Morgunblaðið - 26.02.1997, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 35
BRANDÍS
KRISTBERGSDÓTTIR
+ Brandís Krist-
bergsdóttir
fæddist í Reykja-
vík, 12. október
1987. Hún lést 17.
febrúar síðastliðinn
á barnadeild
Hringsins. Foreldr-
ar hennar eru Ing-
iríður Brandís Þór-
hallsdóttir, f. 12.9.
1956, og Kristberg
Óskarsson, f. 14.2.
1957. Systur
Brandísar eru
Harpa Stefánsdótt-
ir, f. 16.5. 1983, og
Bergþóra Kristbergsdóttir, f.
3.9. 1992. Móðurforeldrar
Brandísar eru Guðríður Jóels-
dóttir, f. 11.11. 1928, og Þór-
hallur B. Ólafsson, f. 13.11.
1926. Föðurforeldrar Brandís-
ar eru Jóhanna M. Þorgeirs-
dóttir, f. 7.9. 1926, og Öskar
Sumarliðason, f. 25.6. 1920, d.
1.6. 1971.
Útför Brandísar fer fram frá
Áskirhju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 15.
„Brandís dó í morgun.“ Mér
finnst ég enn heyra rödd dóttur
minnar þegar hún hringdi í mig
síðastliðinn mánudag.
Fyrir réttum fimm árum greind-
ist Brandís með hvítblæði. Hún var
lögð inn á barnadeild Hringsins og
allt var gert sem í mannlegu valdi
stóð til að hjálpa henni. Það skipt-
ust á skin og skúrir í lífi hennar.
Brandís sýndi mikið þrek og dugnað
og aldrei kvartaði hún þótt hún
lægi vikum saman í rúminu. For-
eldrar hennar voru hjá henni til
skiptis og viku aldrei frá henni.
Eg á ljúfar minningar um Bran-
dísi, hún var skemmtilegt bam,
skynsöm og mjög þroskuð. Hún var
mjög handlagin, dugleg að teikna
og mála; allt föndur lék í höndum
hennar. Það má segja að hún hafi
sjaldan verið iðjulaus.
Nú er Brandís farin yfir móðuna
mikiu. Ég hef þá trú að henni líði
vel og að hún sé í birtu og yl.
Minningarnar sem hún skilur
eftir í hjörtum okkar munu ylja
okkur um ókomin ár. Elsku Inga,
Kiddi, Harpa og Bergþóra, ég sendi
ykkur mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Elsku Brandís mín, ég þakka þér
fyrir allar Ijúf stundimar sem við
áttum saman. Sofðu, litla sólskins-
bamið mitt. Svífðu inn í drauma-
landið þitt.
Amma Guðríður.
Brandís frænka okkar er látin
aðeins níu ára gömul. Við finnum
til djúprar sorgar og samúðar með
foreldmm Brandísar, þeim Ingu og
Kidda, og Hörpu og Bergþóm systr-
um hennar. Ekkert fær snortið
mann meir en lát fallegs og yndis-
legs bams sem á svo margt éftir
að upplifa.
Brandís greindist með hvítblæði
fyrir 5 áram þegar hún var aðeins
fjögurra ára gömul. Var það hennar
nánustu mikil skelfingarfregn því
um illvígan sjúkdóm var að ræða.
í hönd fór erfið meðferð en batinn
var þó það góður að árið eftir gat
hún hafið skólagöngu með jafnöldr-
um sínum í Langholtsskóla og átti
þijú góð og eðliieg ár. Vom flestir
orðnir vongóðir um að unnist hefði
á sjúkdómnum en síðastliðið sumar
tók hann sig upp að nýju sýnu verri
en áður. Eftir mergskipti í Svíþjóð
í haust kviknuðu vonir um bata að
nýju, en fyrir stuttu dofnuðu þær
vonir og kvaddi ástkær frænka
okkar þennan heim og fór á vit
þeirra heimkynna þar sem við mun-
um öll hittast seinna. Við minnumst
æðmleysis hennar, hins góða skaps
og ljúfa bross sem hún var svo óspör
á. Komst enginn hjá því að fyllast
mikilli væntumþykju
og aðdáun í hennar
garð.
Snemma kom í ljós
að Brandís var hand-
lagin og listfeng, eins
og foreldrarnir, og
hafði gaman af að
dunda sér við ýmiss
konar föndur. Vegna
þessa hæfileika undi
hún sér oft ótrúlega vel
þegar hún var rúmföst
og gat ekki leikið sér
eins og önnur börn.
Sameiginlegur
áhugi og hæfíleikar
Brandísar og Hörpu systur hennar
á ýmiss konar föndri og listsköpun
brúaði aldursbilið á milli þeirra.
Sýndi Harpa systur sinni mikla
umhyggjusemi og var henni góður
félagi. Litla systir Brandísar, Berg-
þóra, sem nú er fjögurra ára var
systur sinni mjög kær. Hún er þess
fullviss að Brandís muni vaka yfir
sér.
Fjölskylda Brandísar hafði gam-
an að útivist á sumrin og þá ekki
sist að fara í veiðiferðir. Reyndar
þarf ekki að fara lengra en út í
garðinn þeirra til að komast í gott
samband við náttúruna, þar sem
eru há tré, grasflöt með stóram
álfasteini, lítill kofí, kanínan þeirra
og kötturinn. Undu systurnar þrjár
og félagar þeirra sér þar saman
löngum stundum.
Minnisstæðar eru ferðir okkar
með fjölskyldum Brandísar og
Steinu, systur Óskars afa hennar.
Ferðimar á Snæfellsnes og í Ámes
vom sérlega vel heppnaðar enda
vom veðurguðirnir okkur einstak-
lega hliðhollir. Er þar sterk minn-
ingin af Brandísi 5 ára að byggja
kastala í ljósum fjömsandinum og
sólskini á Búðum. Naut hún þar
lífsins ásamt systmm sínum og
frænkunum Önnu Dís og Kristrúnu.
Var ánægjulegt að sjá hvemig hún
var að ná þrótti aftur eftir erfiða
meðferð undangengins árs.
Foreldrar Brandísar vom mjög
samhent um að hjúkra Brandísi og
gera henni lífið sem fyllst en mikil
röskun var á högum fjölskyldunnar
þegar Brandís var sem veikust.
Margir sýndu hlýhug og stuðning
í garð Brandísar og fjölskyldu henn-
ar. Að frátöldum ættingjum og vin-
um má einnig nefna einstaklega
gott viðmót og þjónustu starfsfólks
á barnadeild Landspítalans. Hjálp-
aði það Brandísi mikið í veikindum
hennar og fannst henni hún vera
svo gott sem heima hjá sér þegar
hún dvaldist á spítalanum. Er ör-
ugglega erfitt fyrir hjúkranarfólkið
eins og aðra að þurfa að sjá á eftir
þessari yndislegu stúlku eftir
margra ára baráttu og finna fyrir
vanmætti sínum. Stuðningur
Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna var ómetanlegur og veitti
Brandísi margar gleðistundir. Má
þar nefna útilegur í Vatnsdal þar
sem m.a. var farið í flugferðir í
dalnum, ferð til Legolands í Kaup-
mannahöfn og ferð til Dublin á Ir-
landi. Var Brandís alsæi með þessar
ferðir. Heimsóknir og stuðningur
Peggy Helgason var Brandísi einnig
mikils virði.
Elsku Inga, Kiddi, Harpa og
Bergþóra, við vonum að ykkur
megi áfram auðnast að halda þeim
mikla styrk og hugrekki sem þið
hafið hingað til sýnt. Megi hin góða
minning um Brandísi styrkja ykkur.
Pétur Árni, Þorgeir, Sumar-
liði og Margrét Dröfn Óskars-
börn og Jóhanna amma.
Á sinni stuttu ævi hefur Brandís
bróðurdóttir mín verið mér áminn-
ing um það hversu hver stund lífs-
ins getur verið dýrmæt. Hún virtist
hafa sérstakt lag á að njóta lífsins
og laða það besta fram hjá þeim
sem í kringum hana vom og gera
hveija stund sérstaka. í sínum lang-
varandi veikindum lagði hún aldrei
árar í bát, sama á hveiju gekk.
Léttlyndi hennar og lífsþróttur
gerði það að verkum að alltaf réð
bjartsýnin ríkjum. Það var eins og
ekkert gæti stöðvað hana. Við
Kristrún, sjö ára dóttir mín, heim-
sóttum Brandísi aðeins tveimur
dögum áður en hún yfirgaf þennan
heim. Þá var illmögulegt að ímynda
sér að hún ætti stutt eftir. Hún
sýndi okkur og lækninum sínum
m.a. erfiðan spilagaldur sem við
gátum ómögulega ráðið fram úr.
Hún naut þess greinilega að fást
við slík krefjandi verkefni og áttu
þær frænkurnar síðan góða stund
saman við að leysa ýmsar þrautir
og spjalla saman.
Kristrún sótti það stíft alla tíð
að fá að heimsækja frænku sína
eða að fá hana í heimsókn. Áttu
þær saman margar góðar stundir
og fór alltaf vel á með þeim. Sér-
staklega virtust þær njóta sín f
garðinum heima hjá Brandísi þar
sem alltaf virtust vera næg við-
fangsefni, enda foreldrarnir mjög
áfram um að búa sem best að dætr-
um sínum hvað það varðar. Kanín-
an, kötturinn, rólan í stóra trénu,
eldhúsið og garðskúrinn þar sem
sem svo margt spennandi er að
fínna tengist allt leikjum þeirra.
Leikfélagamir í hverfinu vom
margir og vom ávallt velkomnir að
slást í hópinn. Garðurinn mun ör-
ugglega eiga eftir að vekja margar
minningar þegar fram í sækir því
Brandís lagði sitt af mörkum við
að móta hann þó í smáum stíl væri.
Þeir em t.d. ófáir krossamir sem
settir hafa verið á grafir smáfugla
við lóðamörkin. Hún hafði að sjálf-
sögðu smíðað þá sjálf af mikilli
natni. Greinilegt var að Kristrún tók
hana sér til fýrirmyndar í leikjum
sínum og hafði mikið gagn og gam-
an af.
Utilegur með fjölskyldu sinni
voru henni mikil upplyfting. Á fjöl-
skyldumótum okkar systkinanna
og frændfólks okkar hittust þær
frænkurnar og nutu þess að leika
sér saman og rannsaka umhverfið.
Þá var ýmislegt tínt til og komið
með heim í tjald til nánari skoðun-
ar og jafnvel varðveislu. Ekkert
vantaði heldur upp á frásagnimar
af ævintýrum þeirra, t.d. þegar
krían gerðist full nærgöngul á
Stapa.
Það þarf ekki að ijölyrða um það
hversu veikindi Brandísar hafa
reynt á foreldra hennar og systur.
Þau hafa sýnt ótrúlega þrautseigju
og dugnað í að halda eðlilegu fjöl-
skyldulífí þrátt fyrir erfiðar aðstæð-
ur. Það var Brandísi mikils virði.
Þar átti Harpa systir hennar stóran
hlut að máli.
Skarð það sem Brandís skilur
eftir sig verður ekki fyllt en við sem
hana þekktum munum varðveita
minningamar frá samvemstundun-
um með henni og njóta þeirra um
langa framtíð.
Hafsteinn Óskarsson.
Brandís var skemmtileg og hún
var bara góð við mig. Mér þykir
vænt um hana. Þegar ég var stund-
um hjá henni á spítalanum lékum
við okkur að spilum, gestaþrautum,
í Polly pocket og líka stundum I
tölvunni. Þegar hún var ekki veik
bjuggum við stundum til dmllukök-
ur í garðinum heima hjá henni. Það
var gaman. Það var líka gaman að
fara í útilegu með Brandísi, fara
með henni í fjöruferðir og alls kon-
ar leiki. Brandís var líka mjög flink
að teikna alls konar myndir. Núna
er hún dáin og er engill. Ég sakna
hennar en ég veit að henni líður
vel uppi hjá Guði.
Vaktu minn Jesús, vaktu í mér,
vaka láttu mig eins í þér,
sálin vaki þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlif.
(Hallgrímur Pétursson)
Kristrún Hafsteinsdóttír.
Við eigum margar góðar minn-
ingar um Brandísi. Flestar tengjast
þær sumarfríum og fjölskyldusam-
veru. Allar em þær ljúfar og
skemmtilegar. Minningar úr útileg-
um, veiðiferðum og fjölskylduboð-
um. Við eigum eftir að sakna
Brandísar, en við emm þakklát fyr-
ir það að hafa þekkt hana og eiga
allar góðu minningarnar um hana,
því í gegnum þær mun hún lifa í
hjörtum okkar. Elsku Inga, Kiddi,
Harpa og Bergþóra, við sendum
ykkur okkar innilegustu samúðar-
kveðjur og biðjum Guð að styrkja
ykkur í sorg ykkar.
Björgvin, Sigrún, ísafold
og Kolbjörn.
Ég held um smáa hendi, þvi gatan hér er grýtt,
þá get ég líka fundið, hvort þér er nógu hlýtt.
Ég veit mér skylt að ráða og rata fýrir þig,
- en raunar ert það þú, sem leiðir mig.
Æ snertir þú við þyrni? - Hann fól hin
friða rós,
og fógur tárin myrkva þitt skæra hvarmaljós.
Mér rennur það til hjarta og reyni að gleðja
Þig.
- en raunar ert það þú, sem huggar mig.
Þú spyrð um svarta skýið, sem skyggir
fyrir sól,
og skrælnuð mösurblöðin, er fjúka um laut
og hól.
Ég leitast við að ráða þær rúnir fyrir þig,
- en raunar ert það þú, sem fræðir mig.
Nú þreytast smáir fætur, svo faðminn þér
ég býð.
Ég fel þig ljúft að hjarta, og stundin sú er blíð.
Þú andar hægt og rótt og þín rósemd
grípur mig,
- svo raunar ert það þú, sem hvilir mig.
(Jakobína Johnson)
Inga og Berglind
Þórðardætur.
Vemdi þig englar, elskan mín
þá fögru augum lykjast þín;
líði þeir kringum hvílu hljótt
á hvítum vængjum um miðja nótt.
Nei, nei, það varla óhætt er
englum að trúa fýrir þér,
engll ert þú og englum þá
of vel kann þig að litast á.
(Steingrímur Thorsteinsson)
Elsku Brandís, ég trúi ekki að
þú sért farin frá okkur, en ég veit
að nú ert þú á góðum stað þar sem
þér líður vel. Það er svo margt sem
mig langaði að segja um þig og
allan þann tíma sem við áttum sam-
an, en ég sé núna eftir margar til-
raunir að ég get það ekki. Eg get
ekki lýst með orðum hvað mér þótti
vænt um þig og hvað ég á eftir að
sakna þín mikið.
Þín frænka,
Guðríður Þóra.
Orðvana stöndum við og skiljum
ekki tilganginn þegar böm eru frá
okkur tekin, börn sem em að hefjja
lífið eru hrifin burt frá ástvinum
sínum og félögum.
Nú hefur hún Brandís verið tek-
in frá okkur. Hún var nemandi í
4. VE í Langholtsskóla, prúð og
falleg stúlka sem lengi hafði barist
við skæðan sjúkdóm. Mamma
hennar var myndmenntakennari
við skólann. í haust gátu þær ekki
komið því Brandís þurfti að dvelja
langdvölum í Svíþjóð til lækninga.
Við fylgdumst með henni úr fjar-
lægð, bréfaskipti fóru á milli henn-
ar og bekkjarins, við vorum vongóð
um að allt gengi vel. „Ég hélt allt-
af að hún kæmi aftur,“ sagði
bekkjarbróðir hennar þegar við
sögðum þeim að hún væri dáin.
Það héldum við líka. Hvernig er
hægt að útskýra fyrir bömum þeg-
ar við skiljum ekki sjálf? Þá er
aðeins hægt að reyna að hugga
og þerra tár.
Mestur er missir fjölskyldunnar,
fátt getur verið sárari reynsla en
missir bams. Minningin um elsku-
lega dóttur og systur er huggun
harmi gegn. Kæru Ingiríður, Krist-
berg, Harpa og Bergþóra og aðrir
aðstandendur. Við í Langholtsskóla
vottum ykkur okkar dýpstu samúð.
Guð styrki ykkur í sorg ykkar.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(S. Egilss.)
Ema M. Sveinbjarnardóttir.
Kveðja frá bekkjar-
systkinum
Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér,
- hvert andartak er tafðir þú hjá mér
var sólskinsstund og sæludraumur hár,
minn sáttmáli við guð um þúsund ár.
(Halldór K. Laxness)
Hún Brandís er dáin. Það er ótrú-
legt og það er sorglegt að hún skuli
ekki koma aftur til okkar. En við
vitum að nú er hún komin til himna-
ríkis og henni líður vel - hún er
ekki lengur veik. Við þurfum ekki
að hafa áhyggjur af því að hún
verði einmana í himnaríki - ailt
góða fólkið sem býr þar tekur hana
að sér og sýnir henni hvar allt er.
Allt sem við eigum eftir hér eru
minningar um góða stelpu -
skemmtilegar, hlýjar og fallegar
minningar. Brandís sagði okkur
skemmtilegar sögur, hún teiknaði
fallegar myndir, hún skrifaði fal-
lega, hún drakk alltaf kókómjólk í
nestistímunum, hún hafði yndi af
köttum og öðmm dýmm og þannig
gætum við haldið endalaust áfram.
Við í 4. bekk VE í Langholts-
skóla viljum biðja Guð að styrkja
mömmu hennar, pabba hennar og
systurnar hennar tvær í þeirra
miklu sorg. Minningin um Brandísi
mun alltaf lifa með okkur.
Bekkjarsystkinin og
Vilborg kennari.
Elsku Brandís. Mig dreymdi
draum meðan þú varst veik. Við
vorum tvær einar að byggja kofa
uppi í tré í stóram garði, sem var
fullur af dýmm. Ég óskaði mér að
þannig yrði það þegar þér myndi
batna. Ég á margar góðar minning-
ar um þig. Þú varst svo góð við dýr
og gast lokkað þau til þin. Þú
meiddir þau aldrei og varðst leið
ef þú fréttir af slæmri meðferð á
dýmm. Ef allir væm eins og þú,
myndi dýmnum líða vel. Þú varst
góð vinkona.
Ég kveð þig með söknuði.
Þín vinkona,
Rósa Björk Bergþórsdóttir.
Hví var þessi beður búinn,
bamið kæra, þér svo skjótt?
Svar af himni heyrir trúin
hljóma gegnum dauðans nótt.
Þar er kveðjan: „Kom til mín!“
Kristur tók þig heim til sín.
Þú ert blessuð hans í höndum,
hólpin sál með ljóssins öndum.
(B. Halldórsson.)
Við tileinkum Brandísi þetta er-
indi úr sálminum eftir B. Halldórs-
son og þökkum innilega allt sem
hún gaf af sér til okkar.
Við sem fyrrverandi nágrannar
á Hjallavegi 23 sendum innilegar
samúðarkveðjur til foreldra, systr-
anna og annarra ættingja.
Hvíl í friði, elsku Brandís.
Guðmundur, Helena
og Simon Haukur.
Sérfræðingar
í blóniaskreytinguin
við öll tækifæri
I HfÍ| blómaverkstæði B
I ISlNNA*-1
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090