Morgunblaðið - 26.02.1997, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 26.02.1997, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS Dýraglens Kringlan 1103 Reylgavík • Sími 5691100 • Símbréf 5691329 • Netfang:lauga@mbl.is Tommi og Jenni OSti / Bn hi/err - odum i/iS i /öi Skírnargjöfin Frá Rannveigu Tryggvadóttur: ÉG var ein viðmælenda í þættinum Dagsljós í Sjónvarpinu föstudaginn 21. febrúar sem bar yfirskriftina Jafnrétti kynjanna, og þakka ég það. í þáttarlok sagði ég eitthvað á þessa leið: „ís- lenska konan er mest metin allra kvenna í heimin- um.“ Ummælin þarfnast skýr- ingar sem felld var niður fyrir útsendingu. Hún er þessi: Sá siður S nafngjöf íslend- inga að konur séu kenndar við skímarnafn föður síns og haldi því alla ævi, var besta gjöfin sem forf- eðurnir gátu gefið dætrum sínum. Þeir voru höfðingjar sem ætluðu dætrunum ekki minni virðingu en sonunum. Þessi nafnvenja hefur ýtt undir sjálfsvirðingu kvenna, gagn- stætt þeirri erlendu venju að kona taki sér ættarnafn manns síns við giftingu. Fyrir tæpum tveimur áratugum var hér haldinn á vegum Samtaka um vestræna samvinnu fundur full- trúa þjóðanna fimmtán sem mynda varnarbandalag það sem kennt hef- ur verið við Nató. Ég fór þá í ræðustól og hélt stutta ræðu um nafngift íslendinga. Sagðist alltaf hafa þótt hlálegt hve miklu merkilegra þætti víða erlend- is að eignast son en dóttur vegna ættamafnsins. Sagði ég að þessu mætti líkja við það þegar tveir menn kepptu í hundrað metra hlaupi og annar fengi að byqa tíu metmm framar en hinn. Ennfremur að þeirri venju að kona tæki sér ættarnafn manns síns við giftingu mætti líkja við það að höggva grein af tré, binda við annað tré og segja greinina af þeim stofni. Við líkingar mínar kallaði ein bandaríska konan upp yfir sig: „High time one heard some common sense.“ (Skynsam- lega ályktað). Skýrði ég frá því að íslenska konan hefði jafnan möguleika og maður hennar á að eignast alnöfnu (alnafna) í annarri hverri kynslóð, þar sem börnin væru gjarnan heit- in eftir áum sínum. Sagði ég reisn íslenskra kvenna grundvallast á nafnavenjunni. Er fundarmenn fóru skömmu síðar fram á gang að fá sér kaffi beið fólk í röð eftir að taka í hönd mína og þakka mér fyrir. Ég mun ætíð blessa minningu forfeðra okkar fyrir að gera hlut dætranna um nöfn jafnstóran hlut sonanna. RANNVEIG TRYGGVADÓTTIR. Bjarmaiandi 7, Reykjavík Rannveig Tryggvadóttir Það er þessi sæta litla stelpa sem Ég sagði henni að við gætum Ég veit ekki einu sinni hvar Par- situr við hliðina á mér í leikskól- kannski farið til Parísar ein- ís er... anum ... hvern daginn ... Upplýsingar um alnetstengingu við Morgunblaðið Tenging við heimasíðu Morgunblaðsins Til þess að tengjast heimasíðu Morgunblaðsins, sláið inn slóðina http://www.centrum.is/mbl/ Hér liggja ýmsar almennar upp- lýsingar um blaðið, s.s netföng starfsmanna, upplýsingar um hvemig skila á greinum til blaðs- ins og helstu símanúmer. Morgunblaðið á alnetinu Hægt er að nálgast Morgun- blaðið á alnetinu á tvo vegu. Annars vegar með því að tengjast heimasíðu Strengs hf. beint með því að slá inn slóðina http://www.strengur.is eða með því að tengjast heimasíðu blaðsins og velja Morgunblaðið þaðan. Strengur hf. annast áskriftar- sölu Morgunblaðsins á alnetinu og kostar hún 1.000 krónur. Sending efnis Þeir sem óska eftir að senda efni til blaðsins um alnetið noti netfangið: mbl@centrum.is. Mikilvægt er að lesa vandlega upplýsingar um frágang sem má finna á heimasíðu blaðsins. Það tryggir öruggar sendingar og einnig að efnið rati rétta leið í blaðið. Senda má greinar, fréttir og myndir eins og fram kemur á heimasíðu blaðsins. Mismunandi tengingar við alnetið Þeir sem hafa Netscape/Mos- aic-tengingu eiga hægt um vik að tengjast blaðinu. Einungis þarf að slá inn þá slóð sem gefin er upp hér að framan. Þeir sem ekki hafa Netscape/ Mosaic-tengingu geta nálgast þessar upplýsingar með Gopher- forritinu. Slóðin er einfaldlega slegin inn eftir að forritið hefur verið ræst. Mótöld Heppilegast er að nota a.m.k. 14.400 baud-mótald fyrir Netscape/Mosaic tengingar. Hægt er að nota afkastaminni mótöld með Gopher-forritinu. Allt efni sem birtist I Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.