Morgunblaðið - 26.02.1997, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 26.02.1997, Blaðsíða 56
* •'HYIINDJtl HÁTÆKNl Tli FRAMFARA Tæknival SKEIFUNNl 17 SlMI 550-4000 • FAX 550-4001 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Landssambönd ASI skora á félög að hefja boðun verkfalla Nýtt tilboð VSÍ/VMS til móts við VMSÍ Kjarasamningur undirritaður á Húsavík í gær Morgunblaðið/Golli SAMNINGANEFNDIR VSÍ og VMS lögðu í gær nýjar tillögur fyrir samninganefnd Verkamanna- sambandsins um færslu kaupauka- greiðslna í fiskvinnslu að kauptöxt- um. Samningsaðilar voru sammála um að með þessari hugmynd hefðu vinnuveitendur komið töluvert til móts við eina af meginkröfum VMSÍ um aðferð við að færa hluta TOLLVÖRÐUR hefur játað að hafa stolið peningasendingu með 52 þús- und sterlingspundum, tæplega 6 milljónum króna, úr Póstmiðstöðinni í Ármúla. Um var að ræða peninga- sendingu til Landsbanka íslands. Þjófnaðurinn átti sér stað í nóvem- bermánuði en málið upplýstist um síðustu helgi og hafa 46 þúsund pund komist til skila. Að sögn RLR var það um helgina sem lögregla komst á snoðir um fólk sem hefði óvenjumikinn erlend- an gjaldeyri undir höndum. RLR tók við rannsókn málsins og á mánudag voru fjórir aðilar á fertugsaldri handteknir, þar á meðal maður sem starfar sem tollvörður hjá Ríkistoll- stjóra. Jafnframt voru gerðar húsleitir í fyrrinótt og í gær og alls var iagt hald á um 46.000 sterlingspund; nýja seðla með sömu númerum og af bónusgreiðslum yfir í dagvinnu- laun. Talið er að ef .samkomulag næst um aðferð við að færa taxta að greiddu kaupi sé mikilvægri hindrun rutt úr vegi í kjaraviðræð- unum. í tilboði vinnuveitenda er hins vegar ekki gert ráð fyrir hækkun yfirvinnu og annarra álags- greiðslna við hækkun dagvinnu- voru á peningaseðlum sem voru í póstsendingu sem Landsbankinn til- kynnti þjófnað á þegar hún skilaði sér ekki í nóvembermánuði síðast- liðnum. Um var að ræða sterlingspund sem Landsbankinn var að kaupa frá erlendum banka. Samkvæmt upplýs- ingum frá RLR var talið að peninga- sendingin hefði komist til landsins en verið stolið úr Póstmiðstöðinni í Ármúla. Tollvörðurinn, sem handtekinn var, hefur að sögn RLR breytilega starfs- stöð en vinnur meðal annars í Póst- miðstöðinni í Ármúla. Hann játaði við yfirheyrslur að hafa hirt pakkann sem ætlaður var Landsbankanum. Rannsókn málsins hefur gengið greiðlega og er málið nú talið upp- lýst, að sögn RLR, og fjórmenning- arnir sem voru handteknir hafa allir verið látnir lausir. taxta eins og VMSÍ gerir kröfu um. Var því óljóst í gærkvöldi hvort útspil vinnuveitenda dygði til að koma viðræðum á skrið en samn- ingsaðilar koma saman að nýju í dag að loknum formannafundi Verkamannasambandsins sem boð- aður hefur verið. Björn Grétar Sveinsson, formað- ur VMSÍ, segir að við fyrstu sýn virðist tillögur vinnuveitenda nær hugmyndum VMSÍ um tæknilega útfærslu á að færa kaupauka að föstum launum en fyrri hugmyndir vinnuveitenda. „Við lögðum inn enn eina hug- myndina varðandi þetta mál. Mér virðist á undirtektunum að viðsemj- endum okkar finnist þetta að minnsta kosti þess eðlis að rétt sé að fara betur yfir hugmyndina,“ segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSI. Atkvæðagreiðslur hafnar um vinnustöðvanir Formenn landssambanda ASÍ skoruðu í gær á öll aðildarfélög sambandsins að hefja þegar í stað boðun aðgerða í samræmi við áætl- anir sem gerðar hafa verið. Aðgerð- ir verði vaxandi fram eftir mars- mánuði og endi með allsherjarverk- falli hafi samningar ekki tekist. Síðdegis í gær hófst atkvæða- greiðsla meðal félagsmanna í Dagsbrún, sem starfa hjá Mjólkur- samsölunni, um boðun verkfalls 9. mars. í dag munu rafiðnaðarmenn hjá Reykjavíkurborg greiða at- kvæði um verkfall sem hefjist 10. mars. Verkalýðsfélag Húsavíkur und- irritaði í gær nýjan kjarasamning við Víkurbarðann á Húsavík vegna nokkurra starfsmanna hjá fyrir- tækinu. Samið var m.a. um hækkun lægstu taxta í 70 þúsund kr. ■ Skoraá/28-29 Fjólublár draumur FÁKAR og menn nutu veður- blíðunnar í Borgarfirði og sprettu úr spori þegar loks sá til sólar eftir óveðrið á dögun- um. Landið skartaði sínu feg- ursta og Skarðsheiðinni í bak- sýn má vissulega líkja við fjólu bláan draum, eins og gert var í ljóðinu forðum. Jarðvegs- rof á lielm- ing-i lands ALVARLEGT jarðvegsrof er talið vera á meira en helmingi alls flatar- máls landsins, þegar jöklar, vötn og fjalllendi eru undanskilin. Þar af er mikið eða mjög mikið rof á meira en fimmtungi landsins. Þetta eru heildarniðurstöður umfangsmikillar vinnu við kortlagningu jarðvegsrofs á íslandi sem Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Landgræðslan kynntu í gær. Mest af þessu alvarlega rofi á sér stað á sendnum auðnum landsins, en alvarlegt rof sem er að eyða sam- felldu gróðurlendi er á um 14 þús- und ferkílómetrum, sém rannsóknar- mennirnir segja að sé slæmt vegna þess hve gróðurhula landsins er tak- mörkuð. „Þessi niðurstaða er slæmur dómur um ástand landsins," segja þeir og fullyrða að hún sé meðal þess versta sem þekkist utan þurrka- svæða jarðarinnar. Vestur-Húnavatnssýsla best Kortlagningin leiddi einnig í ljós að í landinu eru víðáttumikil svæði þar sem jarðvegsrof telst ekki mik- ið. Á það einkum við um svæði á Vesturlandi og vesturhluta Norður- lands, á Suðurlandsundirlendi og sums staðar á Austurlandi. Lang- minnsta jarðvegsrofið er í Vestur- Húnavatnssýslu þar sem lítið rof telst á 93% lands. Niðurstöður mats á ástandi hreppa og afréttarlanda með tilliti til jarð- vegsrofs sýna að stór hluti miðhá- lendisins er ekki hæfur til beitar. ■ Slæmur dómur/6 Norræni laxasjóðurinn og Orri Vigfússon Hugmyndir um gæðabandalag um fisk úr Norður-Atlantshafi NORRÆNI laxasjóðurinn, North-Atlantic Salmon Fund, og Orri Vigfússon, hafa kynnt hugmyndir sínar um sérstakt gæðabandalag þjóða á norðurslóð. Hugmyndin byggist á því að aðilar að gæðabandalaginu, North-Atlantic Quality, setji sér ákveðnar kröfur um gæði og hreinlæti við fískvinnslu og ábyrgist að fiskur- inn sé hvorki veiddur úr ofveiddum fískistofnum né með veiðarfærum sem valda spjöllum á nátt- úrunni. Orri Vigfússon segir í samtali við Morg- unblaðið, að með þessu móti geti þjóðirnar við Norður-Atlantshaf tryggt sér frumkvæði á þessu sviði og með því styrkt stöðu sína á al- þjóðlegum mörkuðum fyrir fiskafurðir. Orri hefur kynnt hugmyndina á Grænlandi, í Færeyjum, á Nýfundnalandi og á íslandi: „Royal Greenland, stærsta fiskvinnslufyrirtæki Grænlands, hefur samþykkt þessa hugmynda- fræði, þó kannski komi fleiri gæðamerki á fisk- afurðir til greina. Það verða áreiðanlega fleiri Getur styrkt stöðu okkar á mörkuðunum, segir Orri Vigfússon merki af þessu tagi í gangi í alheimsviðskiptum með fisk. Ég hef einnig fengið mjög jákvæð viðbrögð ýmissa aðila hér á íslandi, í Færeyjum og á Nýfundnalandi," segir Orri. Trúverðugleiki mikilvægur Hugmyndin um bandalagið snýst um að fyrir- tæki, einstaklingar og hagsmunasamtök frá fyrr- nefndu þjóðunum fjórum taki sig saman undir forystu Norræna laxasjóðsins. Þar má nefna samtök í vinnslu, útgerð, útflutningi auk stjóm- valda. Orri segir mikilvægt að hófsamleg samtök um náttúruvemd eigi aðild að gæðabandalagi af þessu tagi til að auka trúverðugleika þess. Jafn- framt verði að miða kröfur um gæði og hrein- læti við það sem bezt er í heiminum og að vísinda- legt mat á veiðiþoli fiskistofna sé eins rétt og nákvæmt og þekking okkar leyfi hveiju sinni. „Tízkumerki" í stuttu ágripi um gæðabandalagið og sér- stakt merki þess, segir meðal annars að notkun merkisins takmarkist við fisk úr Norður-Atl- antshafi. „Jafnframt yrði þessi fiskur og afurð- ir úr honum kynntar sem einstakar gæðaafurð- ir, þar sem mengun í hafinu sé hverfandi og gæðakröfur hinar ströngustu í heimi. Uppfylla yrði ströng skilyrði til að fá afnot af merkinu, sem þá mætti líkja við merki á helztu tízkuvör- um veraldar." Þar segir ennfremur: „Hugmynd okkar er að NASF og samstarfsaðilar myndu stjórna framvindunni, bera fjárhagslega ábyrgð og byggja upp starfsemina fyrstu árin.“ Tollvörður játar þjófnað á peningasendingu Tók; sex milljónir kr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.