Morgunblaðið - 26.02.1997, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Jafnvægi milli framboðs og
eftirspurnar á vinnumarkaði
Könnun Þjóðhagsstofnunar á atvinnuástandi
í janúar sýnir að atvinnurekendur vilja fækka
starfsfólki um þrjátíu á landinu öllu
Vísbendingar um eftirspurn eftir vinnuafli í
helstu atvinnugreinum f janúar 1996 og 1997
Janúar 1996 P—1 Janúar 1997
Fiskiðnaður
Iðnaður
Byggingarstarfsemi
■50
tSL
%+110
-65 C
1+30
Samgöngur Sjúkrah.rekstur ^ S5í -40'- í -351 ___| 1+15 g.
Önnur þjónustustarfs. r~i+20 HWðo
SAMTALS 030 .vniaafeúJ
Vísbendingar um eftirspurn eftir vinnuafli á
höfuðborgarsvæði og landsbyggðinni í jan. 1997
issii Landsbyggúin éö
Fiskiðnaður
Iðnaður
Byggingarstarfsemi
Verslun og veitingastarfsemi
Samgöngur
Sjúkrahúsarekstur
Önnur þjónustustarfsemi
SAMTALS
■5/11 ' ' |
■10
Heimild: Þjóðhagsstoínwi
*
Islenska útvarpsfélagið kaupir tvö aðgangsþjónustufyrirtæki á alnetsmarkaði
Treknetog
Islandia sameinuð
ATVINNUREKENDUR töldu
æskilegt að fækka starfsfólki um
30 manns á landinu öllu, samkvæmt
niðurstöðu atvinnukönnunar Þjóð-
hagsstofnunar sem fram fór í jan-
úarmánuði. Þetta er svipuð niður-
staða og hefur orðið í þessum at-
vinnukönnunum síðastliðin tvö ár
og virðist nokkuð gott jafnvægi
milli framboðs og eftirspurnar eftir
vinnuafli í heildina tekið. Eftirspurn
eftir vinnuafli er mest í iðnaði og
byggingarstarfsemi, en vilji til
fækkunar kemur helst fram í
sjúkrahúsrekstri, fískiðnaði og
verslun og veitingastarfsemi, að því
er fram kemur í frétt frá Þjóðhags-
stofnun.
Atvinnurekendur á höfuðborgar-
svæðinu vildu í það heila tekið
fækka um 15 manns og atvinnurek-
endur á landsbyggðinni vildu fækka
um sama fjölda. I sjúkrahúsrekstri
á höfuðborgarsvæðinu vildu stjórn-
endur fækka um 50 manns, en í
byggingarstarfsemi vildu þeir fjölga
um 20 manns og svonefndri ann-
arri þjónustustarfsemi um 60
manns.
ÍSLENSKA útvarpsfélagið hefur
keypt tvö aðgangsþjónustufyrir-
tæki á alnetsmarkaði, Treknet,
sem áður var aðallega í eigu Tölvu-
skóla Reykjavíkur og starfs-
manna, og Islandia, sem var í eigu
8 einstaklinga og tölvuáhuga-
manna. Fyrirtækin verða samein-
uð í nýju alnets- og margmiðlunar-
fyrirtæki íslenska útvarpsfélags-
ins sem stofnað verður formlega
í byrjum mars.
Islenska útvarpsfélagið verður
aðaleigandi hins nýja hlutafé-
lags, en viðræður standa yfir við
fleiri fyrirtæki á fjölmiðla- og
alnetsmarkaði um þátttöku í fé-
laginu.
Atvinnurekendur á landsbyggð-
inni vildu fækka mest í fiskiðnaði
og þjónustustarfsemi eða um 50
manns í hvorri starfsgrein. Eftir-
spurn eftir starfsfólki var mest í
iðnaði, þar sem vilji var til að íjölga
um 120 manns. Eftirspurnin var
einkum í málmiðnaði.
Atvinnuleysi í síðasta mánuði var
5,2% samanborið við 5,9% í sama
mánuði í fyrra.
Eftirspurn
í málmiðnaði
Þjóðhagsstofnun gerir þessar
kannanir þrisvar á ári, í janúar,
apríl og september. Fjöldi fyrir-
tækja sem könnunin nær til er
rúmlega 300 og þau eru í öllum
atvinnugreinum nema landbúnaði,
fiskveiðum og opinberri þjónustu
fyrir utan sjúkrahús. Svör bárust
frá 270 fyrirtækjum og 260 fyrir-
tæki eru í pöruðum niðurstöðum.
Umsvif fyrirtækjanna er um 41%
af þeirri atvinnustarfsemi sem
könnunin nær til og hún spannar
um 75% af allri atvinnustarfsemi
í landinu.
í fréttatilkynningu frá íslenska
útvarpsfélaginu kemur fram að
með kaupunum hafi ÍÚ stigið
fyrsta skrefið inn á margmiðlun-
armarkaðinn en fyrirtækið ákvað
sl. haust að stofna og reka al-
nets- og margmiðlunarfyrirtæki.
Fyrst um sinn verður starfsemi
Treknet og Islandia með svipuðu
sniði og verið hefur, en gert er
ráð fyrir að sameinaður rekstur
þeirra hefjist í nýju húsnæði ís-
lenska útvarpsfélagsins við Krók-
háls í maí.
Hallgrímur Thorsteinsson sem
veitir þessari starfsemi íslenska
útvarpsfélagsins forstöðu, sagði í
samtali um ástæður þess að ÍÚ
færi inn á þetta svið væri fyrst
og fremst þær að þarna væri orð-
inn til sjálfstæður miðill sem ekki
væri unnt að hundsa en færi engu
að síður vel saman við þá starf-
semi sem íslenska útvarpsfélagið
væri með fyrir. Til að mynda félli
hún vel að áskriftarsölu fyrirtæk-
isins vegna sjónvarpsins.
Á vefsíðum nýja fyrirtækisins
verður meðal annars að finna
fréttir Bylgjunnar og Stöðvar 2,
dagskrár allra miðlanna og upp-
lýsingar um einstaka þætti,
áskriftarþjónustu og fasteignasíð-
ur. Áskrifendum að sjónvarpsmiðl-
um íslenska útvarpsfélagsins mun
standa til boða tenging við alnetið
á sérkjörum, að því er segir í
fréttatilkynningunni.
Koparkóngi
slepptgegn
tryggingu
Tókýó. Reuter.
YASUO HAMANAKA, sem eitt sinn
réð lögum og lofum í koparviðskipt-
um heims, hefur verið látinn laus
gegn 50 milljarða jena tryggingu,
einni viku eftir að hann viðurkenndi
hlut sinn í einu mesta viðskipta-
hneyksli sögunnar.
Hamanaka hefur játað sig sekan
af ákærum um fjársvik og skjalafals
vegna óleyfilegra viðskipta, sem
kostuðu Sumitomo fyrirtækið 2.6
milljarða dollara. Þótt Hamanaka
játaði þegar réttarhöld hófust í máli
hans 17. febrúar á hann enn eftir
að mæta fyrir rétt nokkrum sinnum.
Heimildir í japanska dómsmála-
ráðuneytinu herma að þar sem Ham-
anaka hafi játað hafi dómstóllinn lík-
lega komizt að þeirri niðurstöðu að
engin ástæða sé til að ætla að hann
reyni að eyðileggja sönnunargögn
aða flýja land til að komast hjá fang-
elsisivist.
Viðurlög við hinum tveimur
ákæruatriðum eru allt að 15 ára
fangelsi. Veijendur Hamanaka
hyggjast sýna fram á að tapið hafi
ekki verið honum einum að kenna.
--------» » ♦---
Disneykaupir
íPixarverinu
Los Angeles. Reuter.
WALT DISNEY fyrirtækið hefur
samþykkt að kaupa allt að 5% í kvik-
myndaverinu Pixar Animation Studi-
os samkvæmt samkomuiagi sem
veitir framleiðanda metsölumyndar-
innar Toy Story meiri hlutdeild í
hagnaði af kvikmyndum sem hann
framieiðir.
♦ ♦ ♦--
Aðalfundur
LÍSU
AÐALFUNDUR LÍSU, samtaka um
samræmd_ landfræðileg upplýsinga-
kerfi á íslandi, verður haldinn á
morgun, fimmtudaginn 27. febrúar
klukkan 13:00 á Grand Hótel.
Auk hefðbundinna dagskrárliða,
samkvæmt lögum félagsins, verður
gerð grein fyrir álitsgerð og tillögum
nefndar um endurskoðun á starfsemi
samtakanna. Þá verður einnig stutt
kynning á styrkjum til verkefna á
sviði landfræðilegra upplýsinga.
Fasteignasalan
KJÖRBÝLI
^ 564 1400
NÝBÝLAVEGUR 14
200 KÓPAVOGUR
FAX 5543307
Opið virka daga
9.30-12 og 13-18
2JA HERB.
FURUGRUND 42 - LAUS. Sérlega
falleg 56 fm íb. á 3ju hæð í góðu húsi. Park-
et, góðar innr. Ákv. sala. V. 5,5 m.
LAUGARNESVEGUR - 2JA. Falleg
60 fm (búð á jarðhæð. LAUS. Áhv. 2 m.
V. 4,850 m.
NÝBÝLAVEGUR - 2JA M. BÍL-
SKÚR. Bráðskemmtileg 54 fm íbúö á 2.
hæð ásamt 22 fm bílskúr. Áhv. byggsj. 2,5
m. V. 5,9 m. Góð kjör f boði.
3JA HERB.
HEIÐARHJALLI - SÉRINNG.
Glæsileg 85 fm ný fullbúin 3ja herb. íbúð
á garðhæð 15-íb. húsi. Stórkostlegt útsýni.
Áhv. 3,4 m. V. 7,9 m.
ÁSTÚN - 3JA Bráðfalleg 74 fm íb. á
efstu hæð I góðu fjölb. Parket á allri ib.
Þessa þarftu að skoða. V. 6,9 m.
ÁSTÚN 10 - 3JA. Falleg 80 fm íb. á 3ju
hæð. Inngangur af svölum. Útsýni. V. 6,8 m.
FANNBORG - ÚTSÝNI. Ný í sölu
sérl. falleg 3ja herb. endaíbúð á efstu hæð
f góðu fjölb. Frábær staðs. Stórar suður-
svalir.
KLEPPSVEGUR - 3JA - STÓR.
Gullfalleg 102 fm íb. á 3. hæð. Nýtt parket.
Fallegt útsýni og góð staðsetning. Áhv. 4,4
m. V. 7,3 m.
FURUGRUND 32 - L/EKKAÐ
VERÐ. Falleg 67 fm íbúð á 2. hæð. Park-
et. Áhv. byggsj. 3,4 m. Verð aðeins 5,9 m.
FANNBORG - 3JA. STÓRAR
SUÐURSVALIR. Sérlega falleg og
rúmgóð 85 fm fbúð á 3. hæð. Ca 20 fm
svalir með gífurlegu útsýni. V. 6,8 m.
ENGIHJALLI - 3JA. Sérl. falleg 88
fm íb. á 8. hæð (A) í nýviðg. lyftuh. Suð-
vestursvalir og útsýni.
4RA HERB. OG STÆRRA
EFSTIHJALLI - 4RA. Gullfalleg 87 fm
ib. á 2. hæð (efstu). Norðvesturútsýní, suð-
ursvalir, nýtt eldhús o.fl. V. 7,1 m.
ESPIGERÐI - FRÁBÆRT ÚT-
SÝNI. Sérlega falleg 110 fm 4-5 herb. íb.
á 8. hæð í eftirsóttu lyftuh. Stórar stofur.
V. 10,6 m.
LUNDARBREKKA - 5 herb. Sérlega
falleg 110 fm endaíbúð I vestur á efstu hæð
I góðu fjölbýli. Nýtt parket. Frábært útsýni.
Áhv. 4,4 m. V. 7,9 m.
HÆÐARGARÐUR Skemmtileg 76
fm efri sérhæð ás. innr. rislofti yfir hluta íb.
Parket. Ákv. sala. V. 6,9 m.
SÉRHÆÐIR
GRÆNAMÝRI - SELTJ. Glæsileg ný
112 fm efri sérhæð sem afhendist fullb. án
gólfefna. Áhv. 2,5 m. 125 ára láni. V. 10,6 m,
KÁRSNESBRAUT - 5 HERB. stór-
glæsileg ca 135 fm íb. á 2. hæð I nýl. þríb.
ás. 32 fm bílsk. Sérl. vandaöar innr. EIGN í
SÉRFLOKKI. Áhv. 1,7 m. V. 11,2 m.
TÓMASARHAGI - EFRI SÉR-
HÆÐ. Sérlega virðuleg og rúmgóð efri
hæð í þríbýli. 3 stórar stofur (arinstofa) og
3 svherb. Áhv. 5,5 m. V. 11,8 m.
ÁLFHÓLSVEGUR - SÉRHÆÐ.
Glæsileg 135 fm efri sérhæð í nýl. tvíb. m.
23 fm bílsk. Arinn, parket, vandaðar inn-
rétt. EIGN í SÉRFLOKKI. V. 11,5 m.
BORGARHOLTSBRAUT. Skemmtileg
122 fm efri sérhæð ásamt 36 fm bflsk. Eign
sem býður upp á mikla möguleika. Áhv. 4,2
m. V. 9,3 m.
HJALLABREKKA. Gullfalleg 110 fm
efri sérhæð í tvíbýli m. 30 fm bílskúr. Skipti
á minni eign möguleg. Áhv. 6 m. góð lán.
v. 9,8 m.
RAÐHUS
SELBREKKA. Fallegt 250 fm endarað-
hús með innb. 30 fm bílsk. V. 12,3 m.
EINBÝLI
HLÍÐARHJALLI - KÓP. Glæsilegt213
fm tvd. einb. m. innb. bílskúr innst við lokaða
götu. Frábært útsýni. Skipti mögul. Áhv. bsj.
3,5 m. V. 16,5 m.
VALLARGERÐI - KÓP. Sérl. fallegt
152 fm tvílyft eldra einb. ásamt 54 fm bílsk.
sem er innr. að hálfu sem trésm.verkst. Áhv.
bsj. 3,5 m. Verð 12,2 m.
HOLTAGERÐI - KÓP. Sérl. fallegt
og vel við haldið 161 fm einb. á einni hæð
m. innb. bílsk. Frábær staðs. Útsýni.
V. 13,1 m.
KÁRSNESBRAUT - EINB. M. 50
FM BÍLSKÚR. Fallegt 170 fm tvílyft
einb. Nýtt eldhús og bað. Þessu húsi fylg-
ir 50 fm tvöf. bílsk. m/mikilli lofthæð og
stóru plani fyrir framan. Hentar fyrir t.d.
bílaverkst. o.fl. V. 11,2 m.
í SMÍÐUM
HEIÐARHJALLI - BREKKU-
HJALLI. Neðri sérhæðir í húsi sem er
fullbúið að utan en tilb. til innr. að innan.
Mjög er vandað til alls frágangs t.d. eru
pípul. rör í rör, innb. lagnir fyrir halogen-
lýsingu o.fl. Til afh. strax. V. 9,9 m.
GALTALIND 10. 3 og 4 herb. íbúðir
sem afhendast fullbúnar, án gólfefna, í júlí
/97. Mögul. á bllskúr. Bæklingur með nán-
ari uppl. á skrifstofu. V 7,9 m 3ja herb. og
8,9 m 4ra herb. Bílskúr v. frá 1,0 m.
Kristjana Jónsdóttir, sölustjóri.
Rafn H. Skúlason, lögfr., lögg.
fast.sali.