Morgunblaðið - 21.05.1997, Qupperneq 42
42 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
ARNIPETUR
LUND
+ Árni Pétur
Lund var fædd-
ur í Reykjavík 2.
ágúst 1971. Hann
lést í Alaborg í Dan-
mörku 8. maí síðast-
liðinn. Foreldrar
hans eru hjónin Ás-
dís Karlsdóttir
gjaldkeri, f. 2. apríl
1947, og Maríus Jó-
hann Lund tré-
smiðameistari, f.
ll.júní 1946. Bræð-
ur Arna Péturs eru
Bergþór vélsmiður,
f. 3. maí 1975, og
Karl, f. 12. ágúst 1985. Að lok-
inni hefðbundinni skólagöngu
lærði Árni blikksmíði og lauk
prófi í henni 1991. Hann stund-
aði nám í Tækniskóla íslands
og lauk þaðan raungreinaprófi
1993. Haustið 1995 hóf hann
nám við Háskólann í Álaborg
og var þar að læra tölvuverk-
fræði er hann lést.
Árni verður jarðsettur frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Æ, hvar er leiðið þitt þitt lága,
ljúfasti bróðir?
Þar sem þú tárvota vanga
á vinblíða móður
mjúklega iagðir, er lífið
lagði þig, bróðir minn kæri,
sárustu þymum sínum,
þótt saklaus þú værir og góður.
Æ, hvar er ieiðið þitt lága?
Mig langar að mega
ieggja það á liijukrans smáan,
því liljurnar eiga
sammerkt með sálinni þinni
og sýna það, vinur minn besti,
að ástin er öflug og lifir,
þótt augun í dauðanum. bresti.
(Jóhann Siguij.)
Elsku bróðir minn, Árni Pétur.
Nú ertu farinn án þess að ég gæti
kvatt þig. Reyndar var ég svo lán-
samur að hafa verið úti í Danmörku
fyrir þremur vikum, þar sem við
áttum virkilega góðar stundir sam-
an.
Og einmitt núna
hugsa ég, af hverju var
ég ekki lengur hjá þér?
Bara að ég hefði vitað
hvernig tímaklukka
hvers og eins slær, þá
hefði ég verið lengur
og átt fleiri minningar
um okkur saman. Við
rifjuðum upp liðna
tíma og hversu ánægð-
ur þú varst með að
fara í Tækniskólann og
síðan til Danmerkur til
áframhaldandi náms
ásamt Steingerði.
Og einmitt núna
hugsa ég um eitt kvöldið sem við
sátum inni á þínu heimili og töluð-
um um okkar æskuár og hlógum
mikið að því hvernig foreldrar okk-
ar gátu umborið allt það sem við
gerðum og hugsa með gleði alla
þá tíma sem þú áttir í sveitinni hjá
afa og ömmu á sumrin. Alltaf beið
ég með eftirvæntingu á haustin
eftir því að þú kæmir heim því þá
var stóri bróðir kominn og þá gátum
við aftur farið að gera foreldra
okkar vitlausa. Það mynduðust ekki
sár þá, heldur minningar sem við
hlógum og skemmtum okkur við
að rifja upp.
Sálarsárið myndaðist þegar þú
fórst og það er sár sem aldrei mun
gróa. Jafnvel þótt það sé sagt að
tíminn græði öll sár, þá græðir
hann ekki þetta. Eina sem tíminn
gerir er að kenna manni að lifa
með sorginni. Því eru allar minning-
amar um þig, elsku bróðir minn,
mér svo dýrmætar. Ég er ánægður
að ég fékk tækifæri til að þekkja
þig í tuttugu og tvö ár og allar
minningar um þig mun ég ríghalda
í, líkt og lífíð sjálft.
Eilífðar kveðja, þinn bróðir
Bergþór.
Heiðarlegur, réttsýnn og trygg-
lyndur. Þessi orð áttu öll vel um
frænda minn, Árna Pétur Lund sem
lést allt of ungur í blóma lífsins,
25 ára. Andlát hans kom fyrirvara-
laust og skilur eftir stórt skarð í
fjölskyldunni. Árni var elsta barna-
bam foreldra minna, alnafni afa
t
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og jarðarför okkar
ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
HELGU RAFNSDÓTTUR,
Austurbrún 33,
Reykjavík.
Erla Guðrún isleifsdóttir,
Högni ísleifsson, Sveina Helagdóttir,
Gísli Rafn ísleifsson, Sigríður Eyjólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, stjúpa, bróður, mágs og afa,
SVERRIS SIGURÐSSONAR,
Huldulandi 11,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 12G
Landspítala.
Guðmunda Lilja Sigvaldadóttir,
Lóa Svavarsdóttir Maninscalco, Róbert Maninscalco,
Margrét Svavarsdóttir, Magnús Narfason,
Guðjón Sigurðsson, Soffia Nilsen,
Jónfríður Sigurðardóttir,
Rafn Sigurðsson Dóra Hiíðberg
og afabörn.
síns og hafði hjá þeim mikla sér-
stöðu, m.a. þar sem hann dvaldi
hjá þeim í sveit öll sumur og meira
til, allt frá því hann var bam og
til fullorðinsára. Mat hann þau
ákaflega mikils.
Við Ámi náðum vel saman, hann
var mér náinn vinur og stundum
fannst mér að hann vildi feta í fót-
spor mín, ekki síst í námi þar sem
okkar ferill var líkur. Eftir að hann
lauk gmnnskólaprófí hóf hann nám
í blikksmíði og lauk því með sóma.
Stuttu seinna fór hann í Tækniskóla
íslands og lauk þar ágætu raun-
greinaprófi. Að þvi loknu lá leið
hans til Álaborgar í verkfræðinám
við sama skóla og ég lærði í. í Ála-
borg hef ég búið síðustu 16 árin og
ákvað hann að koma þangað til
návistar við mig. Námið hjá honum
gekk vel og stefndi í að hann myndi
ljúka því með sóma á tilsettum tíma.
Eins og gefur að skilja ræddum við
oft um hans nám, veltum vöngum
um hvaða val væri viturlegast og
reyndum að spá í framtíðina. Gegn-
um Áma fannst mér ég oft endur-
lifa mín námsár. Ég var búinn að
hlakka mikið til að njóta návistar
og félagsskapar hans. Hann efldi
tengsl og návist við mína fjölskyldu
og færði hana nær. Það m.a. gerir
missi hans ennþá sárari.
Ámi var vel liðinn meðal sinna
félaga og vina sem hann átti marga.
Hann var félagslýndur, og með gít-
amum sínum færði hann líf í mörg
samkvæmin. Hans verður sárt sakn-
að í þeim stóra hópi námsmanna sem
hann umgekkst. Samheldni þeirra á
meðal er mikil og sýna þeir væntum-
þykju sína m.a. með því að þeir
gengust fýnr sérstakri minningarat-
höfn um Árna hjá íslendingum i
Álaborg. Fyrir það og alla aðstoð
vegna andláts Áma eiga þeir sér-
stakar þakkir skildar.
Minning Árna lifir áfram, ekki
síst hjá fjölskyldu hans.
Um leið og ég og fjölskylda mín
biðjum Árna mínum allrar blessun-
ar og þökkum honum fyrir liðnar
samverustundir, biðjum við almátt-
ugan Guð um að styrkja foreldra
hans og bræður, ömmu hans Berg-
þóm og síðast en ekki síst afa hans
og ömmu í Miðtúni sem áttu svo
mikið í drengnum og hann í þeim.
Blessuð sé minning hans.
Grímur Þór Lund, Álaborg.
Norður á Miðtúni á Melrakka-
sléttu var gott að alast upp, bæði
fýrir þá sem þar áttu heima og
einnig fyrir þá fjölmörgu sem
dvöldu þar í sveit um lengri eða
skemmri tíma. Það var nefnilega
þannig að margir komu ungir í
sveit til Árna Péturs og Helgu og
sumir meira að segja svo ungir að
þeir mundu varla eftir því og það
var einnig þannig að margir komu
aftur og aftur - og aftur, jafnvel
áður en skólinn í Reykjavík var
búinn á vorin og fóm ekki fyrr en
grána fór í fjöll á Sléttunni, féð
komið af fjalli og ekki var lengur
undan því vikist að mæta í skóla-
stofuna, - og þá - fyrir alla aðra
en þá sjáifa. Þannig var með Árna
Pétur Lund, frænda minn, sem
kvaddur er hinstu kveðju í dag.
Hans er sárt saknað, ekki síst af
afa hans og ömmu sem hann dvaldi
hjá öll sumur frá því hann fýrst
mundi eftir sér og þar til hann var
orðinn fullorðinn maður. Þar undi
hann sér vel. Fyrst gat hann lítið
hjálpað til en brátt lærði hann verk-
in. Og afa, sem alltaf vildi hafa
einhvern hjá sér við vinnuna fannst
hann brátt vanta mikið ef „nafni"
hans var ekki í kringum hann. Svo
liðu árin og „nafni“ stækkaði og
afi varð eldri og þá var nú heldur
en ekki fengur þegar hann birtist
í sauðburðinn.
Hjá ömmu var líka gott að vera.
Henni leist ekki of vel á hvað for-
eldrarnir þurftu að vinna mikið og
hvað Árni átti að vera mikið einn
heima. Hún kvað það þess vegna
óhætt, að lofa honum að koma norð-
ur og dvelja hjá sér um veturinn
þegar hann var 6 ára þrátt fyrir
að skólaganga hans væri hafin.
Taldi sig meira að segja geta sagt
honum nokkuð til í lestri og e.t.v.
að draga til stafs. Hafði jú nokkra
reynslu af uppeldi og heimalærdómi
sex sona sem hún kenndi við eldhús-
borðið íslensku jafnt sem önnur
fög. Sumrin í Miðtúni urðu mörg
og löng í báða enda. Meira að segja
kaus Árni minn að vera frekar í
unglingaskólanum í Lundi einn vet-
ur og dvelja um helgar hjá afa og
ömmu í stað þess að fara um haust-
ið. Hann var þeirra elsta barnabarn
og þegar fleiri bættust í hópinn
vissu þau að ekkert þeirra myndi
hrófla við rétti Árna hvað Miðtúns-
dvöl varðaði. Þetta var það um-
hverfí sem Ámi lofaði mest og mik-
ið var hann stoltur af afa og ömmu.
Þau voru hans helgidómur sem ekki
nokkur maður hefði vogað sér að
álasa í hans eyru.
Ég dvel við ofangreint þegar
Árni minn er kvaddur. í Miðtúni
kynntumst við best og seinna þeg-
ar hann var orðinn fullorðinn voru
það minningamar og sögurnar frá
Miðtúni sem ávallt yljuðu. Ekki
má skilja þetta svo að Árni hafi
ekki átt gott heimili hjá sínum for-
eldrum. Fjarri því. Þar átti hann
traust athvarf hjá góðum foreldr-
um og bræðrum. Honum hins veg-
ar líkaði Miðtúnsdvölin vel og það
sem Árni á annað borð vildi var
erfítt að neita honum um.
Að grunnskólaprófi loknu nam
Ámi blikksmíði og fór síðan í
Tækniskólann. Siðan lá leið hans
til Álaborgar og fetaði hann þar í
spor föðurbróður síns sem þar
lærði rafmagnsverkfræði. Árni var
að læra tölvuverkfræði og gekk
námið eftir eðlilegum brautum.
Hann var heiðarlegur vel gefinn
myndarpiltur með mikla réttlætis-
kennd og tryggur sínum vinum og
ekki var óreglunni fyrir að fara.
Hann var á vissan hátt léttur í
skapi en gat verið afskaplega stíf-
ur á meiningu sinni. Hann var lok-
aður persónuleiki sem átti erfitt
með að tjá tilfinningar sínar og
fjarri því að hann bæri þær á borð
fyrir hvern sem var. Ef til vill var
það þetta sérstaka skapferli sem
bar hann ofurliði eða kanski var
tími hans hér á jörðu einfaldlega
iiðinn og honum ætlað annað hlut-
verk. Við því fáum við engin svör
að svo stöddu.
Við bræðurnir frá Miðtúni höfum
oft rætt hvað lánið hefur fylgt okk-
ar fjölskyldum og fyrir það eram
við Guði þakklátir. Við höfum einn-
ig rætt hvað börn okkar hafa tengst
miklum tryggðarböndum og eru
ekki siður vinir en frændsystkini.
Þannig var Árni minn þeim öllum
ákaflega kær og er hans sárt sakn-
að jafnt af okkur Miðtúnsbræðrum
og börnum okkar hvort heldur það
er á Húsavík, hér syðra eða í Ála-
borg. Biðja þessar fjölskyldur hon-
um blessunar.
Við bræður höfum átt það til að
hittast á góðum stundum, rifja upp
endurminningar, syngja og gleðj-
ast. Hafa þessar stundir orðið börn-
um okkar eftirminnilegar og oft
spurt; hvenær hittist þið næst, það
er svo gaman þegar þið bræðurnir
komið saman? Á slíkum stundum
skemmti Árni bæði sér og öðram.
Hans verður saknað þar en verður
með okkur í anda.
Þegar ég frétti andlát Árna opn-
aði ég Biblíuna. Hvort það var til-
viljun eða ekki blasti við mér vers-
ið: „Því svo elskaði Guð heiminn,
að hann gaf son sinn eingetinn, til
þess að hver sem á hann trúir glat-
ið ekki, heldur hafí eilíft lif.“ Jóh.
3:16
Um leið og ég og bræður mínir
og fjölskyldur okkar kveðjum þig,
Árni minn, færam við þér þakkir
fyrir samverastundirnar og biðjum
algóðan Guð að taka á móti þér og
varðveita. Sömuleiðis biðjum við
þess að foreldrar þínir, bræður,
ömmur og afi og aðrir þeir sem þér
voru kærastir megi öðlast styrk frá
Guði til að standast það álag og
þá miklu raun sem missir þinn er
þeim.
Far þú í friði, frændi minn kær.
Níels Árni Lund.
Árni frændi er dáinn. Það getur
ekki verið? Hann sem var svo léttur
þegar ég talaði við hann í símann
um daginn og sagðist hann þá ætla
að koma heim í sumar.
I haust fór ég til Danmerkur og
heimsótti þá m.a. Árna og Steinu
í Álaborg. Það var auðsótt mál og
þrátt fyrir þröng á þingi var mér
plantað í sófann og hjá þeim var ég
í rúman mánuð. Ég man allar góðu
stundimar á heimili þeirra. Gítarinn
var uppáhald Áma og þurfti hann
ekki að heyra lag nema einu sinni,
þá kunni hann það. Gítarinn greip
hann á hveiju kvöldi. Fyrir þessar
stundir vil ég nú þakka af heilum
hug. Þær eru og verða mér dýrmæt-
ar.
Margar aðrar minningar á ég um
frænda minn. Allar eru þær bjartar
og góðar enda mikill samgangur
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar,
SVEINS BJÖRNSSONAR,
Köldukinn 12,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Land-
spítalans og öllum þeim, er aðstoðuðu okkur
við undirbúning og framkvæmd útfarinnar.
Erlendur Sveinsson, Ásdís Egilsdóttir,
Sveinn M. Sveinsson, Guðrún Ágústa Kristjánsdóttir,
Þórður Heimir Sveinsson, Sólveig Lilja Einarsdóttir
Birgitta Engilberts,
barnabörn, barnabarnabörn
og systkini.
Lokað
Heilsugæslan í Garðabæ verður lokuð eftir hádegi í dag,
miðvikudaginn 21. maí, vegna jarðarfarar,
EDDU GUÐMUNDSDÓTTUR, læknafulltrúa.
Heislugæslustöðin Sólvangi Hafnarfirði sinnir bráðatilvikum á
meðan.
Heilsugæslan í Garðabæ.
Lokað
Lokað verður eftir hádegi í dag, miðvikudaginn 21. maí, vegna
jarðarfarar EDDU GUÐMUNDSDÓTTUR.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ.