Morgunblaðið - 13.04.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.04.1997, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Engin ákvörðun um sjópróf TEKIN var lögregluskýrsla af skipstjóranum á Hauki SF 208 I gærmorgun en Haukur fórst á föstudagskvöld suður af Hornafirði. Þriggja manna áhöfn bátsins sakaði ekki. Ákvörðun um sjópróf hafði ekki verið tekin laust eftir há- degi í gær. Hafborg bjargaði áhöfn Hauks úr gúmmíbjörgun- arbáti og kom með hana tU Hafnar um tíuleytið á föstu- dagskvöldið. A myndinni eru skipveijar á Hauki að koma í land. Frá vinstri eru Yngvi Harðarson vélstjóri með dóttur sína, Krist- ján Haraldsson skipstjóri og Baldvin Þór Helgason háseti. Morgunblaðið/Stefán Ólafsson Samningamál kennara Nýtt vinnu- tímakerfi skoðað Kristín Ástgeirsdóttir þingkona Kvennalista Ástæðulaust að skikka alla í sameignarsjóði „ÉG SÉ í fljótu bragði ekki ástæðu til að skikka alla í sameignarsjóði en lífeyrissjóðimir eru orðnir mik- ið peningaveldi og greinilegt að togstreita og keppni er í kringum þá,“ sagði Kristín Ástgeirsdóttir þingkona Kvennalistans aðspurð um lífeyrissjóðafrumvarpið sem nú liggur fýrir Alþingi. Svavar Gestsson þingmaður Alþýðu- bandalagsins sagði nauðsynlegt að hafa í heiðri þá félagslegu hugsun sem lífeyrissjóðimir byggðust á. „Mér finnst aðalatriðið að allir séu tryggðir og að tryggja rétt þeirra sem eiga í lífeyrissjóðum," segir Kristín Ástgeirsdóttir enn- fremur. „Mér finnst athugandi að fólk hafi val um hvar greitt er og hvort ekki má auka frelsið. Hins vegar verður að ríkja sátt um málið því lífeyrissjóðir eru eign landsmanna. Miðað við stefnu ríkisstjómarinnar finnst mér mál- ið sérkennilegt og sýnir hverjir það eru sem valdið hafa í þessum málum, það eru ASÍ og VSÍ,“ sagði Kristín og sagði furðulegt ef keyra ætti svo umfangsmikið mál í gegn á þeim fáu vikum sem eftir væm af starfstíma Alþingis. Þeir sterku taki þátt í heildarsparnaði Svavar Gestsson formaður þingflokks Alþýðubandalagsins og minnti á að lífeyrissjóðirnir hefðu orðið til með samningum stéttarfélaga 1970. „Aðalatriðið er að ríkið sé ekki að kássast upp á það sem aðrir eiga. Verkalýðs- hreyfíng og atvinnurekendur hafa náð samkomulagi um tiitekið fyr- irkomulag í þessum efnum og það er sjálfsagt að fara yfír það með jákvæðum hætti. Við verðum að gera okkur grein fyrir að lífeyris- sjóðakerfið byggir á heildarsam- stöðu, að þeir sem sterkastir eru ávaxti sitt líka í þessu sameigin- lega kerfí. Það þarf að hafa þessa félagslegu heildarhugsun í heiðri. Ég vil að þeir sem eru vel efnum búnir og sterkir taki þátt í heildar- spamaði samfélagsins í þágu allra annarra," sagði Svavar. VERIÐ er að kanna möguleika á að taka upp nýtt kerfí til að reikna út vinnutíma kennara og hafa samninganefndir kennara og ríkis- ins fjallað um málið á fundum síð- ustu daga. Að sögn Elnu Katrínar Jónsdótt- ur formanns Hins íslenska kennara- félags höfðu ný lög um framhalds- skóla í för með sér ýmsar breyting- ar á kennslu, svo sem fjölgun kennsludaga, og breytingu á prófa- tíma og kennarar vildu augljóslega fá nokkuð fyrir sinn snúð. Hún sagði að verið væri að skoða hvort hægt væri að taka upp öðruvísi kerfí við að reikna út vinnutímann og þar væru fyrirmyndir frá ná- grannalöndunum, m.a. Danmörku. Þar fyrir utan væru framhalds- skólakennarar að reyna að ná samn- ingum um kaup og kjör, og staðan þar væri flókin. Elna sagði að HÍK vildi ekki semja til lengri tíma en tveggja ára. Þá sagði hún kennara ekki vera hrifna af hugmyndum um nýtt launakerfí, sem samninganefnd ríkisins hefði verið að ýta að félögum háskólamanna, og teldi það ekki falla að hagsmunum kennara. Bæði HIK og Kennarafélag Ís- lands hafa boðað trúnaðarmenn í framhaldsskólum til fundar á mánu- dag og þar verður staðan í samn- ingamálunum kynnt. Svala Thorlacius lögmaður V arðskipsmenn eru lögreg'lumenn Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir SKRIFAÐ var undir kjarasamninga starfsmanna sveitarfélaga á Hótel Örk í Hveragerði á föstudagskvöld. Atkvæðagreiðslum um samninga að ljúka Atkvæði verða Ók á staur BÍL var stolið í Borgamesi um kl. 2 aðfaranótt laugardags og ekið á mikilli ferð út úr bænum. Ökuferðin endaði á ljósastaur en ökumaðurinn slapp með minnihátt- ar meiðsli. Hann er grunaður um ölvun. Bíllinn, sem er af Mercedes- Benz gerð, er nánast ónýtur. talin á þriðjudag SVALA Thorlacius hæstaréttarlög- maður segir engan vafa leika á því að ekkja bátsmannsins á varðskip- inu Ægi sem fórst við björgunar- störf vegna Víkartinds 5. mars sl. eigi rétt á dánarbótum sambærileg- um við það sem t.d. ekkja lögreglu- manns, kafara eða flugmanns hjá Landhelgisgæslunni hefði fengið við svipaðar aðstæður. Fram hefur komið að ekkjan hefur fengið greiddar dánarbætur samkvæmt sjómannasamningum en þær nema aðeins 644.000 kr., auk þess sem tvö ung böm þeirra fá hvort um sig sömu fjárhæð. Svala bendir á að í fjórðu grein laga um lögreglumenn nr. 56 frá 1972 standi skýrum stöfum að skipverjar á varðskipum teljist til lögreglu- manna ríkisins. „Á öðrum stað í lögunum stendur að ríkissjóður skuli bæta lögreglumönnum meiðsli og tjón sem þeir verða fyrir vegna starfs síns og af því má draga þá ályktun að ríkið greiði dánarbætur vegna lögreglumanns sem hefur látist í starfí," segir Svala. Hún bendir einnig á að jafnvel þó að miklir gallar séu á réttarstöðu fólks í óvígðri sambúð, sé samt sem áður gert ráð fyrir því í nýju skaða- bótalögunum að sambúðarmaki fái dánarbætur og því liggi það í aug- um uppi að ekkja bátsmannsins eigi rétt á fullum dánarbótum jafnvel þó að þau hafí verið í óvígðri sam- búð. ATKVÆÐAGREIÐSLU um kjarasamninga landssambanda innan ASÍ á að vera lokið á mánu- dag og verða atkvæði talin á þriðjudag. Þegar Verkamannasambandið, Dagsbrún/Framsókn, Samiðn og Landssamband verzlunarmanna undirrituðu kjarasamninga 24. mars sl. var boðuðum og yfír- standandi verkföllum frestað til 23. apríl en koma þá til fram- kvæmda ef samningarnir verða felldir. Að sögn Þóris Einarssonar ríkissáttasemjara fækkar nú óðum málum hjá embættinu sem tengj- ast beint eða óbeint samningum á almenna vinnumarkaðnum. Enn er þó ósamið við nokkra aðila, þar á meðal Alþýðusamband Vest- fjarða, starfsmenn Kísilgúrverk- smiðjunnar við Mývatn, flugmenn og flugfreyjur. Þá er ósamið við aðildarfélög BSRB og sjómanna- félögin en kjaradeilum þessara aðila hefur verið vísað til sátta- semjara. ►íslenskum kaupskipum og far- mönnum hefur fækkað ört síðustu árin vegna tækniþróunar og sam- keppni frá sjómönnum fátækra þjóða á heimsmarkaði. /10 Viðgerðarmaðurinn wann kalda stríðið ►í kalda stríðinu komu Banda- ríkjamenn fyrir myndavélum í ljós- ritunarvélum um allan heim til að komast að mikilvægum trúnaðar- málum. /12 Fullbúinn rafbíll til reynslu á Jersey ►Loftmengun er víða mikið vandamál af völdum brunahreyfla í bflum. Ýmsar lausnir eru reyndar og Morgunblaðið kynnti sérToyota RAV EV rafbfla sem verið er að taka í notkun á Ermasundseynni Jersey. /20 Mannlegi þátturinn sterkari í Kína ►í Viðskiptum/Atvinnulífi á sunnudegi er rætt við Rúnar Má Sverrisson, svæðisstjóra Silfurtúns íAsíu. /24 B ► 1-32 Alcatraz, fangelsið við flóann ►Fangelsið á Alcatraz eyju er eitt hið frægasta í heimi. Því var kom- ið á laggimar þegar glæpagengin réðu lögum og lofum í Bandaríkj- unum og þar sátu harðsvíruðustu glæpamennimir. /1&16-17 Fegurðarsamkeppni Reykjavíkur 1997 ►Á næstunni munu 14 stúlkur keppa um vegleg verðlaun í keppn- innu um fegurstu stúlku höfðu- borgarinnar. /2 Hefði viljað læra meiri söng ►Edda Heiðrún Backman leik- kona er með mörg jám í eldinum og mun nú leika aðalkvenhlutverk- ið í Fiðlaranum á þakinu Þjóðleik- húsinu. /30 FERÐALÖG ► 1-4 Húsavík ►Allt milli himins og jarðar allan ársins hring. /2 Andalúsía á alnetinu ►Sagt frá óvenjulegum ferða- tilboðum í Andalúsíu, sem kynnt em á alnetinu. /4 ÍP BÍLAR______________ ► 1-4 Reynsluakstur ►Adam Opel kynnir Corsa ’97 á Kanaríeyjum. /2 Fyrsta óháða árekstraprófunin ►Aldrei fyrr hafa evrópskir bíl- kaupendur haft aðgang að óháðri könnun á því hvemig bflar þola árekstur. /4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak íþróttir 14 Leiðari 28 Helgispjall 28 Reykjavíkurbréf 28 Skoðun 30&32 Minningar 34 Myndasögur 40 Bréf til blaðsins 40 ídag 42 Brids 42 Sljömuspá 42 Skák 42 Fðlk í fréttum 44 Bíó/dans 46 Útvarp/sjónvarp 50 Dagbók/veður 55 Maturogvin 4b Dægurtónl. 14b Mannlífsstr. I8b MaturogVín 20b INNLENDAR FRÉTTIR- 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR- 1&6 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.