Morgunblaðið - 27.03.1997, Page 14

Morgunblaðið - 27.03.1997, Page 14
14 D FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ YFIR kaffibollanum í Staðarskála skiptast bílstjórarnir á skoðunum. FARIÐ yfir minnisatriði áður en lagt er af stað Vöruflutningabílstjóramir eru oft fyrírferð- armiklir á þjóðvegunum. Þeir leggja oftast í hann þegar aðrir em að ná leiðarenda, og þegar nóttin er skollin á má segja að þeir ríki á vegunum. Starf þeirra hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum og ein- yrkjunum fækkar óðum. Anna María Boga- dóttir og Sigríður Björg Tómasdóttir fengu smjörþefínn af þessum karlaheimi. ÖKURITINN umdeildi fylltur út í lok ferðar. ÞETTA eru vinnuþjarkar sem víla ekki fyrir sér að vaka heilu sólarhringana. DAGUR er að kveldi kominn, klukkan orðin hálfsex og vinnudagur flestra á enda. Bílstjórar vöruflutninga- bíla eiga aftur á móti langan akstur fyrir höndum, norður yfir heiðar eða suður með sjó. Við erum stödd á Vöruflutningamiðstöðinni í Reykja- vík og ætlum að sitja með í flutn- ingabílum norður til Akureyrar. Áður en lagt er af stað þarf að lesta bílana og flutningamiðstöðin iðar af lífí. Alls kyns vörur eiga eftir að fara út á land, bleiur, dósamat- ur, grænmeti, fískmeti og hjólbarð- ar, svo eitthvað sé nefnt. Við vöruskemmuna er fjöldinn allur af flutningabílum. Þetta er engin smásmíði, bílarnir vega tíu til fimmtán tonn ólestaðir og marg- ir eru með tengivagna. Þeir geta því verið allt upp í tuttugu og sjö metrar á lengd. Það virðist ókleift upp í bílinn en vanir bílstjórarnir vippa sér léttilega þangað upp. Inni í bílunum er heimilislegt og snyrti- mennskan er í fyrirrúmi. Sætin eru mjög þægileg og aftan við þau er uppbúið svefnpláss. Þetta er annað heimili bílstjórans. Hér eyðir hann að meðaltali fimmtíu tímum á viku og sefur tvær nætur í viku hverri. Bíllinn er búinn margs konar þæg- indum og öryggisbúnaði, m.a. síma, talstöð, flóknu mælaborði, radar og ágætis hljómflutningstækjum. Þetta er ekkert í líkingu við bílinn þann sem hægt er að ímynda sér að Bjössi hafi ekið með mjólkina forðum. Bílstjórinn sem er sestur við stýr- ið er snaggaralegur og röskur. Hann gæti vel talist fullrúi nýrrar kynslóðar bílstjóra. Bílstjórastarfíð krefst ekki jafnmikilla líkamalegra átaka þótt enn sé um hörkupúl að ræða. ímynd hins tröllvaxna bíl- stjóra með uppbrettar ermar og loðna handleggi er kannski á und- anhaldi í takt við nýja tíma og umskipti í samgöngum og flutning- um. Auk þess að keyra þurfa bíl- stjórarnir í flestum tilvikum að lesta og losa bílana. Áður fyrr var það gert með handafli en nú hefur tæknin létt mönnum störfin til muna. Hraði er það sem allt gengur út á í atvinnugreininni í dag. Nú er svo komið að hægt er að panta vörur frá Reykjavík til afhendingar daginn eftir, nánast hvar sem er á landinu. Á meðan væntanlegir neyt- endur dvelja í draumaheimi sjá bíl- stjórarnir um að vörumar berist á tilsettum tíma. Klukkan hálfsjö er lestun lokið og lagt af stað. Höfuðborgin er lýst upp með rafmagnsljósum en eftir því sem bílnum miðar áfram fækk- ar ljósastaurunum. Áður en varir eru ljósgeislamir frá bílnum eina lýsingin auk endurkastsins frá um- hverfisvænu glitstaurunum við veg- arkantana. Bílstjórinn upplýsir að staurarnir séu úr endurunnu hey- rúlluplasti og litaðir gulir. Ljósgjaf- inn er kastarar á þaki bílsins og geislar þeirra lýsa leiðina. Þeir minna á geisla sem er varpað á tjald í kvikmyndahúsi. I þetta sinn er ekkert tjald, einungis myrk nóttin sem er eins og lifandi kvikmynd. En ólíkt því sem fer fram í kvik- myndahúsum er þessi mynd engin blekking. Á þjóðveginum er hvorki tómatsósa né taka tvö. Umhverfið er magnað og sí- breytilegt. Stjörnur og dansandi norðurljós þekja himininn og yfír- lýsingar um að rómantíkin sé ekki lengur til staðar í bílstjórastarfinu virðast úr lausu lofti gripnar. En það eru ekki froststilla og norður- ljós í hverri ferð. Á íslandi eru veð- ur válynd og starf bílstjórans mark- ast af því. Til að fylgjast með færð- inni nýta bílstjórar sér fjarskipta- tæknina, símann og talstöðina. „Á að élja fyrir norðan?“ spyr bílstjór- inn félaga sinn sem er á suðurleið. Betri fjarskiptatækni hefur aukið öryggi bílstjóra og er mikilvægur hluti af starfsumhverfi þeirra. Þrátt fyrir framfarir í samgöng- um, mega mannanna verk sín lítils þegar náttúruöflin eru annars veg- ar. Skeiðarársandur var löngum farartálmi og nýlegt hlaup í Skeið- ará einangraði íbúa austan sands á ný. Skarð var rofið í hringveginn með þeim afleiðingum að aksturs- vegalengd frá Höfn til Reykjavíkur lengdist um helming. Bílstjórar sem áður óku um sandinn voru nauðbeygðir til að fara norður fyrir landið. Þeir slóg- ust í för með bílstjórum sem þekkja norðurleiðina eins og lófann á sér. Auk þess að fá hjá þeim upplýs- ingar um vegi og færð voru þeir boðnir velkomnir í kvöldmatinn. í kvöld eru „plokkfiskur, hangi- kjöt og naut“ á matseðlinum í Fer- stiklu, eða Stiklunni, sem er hefð- bundinn áningarstaður bílstjór- anna. Þar er snætt og skrafað. Þeir sem hafa verið lengi í starfinu rifja upp gamla tíma. Þá uppfyllti ein ferð í viku kröfur neytandans enda tók langan tíma að komast á milli staða. Með betri vegum og betur búnum bílum hefur hag- kvæmni í landflutningum aukist gífurlega. Þetta er ein ástæða þess að flutn- ingar á landi hafa aukist mjög. Neysluvara sem áður var flutt með skipum er nú að mestu flutt með. bílum. Fiskflutningar á landi hafa einnig færst í vöxt því í mörgum tilfellum er hagkvæmara fyrir skip- in að landa í næstu höfn og láta bíla aka með aflann til vinnslu. Atvinnugreinin hefur í raun gjör- breyst á síðustu 25 árum. Þá var svonefnd einyrkjastarfsemi algeng- ust. Menn óku sínum eigin bílum og voru eigin herrar. Á síðustu árum hefur þróunin verið sú að fyrirtækjum í greininni hefur fækk- að og þau stækkað. Sjóflutninga- fyrirtæki hafa fjárfest í landflutn- ingafyrirtækjum og nú er svo kom- ið að stærstu fyrirtækin sem sjá um flutninga á landi eru að miklum meirihluta í eigu stóru skipafélag- anna, Eimskips og Samskipa. Það er mál manna að haldi þetta áfram leggist einyrkjastarfsemin af. Enn eru samt nokkrir sem streitast á móti en þeir mega sín lítils í sam- keppni við hina stóru. Þessar breytingar hafa haft í för með sér margvíslegar afleiðingar fyrir bílstjóra. Hjá stærri fyrirtækj- um er bílstjórinn aðeins einn af fjöl- mörgum launþegum og því kominn í allt aðra aðstöðu en þegar sá hinn sami var sjálfstæður atvinnurek- andi. Atvinnugreinin ber þess enn merki að hafa byggst upp á litlum sjálfstæðum einingum. Flutninga- bílstjórar eiga t.a.m. ekkert stéttar- félag eða hagsmunasamtök. Raunin er líka sú að ekkert samræmt launa- kerfi er til. Sumir bílstjórar eru á föstum mánaðarlaunum, aðrir á tímakaupi, enn aðrir fá greidda ákveðna upphæð fyrir ferðina og svo mætti lengi telja. Allir eiga það hins vegar sameiginlegt að vinna mikla yfírvinnu, og launin hafa byggst á henni. Hingað til hafa laun almennt verið há í greininni og starfíð eftirsótt. En það má heyra á bílstjórum að það er fleira en launin sem laða að. „Maður er stanslaust á ferð og flugi og alltaf að fást við eitthvað nýtt,“ segir einn. „í þessu starfí verður alls kyns fólk á vegi manns,“ bætir annar við. Það vekur þó at-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.