Morgunblaðið - 21.05.1997, Side 22

Morgunblaðið - 21.05.1997, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Frelsari eða einræðisherra? Laurent Kabila boðaði áður marxisma undir áhrifum Maós en nú kveðst hann samnefnari allra lýðræðissinna Reuter ÍBÚAR Kinshasa hlaupa eftir götum Kinshasa, höfuðborgar Lýð- veldisins Kongó, áður Zaire, á mánudag til að fagna því að Mob- utu Sese Seko forseti er fallinn og flúinn og Laurent Kabila hefur tekið við valdataumunum. Laurent Kabila LAURENT Kabila, leiðtogi uppreisnar- manna í „Lýðveldinu Kongó“, eins og hann hefur lýst yfir að Zaire skuli framvegis vera kallað, er spurningar- merki í augum margra. Hann hefur látið að sér kveða alit frá því að landið fékk sjálfstæði frá Belgum og löngum kennt sig við marx- isma. Hvað nú tekur við er óljóst, en hann er hins vegar lítt fús til að ræða fortíð sína á vinstri vængnum þegar hann barðist með Patrice Lumumba og Ernesto Che Guevara. Skæruliðar Kabila lögðu landið undir sig á sjö mánuðum. Um miðj- an mars, viku eftir að þeir náðu borginni Kisangani á sitt vald, flutti Kabiia þar ræðu á íþróttaleikvangi að viðstöddum fimm þúsund manns, sem fengu að heyra það, sem þeir vildu. Kabila hét þeim i tveggja klukkustunda langri ræðu lýðræði og fyrirskipaði um leið að lækka ætti verð á efni í föt, rafmagni, brauði og bjór um helming. Vil að þið verðið frjáls „Ég vil að þið verðið algerlega fijáls," sagði Kabila. „Ég vil ekki að þið verðið þrælar nokkurs manns.“ Orðum hans var fagnað með hrópum og söng. Kabila hefur reynst eiga auðvelt með að höfða til fólksins, virkja reiði þess í garð Mobutus Seses Sekos, hins gerspillta einræðisherra landsins, og nýta óánægjuna vegna efnahagslífs í molum. Hann á hins vegar ekki jafn auð- velt með að tjá sig um fortíð sína og framtíðaráætlanir. Þegar hann er spurður um sjálfan sig eða fjöl- skylduna hlær hann og skiptir um umræðuefni. Meðan á átökunum stóð sagði hann að einu gilti um sig í þessu máli, en nú er hann orðinn leiðtogi þriðja stærsta ríkis Afríku. Brenndi fólk á báli? íbúar Lýðveldisins Kongó hafa fagnað honum sem frelsara, en Bembe-þjóðflokkur- inn í austurhluta lands- ins ber honum ekki vel söguna. Kabila stjórn- aði þjóðflokknum frá 1964 fram á fyrri hluta síðasta áratugar og var í raun fyrir utan valda- svæði Mobutus. Rithöf- undur einn í landinu sagði að Kabila hefði verið „dæmigerður afrískur stríðs- herra“. „Hann er ekki frelsari," sagði menntamaður af Bembe-þjóð- flokknum, sem ekki vildi láta nafns getið. „Hann er einræðisherra." í bænum Kigoma, skammt frá þessu gamla valdasvæði Kabilas, búa Bembar, sem greina frá því að Kabila hafí lifað af vinnu þeirra og notað gullnámur svæðisins. Hann hefði gripið til örþrifaráða til að halda völdum, þar á meðal látið brenna óvini og keppinauta á bál- köstum. Þótt vitnisburði þessa fólks hafí borið saman var hins vegar ekki hægt að staðfesta hann. Einn- ig hefur verið greint frá því að Bembe-fólkið hafi ekki snúið baki við Kabila og margir báru virðingu fyrir honum. Við hlið Che Guevara Kabila er 58 ára gamall og hann hefur verið uppreisnarleiðtogi nán- ast frá_ því að landið fékk sjálf- stæði. Á áttunda áratugnum rændu fylgismenn hans bandarískum námsmönnum til að fjármagna bar- áttuna. Hann barðist einnig við hlið Che Guevara, sem frægari varð fyr- ir baráttu sína í Suður-Ameríku, og stofnaði sósíalískt smáríki í austur- hluta landsins. Hann kveðst nú skilinn að skiptum við marxisma og aðhyllast fjölflokka lýðræði. Hins vegar hefur hann bannað pólitíska starfsemi á þeim svæðum, sem skæruliðar hans hafa lagt undir sig, meðan á stríðinu stendur og kveðið skýrt á um það að hann muni ekki deila völdum með stjórnmálaflokkum landsins meðan reynt verður að koma reglu á í land- inu. Kabila bregst reiður við þegar hann er spurður um það hvernig hann hafi horfið frá marxískri hug- myndafræði. „Ætti ég að svara þeim áróðri, sem hefur gert þjóð mína að þrælum í þessu landi? Ér það ástæðan fyrir fátækt í þessu landi? Að herra Kab- ila hafi verið öfgasinnaður marxisti? Er það þess vegna, sem þjóð hans þjáist af fátækt? Er það ástæðan fyrir gjaldþroti þjóðarinnar? Ég held ekki,“ svarar Kabila. Til þessa hefur Kabila aðallega lagt áherslu á það hveiju hann sé andvígur. Þar ber helst að nefna Mobutu og það stjórnarfar einræðis, sem hann hefur notað til að halda völdum. Gagnrýni Kabila á frænd- semi og fyrirgreiðslu í stjórn Mobut- us hefur hins vegar glatað sannfær- ingarkrafti við það að Kabila gerði 25 ára gamlan son sinn að yfir- manni hernaðaraðgerða í norður- hluta landsins og skipaði frænda sinn_ utanríkisráðherra. „Ég held að hann sé okkur öllum nokkur ráðgáta," var haft eftir stjórnarerindreka. „Svokallaðir stuðningsmenn hans vita ekki einu sinni hvað hann mun gera þegar fram í sækir.“ í ræðum og viðtölum kallar Kab- ila flokk Mubutus iðulega samtök „póiitískra málaliða", sem hafi selt hagsmuni þjóðarinnar erlendum kapitalistum. „Dugar að láta ykkur hafa nafn Mobutus“ „Þessu landi stjórnuðu ekki inn- fæddir, sem áttu það skilið," sagði Kabila í ræðunni í Kisangani. „Því stjórnuðu pólitískir málaliðar. Þeir vildu að erlend ríki kæmu og tækju auðlindir okkar . .. Ég ætla ekki að nefna fólk, sem hvíta fóikið notaði til að stela auði ykkar, það dugar að láta ykkur hafa nafn Mobutus.“ Kabila hamrar á því að Mobutu hefði aldrei tekist að haida völdum í 30 ár án málaliða og hernaðarað- stoðar frá Bandaríkjamönnum og öðrum vestrænum lýðræðisríkjum, sömu ríkjum og Kabila leitar nú til sem lýðræðissinni. Hann hefur einn- ig vanþóknun á stjórnmálamönnum úr stjórnarandstöðunni, sem hafa starfað með Mobutu eða veitt hon- um mótspyrnu með friðsamlegum hætti. Kabila fæddist fyrir 56 árum í Sabha-héraði í suðurhluta landsins og tilheyrir Luba-ættbálknum. Hann lagði stund á stjórmálaheim- speki í háskóla í Frakklandi, aðhyllt- ist Marx, sneri aftur til landsins um það leyti, sem landið fékk sjálfstæði frá Belgum og fór út í stjórnmál. Kabila studdi Patrice Lumumba, fyrsta forsætisráðherra landsins. Lumumba var marxisti og aðhylltist maóisma. Þegar Mobutu myrti Lum- umba árið 1961 með stuðningi bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, flúðu stuðningsmenn Lumumbas inn í frumskóginn og hófu að leggja á ráðin um uppreisn með stuðningi Rússa og Kínveija. Árið 1964 gerðu Lumumbistar þtjár uppreisnartil- raunir og um nokkurra mánaða skeið stofnuðu þeir sitt eigið ríki og gerðu Kisangani að höfuðborg sinni. Kabila og annar vinstri leiðtogi, Gaston Soumialot, stjórnuðu upp- reisninni í Ruzizi í grennd við Uv- ira. Mobutu var þá stjórnandi hers- ins og honum tókst að bijóta upp- reisnina á bak aftur með aðstoð hvítra málaliða, belgískra fallhlífar- hermanna og bandarískra herflug- véla. 30 árum síðar lét Kabila til skarar skríða á ný á þessum sömu slóðum, en þá með betri árangri. Kabila hélt áfram að beijast í grennd við Uvira til ársins 1965. Það var á þeim tíma sem argent- ínski byltingarleiðtoginn Che Gue- vara kom til að hjálpa honum. Gue- vara missti hins vegar fljótt álit á Kabila og sakaði hann um að veija of litlum tíma með liðsmönnum sín- um. Argentínumaðurinn staldraði aðeins við í nokkra mánuði. Tveimur árum síðar tókst Mobutu að hrekja Kabila og liðsmenn hans úr landi og til Tansaníu. Þaðan gerðu þeir á næstu tíu árum árásir inn í austurhluta landsins. Meðan Kabila var í útlegð fór hann víða um Afríku og mynduðust þá sterk bönd milli hans og Yoweris Muse- venis, sem hrifsaði völd í Uganda árið 1985, og Pauls Kagames, sem stýrði uppreisnarher tútsa og tók völd í Rúanda árið 1994. Kabila hvarf af sjónarsviðinu árið 1988 og héldu þá margir að hann væri ailur. Hann bjó hins vegar í Dar es Salaam í Tanzaníu og seldi gull. Að sögn nágranna barst hann mikið á. í október birtist hann á ný og með stuðningi bæði Musevenis og Kagames, sem báðir höfðu átt í vandræðum með skæruliðahópa, er höfðu haft bækistöðvar í Zaire. Og nú boðar marxistinn fyrrverandi iýð- ræði og segir að allir lýðræðissinnar geti sameinast í samtökum sínum. MAMAIEL ELECANCE lymptsa STÆRÐIR: 75-95 B - C - D - DD SENDUM( PÓSTKRÖFU. Laugavegi 26, sími 551 3300 — Kringlunni, sími 553 3600 Atvinnuleysi mun aukast vegna myntbandalagsins Mtinchen. Reuter. ATVINNULEYSI í Evrópu mun aukast þegar stjórnir aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB) fara að draga úr ríkisútgjöldum til að mæta aðildarkröfum Efnahags- og myntbandalags Evrópu, EMU, að því er segir í spá þýsku Ifo-stofn- unarinnar, sem stundar rannsóknir á sviði efnahagsmála. Þar segir að þegar til lengri tíma sé litið, muni störfum hins vegar fjölga í Evrópu. í spá stofnunarinnar segir að til þess að hún nái fram að ganga, verði að koma til umbætur í efna- hagsmálum og launastefnu ýmissa ríkja, ekki síst Þýskalands. í spánni er vitnað í breska spá þar sem talið er að um 24.000 störf muni tapast í Þýskalandi og um hálf milljón starfa í aðildarlöndum ESB fyrir árið 2000. Ifo spáir því að í nokkum tíma eftir gildistöku hins sameiginlega gjaldmiðils, evrósins, muni at- vinnuleysi aukast. Þegar evróið hafi öðlast fastan sess, muni draga úr sveiflum í gjaldeyrisvíðskiptum, sem muni auka afköst og hagvöxt. Miklu máli skipti að verðlag haldist stöðugt. Náist það, muni framleiðni aukast og störfum fjölga á nýjan leik. Þá muni evróið án efa verða til þess að samningar um kaup og kjör breytist, þar sem launþegar í fjölmörgum löndum þiggi laun í sama gjaldmiðli. Verkalýðsfélög verði beinir þátt- takendur í samkeppni á milli ein- stakra landa og svæða. Skiptar skoðanir um EMU á finnska þinginu Helsinki. Morgunblaðið. SKIPTAR skoðanir eru innan finnsku stjórnarflokkanna um ágæti þess að Finnar verði meðal fyrstu þjóða til að taka upp sam- eiginlegan gjaldmiðil Myntbanda- lags Evrópu (EMU). Paavo Lipp- onen, forsætisráðherra og leið- togi jafnaðarmanna, varð fyrir harðri gagnrýni af hálfu Erkki Tuomioja, formanns þingflokks jafnaðarmanna, þegar þingið ræddi skýrslu ríkisstjórnarinnar um EMU á þriðjudaginn. Ríkisstjórnin stefnir að því að uppfylla öll skilyrði EMU og verða í hópi fyrstu aðildarþjóð- anna. Tuomioja, sem þykir afar fróður um málefni Evrópusam- bandsins, sagðist sannfærður um að myntbandalag hefði í för með sér samræmingu í skattamálum og félagslegum málum þeirra ríkja sem þátt taka í bandalaginu. Tuomioja fullyrðir að ESB verði sambandsríki en ekki ríkjasam- band verði tekinn upp sameigin- legur gjaldmiðill. Krefst Tuomioja þess að lagt verði fram lagafrumvarp um EMU-þátttöku en ríkisstjórnin segir að þjóðin hafi þegar sam- þykkt EMU með þvi að greiða atkvæði með ESB í þjóðarat- kvæðagreiðslu. Andstæðingar EMU segja hins vegar að fáir eða jafnvel enginn hafi gert sér grein fyrir aðildinni að myntsamstarf- inu þegar kosið var um inngöngu Finna í ESB.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.