Morgunblaðið - 13.04.1997, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 13.04.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 13. APRÍL 1997 3 7 GUÐMUNDUR ÞORS TEINSSON + Guðmundur B. Þorsteinsson fæddist í Reykjavík 8. nóvember 1934. Hann lést í Sjúkra- húsi Reykjavíkur 5. apríl síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Aðalheiður María Jónsdóttir, f. 8.11. 1901, d. 5.2. 1983, og Þorsteinn Þorgils Þorsteins- son, f. 8.4. 1897, d. 9.12. 1960. Systkini Guðmundar eru Elsa, f. 30.9. 1932, Margrét, f. 11.11. 1933, Guð- bjartur, f. 8.11. 1934, Guðný, f. 26.11. 1938. Hálfsystir hans er Anna, f. 30.10. 1926. Útför Guðmundar fer fram frá Breiðholtskirkju á morgun, mánudag, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Með örfáum orðum langar mig að minnast móðurbróður mins, Guðmundar Þorsteinssonar, eða Muggs eins og hann var alltaf kallaður. Það rifjast upp margar og góðar minningar um hann og ber hæst þær minningar þegar ég var lítil stelpa, þá bjuggu Muggur, tvíburabróðir hans, Bjartur, og Elsa systir þeirra með ömmu minni og var ég þar svo oft ýmist í pöss- un eða bara fékk að koma til að sofa hjá ömmu. í þessum heim- sóknum mínum öðlaðist ég mikla reynslu í spilamennsku og var það Mugg 0g Bjarti að þakka því þeir höfðu ótrúlega þolinmæði til að spila við mig og jafnvel að kenna mér að leggja kapal. Man ég sér- staklega eftir hvað mér fannst til- komumikið þegar ég fékk ösku á nefbroddinn þegar ég varð undir í Svarta Pétri, þetta eitt gerði spila- mennskuna svo stórbrotna. Muggur var mjög barngóður en alltaf svolítið stríðinn og varð ég stundum fyrir barðinu á honum. Þegar mamma gekk með bróður minn þeg- ar ég var fimm ára gömul lét ég Mugg hafa eina krónu og tók af honum loforð að hann mætti ekki stríða litla bróður mínum þegar hann kæmi í heiminn, og ef hann ekki stæði við loforðið þá yrði hann að borga mér krónuna til baka, krónuna fékk ég aftur, Muggur stóðst ekki mátið. Muggur var glaðlegur og þægi- legur í viðmóti. Hann var vel að sér um ýmsa hluti, víðlesinn og var oft gaman að spjalla við hann. Hann hafði ekki síður gaman af því að spjalla við böm og ungl- inga, þá einkum um íþróttir sem hann hafði gaman af að fylgjast með. Kæri Muggur, hafðu þökk fyrir allt, guð geymi þig. Aðalheiður Sævarsdóttir. Hinn 5. apríl barst mér fregn af andláti Guðmundar eða Muggs eins og hann var kallaður í daglegu tali. Sú fregn. kom ekki á óvart því Muggur var búinn að eiga við erfið veikindi að stríða og þetta hlutu að verða lokin á veru hans á meðal okkar. Oft er svefninn langi kærkominn þeim sem þjást og eru veikir, en aðstandendur eiga um sárt að binda. Guðmundur var kátur og hress í febrúar síðastliðnum þegar ég hitti hann og eins og vanalega lék hann á als oddi og gerði að gamni sínu. Á meðan ég bjó í Reykjavík kom hann oft í heimsókn og fékk sér kaffisopa ásamt Elsu systur sinni, lék við syni mína og stríddi mér. Einkenni Guðmundar var glens, grín og glettni og maður kemur til með að sakna þess mjög í fram- tíðinni að heyra ekki hláturinn í þessum góða manni né hitta hann oftar, en svona er lífið, kallið kem- ur og enginn er viðbúinn. Ég og bömin mín vorum að láta okkur dreyma um að Guðmundur og Elsa myndu koma í heimsókn til okkar hingað til Noregs í sum- ar, en svo verður víst ekki núna. Ég og börnin mín þökkum Guð- mundi fyrir allar samverustundim- ar á liðnum ámm og sendum systk- inum hans og fjölskyldum þeirra, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur og styrki í sorg ykkar. Valgerður Kiústjánsdóttir, Noregi. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit töívusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess þess Mbl@centrum.is en nánari upp- lýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu- hil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sin en ekki stuttnefni undir greinunum. OPIÐ HÚS í DAG TRÖNUHJALLI KOP. OPIÐ HÚS ! í DAG FRÁ KL. 13.00-16.00 AÐ TRÖNUHJALLA 9, SIGRÍÐUR ( SÍMA 554 5687 TEKUR VEL Á MÓTI YKKUR. Þetta er 4ra herb. íbúð ca. 96 fm, þvotta- hús innan íbúðar og gott útsýni. Áhv. 3,6 - 5 millj. I Bygg.sj. & fl. EKKERT GREIÐSLUMAT. OPIÐ HÚS DALSEL ! í DAG FRÁ 13.00 -16.00 Að Dalseli 17, 3 hœð til vinstri 70 fm glæsileg , björt og rúmgóð 2ja herb íbúð ásamt 8 fm aukaherb. i kjallara og stæði I bílskýli. Stór stofa, flísar, suðursvalir o.fl. Sameign sérstaklega vel við haldið og snyrtileg! Gullfalleg ibúð! Jón og Helma Björk taka vel á móti þér s-557 1407. Áhvilandi hagstæð lán 4,2 millj. verð. 6,5 millj. SJÓN ER SÖGU RÍKARI ! FASTEIGNASALAN f r Ó n FINNBOGI KRISTJANSSON LÖGG. FASTEiGNASAU SIÐUMULA 1 SÍMI 533 1313 FAX 533 1314 Opið í dag kl. 12-14 fyrir steinsteypu. Léttir meðfærilegir viðhaldslitlir. Ávallt fyrirliggjandi. > varahlutaþjónusta. Þ. ÞORGRfMSSON & C0 Armúla 29, sími 38640 FYRIRLI66JAND1: 6ÖLFSLÍPIVÉLAR - RIPPER ÞJÖPPUR - DJELUR STEYPUSA6IR - HRÆRIVÉLAR - SA6ARBLÖS - Vonduú (ramleiðsla. SUNDABORG Húsnæði fyrir heildsölu Laust strax Höfum til sölu mjög gott 300 fm húsnæði á tveimur hæðum sem hentar sér- lega vel fyrir heildsölu. Á götuhæð er 150 fm lagerhúsnæði og á efri hæð er 150 fm skrifstofa og sýningaraðstaða. Húsvörður og ýmis sameiginleg þjón- usta er í húsinu. Laust strax. Verð 15,0 millj. Góð kjör. Skeifan, fasteignamiðlun, Suðurlandsbraut 46, sími 568 5556. Vv r, P. ^ WKKBKmf . Glæsilegur heilsársbústaður Til sölu nýr glæsilegur heilsársbústaður á 2 hæöum, í kjarrivöxnu landi, í Reykjaskógi, í Biskupstungum. Vegalengd frá Reykjavík ca 90 km. Bústaðurinn er meö öllum hugsanlegum þægindum, þ.m.t. hitaveitu, rafmagni og heitum potti í verönd. Upplýsingar gefur Heimir Guðmundsson, byggingameistari í Þorlákshöfn, í síma 892 3742. Dofraborgir 38-40 1 Til sölu glæsilegar, 3ja og 4ra herb., íbúðir í þessu fallega húsi. Um er að ræða nýjar og glæsilegar íbúðir, ásamt bílskúrum. IbúSirnar verða til sýnis í dag milli kl. 1 3.00 og 15. 00. íbúSirnar afhendast fullbúnar meS vönduöum innréttingum og tækjum, en án gólfefna. Til afhendingar nú (oegar. Einungis fjórar íbúðir í stigahúsi. Fallegt útsýni. 4ra herb. rúmgóðar íbúðir með bílskúr. Verb aðeins kr. 8,9 millj. 3ja herb. íbúðir með bílskúr. Verð aðeins kr. 7,9 millj. GOHVERÐ VANDAÐAR ÍBÚÐIR EIGNAMIÐLÖNIN ehf * Abyrg þjónusta í áratugi Sími 588 9090 - Síðumúla 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.