Morgunblaðið - 26.02.1997, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 29
\SI segja viðræðutilraunir árangurslausar
AÐGERÐAÁÆTLUN DAGSBRUNAR OG FRAMSOKNAR
Verkföll ímars
Morgunblaðið/Kristinn
Fyrirtæki Fundir Atkvæðagreiðsla Verkfallsboðanir VERKFALL
Mjólkin, ísgerð þríðjudag 25. febrúar kl. 16.00 fimmtudag 27. febrúar kl. 6.30-10.00 Fyrir kl. 17.00 föstudag 28. febrúar 9. mars
Höfnin
Samskip mánudag þriðjudag Fyrir kl. 17.00
3. mars 4. mars miðvikudag
kl. 13.00 kl. 8.00-17.00 5. mars 12. mars
Eimskip kl. 15.30 kl. 8.00-17.00 Sama 12. mars
Löndun mánudag þriðjudag Fyrirkl. 17.00
3. mars 4. mars miðvikudag
kl. 12.00 kl. 11.30-13.30 5. mars 12. mars
Olía/bensín 3. til 3. til Fyrir kl. 17.00
6. mars 6. mars föstud. 7. mars 16. mars
Allsherjarverkfall 10. til 13. mars Fyrir kl. 17.00 föstud. 7. mars 23. mars
Tillaga þessi verður lögð fyrir samninganefnd í dag.
FORMENN landssambanda Alþýðusambands íslands og forseti
sambandsins á fréttamannafundi í gær, þar sem skorað var á
aðildarfélögin að hefja þegar boðun aðgerða sem fari vaxandi
fram eftir marsmánuði og endi með allsherjarverkfalli 23. mars,
hafi samningar ekki tekist.
Nýjar reglur
um verkföll
Allsherj arverkfall
hefjist 23. mars
TRÚNAÐARMANNARÁÐ verkalýðs-
félaganna Dagsbrunar og Framsóknar
samþykktu í gær tillögu að aðgerða-
áætlun félaganna sem lögð verður fyr:
ir samninganefnd félaganna í dag. í
aðgerðaáætluninni eru lögð til verkföll
á vinnustöðum sem hæfust 9. mars ef
ekki hefur samist fyrir þann tíma.
Vinnustaðafundur var haldinn í
Mjólkursamsölunni kl. 16 í gær og í
framhaldi af honum hófst svo at-
kvæðagreiðsla meðal starfsmanna um
verkfallsboðun. Opnuð verður kjör-
deild á fimmtudag fyrir þá starfsmenn
sem ekki gátu tekið þátt í atkvæða-
greiðslunni í gær.
Verkföll hjá skipafélögum
og i löndun 12. mars
Tillagan gerir ráð fyrir að boðað
verði til verkfalls í Mjólkursamsölunni
á föstudag sem hæfist á miðnætti 9.
mars. Þann 4. mars eiga að fara fram
atkvæðagreiðslur félagsmanna hjá
Eimskipi og Samskipum og meðal lönd-
unarverkamanna um verkfallsboðun
12. mars. Dagana 3.-6. mars fara fram
atkvæðagreiðslur starfsmanna hjá olíu-
félögunum um verkfall sem lagt er til
að hefjist á miðnætti 16. mars og dag-
ana 10.-13 mars fer fram atkvæða-
greiðsla meðal allra félagsmanna
verkalýðsfélaganna um boðun allsheij-
atverkfalls sem hefjast á 23. mars.
Ekki verður farið út í póstatkvæða-
greiðslur hjá Dagsbrún og Framsókn
en atkvæðagreiðslumar fara fram á
vinnustöðum vegna vinnustöðvana í
einstökum fyrirtækjum en almenn at-
kvæðagreiðsla fer svo væntanlega fram
á skrifstofu verkalýðsfélaganna vegna
tillögu um boðun allsheijarverkfalls.
Á mánudag komu fulltrúar fjöl-
margra verkalýðsfélaga á suðvest-
urhorninu saman hjá Dagsbrún þar
sem farið var yfir aðgerðaáætlun félags-
ins og rætt var um fyrirhugað samráð
um verkfallsaðgerðir á næstu vikum.
MEÐ breytingunum sem gerðar
voru á vinnulöggjöfinni á seinasta
ári var ákvæðum um verkföll og
verkbönn breytt frá því sem verið
hefur og settar reglur um at-
kvæðagreiðslur um afgreiðslu
samninga og verkfallsboðun.
20% þátttaka
og meirihlutinn samþykki
• Ekki er lengur hægt að taka
ákvörðun um verkfall á almennum
félagsfundi heldur verður að fara
fram almenn leynileg atkvæða-
greiðsla meðal félagsmanna þar
sem meirihlutinn ræður. Má fram-
kvæma hana með tvennskonar
hætti. Almenn atkvæðagreiðsla
getur farið fram á kjörfundi eða
í kjördeildum og þarf þá að lág-
marki 20% þátttöku félagsmanna
til að hægt sé að boða verkfall
með lögmætum hætti. Telst tillag-
an samþykkt ef meirihlutinn styð-
ur hana. Hins vegar er hægt að
viðhafa póstatkvæðagreiðslu, líkt
og gildir um verkfallsboðanir lijá
opinberum starfsmönnum. Krafan
um 20% þátttöku á ekki við um
póstatkvæðagreiðslur heldur ræð-
ur einfaldlega meirihluti þeirra
sem þátt taka.
Ef vinnustöðvun er einungis
ætlað að taka til ákveðins hóps
félagsmanna eða starfsmanna á
tilgreindum vinnustað er heimilt
að taka ákörðun um vinnustöðvun
með atkvæðum þeirra sem henni
er ætlað að taka til. Þarf fimmt-
ungur atkvæðisbærra starsmanna
að taka þátt í atkvæðagreiðslunni
og meirihlutinn að styðja tillögu
um vinnustöðvun til að hón sé
lögmæt.
Skilyrði að viðræður hafi
reynst árangurslausar
• Það skilyrði er sett í vinnulög-
gjöfinni að samningaviðræður eða
viðræðutilraunir um framlagðar
kröfur hafi reynst árangurslausar
þrátt fyrir milligöngu sáttasemj-
ara svo heimilt sé að boða verk-
fall. Tilkynna þarf ákvörðun um
verkfall sjö sólarhringum áður en
hún á að hefjast. Verkalýðsfélögin
þurfa að kjósa sérstakar kjör-
stjórnir til að annast framkvæmd
atkvæðagreiðslna og útbúa þarf
kjörskrá yfir alla félagsmenn.
Alltaf er hægt að
aflýsa vinnustöðvun
• Samninganefnd eða öðrum fyr-
irsvarsmönnum er jafnan heimilt
að aflýsa boðaðri vinnustöðvun.
Hins vegar eru sett ýmis skilyrði
fyrir frestun á boðuðu verkfalli.
Það má gera einu sinni eða oftar,
um allt að 28 sólarhringa, án sam-
þykkis gagnaðilans en þó með því
skilyrði að frestunin sé kynnt
honum með minnst þriggja sólar-
hringa fyrirvara. Einnig er heim-
ilt að fresta vinnustöðvun með
samþykki beggja samningsaðila.
7 0 þúsund
kr. lág-
markslaun
VERKALÝÐSFÉLAG Húsavíkur og
Víkurbarðinn á Húsavík undirrituðu
nýjan kjarasamning í gær. Samkvæmt
honum hækkar lágmarkstaxti í 70
þúsund krónur á mánuði 1. mars nk.
Jafnframt hækka allir taxtar um 5
þúsund krónur við undirritun og aftur
um 5 þúsund krónur 1. janúar 1998.
Samningurinn gildir til 1. mars. 4-8
starfsmenn starfa að jafnaði hjá Víkur-
barðanum en fyrirtækið er ekki í VSÍ.
Aðalsteinn Baldursson, formaður
Verkalýðsfélags Húsavíkur, sagðist,-f
vera mjög ánægður með þennan
samning. Stjórnendur Víkurbarðans
hefðu með honum fallist á kröfugerð
Verkamannasambandsins og gott bet-
ur því þeir hefðu fallist á að krafan
um 70 þúsund króna lágmarkslaun
kæmi til framkvæmda strax 1. mars,
en í kröfugerð VMSÍ væri gert ráð
fyrir að 'ágmarkslaun yrðu 65 þúsund
krónur við undirritun og 70 þúsund
1. janúar 1998.
Magnús L. Sveinsson
Kröfur VR
og Dags- '
brúnar
áþekkar
SAMNINGANEFNDIR Verzlunar:
mannafélags Reykjavíkur og VSÍ
héldu samningafund í gær. Fátt mark-
vert gerðist á fundinum en frekari
viðræður eru þó fyrirhugaðar. Síðdeg-
is komu fulltrúar Dagsbrúnar á fund, -
með forystumönnum VR til að ræða
stöðu kjaramála og kynna þeim að-
gerðaáætlun félagsins.
Magnús L. Sveinsson sagði að í ljós
hefði komið að áherslur félaganna í
kiaramálum væru mjög áþekkar, bæði
félögin vildu gera fyrirtækjasamninga,
í kröfugerð beggja væri farið fram á
hækkun lægstu launataxta í 70 þúsund
kr. og Dagsbrún vildi einnig prósentu-
breytingar launa en VR hefur lagt fram
kröfur um blöndu krónutölu- og pró-
sentuhækkana launa um 17% á samn-
ingstímanum. Landssambönd ASÍ hafa
hins vegar farið fram á krónutöluhækk-
un launa í sinni kröfugerð.
„Við erum að skoða málin og það
er óhjákvæmilegt að setja sig í stell-
ingar ef ekki takast samningar á;
næstu dögum,“ segir Magnús, að-
spurður um undirbúning aðgerða með-
al félagsmanna í VR.
Rafiðnaðarmenn
Atkvæði
greidd um
verkfall í dag
MIÐSTJÓRN Rafiðnaðarsambandsins
samþykkti síðdegis í gær að hefja
undirbúning að verkfalli. Stefnt er að
því að boða verkfall á einstökum
vinnustöðum um miðjan mars og allsír-
heijarverkfall 23. mars.
Rafíðnaðarmenn hjá Reykjavík-
urborg greiða atkvæði í dag um tillögu
um verkfall 10. mars. Það nær m.a.
til starfsmanna Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og Sjúkrahúss Reykjavík-
ur. Tillaga um verkfall hjá RARIK 14.
mars verður póstlögð til starfsmanna
í þessari viku. Þá verður boðað verk-
fall hjá fjármálaráðuneytinu 17. mars,
en það nær m.a. til Landspítalans,
RÚV og Flugmálastjórnar. Auk þess
hefur miðstjórn Rafiðnaðarsambands-
ins til skoðunar að boða verkfall á
einstökum vinnustöðum eins og fisfc-
vinnsluhúsum, loðnubræðslum, Búr-
felli, Sogi og álverinu í Straumsvík,
að sögn Guðmundar Gunnarssonar,
formanns Rafíðnaðarsambandsins.
Guðmundur sagði að engir fundir
væru boðaðir með samninganefnd
Rafiðnaðarsambandsins og viðsemj-
endum. Samningafundir síðustu mán-
aða hefðu verið árangurslausir.