Morgunblaðið - 21.05.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997 25
LISTIR
Arabísk tónlist að ryðja
sér braut í Bandaríkjunum
FÉLAGAR í Kan Zaman.
Arabísk þjóðlagatónlist
er ekki að allra smekk
utan arabalandanna.í
Bandaríkjunum hefur
jórdanskur tónlistar-
maður lyft grettistaki í
að kynna arabíska tón-
list, skrifar Jóhanna
Kristj ónsdóttir.
WAEL Kakish er jórdanskur að
uppruna og kom til Bandaríkjanna
fyrir ellefu árum. Hann stjórnar nú
Kan Zaman, 34ra manna hljómsveit
sem einbeitir sér að því að flytja
klassíska arabíska tónlist og þjóð-
lagamúsík. Bókstaflega þýtt merkir
Kan Zaman Einu sinni var og vísar
þar með til fortíðar. Það vakir ein-
mitt fyrir hljómsveitarstjóranum
sem vill að bandarískir arabar eða
arabískir Bandaríkjamenn haldi í
heiðri tónlist menningarsvæða sinna
og föðurlanda þótt þeir búi í Banda-
ríkjunum.
Kakish stofnaði hljómsveitina af
miklum metnaði en rak sig fljótt á
aðskiljanlegar hindranir. Fordómar
eru ekki aðeins í garð araba heldur
og arfleifðar þeirra. En smám saman
hefur hljómsveitin fest sig í sessi og
um þessar mundir virðist arabísk
tónlist og tónlist undir sterkum arab-
ískum áhrifum vera að öðlast miklar
vinsældir vestanhafs.
Það er eftirtektarvert að meiri-
hluti áheyrenda á tónleikum Kan
Zaman nú orðið er
ekki arabar eða
fólk af arabískum
uppruna og þó
hljómsveitin sér-
hæfi sig í flutningi
arabískrar tónlist-
ar er þó fleira á
verkefnaskránni.
Wael Kakish
segir að flestir hafi
mjög takmarkaða
þekkingu hvað þá heldur skilning á
arabískri tónlist og tengi hana oft-
ast við dillandi magadansmeyjar en
slíkt sé íjarri öllum sanni.
Kan Zaman hljómsveitin heldur
fjölda tónleika árlega og leikur einn-
ig í háskóium og kemur fram á
bandarískum tónlistarhátíðum.
Einnig leika minni hópar úr hljóm-
sveitinni við sérstök tækifæri.
Tónleikar Kan Zaman skiptast
venjulega í þijá hluta. Fyrst er muw-
ashahahat-tóiúist frá ll.öld sem
leikin var í Andalúsíu. Annar hlutinn
er verk eftir klassísk tónskáld eins
og Sayyid Darwidh, Mohammed
Abdul Wahab og Um Khalthum. Að
síðustu er svo flutt sh’bisem er þjóð-
\aga-, bedúína- og sveitatónlist.
Ýmis hljóðfæri sem lítt eru þekkt
á Vesturlöndum skipa stærstan sess
í hljóðfæraskipan Kan Zaman. Ber
þá fyrst að nefna qanum sem er
strengjahljóðfæri með 73 strengjum.
Einnig er leikið á ud, nay, riqq og
fiðlu en öll þessi hljóðfæri eru nauð-
synleg til að ná fram svokölluðum
takh hljómi. Takh er jafnsjálfsagður
í arabískri tónlist og gallabia- serk-
urinn er fyrir arabískan klæðaburð.
Með tímanum hefur hljómsveitin
fært út kvíarnar og leikið er á þijú
uds, sex fiðlur, eitt selló, eitt nay og
fjögur slagverkshljóðfæri auk qanum.
Þá er 18 manna kór. Hefðin í arabísk-
um tónlistai’flutningi er að takh hafi
einum söngvara á að skipa og kórinn
syngur því einraddað.
Kakish segir að sér sé mikilvægt
að kynna það besta úr arabískri tón-
list og hafi ekki verið vanþörf á því
og þyrfti að gera það víðar og í
meiri mæli. Hann hefur látið hafa
það eftir sér að í fyrstu hafi fólk
talað hástöfum og spjallað á tónleik-
um hljómsveitarinnar, krakkar hafi
hlaupið um með ærslum og látum.
Einhveiju sinni hafi hann þurft að
bíða í tíu mínútur áður en hann lyfti
tónsprotanum. „Þegar við spilum
núna gætum við heyrt saumnál
detta,“ segir hann.
Kirkjulistahátíð
Orgel og
slagverk
KIRKJULISTAHÁTÍÐ hófst á
hvítasunnudag með opnun mynd-
listarsýningar og tónleikum. í dag,
miðvikudag, kl.
17 verða tónleik-
ar þar sem Matt-
ias Wager og
Anders Astrand
leika á orgel og
slagverk. Verkin
sem flutt verða
eru Bolero eftir
Maurice Ravel
og Prelúdía í C-
dúr BMV 547,
en einnig munu
þeir flytja spuna.
Mattias Wa-
ger er fæddur í
Stokkhólmi
1967. Hann
stundaði nám í
kirkjutónlist og
orgelleik við
Konunglega tón-
listarskólann í
Stokkhólmi og
lauk þaðan prófi
spuna með láði.
Mattias
Wager
Anders
Ástrand
í orgelleik og
Kennarar hans voru Torvald Torén
og Anders Bondeman. Hann hefur
fengið styrki til náms utan Svíþjóð-
ar og nam hjá Johannes Geffert í
Bonn og Naji Hakim í París. Wa-
ger hefur unnið til Qölda verðlauna
fyrir orgelleik sinn og leikið í flest-
um löndum Evrópu auk Brasilíu.
Hann hefur leikið inn á geisladiska
og fyrir útvarp. Þá nýtur hann
vaxandi vinsælda sem kennari á
námskeiðum og „master classes".
Anders Ástrand er fæddur í
Vástervik 1962 en hefur búið í
Stokkhólmi frá 1985. Hann byijaði
snemma að nema tónlist við Fram-
násskolan og stundaði síðan nám
við Tónlistarháskólan Piteá. Síðan
hann iauk námi hefur hann kennt
við Tónlistarskólann í Piteá og
stjórnað slagverksdeild tónlistar-
háskólans þar síðan 1988. Hann
hefur einnig kennt slagverk og
haldið hljómsveitarnámskeið í
Skandinavíu, Evrópu og Banda-
ríkjunum. Hann hefur annars veg-
ar lagt áherslu á samleik slag-
verksleikara og hins vegar á sam-
leika slagverks og annarra ein-
leikshljóðfæra, auk þess að boða
mikilvægi spuna sem túlkunarað-
ferðar. Ástrand lék oftsinnis með
Sinfóníuhljómsveit sænska út-
varpsins á árunum 1982-88. Tvö
sumur lék hann á víbrafón með
Art van Damme, hinum heims-
fræga djassharmonikuleikara og
trommuleikaranum Nils-Bertil Da-
hlander. Einnig hefur hann leikið
með slagverkshljómsveitinni Krou-
mata á ferðalögum um heiminn
og hefur leikið inn á hljómdiska
með þeim, meðal annars Pleiades
eftir Xenakis. Hann kennir jafn-
framt við Konunglega tónlistar-
skólann í Stokkhólmi og hefur
fengið tilboð um að kenna við
Nortwestern University í Banda-
ríkjunum í samvinnu við Michael
Burrit, einn fremsta marimbuleik-
ara Bandaríkjanna.
mismunandi gerðir
eigum við til af
vönduðum og góðum
eldhússtólum.
Sparaðu þér sporin og líttu til
okkar -það margborgar sig.
Heidi kr. 5.940,-
Lucca kr. 5.180,-
Verið velkomin í
stærstu húsgagna
verslun landsins.
rzsrCW)
Adria kr. 4.100,-
HÚSGAGNAHÖLUN
Bíldshöfði 20-112 Rvfk - S:510 8000
Paloma kr. 4.610,-
r
Söluleyfi 17. júnf 1997
í Reykjavík
Þeir sem óska eftir leyfi til sölu
úr tjöldum á þjóðhátíðardaginn 17. júní
1997, vinsamlegast
vitjið umsóknareyðublaða á skrifstofu ÍTR
Fríkirkjuvegi 11, opið kl. 08:20 - 16:15.
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi
föstudaginn 30.maí fyrir kl. 16:00.
Úthlutun verður þriðjudaginn 3. júní kl.16:30
á Fríkirkjuvegi 11.
Vakin er athygli á því, að öll lausasala frá tjöldum
og á hátíðarsvæðinu er stranglega bönnuð.
Gjald v/ söluleyfa er kr. 2.000.-