Morgunblaðið - 14.06.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.06.1997, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 132. TBL. 85. ÁRG. LAUGARDAGUR14. JÚNÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Árangur en ekki samkomuiag á EMU-fundi Frakkar sagðir hverg’i vilja hvika Poitiers. Reuter. LEIÐTOGAR Frakklands og Þýskalands náðu árangri en komust ekki að endanlegu sam- komulagi í gær um samræmingu á stefnu, hagvöxt og atvinnumál í ríkjum Evrópusambandsins, sem miðar að því að sameiginlegur gjaldmiðill sambandsríkjanna, evró, verði tekinn í notkun á tilsett- um tíma. Að sögn embættismanna varð þetta niðurstaðan á fundi Jacques Chiracs, Frakklandsforseta, Lion- els Jospins, forsætisráðherra Frakklands, og Helmuts Kohls, kanslara Þýskalands, í borginni Poitiers í Frakklandi í gær. Fundurinn miðaði að því að finna sameiginlegan grundvöll að stöðug- leikasáttmála Efnahags- og mynt- bandalags Evrópusambandsins, EMU, til þess að fullgilda mætti hann á leiðtogafundi sambandsins í Amsterdam í byrjun næstu viku. Frakkar vilja að aukin áhersla verði lögð á hagvöxt og aðgerðir gegn atvinnuleysi. Stöðugleikasátt- málinn kveður á um efnahagsskuld- bindingar aðildarríkjanna og refs- ingar sé ekki staðið við þær. Hagfræðingar segja að þótt ekki sé alveg útilokað að samkomulag náist í Amsterdam séu horfurnar ekki góðar í ljósi þess sem þegar hefur orðið. Eric Chaney, hagfræð- ingur hjá fjárfestingafyrirtækinu Morgan Stanley, sagði að sér hefði virst sem Jospin hygðist hvergi hvika. „Ekkert af því sem [Dominique] Strauss-Kahn [fjármálaráðherra Frakklands] eða Jospin sögðu benti sérstaklega til þess að þeir hefðu í hyggju að breyta afsöðu sinni. Þeir standa fast á sínu,“ sagði Iain Lindsay, sérfræðingur í verðbréfa- viðskiptum hjá franska bankanum Credit Lyonnais. [ 'II Knlájfrr |HL ' gúvjr - i Reuter FRANSKIR göngumenn fögnuðu komu sinni til Amsterdam í gær, en með göngunni vilja þeir vekja athygli á bágu atvinnuástandi og óöryggi á atvinnumarkaði í Evrópu. Vonast þeir eftir því að hátt í 20 þúsund manns frá öllum Evrópusambandsríkjunum komi saman til mótmæla í borginni um helgina og hvetji stjórnvöld til að sýna hlutskipti vinnandi fólks meiri athygli. Frakkar og Þjóðverjar á öndverðum meiði við Bandaríkjamenn um stækkun NATO Kohl og Chirac styðja inn- göngu Rúmena og Slóvena Bonn, Washington, Poitiers, Brussel. Reuter. Ekki haggað Reuter ÁSTRALSKIR skólapiltar fá ekki haggað hinum tröllaukna japanska súmókappa Konishiki á skemmti- svningu, sem haldin var í Sydney í Ástralíu í gær en þar stendur fyrir dyrum stórmót í súmógh'mu með þátttöku 40 súmókappa frá Japan. JACQUES Chirac, forseti Frakk- lands, og Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, sögðu í gær að þeir vildu að Rúmenum og Slóvenum yrði boðin innganga í Atlantshafs- bandalagið (NATO) í upphafi stækkunar bandalagsins þrátt fyr- ir mótbárur Bandaríkjamanna. Afstaða Chiracs og Kohls geng- ur þvert á yfirlýsingu Bandaríkja- manna á fimmtudag um að þeir vildu aðeins hleypa þremur fyrr- verandi Varsjárbandalagsríkjum, Tékklandi, Ungverjalandi og Pól- landi, inn í NATO í íyrstu. Chirac sagði á blaðamannafundi að Frakkar myndu „vissulega styðja umsókn Rúmeníu" þrátt fyr- ir afstöðu Bandaríkjamanna. „Það er enginn vafi um inngöngu landanna þriggja," sagði Kohl. „Nú er umræða um það hvort þrjú eða fimm ríki komist að, þar á meðal Rúmenía og Slóvenía “ Kohl vill skýr boð Kvaðst kanslarinn vilja að öllum ríkjunum fimm yrði gefið skýrt til kynna á leiðtogafundi NATO í Ma- dríd í júlí að þau væru hluti af þró- un bandalagsins. ítalar ítrekuðu í gær að þeir styddu að Rúmenar og Slóvenar gengju í NATO og sögðu að núver- andi aðildarríki NATO yrðu að taka einróma ákvörðun um málið. Rúmenar og Slóvenar eru ekki ánægðir með yfirlýsingu Banda- ríkjamanna. Rúmenar reyndu að líta á björtu hliðarnar og sagði fjár- málaráðherra landsins, Mircea Ciumara, að þótt þetta væru von- brigði myndu Rúmenar að minnsta kosti spara peninga. Ivo Vajgl, aðstoðarutanríkisráð- herra Slóveníu, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að Slóvenar litu svo á sem ákvörðun hefði ekki verið tekin um fjölda ríkja, sem boðin yrði innganga í Madríd, og lagði áherslu á að Slóvenía upp- fyllti öll skilyrði um fjárhagsstöðu og lýðræðisþróun. „Eg vona að við verðum með í fyrstu umferð," sagði hann og kvaðst vita af stuðningi á Bandaríkjaþingi og í Bandaríkja- stjórn. Albright nefnir Lettland í næstu atrennu Rúmenar og Slóvenar eru ekki einir um að reka áróður fyrir því að verða veitt innganga í NATO um þessar mundir. Eystrasaltsríkin hafa einnig verið ötul og í gær lýsti Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, yfir því að miklar líkur væru á því að þeim yrðiveitt innganga þegar hugað yrði að frekari stækkun NATO eft- ir að hafa átt fund með Valdis Birkavs, utanríkisráðherra Lett- lands, í Washington. Rússar hafa lagt áherslu á að Eystrasaltsríkj- unum verði ekki veitt innganga í NATO. Bandaríkjamenn sögðu í gær að ákvörðunin um að segja að aðeins þremur ríkjum yrði veitt innganga væri sprottin af vaxandi andstöðu í röðum repúblikana, sem eru í meirihluta á Bandaríkjaþingi, við að stækka NATO af ótta við kostn- að. Pol Pot sagð- ur hafa flúið Phnom Penh. Reuter. POL Pot, leiðtogi Rauðu kmeranna í Kambódíu, myrti yfirmann skæru- liða maóistahreyfingarinnar og ell- efu ættingja hans áður en hann flúði síðasta vígi hreyfmgarinnar, að sögn annars af forsætisráðherrum lands- ins, Norodoms Ranariddhs, í gær. Hann sagði að Pol Pot hefði einnig tekið annan af forystumönnum Rauðu kmeranna í gíslingu. Forsætisráðherrann sagði að stuðningsmenn leiðtogans illræmda hefðu þurft að bera hann á flóttanum vegna þess að hann væri of veikur til að ganga greitt. Pol Pot er 69 ára gamall og talið er að hann sé haldinn malaríu. „Pol Pot hafði sakað Son Sen [yfir- mann skæruliðasveitanna] um að hafa gengið til liðs við Hun Sen, ann- an forsætisráðherra. Hinn 10. þessa mánaðar myrti hann síðan Son Sen og ellefu ættingja hans á mjög grimmilegan hátt, skaut þá og ók síðan yfir líkin á vörubíl," sagði Ranariddh. Pol Pot flúði síðan ásamt stuðn- ingsmönnum sínum í frumskóg ná- lægt vígi Rauðu kmeranna í Anlong Veng í norðurhluta landsins og held- ur Khieu Samphan, öðrum leiðtoga hreyfingarinnar, í gíslingu, að sögn forsætisráðherrans. Ekki er vitað hvert Pol Pot fór. Yfirvöld í Kambódíu og Tælandi hafa lokað landamærum ríkjanna til að hindra að hann komist undan. Tæ- lenska stjórnin lofaði að aðstoða Kambódíumenn við að hafa hendur í hári hans. Fyrr í vikunni voru sögu- sagnir um að hann væri þegar kom- inn til Tælands á leið í útlegð i Kína. Pol Pot er á meðal illræmdustu manna aldarinnar og var við völd í Kambódíu 1975-79 þegar harð- stjórn og kúgun Rauðu kmeranna varð rúmlega milljón manna að bana. Áður hafði verið skýrt frá því að klofningur hefði komið upp meðal leiðtoga Rauðu kmeranna. Til átaka kom í Anlong Veng í gær milli 200 harðlínumanna, sem styðja Pol Pot, og hartnær 2.000 annarra skæruliða sem taldir eru hafa gengið til liðs við stjórnarherinn. Maóistahreyfingin tók að leysast upp í ágúst þegar einn af forystu- mönnum hennar, Teng Sary, sagði skilið við Pol Pot og friðmæltist við stjórnina. Síðan hafa þúsundir skæruliða gengið til liðs við stjórnar- herinn. Dæmdur til dauða Denver. Reuter. TIMOTHY McVeigh, fyrrver- andi hermaður, var dæmdur til dauða í gærkvöldi fyrir sprengjutilræði í stjórnsýslu- byggingu í miðborg Oklahoma- borgar 19. apríl 1995. Það tók kviðdóm 11 klukku- stundir að komast að niðurstöðu. Alls vai-ð McVeigh 168 manns að bana í sprengjutilræðinu og rúmlega 500 slösuðust, en við réttarhöldin var hann einungis sóttur til saka fyrir morð á 11 fórnarlambanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.