Morgunblaðið - 13.04.1997, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 13.04.1997, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ TOYOTA RAV4 EV Eins gírs sambyggð drifrás - Rafeindabúnaður - Rafknúin sogdæla fyrir bremsur Rafgeymir fyrir aukahluti Rafknúin vökvadæla fyrir aflstýri Vatnskældur afriðill Sísegulvél Öryggisrofi Rafgeymar fyrir aflvél — spennu og knýr 45 kW (60 ha.) sísegulmótor. Þverstæð drifrásin er einungis tengd framhjólunum, ólíkt RAV4 bensínbílnum sem er með sítengdu aldrifi, og eru bara tveir gírar - áfram og afturábak. Þegar bílnum er bremsað verður rafmótor- inn að rafli og nýtir hreyfiorku bíls- ins til að framleiða rafmagn á geymana. Þetta er gert til að auka langdrægi bílsins. Niðurgreiddir rafbílar í Japan Rafgeymamir eru dýrir og eiga sinn þátt í háu verði rafbflanna. RAV4 EV eru nú 2,5 sinnum dýrari en bensínbfll af sömu gerð í Japan. Hátt verð má að hluta skýra með lítilli framleiðslu og að hluta með dýrri tækni. Að sögn Masao Kinos- hita, yfirmanns RAV4 EV verkefnis- ins hjá Toyota, er nú smíðaður einn RAV4 EV bfll á dag eða um 300 bílar á ári, og verður erfitt að lækka verðið fyrr en framleiðslan eykst. Þegar framleiðslan verður svo mikil að fullri hagkvæmni er náð er gert ráð fyrir að rafbflar verði um 50% dýrari en sambærilegir bensínbflar, miðað við óbreytta tækni. Til að hvetja til notkunar rafbfla niður- greiða japönsk stjómvöld nú verð þeirra til almennings. Kaupendur geta þannig sótt um að fá endur- greiddan helming verðmunarins á rafbfl og sambærilegum bensínbfl. Bílar seldir, geymar leigðir David J. Witherington, fram- kvæmdastjóri hjá rafveitu Jersey, sagði þá rafveitumenn hafa velt því fyrir sér að leigja kaupendum raf- bíla rafgeymana til að auðvelda fólki kaup á slíkum bíl. Það myndi lækka kaupverð bílsins um þriðjung og gera hann eftirsóknarverðari. Notendur borguðu þá fasta leigu fyrir geymana en rafveitan tæki ábyrgð á þeim. Þannig yrði elds- neytisverð rafbflsins samanlagður orkukostnaður og geymaleiga. Masao Kinoshita, yfírverkfræð- ingur hönnunar og framleiðslu RAV4 EV rafbílanna, telur að rafbflamir muni endast lengur en bensínbílar af sömu gerð. Hins vegar þurfi að skipta um rafgeyma eftir nokkur ár. Reynslan á eftir að leiða í ljós hvað nýju rafgeymamir end- ast lengi en miðað er við um sex ára ending- artíma að jafnaði. Að sögn Masao Kinoshita mun ending raf- geymanna ráðast af aksturslagi, veðurfari, tíðni hleðslna og fleiri atriðum. Kinoshita sagði erfítt að fullyrða um endinguna fyrr en tíminn leiddi í ljós hvernig þessi glænýja hönnun reynist. Hann taldi þó að ef rafbíll væri notaður að jafnaði í 20-30 stiga frosti mætti búast við allt að helmingi styttri endingu geymanna en við hlýrri aðstæður. Kinoshita sagði að rafbíl- arnir gætu virkað í 50 gráðu hita og allt niður í 20 gráðu frost. Kjör- hiti væri þó frá frostmarki og upp í 30 stiga hita. Utan þeirra marka færi hitastigið að hafa letjandi áhrif á rafgeymana. Rafbíllinn verður seldur með þriggja ára ábyrgð sem einnig nær til rafgeymanna, en tal- ið er víst að þeir dugi mun lengur. Rafbílar valda ekki loftmengun en skyldu þeir valda annars konar efnamengun? I samningi Toyota og rafveitu Jersey skuldbindur rafveit- an sig til að láta endurvinna raf- geymana á umhverfisvænan þátt. Að sögn Kinoshita er hægt að end- urvinna geymana að fullu. Einfald- ast að bræða nikkelið og nota það í stál en Toyota og Panasonic em nú að þróa endurvinnsluaðferðir þar sem takmarkið er að framleiða nýja rafgeyma úr þeim gömlu. Viðnámslitlir hjólbarðar Nýir orkusparandi hjólbarðar voru sérstaklega hannaðir fyrir RAV4 EV rafbílinn. Uppbygging þeirra er frábrugðin hefðbundnum dekkjum og þau eru gerð úr harðri gúmmíblöndu sem dregur úr vegar- viðnámi um 35% miðað við hefð- bundna hjólbarða. Þetta minnkaða viðnám hefur ekki áhrif á bremsu- getu bílsins á þurrum vegi en hún er líklega eitthvað minni á blautum og hálum vegi, að sögn Kinoshita yfírverkfræðings. Hvað öryggisatriði varðar á RAV4 rafbíllinn að vera sambæri- legur við RAV4 bensínbílinn og stenst hann öryggiskröfur í Evr- ópu, Japan og Bandaríkjunum. Á rafgeymunum er sérstakt öryggi og lendi rafbíllinn í árekstri af- tengjast rafgeymarnir sjálfkrafa. Eins er í bilnum búnaður sem var- ar við um leið og vart verður við útleiðslu. NiMH geymarnir eru þurrgeym- HLEÐSLUSTÖÐIN er ein- föld, kassi og einfasa 220 V grein með 30 ampera öryggi. ar og því ekki hætta á sýruleka þótt geymir brotni. Hleðslustöðvar fyrir RAV4 EV eru einfaldar í uppsetningu. Sér- stakur tengill er í hægra fram- bretti RAV4 EV bíls- ins fyrir hleðslusnúr- una sem fylgir bílnum. Hleðslutengið er tengt við 220 volta, einfasa 30 ampera lögn. Þegar hlaða á geymana er tengið einfaldlega sett í samband. í bílnum er klukka sem getur stjórnað hleðslutíman- um sem kemur sér vel fyrir þá sem búa við næturtaxta á raf- magni. Það tekur um 10 klukkustundir að fullhlaða geymana hafi þeir verið tóm- ir. Verðið enn hátt Að sögn Masao Kinoshita yfirverk- fræðings er nú smíð- aður einn RAV4 EV bíll á dag. Ársframleiðslan er um 300 bílar. Stefnt er að því að 320 bílar verði settir á markað í Bandaríkjunum á næsta ári. Að sögn Björns Víglundssonar, aug- lýsingastjóra hjá P. Samúelssyni hf., hefur umboðsaðili Toyota í Svíþjóð þegar keypt tvo bíla til reynslu. Hann sagði að verð á stuttum RAV4 bensínbíl væri nú 1.890.000 kr. Miðað við að rafbíll- inn yrði 2,5 sinnum dýrari hér, líkt og hann er nú í Japan, myndi gripurinn kosta 4.725.000 krónur sem er ekki lítið. Eftir að fullri framleiðsluhagkvæmni er náð myndi verð bílsins vera 2.835.000 krónur miðað við áætlun Kinoshita yfirverkfræðings um að rafbíll verði 1,5 sinnum dýrari en bensín- bíllinn. Ef sú leið yrði farin hér að leigja kaupendum rafgeymana, líkt og menn eru að hugleiða á Jersey, væri kaupverð rafmagns- bíls eftir að fullri framleiðsluhag- kvæmni er náð innan við tvær milljónir króna. RAFBÍLLINN er sá græni til vinstri og bensínbíllinn til hægri. Greinilega má sjá hvað rafbillinn er lægri frá jörðu vegna rafgeymanna sem eru undir miðjum bílnum. Rafbíllinn er framdrifinn er bensínbíllinn með sitengdu aldrifi. I rafbíl á rúntinn TOYOTA RAV4 EV hefur allt sem fólk á að venjast í vel búnum nútíma fólksbfl. Bfllinn er sjálfskiptur, með aflstýri, hjálpar- átaki á bremsum, loftkælingu, hita í framsæt- um, útvarpi, rafdrifnum rúðum, líknarbelgj- um fyrir ökumann og farþega í framsæti, samlæsingu og þjófavöm. Á þakinu eru tvær opnanlegar lúgur og hægt taka þær af með smálagni. Bfllinn sjálfur er nýjung og hlaðinn nýjungum. Yfir framrúðunni er gegnsæ fílma og í hana leiddur vægur rafstraumur, þessi búnaður heldur framrúðunni auðri af móðu og hélu. Smábíll með mótorbremsu Rafbíllinn er byggður á styttri gerð RAV4 og rúmar fjóra í sæti, ekki er þó of rúmt um fullvaxna í aftursætinu. Fljótt á litið virðist bíllinn ekki mjög frábrugðinn bensíndrifnum ættingja sínum að öðru leyti en því að vera rækilega merktur EV sem merkir Electric Vehicle - rafbíll. Við nánari skoðun sést þó augljós munur. Rafdrifni bíllinn er lægri frá jörðu, og á hægra fram- bretti er lúga fyrir raftengi auk þess sem önnur lúga fyrir hraðhleðslu er á vinstra afturbretti. Rafbíllinn er framhjóladrifínn en bensínbíllinn með sítengdu aldrifí. Hið innra er ýmislegt sem greinir rafbíl- inn frá hinum bensíndrifna bróður sínum. Lengst til vinstri í mælaborðinu er hraða- mælir, þá kemur stafaröð sem sýnir stöðu gírskiptingarinnar en skiptistöngin er í gólfí á milli framsætanna. Þar má sjá stillingu fyrir mótorbremsu sem hægt er að láta halda við undan halla. Þá verkar mótorinn sem rafall og hleður inn á geymana, sama gerist þegar bremsum er beitt. í miðhluta innréttingar, á milli sæta, eru stillingar fyrir miðstöð og loftkæl- ingu efst, útvarp þar fyrr neðan og svo kemur stilliborð fyrir hleðslutæki bflsins. Hljóðlátur akstur Til að ræsa vélina er kveikju- lykillinn settur í kveikjulás og lyklinum snúið eins langt og hann kemst meðan stigið er á bremsuna. Það tekur stutta stund fyrir vélbúnaðinn að fara í gegnum ræsferlið og fljótlega kvikn- ar grænt ljós sem gefur til kynna að bíllinn sé tilbúinn fyrir akstur. Greina mátti lítils háttar suð rétt á meðan vélbúnaðurinn var ræstur, annars heyrðist ekkert hljóð sem gaf til kynna að vélin væri komin í gang. Það var dálítið skrítin tilfínning að fínna TOYOTA RAV4 EV Vél: Sísegulvél með innbyggðum vatnskældum afriðli. Afl: Hámarksafl 60 hestöfl (45 kW) við 2.600 snúninga á mínútu. Tog: 165 Nm við 2.600 snúninga á mínútu. Drifbúnaður: Einn gír, sambyggður framdrifsbúnaður. Rafgeymar: 24lokaðirNiMH(nickel metal hydride) 12 volta, 95 ampera geymar, 288 volta kerfi. Hleðslutæki: Innbyggt (einfasa, rið- straums, 200-240 V, 30 amper. Hleður geymana úr 20% hleðslu í 100% hleðslu á 8 klukkustundum. Stýri: Rafknúið vökvaaflstýri með tann- stangardrifi. Hemlar: Vélarhemill sem nýtirtregðu til raforkuframleiðslu og rafknúin sog- dæla sem léttir ástig. Hjólbarðar: 195/80R 16 viðnámslitlir hjólbarðar. Loftræstikerfi: Afkastamikil varma- dæla fyrir miðstöð/loftkælingu. Annar búnaður: Upphituð framrúða, upphituð framsæti, AM/FM útvarp. Lengd: 3.695 mm. Breidd: 1.695 mm. Hæð: 1.620 mm. Hjólhaf: 2.200 mm. Heildarþyngd: 1.720 kg. Eigin þyngd: 1.460 kg. Hámarkshraði: 125 km á klukkustund. Langdrægi á einni hleðsiu (borgarum- ferð): Yfir 200 kílómetrar. bílinn renna hljóðlaust af stað. Eftir því sem hraðinn jókst heyrðist meira vegarhljóð frá hjólbörðunum á sléttu malbikinu og smá- dynkir ef ójöfnur voru á veginum. Inn um opna þaklúguna heyrðist fuglasöngur og létt vindgnauð. Bíllinn seig af stað fyrstu metrana, en um leið og hann var farinn að snúast var auðvelt að spretta úr spori. Rafbíllinn er 200 kílóum þyngri en sambærilegur bensín- bíll, enda með næstum hálft tonn af raf- geymum undir gólfínu. Þrátt fyrir þessi aukakíló var bíllinn ótrúlega sprækur og þurfti að hafa auga með hraðamælinum til að aka ekki yfír leyfðum 65 km hámarks- hraða á Jersey. Krafturinn var nógur til að taka framúr og brattar brekkur reyndust ekkert vandamál. Þegar ekið var niður brekkur hélt mót- orbremsan ágætlega við. Bremsur bílsins hagnýta tregðuna til rafmagnsframleiðslu, rafmótorinn verður rafall og hleður geym- ana. Fjöðrunin var góð á malbikinu en um leið og komið var af bundnu slitlagi á holóttan malarveg sögðu hörð dekkin til sín. Þau gáfu auðfinnanlega miklu minna eftir en hefðbundnir hjólbarðar og bíllinn varð veru- lega hastur. RAV4 EV er fyrst og fremst hannaður fyrir borgarakstur. Sem slíkur getur bíllinn hentað mjög vel þeim sem ekki þurfa að aka meira en 200 km á dag og eiga fasta höfn að kvöldi, þar sem er passlegt raftengi. Bíllinn var ótrúlega sprækur og þurfti að hafa auga með hraðanum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.