Morgunblaðið - 27.03.1997, Blaðsíða 34
34 D FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VESTMANNAEYJABÆR
'Lausar kennarastöður
Næsta haust verða lausar nokkrar kennara-
stöður við grunnskólann í Vestmannaeyjum.
Bæði er um að ræða stöður við almenna
kennslu eldri og yngri barna sem og stöður
kennara í sérgreinum (t.d. í tölvu- og raun-
greinum, erlendum málum, tónmennt og
smíðum).
Laun samkvæmt kjarasamningum HÍKog KÍ.
Umsóknarfrestur ertil 25. apríl 1997.
Nánari upplýsingar veita skólastjórar grunn-
^ skólanna, Hjálmfríður Sveinsdóttir (Barna-
skólinn í Vestmannaeyjum) í síma 481 1944
og Halldóra Magnúsdóttir (Hamarsskólinn)
í síma 481 2644.
Staða
kennsluráðgjafa
Staða kennsluráðgjafa við skólaskrifstofuna
í Vestmannaeyjum er laus til umsóknar.
Umsækjandi þarf að hafa kennsluréttind og
starfsreynslu í grunnskóla ásamt framhalds-
menntun á sviði uppeldis- eða kennslufræði.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi góða skipu-
lagshæfileika, eigi auðvelt með mannleg sam-
skipti og geti unnið sjálfstætt. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir skólamálafulltrúi í
síma 481 1092.
í Vestmannaeyjum búa í dag um 4800 manns og þar af eru liðlega
800 nemendur á grunnskólaaldri. Grunnskólarnir eru tveir, hvor um
sig tveggja hliðstæðna skólar með um 400 nemendur í 1 .-10. bekk.
í báðum skólunum eru í gangi vissar tilraunir á sviði skipulags, sam-
skipta eða kennsluhátta og ríkir talsverður metnaður meðal stjórnendí
og starfsliðs um að búa sem best að námi og námsaðstöðu nemend-
anna. Bæjarstjórn hefur nú þegar lagt fram áætlun um einsetningu
beggja skólanna fyrir árið 2003. Við flutning grunnskólans frá ríkinu
til sveitarfélaganna var komið á fót sérstakri skólaskrifstofu fyrir
? Vestmannaeyjar. Unnið er að því að móta starfsemi skrifstofunnar
í samvinnu við skólastofnanirnar í bænum og má því segja sem svo
að hér sé á ferðinni kærkomið tækifæri fyrir kennara og aðra kennslu-
fræðinga að slá til, sækja til Eyja og taka þátt í spennandi uppbyggingt
skólamálanna i bænum. Ef óskað er nánari upplýsinga þá hafið sam-
band við Sigurð Símonarson í síma 481 1092.
Skóiamálafulltrúi.
*>
( Hópvinnukerfi-LotusNote)s
Hugbúnaðardeild Nýherja sérhæfir sig í Lotus Notes
lausnum á sviði hópvinnukerfa. Verkefnin eru vaxandi og
viljum við bæta við fólki með þekk-ingu og reynslu af
hópvinnukerfum. (boði eru góð kjör, áhugaverð verkefni,
góð starfsaðstaða og mikil tækifæri til að efla og
viðhalda þekkingu á
sviði upplýsingatækni.
( Sölustjóri )
Hefur umsjón með sölu Lotus Notes lausna Nýherja. Sér um
samskipti við Lotus erlendis, kynningar fyrir viöskiptavini og
fleira. Starfið er unnið I nánu samstarfi við verkefnastjóra
hugbúnaðardeildar.
( Sölumaðu)
Annast sölu Lotus Notes hugbúnaðar og lausna Nýherja á sviði
hópvinnukerfa. Starfið er unnið í nánu samstarfi við starfsmenn
hugbúnaðardeildarNýherjaog krefsttækniþekkingarog lipurðar
í samskiptum.
( Kerfisfrœðingur)
Starfið felst í hönnun og forritun Lotus Notes lausna. Æskilegt er
að viðkomandi hafi þekkingu á hópvinnukerfum, forritun,
inter/intranet lausnum og eigi auðvelt með að starfa sjálfstætt og
fhópi.
Umsóknarfrestur er til 28. mars.
(Jmsóknir er hægt að setja inn á
heimasíðu Nýherja
http://www.nyherji.is eða senda (
umslagi merktu 'Notes'.
Nánari upplýsingar veitir
Bjami Hauksson, s: 569 7700
NYHERJI
Skaftahlíð 24 - 569 7700
*■
Lyst ehf. óskar eftir að ráða 8 starfsmenn í
liðstjórastörf
Við leitum að duglegu fólki, sem hefur áhuga
á veitinga- og viðskiptarekstri. Eingöngu
koma til greina þeir, sem vilja leggja þetta
fyrir sig sem framtíðarstarf.
Lyst ehf. býður upp á starfsþjálfun, skemmti-
legt og líflegt vinnuumhverfi og mikla mögu-
leika að vinna sig upp hjá ungu fyrirtæki sem
á framtíðina fyrir sér.
Lyst ehf. rekstraraðili McDonald's á íslandi
er íslensktfjölskyldufyrirtæki, sem er í örum
vexti. Við rekum tvær McDonald's veitinga-
stofur í Reykjavík. í fyrra heimsóttu okkur rúm-
lega ein milljón manns. Nú starfa yfir 80
manns hjá fyrirtækinu í rúmlega 50 stöðugild-
um. Fyrirtækið starfar samkvæmt ströngum
kröfum McDonald's International um gæði,
hreinlæti og þjónustu. Mikil áhersla er lögð
á þjálfun starfsfólks og fer hún fram á veitinga-
stöðunum, námskeiðum og með skólasetu.
McDonald's liðstjóri hefur umsjón með svæð-
um og/eða vöktum og þarf, eins og allir yfir-
menn á McDonald's, að kunna skil á öllum
störfum á veitingastaðnum, þar með talin
pappírs- og skýrsluvinna.
Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirtalin skil-
yrði:
1. Vera fæddir 1975 eða fyrr.
2. Vera nákvæmir, töluglöggir, stundvísir og
áreiðanlegir.
3. Vera heilir heilsu og geta unnið erfiðis-
vinnu.
4. Vera kurteisir og þjónustuliprir.
5. Eiga gott með að vinna sem hluti af heild.
6. Geta stjórnað fólki og fengið það til að vinna
með sér.
Umsóknir, ásamt mynd, sendisttil skrifstofu
Lystar ehf., Austurstræti 20,101 Reykjavík.
Umsóknarfrestur ertil 5. apríl nk. Öllum um-
sóknum verður svarað.
RAFMAGNSVERKFRÆÐI
RAFMAGNSTÆKNIFRÆDI
Leiðandi fyrirtœki á rafmagnssviði óskar eftir
að ráða rafmagnsverk- eða rafmagns-
tœknifrœðing.
Starfssviö
• Ýmis konar hönnunarvinna.
• Vinna við útboðsgerð og verklagslýsingar.
• Tœknilegar úttektir o.fl.
Hœfniskröfur
• Rafmagnsverkfrœðingur / rafmagns-
tœknifrœðingur.
• Haldgóð tölvukunnátta og reynsla af
forritun.
• Frumkvœði í starfi og samskiptahœfileikar.
Með umsóknir og fyrirspurnir verður farið sem
trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Jón Birgir
Guðmundsson hjá Ráðgarði í síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir tíl
Ráðgarðs merktar:” Rafmagnsverkfrœði-
rafmagnstœknifrœði” fyrir 10. apríl n.k.
RÁÐGARÐUR hf
S0Í*mNAROGREKSIRARRÁE)GfðF
Furugerii S 108 Roykjavik Simi 933 1800
F»: 033 1808 Natfang: rgmidlunOtroknnt.l*
Heimasifia: http://www.treknet.ls/radoardur
pn PT7 yi o
bi nl \U
Sölukonur/menn
Við hjá Netverki leitum eftir öflugum einstakl-
ingum sem geta tekið virkan þátt í sölu- og
markaðsmálum innanlands og erlendis.
Við leitum eftir kröftugum aðilum með góða
reynslu af sölu- og markaðsmálum á bæði
hugbúnaði og heildarlausnumtil fyrirtækja.
Kröfur eru gerðar um haldbæra þekkingu á
hugbúnaðarmálum og sæmilega tungumála-
kunnáttu. Einungis koma til greina einstakling-
ar, sem eru tilbúnir til að leggja sig alla fram
til að ná árangri.
Þjónustufulltrúar
Vegna mikillar aukningar í verkefnum innan-
lands sem og erlendis óskum við eftir að ráða
þjónustufulltrúa til að sinna þjónustu við við-
skiptavini okkar. Einungis koma til greina ein-
staklingar með haldbæra menntun og /eða
reynslu, góða framkomu og samstarfshæfi-
leika.
Hugbúnaðar-
sérfræðingar
Einnig leitum við eftirfærum hugbúnaðarsér-
fræðingumtil hönnunarog þarfagreiningar
auk forritunar fyrir sérverkefni hjá viðskiptavin-
um okkar heima sem erlendis. Einungis koma
til greina einstaklingar með haldbæra menntun
og/eða reynslu.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Netverki
í síma 561 6161. Umsóknirsendisttil Netverks,
Þverholti 14,105 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 7. apríl nk.
Netverk hefur sérhæft sig í heildarlausnum á sviði fjarskiptahug-
búnaðar fyrir fyrirtæki og stofnanir út um allan heim, auk EDI, X.400,
Internet og Inmarsat lausna.
Framkvæmda-
stjóri
ngafélag
ismanna
Byggingafélag
námsmanna er sjálfs-
eignarstofnun,
starfrækt af
sérskólanemum á
höfuðborgarsvæðinu.
Tilgangur féiagsins er
að annast kaup eða
byggingu á
leiguhúsnæði fyrir
félagsmenn, bera
ábyrgð á rekstri
fyrirtækja í þágu
sérskóianema og beita
sér fyrir eflingu þeirra.
Byggingafélag námsmanna (BN) óskar
eftir að ráða framkvæmdastjóra.
Verksvið:
1. Daglegur reksturfélagsins, s.s. inn-
heimta leigu og umsjón nemendagarða
Rekstur nemendagarðsins Höfða.
2. Fjármálastjórn og rekstur félagsins.
3.Samskipti við aðildafélög og skóla-
aðildarfélaga, stjórnvöld og stofnanir.
4.Umsjón með uppbyggingu og stefnu-
mótun í samvinnu við stjórn félagsins
ö.Eftirlit með byggingaframkvæmdum.
Við leitum að að manni með tækni-
fræðimenntun eða aðra sambærilega
menntun. Mikilvægt er að viðkomandi
sé sjálfstæður og eigi auðvelt með
mannleg samskipti. Æskilegt er að við-
komandi geti hafið störf eigi síðar en
1. júní n.k.
Upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir
til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.
merktar „Framkvæmdastjóri 144"
fyrir 5.apríl n.k.
Hagvangur hf
Skeifan 19
108 Reykjavík
Sími: 581 3666
Bréfsími: 568 8618
Netfang:
hagvang@tir.skyrr.is
Veffang:
http://www.apple.is
/hagvangur
HAGVANGUR RADNINGARMðNUSIA
Rétt þekking á réttum tíma
-fyrir rétt fyrirtæki
Járniðnaðarmenn
Vantar nokkra vana járniðnaðarmenn strax.
Upplýsingar í síma 552 4400, Bjarni Thoroddsen.
Stálsmiðjan hf.