Morgunblaðið - 27.03.1997, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 27.03.1997, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ fegurðar og sú fegurð hefur farið vaxandi með ári hverju eftir því sem framkvæmdum miðar áfram. Síðar var stofnaður Golfklúbbur- inn Oddur, sem öllum er opinn. Golfvöllurinn verður með þeim beztu á Islandi. Ekki er það hrist framúr er- minni að búa til boðlegan 18 brauta golfvöll. Venjulega tekur þ|ið áraraðir á íslandi, en það er lýginni líkast hvað allt greri og dafnaði skjótt í Urriðavatnsdölum. Fyrst voru lagðar 9 brautir á golf- vellinum og sáð í þær. Jafnframt voru teigar og flatir byggð upp og bráðabirgða golfskáli reistur. A sléttlendi neðst í kvosinni var vall- lendi með þéttu grasi; þar voru skomar þökur á fiatirnar og hafa reynzt afburða vel. Síðastliðið sumar voru fiatirnar óvíða betri en á golfvelli Oddfellowa. Teigurinn á 1. braut er við skál- ann og brautin blasir öli við það- an. Hún er löng, fremur mjó og kostar óhjákvæmilega högg að lenda útaf, kannski fleiri en eitt. Nú er það víðast hvar regla að l. braut sé fremur í léttari kantin- um, en hvað vakti fyrir Hannesi? Svarið er, að hér verður 10. braut, en fyrripartur vallarins, brautir no 1-9, verða á þeim hluta sem nú er í ræktun og standa vonir til þess að á honum verði leikið síðla næsta sumars. La'tið eitt innan við núverandi golfskála verður byggður framtíð- argolfskáli þegar lokið er fram- kvæmdum við völlinn. Hér vísast til teikningar af húsinu, sem verður afar sérstætt. Uppi í holtinu, ofan og sunnan við núverandi skála, verður 1. teigur og brautin liggur undan halla í austurátt. Að öðru leyti verður ekki fjallað um þennan ófullgerða hluta vallarins hér. Það eru með öðrum orðum seinni 9 holurnar sem leiknar hafa verið til þessa. Verður að segjast að fyrir fjölda byijenda hefur hann verið alltof strembinn, en bót er í máli að útbúinn hefur verið afar skemmtilegur 9 holu völlur, ein- ungis með par-3 holum, neðst í kvosinni. Má því segja að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Til viðbótar við það sem þegar var nefnt um 1. braut (þá 10. í fram- tíðinni) má nefna að upphafshögg- ið gerir bæði kröfu um góða lengd og nákvæma stefnu. Annað högg- ið verður hjá flestum að vera langt og flötin er afar mjó. Vinstra megin við hana hallar niður í djúp- ar sandglompur, en jafnvel er verra að missa boltann í óræktina og kargþýfðan, grýttan móa til hægri. Braut nr 2 er mun áhættu- minni; hún er breið en illa hittur og sneiddur bolti getur þó lent útaf vellinum til hægri. Flötin er stór og tekur vel við. Þriðja braut er stutt par-5, sem högglangir menn ná í tveimur höggum. Hún er samt frekar mjó og hallar auk þess niður að grýtt- um móa. Af 4. teig er útsýni niður yfir Urriðavatn og hlíðina þar sem Urriðavatnsbærinn stóð; einnig sést vítt og breitt þaðan yfir Hafn- arijörð og allt til Reykjavíkur. Það liggur við að fegurðin þarna sé truflandi, en holan er par-3, undan brekkum og flötin í tveimur stöll- um, varin glompum vinstra megin. Af 5. teig sést brautin ekki til enda, því hún liggur í sveig uppí norðvesturhorn vallarins. Hún er með lengri par-5 brautum, 500 m. Upphafshöggið er áhættulítið SJÁ NÆSTU SÍÐU FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997 D 3 ITALSKIR SKÓR VORLÍNAN 1997 38 ÞREP LAUGAVEGI 76-SÍMI 551 5813 PCI lím og fuguefni U|.LLI • Stórhöfða 17, við Gullinbrú, slmi 567 4844 Costa del Sol Glæsilegt kynninartilboð á mest spennandi áfangastað Miðjarðarhafsins frá kr. 39.932 ls^arSo/ Costa del Sol er sá áfangastaður sem býður þér mesta fjölbreytni í fríinu, hreinustu strendur Evrópu og glæsilegt úrval gististaða sem tryggir þér góðan aðbúnað í ferðinni. Tvö af aðal hótelum okkar bjóða viðskiptavinum okkar nú sértilboð í sólina þann 25. júní og 9. júlí til að fagna að nýju væntanlegri innrás Islendinga til Costa del Sol í sumar. Aðeins 20 íbúðir á sértilboði 35 frægir golfvellir Á Costa del Sol finnur þú hvorki meira né minna en 35 læsilega golfvelli, þar sem ver og einn getur fundið völl við sitt hæfi. Glæsiiegir gististaðir Á Costa del Sol getur þú valið um fjölda glæsilegra gististaða með glæsilegum görðum, íþróttadagskrá allan daginn, loftkælingu, sjónvarpi, síma, barnadagskrá og svo mætti lengi telja. Tryggðu þér góða aðstöðu í sumarleyfinu og veldu Costa del Sol. Hreinasta strönd Evrópu Costa del Sol var kosin hreinasta strönd Evrópu árið 1995 og hér finnur þú frábæra aðstöðu og fagrar strendur þar sem auðvelt er að njóta lífsins. Spennandi kynnisferðir Enginn staður býður jafn spennandi valmöguleika. Dagsferð til Afríku, frægasta márahöll heimsins í Granada, spennandi jeppasafarí, dagsferð dl Gíbraltar, Sevilla eða Cordoba, verslunarferð til Malaga, tívolí, vatnsrennibrautargarðurinn og hin óviðjafnanlega Puerto Banús snekkjubátahöfn. Og að sjálfsögðu nýtur þú leiðsagnar íslenskra fararstjóra Heimsferða. Verð kr. Verð kr. 39.932 49.960 M.v. hjón með 2 börn, 25. júní, 9. júlí, 2 vikur, íbúð m/1 E1 Pinar. 2 vikur, 2 í stúdío, Minerva, 25. júní, 9. júlí. Okeypis vika á Benidorm Þeim sem bóka í næstu viku til Benidorm í brottförina þann 6. maí, bjóðum við nú einstakt tilboð: Þú staðfestir 15 daga ferð til Benidorm þann 6. maí og færð aukaviku í kaupbæti. 38.832 með 2 börn, 6. maí, E1 I 49.960 Verð kr. ’ M.v. hjón með 2 börn, 6. maí, E1 Faro. Verð kr. M.v. 2 í íbúð, 3 vikur, 6. maí E1 Faro. París Vikulegt flug í júlí og ágúst. 24.100 Verð kr. < V/SA hei IMSFERÍ )IRj 1 1992 1997 Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 562 4600 Barcelona Flugsæti og bílaleigubíll í 3 daga. 25.932 Hjón með 2 börn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.