Morgunblaðið - 13.04.1997, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 13.04.1997, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 1997 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÖ Frá Hlíðarenda til Wuppertal Samherjar ÞRÍR af bestu handknatt- leiksmönnum landsins, Geir Sveinsson, Dagur Sigurðsson og Ólafur Stefánsson - fyrrum samherjar hjá Val, eru samherjar í landsliðinu sem keppir í HM í Japan og næsta vetur verða þeir samherjar hjá þýska liðinu Wuppertal, liðinu sem Dagur og Ólafur leika með. Geir hefur mikla reynslu, hefur leik- ið á Spáni og í Frakk- landi. „Starfið hjá Wuppertal er mjög krefjandi, vinna og aftur vinna,“ sögðu Dagur Sigurðsson og Ólaf- ur Stefánsson, þegar Sigmundur Ó. Steinarsson sá þá leika í Þýskalandi. „Við gerum okkur grein fyrir því að það eru gerðar ákveðnar kröfur tii okkar og erum ákveðnir að standa okkur.“ að er ekki á hverjum degi sem tveir íslendingar leika í sama liðinu í Þýskalandi, eins og Vals- mennirnir Dagur Sigurðsson og 01- afur Stefánsson gera - þeir fóru í víking frá Hlíðarenda til Wuppertal. Þess má geta að tveir íslenskir leik- menn leika eru nú hjá 3. deildarlið- inu Hildesheim þeir Júlíus Gunnars- son og Hilmar Bjarnason. Sjö sinn- um áður hafa tveir leikmenn leikið saman í Þýskalandi; Axel Axelsson og Ólafur H. Jónsson með Dankers- en, bræðurnir Gunnar og Ólafur Einarssynir með Göppingen, Viggó Sigurðsson og Sigurður Gunnarsson með Bayer Leverkusen, Axel og Jón Pétur Jónsson með Dankersen, Björgvin Björgvinsson og Gunnar Einarsson með Grambke, Einar Magnússon og Guðjón Magnússon, Hamburger SV og Bjarni Guð- mundsson og Sigurður Sveinsson, Nettelstedt. Það er aftur á móti nýtt að tveir leik- menn leiki saman undir stjórn þjálf- ara frá íslandi, Viggós Sigurðs- sonar. Þeir félagar, sem eru 23 ára, sögðu að starfið hjá Wuppertal væri mjög krefjandi, vinna og aftur vinna. „Við gerum okkur grein fyrir því að það eru gerðar ákveðnar kröfur til okkar og erum ákveðnir að standa okkur. Það er mikill kost- ur að við getum gefið okkur meiri tíma við æfingar, erum ekki að koma á æfingar á síðustu stundu eins og heima þegar við lékum með Val. Hér höfum við nægan tíma og erum alltaf komnir á æfingar vel áður en þær byija“ sagði Dagur. Dagur sagði að það hjálpaði þeim óneitanlega mikið á meðan þeir voru laga sig að aðstæðum og læra þýsk- una, að þeir æfðu og lékju undir stjórn Viggós. Filippov, sem kom til Wuppertal frá íslandi, þar sem hann lék með Stjörnunni undir stjórn Viggós. Wuppertal hefur heldur betur komið á óvart, því að fáir reiknuðu með því að liðið yrði í baráttunni um 1. deildar sæti í vetur, þar sem liðið lék í riðli með Bad Schwartau og Dússeldorf, sem féllu niður úr 1. deild í fyrra. Ólafur sagði að það hefði ekkert annað komið til greina hjá honum og Degi en fara upp með liðinu á fyrsta keppnistímabili. „Við komum hingað til að leika í 1. deild næsta keppnistímabil með Wupper- tal,“ sagði Ólafur. Dagur sagði að þeim hefði verið sagt þegar þeir komu til liðsins, að það væri tak- markið hjá Wuppertal að byggja upp sterkt lið á tveimur árum - og þá væri eðlilegt að taka stefnuna á 1. deild. „Við settum strax stefnuna á 1. deild, ákveðnir að leggja allt okk- ar af mörkum til að liðið færi strax upp. Það yrði óneitanlega mjög skemmtilegt ef Wuppertal næði því takmarki - möguleikinn er fyrir hendi, við erum í efsta sæti og fáir leikir eftir. Ef við lendum í öðru sæti er mögu- leikinn einnig fyrir hendi - við verðum þá að fara erfiðari leið, leika auka- leiki um sætið. Það hefur verið gaman að leika hér í 2. deildar keppninni, þar sem liðin sem við höfum verið að leika gegn, eru mjög sterk. Það yrði enn skemmtilegra að leika í 1. deildar keppninni næsta vetur, þá myndum við leika gegn mörgum af sterkustu handknattleiksmönnum heims um hvetja helgi, fyrir fullu húsi áhorf- enda hér í Wuppertal [4.000] eða á útivöllum. Við erum mjög nálægt þeim draumi nú og við verðum að láta hann rætast. Það getur enginn sagt Leikmenn Diissel- dorffá630 þús. kr. frá Bad Schwartau FORRÁÐAMENN Bad Schwartau, sem eru einu stigi á eftir Wuppertal þegar þijár umferðir eru eftir, hafa ákveðið að greiða 1S þús. mörk, eða um 630 þús. ísl. kr. í leikmannasjóð DUsseldorf, ef liðið nær að leggja Wupper- tal að velli í dag. I1K« Morgunblaðið/Golji Dagur og Ólafur - 'ifi sterkir undir álagi I9CJ ind Til fyrirmyndar Viggó er mjög ánægður með Dag og Ólaf og sagði að þeir hefðu stað- ið sig mjög vel með liðinu. „Þeir leggja sig alla fram í þau verkefni sem þeir fást við og eru til fyrir- inyndar hér, bæði á leikvelli og utan hans. Þeir eru strax orðnir lykilmenn liðsins og álagið hefur verið hvað mest á Degi, sem hefur leikið inni á allan tímann í öllum leikjum Wup- pertal, bæði í vörn og sókn. Þegar að er gáð hvað þeir eru ungir og komu hingað sem óþekkt nöfn, hafa þeir staðið sig frábærlega. Það er stórkostlegt að vinna með þeim, þeir eru yfirleitt fyrstir í þeim verk- efnum_ sem ég set fyrir leikmenn mína. Ég er stoltur af að vera íslend- ingur, að hafa þá félaga í mínu liði,“ sagði Viggó. Ólafur, sem meiddist á dögunum, er annar markahæsti leikmaður liðs- ins, á eftir Rússanum Dimitri „ÉG hef sjaldan þjálfað eins duglega og kappsfulla leik- menn og þá Dag og Olaf. Þeir eru geysilega öflugir leikmenn og sterkir undir álagi, sem aftur á móti Dim- itri Fillipov er ekki. Það er þetta sem skilur á milli að vera frábær leikmaður, eða góður,“ sagði Viggó Sigurðs- son, þjálfari Wuppertal, um Dag Sigurðsson og Olaf Stef- ánsson. „Dagur er fæddur leiðtogi, mikil persóna og geysilega sterkur bæði í vörn og sókn. Hann er lykilmaður í hrað- aupphlaupum okkar og hefur verið heili liðsins í vörn og sókn. Dagur gefst aldrei upp og styrkur hans kemur í ljós hvernig hann nær að blása lífsþrótti í félaga sína, rífa þá upp þegar mikið liggur við og reka þá áfram. Einnig hef- ur hann góð áhrif á áhorfend- ur, er óspar á að gefa þeim merki um hvernær þeir eiga að hvetja liðið áfram eða láta mótherja okkar heyra það. Þegar að er gáð og það tekið með hvað þeir félagar eru ungir, þá hafa þeir staðið sig frábærlega. Ólafur er mikill keppnis- maður eins og Dagur — hann á eftir að láta mikið að sér kveða í framtíðinni; á eftir að verða skytta á heimsmæli- hvarða. Ólafur er svo kapps- fullur við æfingar, að ég þarf oft að draga úr honum. Ef Ólafi finnst að hann sé í lægð byrjar hann að æfa lyftingar til að bæta sig. Hann vill helst vera undir miklu álagi og á þá til að detta niður. Veikleiki Ölafs er varnarleikurinn, en hann hefur allt til að bera til að verða sterkari varnarleik- maður. Dagur og Ólafur eru afar metnaðarfullir, taka það al- varlega sem þeir fást við. Árangur þeirra segir sitt, þeir urðu Islandsmeistarar fjögur ár í röð með Val — þeir eiga eftir að fagna miklu fleiri titl- um á keppnisferli sínum,“ sagði Viggó.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.