Morgunblaðið - 21.05.1997, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.05.1997, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Tónlistarhátíð Hvergerðinga HVERAGERÐISKIRJA Morgunblaðið/Aldís Ný og gömul rómantík TÓNLIST Hvcragerðiskirkja KAMMERTÓNLEIKAR Anna Guðný Guðmundsdóttir, Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar Kvaran, Peter Máte, Rannveig Fríða Bragadóttir, Sigrún Eðvaldsdóttir, Sigurður Ingi Snorrason og Unnur Sveinbjamardóttir opnuðu tónlistar- hátíð í Hveragerði og fluttu verk eftir Brahms, Schubert og Mozart Föstudagurinn 16. mai 1997. MENNINGARMÁLNEFND og Tónlistarfélag Hveragerðis hrintu af stokkunum tónlistarhátíð undir nafninu „Bjartar nætur“ og verða að þessu sinn haldnir þrennir tón- leikar, en framkvæmdaaðilar hyggjast halda slíka hátíð á hverju ári, ef vel tekst til. Ekki verður annað sagt en að fyrstu tónleikarn- ir hafi verið nyög góðir, auk þess voru þeir vel sóttir, svo að vel má eiga von í framhaldi á tónlistarhá- tíð í Hveragerðisbæ. Fyrsta verk tónleikanna var Scherso í c-dúr eftir Johannes Brahms. Verkið samdi Brahms í Diisseldorf árið 1853 og tileinkaði það ungverska fiðluleikaranum Jos- eph Joachim. Robert Schumann, Albert Dietrich (1828-1908) og Brahms sömdu saman sónötu, sem ekki var gefin út, og schersóið, sem Brahms lagði til þessa samvinnu- verkefnis, var fyrst gefið út 1906. Þetta er hressileg tónsmíð, er Sig- rún Eðvaldsdóttir og Peter Máte léku aldeilis glæsilega. Rannveig Fríða Bragadóttir og Anna Guðný Guðmundsdóttir fluttu sex ljóðasöngva eftir Schubert, Friihlingsglaube, Nahe des Geliebt- en, Liebe Schwármt auf alle Wegen, Der König in Thule, Der Zwerg og Litanei. 011 söngverkin voru mjög vel flutt en sérstaklega var flutning- ur Rannveigar tilfínningaþrunginn í hinu sérkennilega lagi Der Zwerg og innilegur í hinni frægu og við- kvæmu ljóðaperlu, Litanei. Rann- veig Fríða er frábær söngkona og túlkun hennar var sérlega sannfær- andi. Glæsileg rödd hennar naut sín mjög vel í Líeder-söngvum en ekki var söngur hennar síðri í aríunni Parto, parto ma tu, ben mio, úr fyrsta þætti óperunnar La Clemenza di Tito, eftir Mozart. Með henni lék Sigurður Ingi Snorrason á klarinett og féll leikur hans mjög vel að söng Rannveigar. Anna Guðný var sam- leikari Rannveigar og var leikur hennar mjög vel mótaður, sérstak- lega í Der Zwerg, sem er tilfínninga- þrungið verk og Litaníunni, sem Anna Guðný lék með perluhreinum tóni. Tónleikunum lauk með A-dúr Klarinettukvintettinum fræga eftir Mozart og var flutningur verksins sérlega góður, enda hvert sæti skip- að þeim tónlistarmönnum er fremstir standa í flokki okkar bestu tónlistarmanna. Fyrir strengja- kvartettinum fór Guðný Guð- mundsdóttir og með henni voru Sigrún Eðvaldsdóttir, Unnur Svein- bjamardóttir og Gunnar Kvaran, en á klarinettið lék Sigurður Ingi Snorrason. Fá kammerverk eftir Mozart eru vinsælli en þessi kvintett, enda gulli sleginn og svo í eitt ofínn, að hvergi er enda eða samskeyti að finna. Fyrsti kaflinn var glæsilega fluttur, hægi þátturinn dreginn fín- legum línum. Menúettinn, með sín- um tveimur tríóum, var hátíðlegur, er hæfir hinum virðulega menúett- dansi og lokakaflinn, sem eru til- brigði, voru leikin af glettni, með smá dapurlegu innskoti (Adagio). Kvintettinn er að stórum hluta víxl- leikur fyrstu fíðlu og klarinettsins og var leikur Guðnýjar og Sigurðar einkar glæsilegur. Fallegur klari- nettutónn Sigurðar átti undarlega samleið með strengjunum. Sam- leikurinn var einstaklega góður og margvíslegar undirleiks tónhug- myndir Mozarts sérlega mjúklega leiknar en þó brá fyrir í einstaka tónhendingum, að Sigrún, Unnur og Gunnar „fengu orðið“, eins t.d. lágfiðlan, í einu tilbrigðanna (nr. III), en þar gat að heyra sérlega tónfagran leik Unnar Sveinbjarnar- dóttur. Fyrsta tónlistarhátíð Hveragerð- is fer vel af stað og vonandi er hér sáð til meiri uppskeru í framtíðinni og þá er ástæða til að samfagna Hvergerðingum. Jón Ásgeirsson TÓNIIST Hverageröiskirkja KAMMERTÓNLEIKAR Verk eftir Schumann, Atla Heimi Sveinsson og Brahms. Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó; Guðný Guðmundsdóttir, fiðla; Gunnar Kvaran, selló; Peter Máté, píanó; Rannveig Fríða Bragadóttir mezzosópran; Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla; Sigurður Ingi Snorrason, klarínett; Unnur Sveinbjarnardóttir, víóla. Hveragerðiskirkju, laugardaginn 17. maí kl. 17. Á ANNAN í „Björtum nótt- um“, nýstofnaðri tónlistarhátíð Hvergerðinga, voru flutt Márc- henbilder Op. 113 eftir Schumann fyrir víólu og píanó, níu lög úr Jónasarlögum Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Jónasar Hall- grímssonar og Tríó nr. 1 Op. 8 í H-dúr eftir Brahms. Aðsókn var prýðisgóð, og hljómburður kirkj- unnar, að svo miklu marki sem tækt er eftir eina upplifun, virtist í mörgu hagstæður, þó að skýr- leiki einstakra radda í hópsamleik hefði e.t.v. mátt vera meiri, því húsið blett flestu saman þegar hljóðið barst til öftustu bekkja. Á hinn bóginn gæti heyrðin líklega verið kjörin fyrir kórsöng. Rannveig Fríða Bragadóttir söng fjórar „ævintýramyndir" (Márchenbilder) frá 1851 eftir meistara Schumann við undirleik Unnar Sveinbjarnardóttur á víólu og Peters Máté á píanó með til- þrifum sem sýndu glöggt hversu hagvön hún er þýzku rómantík- inni. Burtséð frá því að píanóið hefði mátt móta aðeins ákveðnar, og óvæntu hiki í víólu í öðru lag- inu, tókst flutningur með ágæt- um. Hljóðfæraundirleikur við úrval úr „Jónasarlögum" Atla Heimis - þ.e. á fíðlu (Sigrún Eðvaldsdótt- ir), selló, klarinett og píanó (Anna Guðný Guðmundsdóttir) var í einu orði sagt frábær. Tónskáldið hef- ur valið n.k. „nýrómantískan" stíl við hæfí tilurðartíma ljóðanna sem Jónas hefði án efa kunnað að meta, þ.e.a.s. í námunda við Schubert, Schumann, Mend- elssohn og Chopin; hvergi ofhlað- inn á kostnað textans, heldur þvert á móti léttan og gegnsæjan, sem gat jaðrað við hljómskála- músík fyrri tíma (eins og í La Belle), enda þótt einnig væri tæpt á kontrapunktískum vinnubrögð- um. Hér fannst undirrituðum aft- ur á móti voldug raddbeiting Rannveigar Fríðu ekki alltaf eiga jafn vel við. Hefði að hans smekk mátt gæða sum lögin meiri birtu og færa nær vísnasöng en fjær óperu, auk þess sem textafram- burður virtist oft full afturstæður og barst misvel. En eftir undir- tektum að dæma víluðu fáir áheyrendur það hins vegar fyrir sér, því túlkun söngkonunnar var tekið með kostum og kynjum, að meðtöldum sýnilegum viðbrögð- um tónskáldsins. Eftir hlé flutti Tríó Reykjavíkur (Guðný, Gunnar og Peter) hið mikla tríó í H-dúr eftir Brahms sem hópurinn lék nýverið í Hafn- arborg í Hafnarfirði. Nú kom fram af kynningum Gunnars Kvaran sú fróðlega viðbótarvitn- eskja, að II., III. og IV. þáttur hefðu allir verið frumsamdir frá grunni við endurskoðun tón- skáldsins 1891 á þessu æskuverki sínu frá 1854, en engu að síður var með sanni hægt að segja, að viðamikill fyrsti þátturinn hafí verið ótrúlegt afrek fyrir rétt tví- tugan pilt, og ekki minnkaði það við að hinn alræmt sjálfsgagnrýni tónsmiður skuli hafa látið hann standa óhaggaðan að mestu 37 árum síðar. Flutningurinn tókst að mínu viti ekki alveg með sama glæsi- brag og í fyrra skiptið. Kannski var það að hluta vegna þess hve hljómburður Hafnarborgar dró skýrar fram ferli einstakra radda en akústík Hveragerðiskirkju, og mætti skjóta á að spilendur hafí e.t.v. heyrt hlutfallslega verr hvert í öðru hér en þar, án þess þó að megi fullyrða um það. Engu að síður var margt vel gert, sér- staklega í ægifögru kyrrlátu Adagióinu. Einn lítill galli á tónleikaskrá: flytjendur einstakra verka voru ekki nafngreindir, og því nokkur hætta á samruglingi milli píanist- anna tveggja annars vegar og fíðluleikaranna hins þegar frá líð- ur. Munnlegar kynningar þeirra Sigurðar I. Snorrasonar (í Jónas- arlögum) og Gunnars Kvaran bættu að nokkru fyrir með lát- lausum fróðleik, og tónleikagestir þökkuðu hlýtt fyrir ánægjulega síðdegisstund að leikslokum. RíkarðurÖ. Pálsson Bjartar hátíðarhorfur TONOST Hveragcröiskirkja KAMMERTÓNLEIKAR Verk eftir Milhaud, Sarasate, Brahms og Dvorák. Anna Guðný Guðmundsdóttir, pianó; Guðný Guðmundsdóttir, fíðla; Gunnar Kvaran, selló; Peter Máté, píanó; Rannveig Fríða Bragadóttir mezzosópran; Sigrún Eðvaldsdótt- ir, fiðla; Sigurður Ingi Snorrason, klarínett; Unnur Sveinbjamar- dóttir, víóla. Hveragerðiskirkju, sunnudaginn 18. mal kl. 20.30. ÞRIÐJU og síðustu tónleikar Bjartra nótta í Hveragerði fóru fram á hvítasunnudag við slíkt aðstreymi, að við lá að færri kæmust að en vildu. Viðfangs- efnin voru Svíta fyrir fíðlu, klarí- nett og píanó eftir Darius Mil- haud, „Navarra" fyrir fíðludúó og píanó eftir Pablo de Sarasate, Geistliche Lieder Op. 91 fyrir mezzosópran, víólu og píanó auk 5 þýzkra þjóðlaga fyrir rödd og píanó eftir Johannes Brahms og Kvintett í A-dúr Op. 81 fyrir píanó og strengjakvartett eftir Antonin Dvorák. Svítu Milhauds, eins frönsku sexmenninganna (1892-1974), kynnti Gunnar Kvaran sem „skemmtitónlist af beztu gerð“, og voru það orð að sönnu. Ekki fylgdi sögu frá hvaða tíma, en svellandi tangórytmi I. þáttar benti óneitanlega til áranna eftir 1913, þegar hinn djarfí dans frá Buenos Aires setti betri borgur- um Parísar kinnroða. Divertisse- ment-þátturinn var laufléttur en á lágstemmdum nótum. III. þátt- ur benti til að höfundur hafí kunnað að meta þjóðlega dreif- býlishlið Bartóks (og Petrouchka Stravinskys), og lokaþátturinn (IV) var enn nútímalegri og bryddaði upp á stélsperrandi „vampi“ frá jassi sveifluáranna á 4. áratug. Þau Sigrún Eðvalds- dóttir, Peter Máté og Sigurður I. Snorrason léku með elegans og viðeigandi gallískri andagift. Guðný Guðmundsdóttir og Sigrún vöktu ómælda kátínu með bravúra-stykki Sarasates, „Na- varra“, við píanóundirleik Mátés, og mátti jafnvel gera sér í hugar- Iund, að spænski fíðluvirtúósinn hafí í aðra röndina ætlað að skop- stæla algeng uppklöppunarnúm- er sinnar samtíðar með þessu flugeldastykki, sem þrátt fyrir takmarkað músíklegt inntak út- heimti verulega fíngrafími og samstillingu fiðluraddanna. Rannveig Fríða Bragadóttir söng Andleg ljóð Brahms Op. 91 meistaralega vel við undirleik Unnar Sveinbjarnardóttur og Peters Máté, og sýndi óvenju- mörg blæbrigði í þjóðlagaútsetn- ingum sama höfundar, eins og reyndar ólíkir textamir buðu upp á. Að smekk sumra var röddin e.t.v. í stærra lagi fyrir einföld alþýðulög, en í síðasta lagi, við texta á thuringer-mállýzkuf?] („Och Mod’r, ich will ein Ding han“) kom fram, að enn væri eitthvað eftir af telpusyngjandi unglingsáranna, þegar söngkon- an brá sér til skiptis í hlutverk móður og dóttur. Undirtektir áheyrenda voru firnagóðar. Eftir hlé fluttu þau Sigrún, Guðný, Unnur og Gunnar ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur við píanóið Á-dúr píanókvintett Dvoráks. Slaghörpuröddin fékk sannarlega ekki að liggja á liði sínu í funheita fyrsta þættinum, en píanistinn lék sitt hlutverk af miklu öryggi og blandaðist einkar fallega út í gegn við strokleikinn. Hið seiðandi flauilsdimma lágsvið víólunnar - líklega eitt mesta djásn í litrófi strengjafjölskyld- unnar - lék stórt hlutverk í Dumkunni (II), og sérstök unun var að svífandi bordúnsstaðnum í Furiantinum. Dvorák brá á smá kaffíhúsastemmningu í hressi- legum lokaþættinum, og skartaði leikur þeirra félaga áhrifamikilli dýnamík og smellandi samstill- ingu, sem skilaði drifmiklu fú- gatói undir lokin, að ekki sé talað um einstaklega fallega ögurstund tranquilissimo senza vibrato rétt fyrir bláenda. Fagnaðarlátum ætlaði að von- um seint að linna, og urðu flytj- endur með Rannveigu Fríðu fremsta í flokki að flytja auka- lag, Álfareið þeirra Atla Heimis og Jónasar, nýsamið og tileinkað Björtum nóttum í Hveragerði. Það er óhætt að segja að þessi fyrsta tónlistarhátíð Hvergerð- inga hafí farið vel af stað. Við- fangsefnin hafa verið bæði skemmtileg og metnaðarfull, og eftir undirtektum að dæma virð- ist mega horfa til framtíðar með bjartsýni. Ríkarður Ö. Pálsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.