Morgunblaðið - 27.03.1997, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997 D 37
/W\ KENNARAHÁSKÓLI ÍSLAND5
Laust starf
háskólakennara
Við Kennaraháskóla íslands er laus til um-
sóknar staða dósents í uppeldis- og kennslu-
fræðum með áherslu á eigindlegar rannsókn-
araðferðir, ráðgjöf og leiðsögn í skólastarfi.
Aukfullgilds háskólaprófs skulu umsækjendur
hafa viðurkennd kennsluréttindi eða hafa að
öðru leyti nægilegan kennslufræðilegan undir-
búning. Reynsla af kennslu og skólastarfi er
nauðsynleg. Umsókn fylgi ítarleg skýrsla um
vísindastörf, ritsmíðar og rannsóknir, svo og
upplýsingar um námsferil og önnur störf. Þau
verk, sem umsækjendur óska að dómnefnd
fjalli um, skulu einnig fylgja.
Ráðning ertil tveggja ára frá 1. ágúst 1997.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkis-
ins. Umsóknir berist Kennaraháskóla íslands
v/Stakkahlíð, 105 Reykjavík, fyrir 15. apríl nk.
Upplýsingar veitir kennslustjóri KHÍ
í síma 563 3800.
Hjúkrunarfræðingar
Heilsugæslustöð Vestmannaeyja auglýsir
eftir hjúkrunarframkvæmdastjóra.
Heilsugæslustöðin er staðsett í sama húsi og sjúkrahúsið. Þetta er
notalegur vinnustaður með fjórum heimilislæknum og mikið af
skemmtilegu samstarfsfólki. I Vestmannaeyjum búa 4.800 manns
og því alltaf nóg að gera.
Eyjarnar státa af mikilli náttúrufegurð og góðu mannlífi. Tveir grunn-
skólar eru starfandi ásamt framhaldsskóla sem útskrifar stúdenta,
iðnnema, vélstjóra og einnig er stýrimannaskóli. Hér er mikið tónlist-
arlíf m.a. tveir kórar, lúðrasveit og tónlistarskóli. Blómlegt safnaðarlíf
er í bænum. íþrótta- og æskulýðsstarfsemi er mikil og öflug, golfvöllui
á heimsmælikvarða og ekki má gleyma Þjóðhátiðinni.
Við leitum að góðum hjúkrunarfræðingi með
menntun og/eða reynslu í heilsugæslu.
Nánari upplýsingargefur hjúkrunarforstjóri
í síma 481 1955.
Skapandi starf við
auglýsingahönnun
Morgunblaðið óskar að ráða starfsmann til
starfa við auglýsingahönnun. Þetta ertækifæri
fyrir þig, sem hefur reynslu af notkun QuarkX-
Press, til að starfa í skapandi og skemmtilegum
félagsskap þar sem þú færð tækifæri til að láta
sköpunarhæfileika þína njóta sín. Þú þarft að
geta unnið hratt og örugglega.
Unnið er á vöktum kl. 8—17 og 13—20.
Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsing-
ar fást á skrifstofu Guðna Jónssonar og skal
umsóknum skilað á sama stað.
Umsóknarfrestur ertil 6. apríl nk.
CrllÐNl ÍÓNSSON
RÁÐGjÖF & RÁÐNINGARHÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKjAVÍK, SÍMI 5-62 13 22
Líknarfélag
— hlutastarf
Líknarfélag vantartrausta eldri konu til að sjá
um og afgreiða í lítilli verslun í Reykjavík.
Starfið er um 10 tímar á viku og þarf viðkom-
andi að hafa bíl til umráða.
Upplýsingar um aldur, fyrri störf og kaupkröfur
þurfa að berasttil afgreiðslu Mbl. fyrir 3. apríl,
merktar: „Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum."
Hornafjörður
Fræðslu- og menningarsvið
Kennarar óskast
Kennarar óskast til starfa við Grunnskóla
Hornafjarðar. Meðal kennslugreina: Almenn
kennsla, sérkennsla, handmennt.
Grunnskóli Hornafjarðar er einsettur skóli í
kröftugu bæjarfélagi. Grunnskóli Hornafjarðar
samanstendur af fjórum skólaeiningum.
Nesjaskóli 1.-3. bekkur.
Hafnarskóli 4.-7. bekkur.
Heppuskóli 8.-10. bekkur.
Mýraskóli 1.-7. bekkur.
Nánari upplýsingar gefur Hallur Magnússon
í síma 478 1500.
Hornafirði, 26. mars 1997.
Bæjarstjóri Hornafjarðar.
Leikskólakennarar
Á Selfossi eru starfræktir fjórir leikskólar, Álf-
heimar, Ásheimar, Glaðheimar og Árborg.
í þeim öllum blómstrar gott leikskólastarf, en
okkur vantar fleiri leikskólakennara til starfa.
Nánari upplýsingar gefa:
Eygló Aðalsteinsdóttir, leikskólastjóri
Glaðheima í síma 482 1138,
Helga Geirmundsdóttir, leikskólastjóri
Ásheima í síma 482 1230,
Ingibjörg Stefánsdóttir, leikskólastjóri
Álfheima í síma 482 2877,
Steinunn Guðmundsdóttir, leikskólastjóri
Árborgar í síma 482 2337
eða Heiðdís Gunnarsdóttir leikskólafulltrúi í
síma 482 1408.
Fiæðsluiráðstöð
ReykjavílÁir
Húsaskóli
Kennara vantarfrá páskumtil loka skólaárs
til að kenna 6 ára börnum. Æskilegt er að við-
komandi hafi reynslu af kennslu yngri barna.
Upplýsingar veitir Valgerður Selma Guðna-
dóttir skólastjóri í síma 567 6100 í skólanum
og heima í síma 567 3001 og Kristín V. Þórð-
ardóttir aðstoðarskólastjóri í síma 567 6100
í skólanum og 554 5091 heima.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354)535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
Lykil Hótel
Óskum eftir að ráða starfsfólk eldra en 22 ára
í eftirtalin störf:
Gestamóttöku, næturvörslu, herbergjaþrif,
matreiðslumenn, framreiðslumenn, mat-
reiðslunema, framreiðslunema og önnur störf.
Um er að ræða heilsdags- og hlutastörf,
sumarstörf og framtíðarstörf.
Umsóknir með mynd og meðmælum skulu
sendast afgreiðslu Mbl. fyrir 5. apríl, merktar:
„H - 416".
Hótel Örk - Hótel Valhöll - Hótel Norðurland
Hótel Garður - Hótel Cabin
Verktakafyrirtæki
í Reykjavík óskar eftir starfskrafti vanan vélum
og með meirapróf. Fjölbreytt og mikil vinna
í boði.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 4. apríl,
merktar: „V - 406".
Starfsmaður óskast
Hard Rock Cafe í Reykjavík óskar eftir starfs-
manni til að gegna starfi gjaldkera í verslun
okkar. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu
af verslunarstarfi og sölumennsku.
Viðkomandi þarf að vera metnaðargjarn, sam-
viskusamur og hafa líflega og skemmtilega
framkomu.
Umsækjendur þurfa að vera eldri en 22 ára.
Tekið verður á móti umsækjendum fimmtudag
og föstudag 27.-28. mars, milli kl. 16.00-18.30.
\wém\
SphiH Hólmavíkurhreppur
Sveitarstjóri
á Hólmavík
Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps auglýsir eftir
sveitarstjóra til starfa frá og með maímánuði
1997. Umsóknir þurfa að berast skrifstofu
Hólmavíkurhrepps, Hafnarbraut 19, 510 Hólma-
vík, í síðasta lagi fimmtudaginn 10. apríl 1997.
Nánari upplýsingarveitirStefán Gíslason,
sveitarstjóri, í síma 451 3510.
Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps.
Staða
hjúkrunarforstjóra
Heilsugæslustöðin á Vopnafirði auglýsir stöðu
hjúkrunarforstjóra. Um er að ræða afleysingar-
stöðu í 8-10 mánuði frá 1. júlí 1997.
Einnig vantar hjúkrunarfræðing til sumaraf-
leysinga frá 1. júní 1997.
Þá vantar hjúkrunarfræðing til starfa við
hjúkrunarheimilið Sundabúð, Vopnafirði.
Um er að ræða framtíðarstarf.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 1997.
Nánari upplýsingar veita:
Emil Sigurjónsson, framkvæmdastjóri,
vs. 473 1225, hs. 473 1478, og
Emma Tryggvadóttir, hjúkrunarforstjóri,
Sundabúð, vs. 473 1320, hs. 473 1168.
Hólmavíkurhreppur
Leikskólakennarar
Leikskólinn á Hólmavík óskar að ráða leik-
skólakennara í full störf eða hlutastörf
frá 1. júní nk.
Umsóknir þurfa að berast skrifstofu Hólmavík-
urhrepps, Hafnarbraut 19, 510 Hólmavík, í síð-
asta lagi fimmtudaginn 10. apríl 1997.
Nánari upplýsingar veita Guðríður Guðjóns-
dóttir leikskólastjóri í síma 451 3411 og Stefán
Gíslason sveitarstjóri í síma 451 3510.
Sveitarstjóri Hólmavíkurhrepps.
"W' IÐNSKÓUNN f REYKJAVfK
Rafeindatæknifræð-
ingar, verkfræðingar
Kennara vantar í rafeindavirkjun, bæði í tölvu-
greinum og öðrum rafeindagreinum.
Ráðning í báðar stöðurnar erfrá 1. ágúst 1997.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfs-
manna. Nánari upplýsingar veitir kennslustjóri
rafiðna eða skólameistari í síma 552 6240.
Umsóknum skal skila til ritara skólameistara
í síðasta lagi 28. apríl 1997.
Öllum umsóknum verður svarað.