Morgunblaðið - 21.05.1997, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 21.05.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997 37 an. Það er erfitt að hugsa um sum- arið og framtíðina, þar sem hann er ekki þátttakandi. En, elsku afí. Hugur okkar verður hjá þér, þótt þú sért farinn frá okk- ur. Og við erum viss um, að þú verður með einhveijum hætti ná- lægur okkur í leik og starfí, enda þótt við sjáum þig ekki. Við eru rík að hafa átt þig að. Við munum og gleymum ekki. Við kveðjum þig með þökk fyrir allt, sem þú varst okkur. Þótt þú sért dáinn, þá lifir samt margt af þér og frá þér í okkur sjálfum - í því sem við hugs- um, gerum og segjum. Lífíð heldur áfram að vera til, þótt dauðinn komi í heimsókn. Það fannst Iítið bréf í vösunum í fötunum hans afa, þegar hann var dáinn. Það sýnir að honum þótti vænt um þetta bréf. Bréfíð er frá Bjarka Frey bróður okkar, skrifað síðastliðið haust. Það sýnir vel hug okkar og tilfinningar til afa, hvemig hann fléttaðist inn í hugsanir okkar, drauma og fram- tíðaráætlanir. Bréfíð er svona: „Bjarki er besti vinur afa síns. Ég vil vera með honum afa mínum og fara með honum á Hól í sumar. Þar ætlum við að skoða landið og leika okkur í fjósinu. Ég ætla svo að sofa hjá honum afa mínum á Hóli. Kannski að við afi göngum upp á fjall og rekum kindurnar úr túninu." Elsku afí. Það er gott að þú ert laus við veikindi þín og þjáningar. Við þökkum þér allt, sem þú varst okkur og gerðir fyrir okkur. Þú varst svo sannur og góður. Nú ferð þú einn í ferðalagið. Við kveðjum þig með þakklæti og sorg í huga. Vertu sæll, elsku afí, og góða ferð. Börn Bjarna og Bessu. Með þessum örfáu línum vil ég minnast móðurbróður míns og góðs frænda. Þó ég hafí vitað að hveiju stefndi þá var mér mikið brugðið laugardaginn 10. maí sl. þegar ég kom í Kópavoginn til að hitta Sigga og hans yndislegu fjölskyldu, hvað þá var af honum dregið, svo það kom ekki á óvart þegar tilkynnt var um andlát hans. Þegar ég sit og ri§a upp þær mörgu góðu stundir sem við áttum saman þá kemur margt upp í hugann. Siggi var mjög svo frændrækinn og var duglegur að koma ásamt konu sinni til Keflavíkur, aldrei var sú veisla haldin að það væri ekki hringt til „Sigga og Fjólu“ en það er í mínum huga bara eitt orð, þau voru sjálfsögð í fermingarveislum bama minna og brúðkaupi. Þessi hægláti, stórbrotni maður með sinn vægðarlausa húmor sem öllum þótti svo vænt um og hitti alltaf beint í mark. Ekki var leiðinlegra að lenda nokkra daga með honum á þeim stað sem var honum kærastur, en það er ættaróðalið „Hóll“ í Ólafs- firði en þar ólst hann upp og þar bjó hann ásamt fjölskyldu sinni í nokkur ár og ég held að öruggt sé að hann hafi farið þangað hvert einasta sumar, því meðan verið var að endumýja og gera Hólinn fínan og flottan þá var bæði hugurinn og hann sjálfur á staðnum. Hafðu, Jesús, mig í minni mæðu og dauðans hrelling stytt, böm mín hjá þér forsjón fínni, frá þeim öllum vanda hritt, láttu standa á lifsbók þinni líka þeirra nafn sem mitt. (H.P.) En aldrei stóð Siggi minn einn því hans frábæra eiginkona, Fjóla, stóð alltaf eins og stytta við hans hlið, það sýndi hún best núna síð- ustu mánuði ásamt bömum sínum og tengdabömum sem sameigin- lega gerðu honum kleift að fá að vera heima þangað til yfir lauk því í rúminu sínu fékk hann að sofna, og eiga þau öll þakkir skildar svo og heimahlynning Krabbameinsfé- lagsins sem þau lofsungu í hástert fyrir fómfúst og óeigingjamt starf. Að lokum sendi ég þeim öllum, ásamt fjölskyldu minni allri, okkar dýpstu samúðarkveðjur og við biðj- um góðan guð að styrkja þau öll á þessari stund. í hugum okkar lifír minning um góðan frænda, bróður og mág. Guð blessi ykkur öll. Ingibjörg Magnúsdóttir og fjölskylda. Hann afí okkar hefur nú yfírgef- ið þennan heim. Loks hefur hann fengið hvíld frá erfíðum veikindum og er kominn á nýjan og betri stað. Afí var alltaf svo hraustur og dug- legur en af einhveijum ástæðum hefur hann verið tekinn frá okkur alltof snemma. Síðustu vikur hafa verið erfiðar, bæði fýrir afa og ömmu og alla fjöl- skylduna en það em allar góðu og skemmtilegu stundirnar sem lifa í minningunni. Þegar afí var að vinna í Straumsvík kom hann alltaf heim klukkan fimm og þá biðum við úti þangað til við sáum í húfuna hans og í því sama hlupum við á móti honum og hoppuðum upp um háls- inn á honum og hann varð alltaf jafn glaður. Stundum fórum við norður á Ólafsfjörð með ömmu og afa. Afa leið alltaf svo vel á Hóli og hann sagði okkur margar sögur um það hvemig lífíð var í sveitinni í gamla daga. Afí lifði tímana tvenna, allt frá því að búa í torfbæ við kröpp kjör og fram á þessa tíma tækninnar. Afí hélt þó mörgum gömlum venjum og við munum eft- ir honum þar sem hann var að slá með orfí og ljá. Það er margs að minnast og margt sem hægt væri að segja frá en engin eru þau orð sem lýsa því hve okkur þykir vænt um, þig elsku afí og hversu mjög við söknum þín. Með söknuð í hjarta og þakklæti fyrir öll yndislegu árin sem við átt- um með þér kveðjum við þig, elsku afí. Fjóla og Aðalsteinn, Helga og Sigurður, Berglind og Lárus og Freyja litla. Þegar árin færast yfir heltast úr lestinni æ fleiri úr þeirri kynslóð á undan mér sem ég mat svo mikils og tel mikla eftirsjá í. Sú kynslóð sem man tímana tvenna, kynslóð sem flutti þjóðina úr fátækt til hag- sældar. Þriðjudaginn 13. maí var frá okkur tekinn Sigurður Halldór, tengdafaðir minn, sem þá hafði af miklum hetjuskap tekist á við krabbamein en varð að lokum að lúta í lægra haldi. Þessi sterki mað: ur var sigraður af æðri mætti. í hjarta mínu er mikill söknuður. Það er ómetanlegt veganesti fyrir ungan mann, sem er að byija lífíð, að kynnast slíkum manni og umgang- ast hann. Ég var svo lánsamur að verða þeirrar gæfu aðnjótandi. Sigurður var einstakur maður, hljóðlátur og hægur en eigi að síður mjög fastur fyrir. Störf hans voru misjöfn og margvísleg bæði til sjós og lands. Hann var afbragðs verk- maður hvað svo sem hann tók sér fyrir hendur. Ég skynjaði fljótt áhuga hans á náttúrunni, hann elskaði og virti fegurð landsins. Æskuslóðimar norður á Ólafsfírði voru honum afar kærar, þar leið honum vel í faðmi ijallanna, um- kringdur ijölskyldunni. Hann naut þess að ganga um jörðina, niður að á eða upp í fjall, þar sem hann þekkti hveija þúfu, segja sögur frá bemskuárunum og þeim breyting- um sem átt höfðu sér stað í tímans rás. Hóll var aldrei langt undan í huga hans. Bömin vom honum afar kær, enda elskuðu þau hann og dáðu. Sigurður var 73 ára gamall þegar hann lést. Hans verður sárt saknað af fjölskyldunni og öllum þeim sem til hans þekktu. Um leið og ég kveð elskulegan tengdaföður minn og bið góðan guð að blessa og styrkja Fjólu Valdísi tengdamóður mína, vil ég senda Heimahlynningu Krabbameinsfé- lagsins sérstakar þakkir fyrir ómet- anlegt starf. Helgi Eiríksson. 0 Fleiri minningargre'mar um Sigurð Halldór Gíslason bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. JÓNAS EGGERT TÓMASSON + Jónas Eggert Tómasson fæddist í Sólheima- tungu í Stafholtst- ungum 9. 1928. Hann andað- ist á heimili sínu í Sólheimatungu 12. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigríður Sig- urlín Sigurðardótt- ir, húsfreyja, fædd á Hólmlátri á Skógarströnd 26. janúar 1892, dáin 13. nóvember 1974, og Tómas Jónasson, bóndi í Sólheimatungu, fæddur 2. des- ember 1881 í Örnólfsdal í Þverárhlíð, dáinn 5. nóvember 1954. Systkini Jónasar eru Guðrún María, f. 31. ágúst 1929, maki Jóhannes Guð- mundsson, þau eiga fjögur böm. Sigurður, f. 5. febrúar 1931, maki Rita Elisabeth Larsen, þau eiga tvær dætur. 3) Guðríður, f. 7. maí 1933, maki Bjöm Stefánsson, þau eiga þijá syni. Jónas var ókvæntur og barnlaus. Eftir fullnaðarpróf stundaði Jónas nám við Reykholtsskóla í einn vetur, síðan tvo vetur við Flensborgarskóla í Hafn- arfirði og lauk þaðan gagn- fræðaprófi vorið 1948. Vorið 1951 lauk Jónas prófi sem smíðakennari frá kennaradeild Handíða- og mynd- listaskólans. Þar á eftir stundaði hann nám við handa- vinnudeild Kenn- araskóla íslands, prófi þaðan lauk hann vorið 1953 og öðlaðist þar með full kennslurétt- indi i handavinnu í barnaskólum og skólum gagnfræðastigsins. Að námi loknu stundaði hann kennslu í heimasveit sinni í nokkur misseri, en sneri sér síðan að búskap með Sigurði bróður sínum á föðurleifð þeirra eftir andlát Tómasar síðla árs 1954. Sinnti hann bústörfum í Sólheimatungu til dauðadags. Jónas gegndi margvíslegum félags- og trún- aðarstörfum svo sem hrepps- nefndarmaður en það höfðu áður verið faðir hans og afí, Jónas Eggert Jónsson. Jónas var formaður stjórnar Veiði- félags Gljúfurár frá stofnun til dánardægurs. Útför Jónasar fer fram frá Stafholtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jónas Eggert Tómasson, bóndi í Sólheimatungu, verður borinn til grafar í dag. Allir sem þekktu hann minnast hans með þakklæti og virðingu. Hann var einkar góð- viljaður, hjálpsamur og vandaður maður. Banamein hans var hjarta- slag. Daginn áður en hann lést hafði hann sinnt bústörfum án þess að kvarta um óþægindi, en að morgni var hann látinn. Eins og greint er frá í inngangi þessara minningarorða lagði Jónas stund á handavinnukennaranám í Handíða- og myndlistaskólanum. Þá voru í málaradeildinni margir myndlistarnemar sem síðar urðu þekktir myndlistarmenn, t.d. Hringur Jóhannesson málari, og Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá veflistarkona. Ég efa ekki að kynni Jónasar við þessar ungu „listaspír- ur“ hafi haft örvandi og þroskandi áhrif á hann. Jónas minntist og margra kennara sinna með þakk- læti og virðingu, sérstaklega Björns Th. Bjömssonar listfræð- ings og Sveins Kjarvals húsgagna- arkitekts. í Handíða- og mynd- listaskólanum smíðaði Jónas hefíl- bekk, skrifborð og skrifborðsstól. Bera þessir gripir vitni um sam- starf þeirra Jónasar og Sveins Kjarvals og sýna vel handbragð Jónasar á skólaárunum. Sveinn Kjarval hélt kunningsskap við Jón- as og Sigurð bróður hans þar til hann fluttist búferlum til Dan- merkur. Voru hann og böm hans aufúsugestir bræðranna í Sól- heimatungu og fengu oft að renna fyrir silung og lax í Gljúfurá og Norðurá áður en veiðifélög voru stofnuð um ámar. Jónas var vel lesinn í bókmennt- um, sögu og þjóðlegum fræðum og átti gott bókasafn. Hann tran- aði sér hvergi fram til mannvirð- inga, en ef félagar hans töldu að sínum málum væri vel borgið í hans höndum þá skoraðist hann ekki undan að taka slíkt að sér eins og sést á inngangi þessara minningarorða. Þegar Jónas var í hreppsnefnd Stafholtstungna- hrepps var verið að vinna að upp- byggingu bamaskólans á Varma- landi. Jónas bar það mál mjög fyrir bijósti. Á síðustu árum heyrði ég hann hafa orð á því hvað mik- ill myndarbragur væri á starfsemi staðarins; skóla, félagsheimilis og sundlaugar. Ég kveð mág minn með virðingu og þökk fyrir öll árin sem við átt- um saman. Aðstandendum votta ég innilega samúð. Jóhannes Guðmundsson. Jónas Eggert Tómasson, bóndi í Sólheimatungu í Borgarfírði og móðurbróðir okkar, varð bráð- kvaddur aðfaranótt mánudagsins 12. maí síðastliðinn. Við systkinin dvöldumst mikið í Sólheimatungu á sumrin sem böm og unglingar og aðstoðuðum Jónas og Sigurð bróður hans við bústörfín eins og algengt var með kaupstaðabörn á þeim árum. Þátttaka í rúningi, leitum og réttum á sumrin og haustin var fastur liður í tilveru okkar. Eftir að við komumst á fullorðinsár höfum við og börnin okkar heimsótt Sólheimatungu og haft ánægju af að komast út fyrir borgina og taka þátt í sveitastörf- unum með Jónasi, komast þangað sem tilveran er róleg og ekki þarf alltaf að keppa við klukkuna. Jónas var ætíð notalegur heim að sækja og hafði ánægju af að umgangast gesti og ræða við þá um menn og málefni. Hann var áhugasamur um bóklestur, einkum um söguleg efni og náttúrufræði, og keypti mikið af bókum og tíma- ritum sem gaman var að blaða í þegar maður var gestkomandi í Sólheimatungu. Enda var hann fróður um margvíslegustu efni og kom okkur oft á óvart er hann vakti máls á því sem hann var að lesa sér til fróðleiks hveiju sinni. Bækur og annað lesefni má segja að hafí verið það eina sem Jónas lét eftir sér, en hann var ákaflega nægjusamur maður og frábitinn því að fyrir honum væri haft. Jónas var bamgóður og átti auðvelt með að umgangast böm. Bömin höfðu gaman af að fylgja honum í fjárhúsin og taka þátt í gegningum og öðmm verkum með honum. Hann hafði alltaf nægan tíma til þess að spjalla við þau og leyfa þeim að reyna sig við að losa hey úr stabba eða rogast með fang inn eftir jötunum. 1 fjárhúsin og upp í veiðihús óku þau stundum á Lada-Sport jeppa sem Jónas átti. Bömin sátu aftur í og hundurinn Bósi í framsætinu. Þessar bílferðir vora yngstu bömunum mikil upplif- un. Ef við foreldramir ræddum um jeppakaup fannst bömunum ein- ungis Lada-Sport jeppi, eins og Jónas frændi átti, koma til greina. Hann komst allt. Bömum sem koma úr hraða borgarinnar, þar sem allir era að flýta sér, þótti gott að kynnast annarri hlið á til- veranni í „Jónasarsveit“ eins og þau vora vön að kalla Sólheima- tungu. Við eigum eftir að sakna þess að eiga ekki lengur „alvöru" er- indi eins og rúning og leitir í Sól- heimatungu. Fjölskyldurnar munu þó halda áfram að hittast þar, því að móðir okkar og móðursystir hafa breytt hluta gamla hússins í sumarbústað. Það verður þó skrýt- ið að koma í gamla húsið að Jón- asi gengnum, hitta hann ekki og finna þétt handtakið þegar hann heilsaði og bauð gesti velkomna. Það mun heldur enginn Bósi fagna gestum, en milli þeirra Jónasar ríkti einstakur vinskapur. Mestur er þó missirinn fyrir bömin okkar sem eiga eftir að sakna heimsókn- anna í „Jónasarsveit“. Hvíl þú í friði, kæri frændi. Tómas, Helgi, Sigríður og Guðmundur Þorri. í dag verður borinn til hinstu hvílu í Stafholtskirkjugarði Jónas E. Tómasson frá Sólheimatungu. Hann fæddist og ólst þar upp og þar bjó hann allan sinn aldur. Á bernskuáram okkar áttum við marga samfundi, enda náin frænd- semi og mikill samgangur milli heimila okkar. í minningum bemskuáranna era þeir fundir skýrir og ljósir. Þá var margt með öðrum brag en nú. í slíkum heim- sóknum var oft gist, stundum fleiri en eina nótt. Ýmislegt var brallað þótt allt væri innan hóflegra marka. Eftir nám í Reykholtsskóla og Flensborgarskóla í Hafnarfírði fór Jónas í handmenntadeild Kennaraskólans og lauk þar prófi vorið 1953. Eitthvað mun hann hafa kennt í sinni heimabyggð, en það var um skamman tíma, því eftir lát föður hans tóku þeir bræð- ur, Sigurður og Jónas, við jörðinni og þar hafa þeir búið síðan, í lið- lega 40 ár. Jónas, frændi minn, var hlé- drægur maður, rólegur í fasi og viðræðugóður. Hann tók lífið og tilveruna ekki of alvarlega, grannt var á kímninni og þegar hið spaugilega vakti athygli hans var því gjarnan komið á framfæri í þeim gamansama tón, sem honum var lagið. Þótt hann hefði marga þá kosti til að bera, umfram aðra, sem þarf til að standa í forsvari fyrir sveit sína, sóttist hann ekki eftir slíkum störfum. En hugurinn var opinn og fijór. Hann las mik- ið, fylgdist vel með í þjóðmálaum- ræðunni og kunni góð skil á mönn- um og málefnum líðandi stundar. En hinsta kallið kom óvænt og skyndilega. Mér er ekki grunlaust um að það hafí verið honum að skapi, þótt við hefðum kosið að það kæmi síðar. En enginn má sköpum renna. Og er ég staldra við og lít til baka kemur í hugann þetta erindi úr ljóði eftir Jóhannes úr Kötlum: Að þér mun ég verða undursamlega jðrð: eins og sveipur mun ég hverfast í stormi þínum eins og dropi mun ég falla í regni þínu eins og næfur mun ég loga í eldi þínum eins og duft mun ég sáldrast í þína mold. Og við munum upp rísa undursamlega jðrð. Með Jónasi er genginn góður drengur, sem við minnumst með virðingu og þökk. Og nú er hann hefur hafíð ferð sína inn á ódáins- löndin, inn í þann heim sem okkur jarðneskum er hulinn, fylgja hon- um hugheilar kveðjur og blessun um alla eilífð, Tómas Einarsson. 1 \ ( I I c
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.