Morgunblaðið - 21.05.1997, Page 18

Morgunblaðið - 21.05.1997, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Afkoma Síldarvinnslunnar hf. fyrstu fjóra mánuði ársins Heildarhagnaður 302 milljónir HAGNAÐUR af reglulegri starf- semi Síldarvinnslunnar hf. í Nes- kaupstað fyrstu fjóra mánuði ársins nam 183 milljónum króna, en að teknu tilliti til annarra tekna nam heildarhagnaður félagsins á tíma- bilinu 302 milljónum króna. Samkvæmt upplýsingum Finn- boga Jónssonar, framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar, námu rekstrar- tekjur félagsins 1.448 milljónum króna, sem er tæp 6% aukning frá sama tímabili árið áður. Að með- töldum innlögðum eigin afla nam heildarveltan alls um 1,7 milljörðum króna fyrstu fjóra mánuði ársins. Eigið fé félagsins 30. apríl síðastlið- inn var 1.934 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 38%. Afkoma af reglulegri starfsemi Síldarvinnslunnar er svipuð og á sama tímabili árið áður en vegna söluhagnaðar af hlutabréfaviðskipt- um og annarra tekna er heild- arhagnaður rúmlega 100 milljónum króna hærri. Nánari upplýsingar um afkomu félagsins er að finna á meðfylgjandi yfirliti. Síldarvinnslan hf. Úr milliuppgjöri 1997 Rekstrarreikningur 1. jan.-30. apr. 1997 1996 Breyt. Rekstrartekjur Milljónir króna 1.448,5 1.369,1 +5,8% Rekstrarqjöld 1.147,7 1.078,0 +6,5% Hagnaður fyrir afskriftir 300,8 291,1 +3,3% Fjármagnsgjöld (13,0) (21,1) Hagnaður af reglulegri starfsemi 183,1 198,6 -7,8% Aðrar tekjur 121,7 0 Hagnaður ársins 302,2 196,9 +53,5% Efnahagsreikningur 30/4 '97 31/12 '96 Breyt. I Eignir: \ Veltufjármunir Milljónir króna 1.086,4 919,8 +18,1% Fastafjármunir 3.959,8 3.573,1 +10,8% Eignir samtals 5.046,2 4.492,9 +12,3% I Skuldir od eiQid té: \ Skammtímaskuldir 942,0 1.009,4 -6,7% Langtímaskuldir 2.170,0 1.827,7 +18,7% Eigið fé 1.934,2 1.655,9 +16,8% Skuldir og eigið fé samtals 5.046,2 4.492,9 +12,3% ESSO fékk eldsneytis- samning við Flugleiðir FLUGLEIÐIR hf. hafa að undan- gengnu útboði meðal olíufélag- anna gert samning við Olíufélag- ið hf. um kaup á þotueldsneyti fyrir millilandaflugvélar féíags- ins á Keflavíkurflugvelli. Samningurinn kveður á um kaup Flugleiða á um 30% af elds- neytistöku félagsins á Keflavík- urflugvelli. Um er að ræða elds- neyti fyrir öll Evrópuflug félags- ins önnur en til Kaupmannahafn- ar og Lúxemborgar. Heildar- verðmæti samningsins er um 300 milljónir króna og er gildistíminn eitt ár eða frá 1. júní 1997 til 31. maí 1998. Breskt-íslenskt versl- unarráð sett á stofn VERSLUNARRÁÐ íslands ásamt sendiráði íslands í London og sendi- ráði Breta í Reykjavík hafa á síð- ustu mánuðum undirbúið stofnun Bresk-íslensks verslunarráðs. Rúmlega 30 íslensk fyrirtæki nú þegar lýst yfir áhuga sínum á að taka þátt í stofnun þess auk um 10 breskra fyrirtækja í eigu Islend- inga. Formleg skráning stofnfélaga hefst á næstu dögum í báðum lönd- unum, að því er segir í fréttatil- kynningu. Verslunarráð íslands hefur stað- ið að stofnun gagnkvæmra versl- unarráða um viðskiptatengsl við Bandaríkin, Frakkland og Þýska- land. Slík verslunarráð eru rekin Rúmlega 30 íslensk fyrirtæki hafa lýst yfir áhuga á þátttöku, auk 10 breskra fyrirtækja í eigu íslendinga sem sjálfstæð félög og eru áherslur í starfi þeirra mismunandi, en aðild að þeim er ekki þundin við aðild að Verslunarráði Islands. Bretland er stærsta viðskipta- land íslendinga, en viðskiptatengsl ríkjanna eiga sér áratuga hefð. Þangað fer um 19% af verðmæti útflutnings en um 10% innflutnings kemur þaðan. Auk þess eiga ís- lensk fyrirtæki margvísleg viðskipti við bresk fjármála- og tryggingafé- lög. Stofnfundur ráðsins haldinn á niorgun Undirbúningur vegna stcfnunar Bresks-íslensk verslunarráðs fer fram á morgun fimmtudaginn 22. maí kl. 17.00 í húsakynnum Versl- unarráðs íslands. Fundurinn fer fram í viðuivist H.E. James R. McCulloch, sendi- herra Bretlands á íslandi, og er opinn fulltrúum allra þeirra fyrir- tækja sem áhuga hafa á stofnun slíkrs ráðs. FRÁ undirritun samnings Flugleiða og Olíufélagsins, standandi f.v. eru Kári Kárason, forstöðumaður innkaupa- og eldsneytisdeildar Flugleiða, Halldór Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Flugleiða, og Smári Þ. Sigurðsson, sölustjóri flugþjónustu Olíufélags- ins. Við borðið silja Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, og Geir Magnússon, forstjóri Olíufélagsins. Hlutafjárútboð Sam- vinnuferða að hefjast SAMVINNUFERÐIR-Landsýn hafa falið Fjárvangi að sjá um hlutafjárútboð félagsins og skrán- ingu hlutaþréfa félagsins á Verð- bréfaþing íslands. Markmiðið með hlutafjárútboðinu er að fjölga hlut- höfum til þess að uppfylla skilyrði um skráningu á Verðbréfaþingi, styrkja fjárhagsstöðu fyrirtækisins og mæta aukinni markaðssókn erlendis. Samvinnuferðir-Landsýn verð- ur þar með fyrsta íslenska ferða- skrifstofan sem skráð verður á Verðbréfaþing íslands. Boðið verður út hlutafé að nafnvirði rúmar 36 milljónir. Gengi til for- kaupsréttarhafa verður 3,1, þannig að söluandvirði bréfanna verður 111,6 milljónir. Verður skráðum hluthöfum þann 15. maí 1997 send áskriftarblöð í kring- um 10. júní. Að forkaupsréttartímabili loknu verður hlutaféð sem eftir stendur selt í almennri sölu, en gengi mun ákveðast af markaðs- aðstæðum. BRIHSH AÍRWAYS British Airways tilkynnti um methagnað að fjárhæð 640 milljónir sterllngspunda á mánudag sem er um 9,4% aukning frá fyrra ári. HAGNAÐUR fyrir skatta (milljónir punda) 800 700 600 500 400 300 200 100 640 585 ill 1993 1994 1995 1996 1997 Starfsmenn 1997 59.298 1996 56.720 Flugvélar 1997 308 1996 293 Farþegar* Frakt 1997 38 m l ll997 721.000tonn 1996 36 m ^ 1996 672.000 tonn * að meötöldum Þýsku BA, TAT og Air Liberti HLUTABRÉFAVERÐ (lokaverð hverrar viku) Britísh Airways skilar met- hagnaði London. Reuter. BRITISH AIRWAYS hefur skýrt frá methagnaði og 58.210 starfsmenn félagsins hafa fengið 10 ókeypis hlutabréf hver í kaupauka auk 89 milljóna punda af hagnaðinum. Kostnaður við endurskipulagn- ingu nam 127 milljónum punda. Á móti kom að eignfærðar voru 125 milljónir punda sem áður höfðu ver- ið gjaldfærðar vegna endurmats á upphaflegum kostnaði við fjárfest- ingu í USAir. Var þannig 50% af- skriftum fyrir tveimur árum snúið algerlega við. 10% seld í Landstein- um ehf. ÍSLENSKI hugbúnaðarsjóðurinn hf., sem var stofnaður í mars sl. af Eignarhaldsfélaginu Alþýðu- bankanum, Hugviti hf., íslenska fjársjóðnum, Olís og einstaklingum á sviði hugbúnaðarmarkaðarins á íslandi, hefur keypt 10% hlut í hug- búnaðarfyrirtækinu Landsteinum ehf. Fyrirtækið var stofnað árið 1995 og sérhæfir sig í ráðgjöf og þróun sérlausna í Navision, að því er segir í frétt. Hugbúnaður frá Landsteinum er seldur í Danmörku, Austurríki, Bretlandi, Belgíu og á Spáni. Land- steinar eiga að auki 24% hlut í Navís, 50% í Landsteinum Channel Islands á Jersey og allt hlutafé í Landsteinum UK. Hjá Landsteinum er fyrirhugað að stofna nýtt félag í Danmörku. Velta Landsteina var um 40 millj- ónir króna á síðasta ári og var félag- ið rekið með hagnaði. Starfsmenn þess eru níu talsins, segir ennfrem- ur í frétt frá íslenska hugbúnaðar- sjóðnum. Byggingar- vísitala hækk- arum 1,9% VÍSITALA byggingarkostnaðar eft- ir verðlagi um miðjan maí reyndist vera 223,2 stig, sem er 1,9% hækk- un frá því í apríl, að því er kemur fram í frétt frá Hagstofu íslands. Samsvarandi vísitala miðuð við eldri grunn (desember 1982=100) er 714 stig. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 6,4%. Undanfarna þijá mánuði hefur vísi- tala byggingarkostnaðar hækkað um 2,1%, sem jafngildir 8,7% verð- bólgu á ári. Hagstofan hefur einnig reiknað launavísitölu miðað við meðallaun í apríl 1997. Er vísitalan 154,1 stig og hækkar um 3,1% frá marsmán- uði. Samsvarandi launavísitala sem gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána er 3.370 stig í júní 1997, segir ennfremur í fréttinni. ♦ ♦ ♦ Fær fjögur ár fyrir fjársvik Melbourne. Reuter. FYRRVERANDI yfirmaður hinnar kunnu áströlsku búðarkeðju Coles Myer Ltd. hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir ijársvik. Brian Quinn var sekur fundinn í síðasta mánuði um að hafa haft 4,46 milljónir Ástralíudala af fyrir- tækinu til að gera endurbætur á setri sínu í Melbourne. Ekki verður hægt að láta hann lausan til reynslu fyrr en hann hefur afplánað 30 mánuði af dóminum. 700 600 500 400 300 200 19. maí, kl. 12.30 733 pence 1993 1994 1995 1996 1997 REUTERS Baby Benz mun koma kaupendum á óvart Stuttgart. Reuter. NÝR „Baby-Benz“ af svokallaðri A-línu mun koma gömlum kaupend- um Mercedes á óvart. Litlar breytingar hafa orðið á Mercedes bílum frá gamalli tíð og efnaðir kaupendur þeirra hafa litið á þá sem stöðutákn. Nýir A-línu bílar eru hins vegar furðulegir í útliti og egglaga - en eiga að höfða til ungra kaupenda vegna nýstár- legra hugmynda við smíðina og opna Mercedes leið inn á nýja mark- aði. Að sögn Mercedes verður rými í A-línu bílunum eins mikið og í stór- um fjölskyldubílum eins og Ford Mondeo eða Opel Vectra, en þeir verða styttri en Ford Ka smábíllinn. A-bíllinn er 3,58 metra langur, að- eins styttri en Ford Ka, en talsvert hærri. Bíllinn er sagður veita sömu vernd í árekstrum og stærri bílar. Vélin er þannig gerð að þegar árekstur verður rennur hún undir gólfið og í burtu frá þeim sem í bílnum eru. Bíllinn tekur sjö far- þega auk ökumanns. Al og magnesíum eru mikið not- uð við smíðina til að draga úr kostn- aði. Bíllinn mun kosta um 30.000 mörk í fyrstu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.