Morgunblaðið - 27.03.1997, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.03.1997, Blaðsíða 24
24 D FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÞEGAR ég var að búa mig undir að fljúga burt úr skammdeginu á íslandi suður í sumarið og sólina í Ástralíu fór ég niður á Ferðaskrif- stofu Stúdenta að kaupa mér ódýr- an miða. Þá uppgötvaði ég fyrir einskæra „tilviljun" að konan sem sat við hliðina á mér bjó einmitt í Perth, borginni sem ég var á leið- inni til. Hún var svo almennileg að bjóða mér í heimsókn þegar ég kæmi út og þannig atvikaðist það að kvöldið áður en ég fór heim aftur var ég boðin í ástralskt BBQ eins og grillveislur kallast þar um slóðir, hjá íslenskri fjölskyldu í Perth. Um leið og við fórum að tala saman spurði ég hana hvort ég mætti skrifa um kvöldið og hana sjálfa því mér fannst þetta allt eitthvað svo skemmtilegt. Og það var samþykkt. Þar sem sólin skín „Mig dreymdi um það þegar ég var ung að eiga hús í landi þar sem sólin skín“. Það eru ófáir íslendingar sem eiga sér draum líkan þessum sem Guðrún Ingimarsdóttir átti sér þegar hún var ung. Og skal engan undra í myrkrinu og kuldanum á þessu litla skeri þar sem við búum úti á miðju reginhafi. Eiginlega er ótrúlegt að einhveijir skuli fást til að búa hérna yfir vetrartímann þegar sumarið er aðeins 24 klst. í burtu. En svona er nú mannskepn- an dugleg að aðlaga sig. Miði til Ástralíu fyrir 10 pund Draumurinn hennar Guðrúnar er ekki á nokkurn hátt sérstakur eða eftirtektarverður nema fyrir það eitt að hún lét hann rætast. Árið 1969 flutti Guðrún ásamt eiginmanni sínum Ásgeiri Helga- syni til Perth í Ástalíu. Þá var hún aðeins 19 ára gömul. „Ég fékk fluguna í höfuðið þeg- ar ég var 18 ára,“ segir Guðrún. „Þá voru fulltrúar frá ástralska ríkinu á íslandi og voru með við- töl á Hótel Sögu. Þeir buðu upp á ferðir til Ástralíu frá Englandi fyrir 10 pund og í staðinn átti fólk að vinna þar í 2 ár. Við vorum ekki alveg tilbúin þá en ári seinna þegar þeir komu aftur og buðu upp á sömu kjör slógum við til“. Draumur Geira „Ég átti mér líka draum, segir Ásgeir. Það var að keyra rútubíla á Islandi. Nánar tiltekið á Snæ- fellsnesinu þar sem ég er hluthafi í Hópferðabílum Helga Pétursson- ar ásamt systkinum mínum. En ég vissi að ef ég ætlaði að halda í Gunnu þá yrði ég að gjöra svo vel og fara með. Hún hefði annars bara fundið sér annan,“ segir Ás- geir og skellihlær. „En ég sé held- ur ekki eftir því“. Strax að vinna „Á þessum tíma var manni kennt að vinna og eignast fast- eign. Það var númer eitt, tvö og þijú,“ segir Guðrún. „Við fórum náttúrlega strax að vinna þegar við komum út. Það var nóga vinnu að fá en ekki endilega við það sem mann langaði mest til að gera.“ „Ég var t.d. lærður bifvélavirki, lærði hjá Ræsi á sínum tíma,“ seg- ir Ásgeir. „En svo var það náttúru- lega tungumálið, ég gat bara sagt já og nei, það var allt og sumt. Ég fór fyrst að vinna í traktors- verksmiðju en þar var ég bara í tvo mánuði. Eftir það hef ég unnið við að gera við stóra vörubíla.“ „Ég byuaði sem þjónustustúlka á veit- ingahúsi," segir Guðrún, „síðan tók við útkeyrsla á brauði. Brauðið var keyrt heim í húsin á þessum tíma. Það var mjög skemmtileg byijun og hélt mér í góðu formi líkamlega. Eftir það var ég veislustjóri á veitingastað, svipuðum og Perlan, sem snérist í hringi. Þar var ég í 6 ár. Í dag starfa ég sem verslunarstjóri í tískuversluninni Paris Weekend sem er svona eins konar verslunar- keðja með verslanir um alla Ástr- alíu“. Guðrún riijar upp hvernig henni leið þegar hún var að leggja af stað. Aftur heim eftir sex ár „Ég hafði aldrei áður farið svona langt í burtu og fannst eins og ég myndi aldrei sjá foreldra mína aft- ur. En það var nú eitthvað annað. Núna koma þau oft í heimsókn að ná sér í svolitla sól úr skammdeg- inu á íslandi. Þau eru búin að koma að minnsta kosti sjö sinnum". Guð- rún heldur áfram: „Fyrst ætluðum við bara að vera í tvö ár en svo dróst heimferðin. Við tímdum ekki að fara heim. Svo var ekki hægt að fresta því lengur, Ásgeir var náttúrulega hluti af fyrirtæki á íslandi sem hann Iangaði til að vinna við. Við fórum á endanum aftur heim eftir að hafa verið í sex ár í Ástralíu". Börnin „Sonur okkar fæddist í Ástralíu og var tveggja ára þegar við fórum heim“. Guðrún sýnir mér mynd af Helga syni þeirra 23 ára. Hann er skemmtileg blanda af íslendingi og Ástrala. Ekki alveg ástralskur en ekki heldur alveg íslensk- ur.Hann er greinilega augasteinn móður sinnar. „Hann er ótrúlegur ævintýra- maður. Hann er það sem kallað er „surfari“ eða „brimbrettagæi" og hefur ferðast út um allt til að renna sér á brimbretti. Hann lærði umhverfisvernd og vinnur núna úti í Rottnest Island sem er eyja rétt fyrir utan Perth, þar sem hann er líka að læra að kafa,“ segir Guð- rún stolt. „Hann var svo heppinn að fá að vera í nokkur ár á íslandi áður en hann flutti til Ástralíu. Hann hefur alltaf verið betri í ís- lenskunni en stelpan," bætir Ás- geir við. „Stelpan okkar, Katrín, fæddist svo á Islandi. Hún er 20 ára á þessu ári og stundar nám í ferða- pg þjónustufræðum. Hún var á íslandi í 6 mánuði á síðasta ári og vann hjá McDonalds. Þá lærði hún að tala íslensku upp á nýtt,“ segir Guðrún. „Henni fannst mjög gam- an að vera með fjölskyldunni og fá að kynnast þeim aftur. Hún vann líka sem dagmamma hjá móðursystur sinni og eignaðist fullt af yndislegum fósturbörnum". Katrín var heima þegar ég kom í heimsókn og var á leiðinni í 21 árs afmæli ásamt vinum sínum. Hún var greinilega meiri Ástrali en bróðir hennar en þó orðin býsna góð í íslenskunni svo hann má fara að vara sig. Útaftur „Já, við fluttum aftur út eftir að vera búin að vera fimm ár heima á íslandi," segir Guðrún. „Það var bara ekki hægt að vera þar leng- ur,“ segir Ásgeir, „ekki eftir að maður vissi hvernig lífið gat verið. Auðvitað þurfti maður svo sem að vinna fyrir sér en það er bara allt svo miklu auðveldara í loftslagi eins og það er héma“. „Svo er svo dýrlegt að ala upp börn hérna,“ bætir Guðrún við. Guðrún er nýkomin frá íslandi þar sem hún var í 7 vikur ásamt dóttur sinni. „Þegar ég var heima síðast hélt ég að ég væri farin að tapa sjóninni. Ég var farin að sjá svo illa þegar ég var að lesa, svo ég fór og fékk mér svona gleraugu sem maður getur keypt í apótek- um. En það breytti engu, ég var bara ekkert betri. Svo þegar ég kom hingað út aftur þá uppgötv- aði ég að_ það var allt í lagi með sjónina. Ég var bara orðin svo óvön myrkrinu og skammdeginu heima á íslandi, það var ekki nógu bjart.“ Það er líka staðreynd að það er hvergi eins skær birta og í Perth í Ástralíu. En nú er kominn tími fyrir BBQ sem Ásgeir er búinn að grilla svo listilega úti í garði og Guðrún er búin að galdra fram alls kyns lostætt meðlæti. Og nú er um að gera fyrir mig að belgja mig út af eins miklum sólarmat og ég get áður en ég fer til að takast á við skammdegið á íslandi næstu vikurnar. Höfundur er leikbrúðuhönnuður. að þessi fjölskylda á sér um margt óvenjulega sögu. Auðvitað þurfti maður svo sem að vinna fyrir sér en það er bara allt svo miklu auðveldara í loftslagi eins og það er hérna. GUÐRÚN í eldhúsinu í glæsi- lega einbýlishúsinu sem þau Ásgeir eru búin að koma sér upp í Ástralíu. „Já, ég sé að það hlýtur að vera yndislegt að vera barn hérna,“ segi ég og er um leið að skoða myndir af börnunum þeirra þar sem þau eru 3-4 ára að leika sér allsber í bala úti í garði í glaða sólskini. „Ja, þessi er nú reyndar tekin á Siglufirði," segir Ásgeir og ruglar um leið fyrir mér þeirri einföldu mynd sem ég var búin að koma mér upp í huganum: Það er sól í Ástralíu og myrkur á íslandi. Hvergi eins skær birta ÁSGEIR og Guðrún ásamt dóttur sinni Katrínu. Ekki alls fyrir löngu var Helgu Amalds boðið í gríllveislu í borginni Perth í * Astralíu, þar sem hún var þá á ferð. Það er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema hvað gestgjafamir vom rammíslénsk ÁSGEIR að grilla gómsætt ástralskt nautakjöt. fjölskylda sem hún hafði kynnst fyrir tilviljun. Hún komst að því Aðláta drauminn rætast

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.