Morgunblaðið - 27.03.1997, Blaðsíða 20
20 D FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997
MORG UNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/Sambíóin sýna kvikmyndina 101 dalmatíuhundur sem gerð er
eftir teiknimyndinni Hundalíf eftir Walt Disney. Auk hundanna fara með aðalhlutverk
í myndinni þau Glenn Close sem leikur hina illgjörnu Grimmhildi, Jeff Daniels,
Joely Richardson, Joan Plowright og Hugh Laurie.
ROGER (Jeff Daniels) er allt of önnum kafinn í starfi sínu til
að finna heppilegan maka handa Pongó.
Hunda-
JOELY Richardson leikur eiganda tíkurinnar Perdý, tísku-
hönnuðinn Anitu sem starfar hjá Grimmhildi.
gegn. Meðal þeirra er Home Al-
one, sem er ein aðsóknarmesta
kvikmynd allra tíma. Hughes lét
vinsældir teiknimyndarinnar
ekkert aftra sér þegar hann hrinti
hugmynd sinni í framkvæmd.
er klassísk saga um bar-
góðs og ills og það var
spennandi að gera leikna
mynd eftir henhi því á þann
hátt er hægt að skapa
ýmislegt sem ekki er
hægt i teiknimynd," segir
hann.
Leikstjóri myndarinn-
ar er Stephen Herek,
sem byrjaði feril sinn
1985 með grínmyndinni
Gritters. Tveimur árum
síðar leikstýrði hann Bill
and Ted’s Excellent Advent-
ure, en sú mynd skaut ekki að-
eins Keanu Reeves upp á stjörnu-
himininn heldur hafði hún einnig
varanleg áhrif á málfar bandarí-
skra unglinga. Næsta mynd hans
var Don’t Tell Mom the Babysitt-
er is Dead og 1992 gerði hann
hina vinsælu The Mighty Ducks.
Þá gerði hann Skytturnar þrjár
með þeim Charlie Sheen, Kiefer
Sutherland og Oliver Platt og
síðasta mynd hans á undan 101
dalmatíuhundi var Mr. Holland’s
Opus með Richard Dreyfuss í
aðalhlutverki, en hann hlaut til-
nefningu til óskarsverðlauna í
það hlutverk.
egist ekki hafa lagt
neina áherslu á að víkja frá sögu-
þræðinum í teiknimynd Disneys,
en hins vegar hafi hann ekki vilj-
að láta þá mynd setja sér neinar
skorður. „Myndirnar eru hlið-
stæðar á þann hátt að þær fjalla
um dýrin. Við höfum hins vegar
fært söguna til í tíma en látið
rómantík og gamlar sögu-
slóðir í Lundúnum halda
sér.“
Það er stórstjarnan
Glenn Close sem fer
með hlutverk hinnar
illræmdu Grimm-
hildar, en þegar
hún tók hlut-
verkið að sér
hafði hún um
skeið leikið á
Broadway aðalhlut-
verkið í Sunset Boule-
vard, söngleik Andrews
hasar
PONGÓ er einhver glæsileg-
asti dalmatíuhundurinn í
gjörvallri Lundúnaborg, en Roger
(Jeff Daniels) eigandi hans er
hins vegar allt of önnum kafínn
í starfí sínu til að finna heppileg-
an maka handa Pongó, og reynd-
ar sjálfum sér líka. Roger ver
öllum tíma sínum í að hanna
tölvuleiki og fínna upp ný ill-
menni til að nota í leikjunum, og
því sinnir hann hvorki þörfum
Pongós eða sjálfs sín sem skyldi.
Perdý er nafnið á tíkinni sem
hæfa myndi Pongó best, en hún
er í svipuðum sporum og Pongó.
Eigandi hennar er tískuhönnuð-
urinn Anita (Joley Richardson)
sem starfar fyrir hina óaðfínnan-
lega klæddu en illskeyttu Grimm-
hildi. Anita gefur sér engan tíma
til að leita að þeim eina rétta,
hvorki fyrir sjálfa sig eða tíkina
Perdý. En dag einn þegar hann
er á rölti í skemmtigarðinum
kemur Pongó auga á Perdý og
gerir sér strax grein fyrir að
hann verður að stofna til kynna
við hana. Þegar Pongó hefur náð
athygli Perdý sameinast þau í
æðislegum eltingaleik við reiðhjól
og að lokum í óvæntum sund-
spretti I tjöminni. Ljóst er að hjá
ferfætlingunum er þetta ást við
fyrstu sýn, en hjá eigendum
þeirra gengur þetta hins vegar
ekki svona hratt fyrir sig. Þau
Roger og Anita ná þó saman að
lokum og tvöfalt brúðkaup fylgir
í kjölfarið. Ekki líður á löngu þar
til Anita á von á bami og Perdý
er hvolpafull, en þá kemur
Grimmhildur til sögunnar. Hún
hefur reyndar engan áhuga á
bömum en öðru máli gegnir um
hvolpa, því draumur hennar er
að geta klæðst dragsíðum loð-
feldi gerðum úr skinnum dalma-
tíuhvolpa. Óveðursnótt eina líta
15 slíkir hvolpar dagsins ljós á
heimili Anitu og Rogers og þau
Pongó og Perdý kunna sér ekki
læti af gleði. Þá birtist
Grimmhildur skyndi-
lega á staðnum og
hún fá að kaupa
hvolpana en Anita
neitar að sélja henni
þá. Grimmhildur ræð-
ur þá tvo vitgranna
kumpána, þá Horace
(Mark Williams) og Ja-
sper (Hugh Laurie), til
að stela hvolpunum og
ná þeir þeim inn í sendi-
ferðabíl og halda rak-
leiðis með þá til sveitar-
seturs Grimmhildar. Þar
kemur í ljós að hvolp-
arnir sem hún hefur
komið höndum yfír
eru þar með orðnir 99
talsins og hefur hún því verið
iðin við að stela þeim um gjör-
valla Lundúnaborg í Ioðfeldinn
langþráða. Grimmhildur gerir sér
hins vegar ekki Ijóst að bolabítur
nokkur hefur orðið vitni að
hvolpaþjófnaði hennar og hann
grípur til sinna ráða. Ekki líður
á löngu þar til í ljós kemur hvaða
samheldni ríkir í dýraríkinu og
Grimmhildur á ekki sjö dagana
sæla þegar hundarnir taka til
sinna ráða.
Einhver vinsælasta teikni-
mynd allra tíma er Hundalíf Dis-
neys sem hann gerði snemma á
sjöunda áratugnum um dalmatíu-
hundana 101. Hugmyndina
því að gera leikna mynd eftir
teiknimyndinni á kvikmynda-
framleiðandinn og handritshöf-
undurinn John Hughes, sem gert
hefur 28 myndir á fímmtán árum
og hafa flestar þeirra slegið í
GLENN Close leikur
hina illskeyttu
Grimmhildi sem
þráir að eignast
loðfeld úr dalma-
tíuskinnum.
Lloyd Webbers, og hlotið Tony
verðlaunin fyrir.
Glenn Close á nú að baki rúm-
lega þrjátíu kvikmyndir og sjón-
varpsmyndir, en fyrsta kvik-
myndahlutverk hennar var á móti
Robin Williams í The World Acc-
ording to Garp árið 1982. Hlaut
hún tilnefningu til óskarsverð-
launa fyrir það hlutverk, en Close
hefur samtals hlotið fímm ósk-
arstilnefningar á ferli sínum, auk
þess sem hún hefur sópað að sér
ýmsum öðrum verðlaunum. Hún
er fædd 19. mars árið 1947 í
Greenwich í Connecticut í Banda-
rikjunum, og er hún af tólfta
ættlið enskra innflytjenda. Hún
ólst upp á risastóru ættaróðali og
á yngri árum fylgdi hún oft skurð-
lækninum föður sínum til svört-
ustu Afríku þar sem hann hafði
sett á stofn sjúkrahús. Á mennta-
skólaárunum starfaði Close með
leikhóp sem hún skipulagði og
einnig lék hún og söng með ýms-
um þjóðlagasveitum. Að loknu
háskólanámi í leiklist og framsögn
fluttist hún til New York þar sem
hún fékk fljótlega hlutverk í leik-
húsum. Þegar hún fór með hlut-
verk í söngleiknum Bamum kom
kvikmyndaleikstjórinn George
Roy Hill auga á hana og bauð
henni hlutverkið í The World Acc-
ording to Garp. Strax kom í ljós
að Glenn Close var á heimavelli
í kvikmyndum og sló hún aftur í
gegn í næstu mynd sinni, The
Big Chill (1983), og aftur var hún
tilnefnd til óskarsverðlauna. Árið
1984 lék hún á móti Robert Red-
ford í The Natural og hlaut fyrir
sína þriðju óskarstilnefningu, og
fjórðu tilnefninguna hlaut hún
fyrir hlutverk sitt á móti Michael
Douglas í Fatal Attraction. Ári
síðar var hún svo tilnefnd enn á
ný fyrir hlutverk sitt í Dangerous
Liaisons.
Glenn Close tekur sér af og til
hlé frá kvikmyndaleik og stígur
hún þá á fjalimar, en hún hefur
m.a. leikið á sviði á móti Jeremy
Irons í The Real Thing eftir Tom
Stoppard og einnig lék hún i De-
ath and the Maiden og sem fyrr
segir í Sunset Boulevard, en fyrir
öll þessi hlutverk hlaut hún Tony
verðlaun fyrir leik sinn. Upp á
síðkastið hefur leikkonan svo snú-
ið sér í æ ríkari mæli að leik í
sjónvarpi. Hún á að baki tvö
hjónabönd og býr I New York,
en þar er orðin hefð að hún syngi
bandaríska þjóðsönginn við upp-
haf hvers leiktímabils hjá hafna-
boltaliðinu New York Mets, enda
þykir hún afburðagóð sópran-
söngkona.
Ákveðið var strax í upphafí að
gera myndina 101 dalmatíuhund-
ur að öllu leyti í Bretlandi og
sumarið 1985 hófst leitin að
heppilegum hundum í aðalhlut-
verkin. Vandasamast var að finna
í hlutverk hvolpanna 99, en orðst-
ír Walt Disneys um mannúðlega
meðferð á dýrum við kvikmynda-
tökur varð til þess að hundarækt-
endur flykktust að til að lána
hvolpa sína til kvikmyndagerðar-
mannanna. Mikil vinna fór í að
þjálfa hundana en samtals þurfti
að nota um 200 hvolpa við gerð
myndarinnar. Það eru hins vegar
ekki aðeins hundar af holdi og
blóði sem koma við sögu í mynd-
inni, því leitað var í skepnusmiðju
Jims Hensons sem þekktust er
fyrir gerð prúðuleikaranna, og
einnig komu galdramennimir hjá
Industrial Light and Magic að
gerð myndarinnar, en þeir sýndu
snilli sína á eftirminnilegan hátt
í Júragarði Stevens Spielbergs.