. Fyrir aðra kostar 1.200 kr. fyrir fullorðna og 800 kr. fyrir 15 ára og yngri. Æskulýðsmót í Vatnaskógi ÆSKULÝÐSSAMBAND kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum gengst fyrir æskulýðsmóti í Vatnaskógi und- ir yfirskriftinni „Það er töff að trúa“ helgina 21.-23. febrúar. I fréttatilkynningu segir að yfir- skriftin eigi við að það geti verið bæði „smart“ og einnig „erfitt“ að trúa. Það getur verið töff fýrir ungl- inga, sem og aðra, að taka ekki þátt í einelti, segja nei við dópi, leitast við að segja satt, elska og virða aðra o.s.frv. Aðalerindi mótsins heldur sr. Guð- mundur Karl skólaprestur. Þátttak- endur á mótinu eru u.þ.b. 200 ungl- ingar á aldrinum 13-16 ára sem starfa í æskulýðsfélögum sóknar- kirknanna á Reykjavíkursvæðinu. Leiðbeinendur eru ungir prestar og starfsfólk í æskulýðsstarfi kirkjunn- ar. Gallerí Hnoss flytur GALLERÍ Hnoss, sem verið hefur til húsa í Hlaðvarpanum, flytur á Skólavörðustíg 22 og verður opnað laugardaginn 22. febrúar kl. 13. Heitt fjallagrasate verður á könnunni þann dag. Ráðstefna um Öld- ungadeild MH 25 ára

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.