Morgunblaðið - 26.02.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.02.1997, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Kristján FYRSTA æfing 150 manna kórs, sem settur er saman úr 5 eyf- irskum kórum var nýlega á sal Gagnfræðaskólans á Akureyri, en kórinn flytur Carmina Burana með Sinfóníuhljómsveit Norð- urlands í næsta mánuði. Sigurður VE landaði fullfermi af loðnu í Krossanesi Tveggja sólarhringa sigling af miðunum NÓTASKIPIÐ Sigurður VE kom með fullfermi, eðarúm 1.500 tonn, af loðnu í Krossanes um hádegisbilið í gær eftir tveggja sólarhringa siglingu af miðunum út af Garðskaga. Aðeins tók 9 klukkustundir að fylla skipið í 5 köstum en síðan var siglt austur fyrir land til Akureyrar. Kristbjörn Arnason, skipstjóri á Sigurði, segist þar með vera búinn að loka hringnum í kring- um landið. I síðustu löndun á Akureyri var siglt vestur fyrir land og hreppti skipið vitlaust veður, 9-10 vindstig og blindbyl og einnig á leiðinni á miðin aft- ur. Sigurður hefur farið fjóra túra á þessu ári og hefur skipið landað þrisvar fullfermi í Krossanesi og einu sinni á Seyðis- firði. „Við misstum af 10 fyrstu veiðidögunum á þessu ári vegna bilunar en vonum nú að hlutirnir séu komnir í lag,“ sagði Krist- björn. Aðspurður um loðnuveið- ina sagðist Kristbjörn lítið getað sagt um hana, þar sem hann hefði stuttan stans á miðunum og mestur tíminn færi í að sigla til hafnar, enda langt að fara. Fimm kórar sameinast í einn Carmina Burana flutt í dymbilviku FIMM kórar í Eyjafirði taka þátt í flutningi hins þekkta verks Carmina Burana eftir Carl Orff með Sinfóníuhljómsveit Norður- lands á tónleikum í íþróttaskemm- unni á Akureyri fyrir páska, 26. mars næstkomandi. Fyrsta sam- eiginlega æfing kóranna var um helgina, en í honum eru um 150 manns. Hljóðfæraleikarar Sinfóní- uhljómsveitar Norðurlands verða um 60 þannig að yfir 200 manns munu taka þátt í fiutningi verks- ins. Það eru kórfélagar úr Kór Tón- listarskólans á Akureyri, Kór Dalvíkurkirkju, Samkór Svarf- dæla, Kór Laufás- og Svalbarðs- sókna og Kór Grenivíkurkirkju sem sameinast í einn og syngja undir stjórn Guðmundur Ola Gunnarssonar, aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Norður- lands. Einsöngvarar verða þau Michael Jón Clarke og Arndís Halla Ásgeirsdóttir. Þetta er í þriðja sinn sem Sinf- óníuhljómsveit Norðurlands efnir til tónleika í dymbilviku og hafa þeir jafnan verið fjölsóttir. Morgunblaðið/Kristján Skólanefnd ítrekar fyrri samþykkt um hverfisskóla Morgunblaðið/Margrét Þóra Heillaðir heiðurs- félagar FÉLAGARNIR Jakob Tryggva- son og Haraldur Sigurgeirsson Iétu sig ekki vanta á vígslutón- Ieika nýs konsertflygils sem Akureyringar hafa eignast, en báðir eru heiðursfélagar Tón- listarfélags Akureyrar, sem umsjón hefur með flyglinum. Konsertflygillinn er af gerðinni Steinway D og var keyptur fyr- ir fé úr minningarsjóði um Ingi- mar Eydal, en því var safnað á minningartónleikum síðasta haust. Heiðursfélagarnir eru afar hrifnir af nýja hljóðfærinu og nutu þess að heyra það hljóma á vígslutónleikunum. SKÓLANEFND Akureyrar ítrek- aði á fundi á mánudag fyrri sam- þykkt sína um breytta skipan skólamála sunnan Glerár í þá veru að grunnskólarnir þar verði að hverfisskólum og safnaskólakerfið sem verið hefur við lýði verði lagt niður. í tillögum skólanefndar felst að Gagnfræðaskólinn á Akureyri og Barnaskólinn á Akureyri verða sameinaðir í einn skóla sem geng- ið hefur undir vinnuheitinu Brekkuskóli. Stefnt er að því samkvæmt til- lögu skólanefndar að Oddeyrar- skóli og Lundarskóli taki við nem- endum í 8. bekk haustið 1998 og þeir nemendur haldi áfram upp í 9. bekk í sömu skólum haustið FYRIRHUGAÐAR eru umfangs- miklar breytingar á frystitogaran- um Mánabergi ÓF á næsta ári og er ráðgert að þær kosti allt að 300 milljónum króna. Skipið verður lengt um 6 metra og verður 74 metra langt eftir breytingar, nýtt vinnslukerfi verður sett um borð og einnig millidekk. Þá verður skipt um vél í skipinu og verður nýja vélin ein sú öfíug- asta í flotanum eða 4800 hestöfl. Gagnfræðaskólinn á Akureyri og Barna- skólinn á Akureyri sameinaðir 1999 og í 10. bekk haustið 2000. Þeir nemendur sem hefja nám í 8. bekk í Gagnfræðaskólanum í haust yrðu síðustu nemendurnir úr Oddeyrarskóla og Lundarskóla sem ljúka grunnskólanámi sínu í Gagnfræðaskólanum. Breytingar á húsnæði Á næsta ári þurfa að koma til fjárveitingar svo hægt sé að gera Þetta kemur fram í Útveginum, nýjasta fréttabréfi Landssam- bands íslenskra útvegsmanna. Nýtist á úthafsveiðum Þessar breytingar á Mánaberg- inu munu nýtast vel á úthafsveið- unum en Sæberg, útgerðaraðili skipsins, hefur umtalsverðar veiði- heimildir á Reykjaneshrygg og hefur auk þess veitt mikið í Smug- unni. nauðsynlegar breytingar á hús- næði skólanna, auk þess sem við- bótarhúsnæði þarf að koma til á árunum 1999 og 2000, en þá verði hafist handa við varanlegar breyt- ingar við Oddeyrarskóla og Lund- arskóla. Á næsta og þar næsta ári losna lausar kennslustofur við Gilja- og Síðuskóla og er þeim ætlað ef nauðsyn krefur að brúa bilið þar til varanlegt viðbótarhús- næði verður tilbúið við Oddeyrar- og Lundarskóla Bæjarráð Akureyrar fjallar um tillögu skólanefndar á fundi á morgun, fimmtudag, og endanleg ákvörðun verður tekin á fundi bæjarstjórnar næstkomandi þriðjudag. Sæberg í Ólafsfirði gerir út fjóra togara, frystitogarann Mánaberg, ísfisktogarana Sólberg og Múla- berg og rækjufrystiskipið Hvanna- berg, sem fyrirtækið eignaðist árið 1995. Sæberg er stærsti atvinnu- rekandinn í Olafsfirði og greiddi um 355 milljónir króna í laun á síðasta ári. Yfir eitthundrað sjó- menn starfa hjá fyrirtækinu og alls voru rúmlega tvöhundruð manns á launaskrá á síðasta ári. Frjálslynd- iskenning Rortys DR. MICHELE Marsonet, prófess- or í rökfræði og vísindum við Há- skólann í Genúa á Ítalíu, flytur fyrirlestur við Háskólann á Akur- eyri laugardaginn 1. febrúar kl. 14 í stofu 24 í húsnæði háskólans við Þingvallastræti. Fyrirlesturinn nefnist „frjálslyndiskenning Ric- hards Rortys“ og verður hann flutt- ur á ensku. Bandaríski heimspekingurinn Richard Rarty er einn áhrifamesti hugsuður samtímans, en hann hefur haldið fram kenningu um að hugtök og skilningur á mannlífi og stjórn- málum sé breytilegur frá einum tíma til annars og einu samfélagi til annars og í raun þiggi hugsun mannanna um samfélagsmálefni innviði sína og rök einvörðungu til þess samfélags sem hún er sprottin úr. Rarty boðar því róttæka afstæð- ishyggju í samfélagsefnum. Skoð- anir af þessum toga hafa átt auknu fylgi að fagna í rökræðum heim- spekinga á síðustu árum. Dr. Marsonet mun í fyrirlestri sínum andmæla kenningu Rortys og hyggst hann skoða verkhyggju Rortys og rekja þróun hennar og skoðana Rortys til þess pólitíska uppeldis sem hann hlaut ungur. Rorty segist vera frjálslyndur lýð- ræðissinni og heldur því fram að vestrænt fijálslyndi hafi alið af sér bestu tegund af stjórnmála- og fé- lagslífi sem nokkurn tíma hafi kom- ið fram á jörðinni. En Marsonet bendir á að engin rök sé að finna í verkum Rortys fyrir þessari stað- hæfingu. Marsonet mun rekja heildarkenningu Rortys og skoða hvernig hún tengist því sem hann segir um mannlegt samfélag. Umfangsmiklar breytingar fyrirhugaðar á Mánabergi ÓF Nýtt vinnslukerfi sett um borð og skipið lengt - í í t í t i f [: I I I f í f f ( i f I l í t f 4 í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.