Morgunblaðið - 14.06.1997, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 14.06.1997, Blaðsíða 56
MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Fiskaflinn nærri 1,6 milljónir tonna FISKAFLI innan lögsögu okkar og á Reykjaneshrygg var í lok maímánaðar orðinn 1,4 milljónir tonna. Auk þess var afli utan lögsögu orðinn um 184.000 tonn. Heildaraflinn er því að nálgast 1,6 milljónir tonna. Það er með því mesta sem veiðzt hefur á einu ári, en enn eru þrír mánuðir eftir af fiskiveiðiárinu. Á sama tíma í fyrra vai' aflinn innan landhelgi og á Reykjaneshrygg 1.366.000 tonn. Þorskafli á þessu fiskveiðiári var orðinn rúmlega 160.000 tonn um mánaðamótin, sem er um 22.000 tonnum meira en árið áður. Helztu sveiflurnar í afla eru í loðnu, þar sem aflinn er nú um 900.000 tonn, sem er um 100.000 tonnum meira en í fyrra. Afli utan lögsögu er nú í heildina 195.000 tonn að meðtöldum úthafskarfa, en það er um 23.000 tonnum meira en í fyiTa. Rækjuafli á Flæmska hattinum er nú aðeins brot af því, sem var í fyrra, en rækjuafli á Dohmbanka er nær fjórfalt meiri nú, um 2.200 tonn. Þá hafa veiðst um 182.000 tonn af norsk-íslenzku síldinni, sem er aukning um tæp 50.000 tonn. --------------- Flugvélar saknað um tíma NEYÐARÁÆTLUN var sett af stað um sjöleytið í gærkvöldi eftir að flugvél skilaði sér ekki á áætluðum tíma á Egilsstaðaflugvöll. Hafði flugvélin lent í Kverkfjöllum, sam- kvæmt áætlun, og ekki komist aftur í loftið vegna veðurs. Þrír menn vom í áhöfn vélarinnar. Símasamband frá Kverkfjöllum er erfitt og gátu mennirnir þess vegna ekki látið vita af sér. Það tókst þó um síðir eða hálftíma eftir að neyðaráætlunin var sett af stað. Leit var þá ekki hafin að mönnunum. /21 Sóknardögum krókabáta fækkar verulega á næsta ári SOKNARDÖGUM krókabáta fækkar verulega á næsta ári sam- kvæmt spá sem sjávarútvegsráðu- neytið hefur gert um fjölda sóknar- daga á næsta fiskveiðiári. Sam- kvæmt hlutfallstengingu smábáta við heildarþorskaflaheimildir, sem samþykkt var sl. vor, verða veiði- heimildir krókabáta á næsta fisk- veiðiári um 30.302 tonn, sem er um 41% aukning á tveimur fiskveiðiár- um. Krókabátar í sóknardagakerfinu fengu úthlutað 84 sóknardögum á yfirstandandi fiskveiðiári, eftir að breytingar á lögum um stjórn fisk- veiða krókabáta voru gerðar vorið 1996. Fjöldi sóknardaga á næsta fiskveiðiári ræðst síðan af heildar- afla sóknardagabátanna á þessu fiskveiðiári og leyfilegum heildai’- þorskafla á næsta fiskveiðiári. Krókabátum er skipt í tvo flokka, línu- og handfærabáta og hand- færabáta, eftir val sem fram fór á síðasta ári. Fóru 214% framyfir áætlaðan afla Samkvæmt spánni verður króka- bátum í línu- og handfærakerfi heimilt að róa samtals 19 daga á næsta fískveiðiári. Afli þessara báta er nú þegar orðinn um 5.767 tonn, sem er 214% umfram þann þorskafla sem þeim er ætlaður. Áætlanir um heildarþorskafla þessara báta á yfirstandandi fisk- veiðiári eru um 10.321 tonn, en þorskaflaheimild bátanna er á þessu ári 1.839 tonn. Krókabátum sem eingöngu róa með handfæri verður úthlutað 32 sóknardögum á næsta fiskveiðiári samkvæmt spánni. Þeir hafa nú þegar aflað 3.117 tonna það sem af er fískveiði- árinu, sem er um 22% umfram við- mið. Áætlaður afli handfærabát- anna á öllu fiskveiðiárinu er um 8.317 tonn en þorskaflaheimildin er 2.554 tonn. Formaður Landssambands smá- bátaeigenda segist ekki eiga von á að spáin gangi eftir, þar sem enn eigi eftir að taka tillit til ýmissa þátta varðandi veiðarnar. Áðstoð- armaður sjávarútvegsráðherra segir hinsvegar að ekki megi vænta breytinga á núgildandi lög- um þar sem vandkvæðum sé bund- ið að hækka heildarveiðiheimildir til þessara báta. ■ Heimilt verður/29 Sumarhátíð í Hljómskála- garðinum LEIKSKÓLARNIR Barónsborg, Grænaborg, Laufásborg, Lindarborg og Njálsborg efndu í gær til sumarhátíðar í Hljómskálagarðinum í Reykjavík. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri ávarpaði börnin, farið var í leiki ^ og mikið sungið og trallað. ' Börnin komu saman á Skólavörðuholtinu við styttu Leifs heppna og gengu þaðan í skrúðgöngu í lögreglufylgd í Hljómskálagarðinn. Vildi Jóhanna Thorsteinsson leikskólastjóri Laufásborgar koma á framfæri þakklæti til unglinga í Vinnuskólanum fyrir veitta aðstoð. Morgunblaðið/Jim Smart Andlát GUÐMUNDUR J. GUÐMUNDSSON Kaupþing fær starfsleyfí fjár- festingarbanka VIÐSKIPTARÁÐHERRA hefur veitt Kaupþingi hf. starfsleyfi fjár- festingarbanka. Fyrirtækið hefur þó ekki í hyggju að hefja lánastarf- semi hér innanlands, heldur hefur starfsleyfið fyrst og fremst þýðingu gagnvart erlendum aðilum. Þannig opnast nú betri aðgangur að er- lendum lánsfjármörkuðum og fyrir- tækið mun njóta þar töluvert hag- stæðari kjara en áður. Jafnframt mun starfsleyfið auðvelda félaginu að markaðssetja verðbréfasjóði sína í Lúxemborg meðal erlendra fjárfesta. Starfsleyfið hefur verulega þýð- ingu fyrir verðbréfasjóði Kaupþings í Lúxemborg. Tveir af sjóðunum, sem fjárfesta í íslenskum verðbréf- um, verða sérstaklega markaðssett- ir meðal erlendra aðila. „Ef við eig- um að geta selt þá sjóði til erlendra sjóðastjómenda, einstaklinga og fyrirtækja þá þurfum við að koma fram sem alvöru fjármálafyrirtæki," sagði Bjarni Armannsson, forstjóri Kaupþings, í samtali við Morgun- blaðið. „Þegar við hefjum sölu á er- lendu sjóðunum til þessara aðila mun breytingin í fjárfestingarbanka skila sér í aukinni sölu. Eignir sjóða okkar í Lúxemborg eru nú samtals um 3 milljarðar króna. Það sýnir e.t.v. stefnu fyrirtækisins að í heild sinni eru verðbréfasjóðir okkar nú um 10-11 milljarðar, en þar af er meira en helmingur í erlendum fjár- festingum." ■ Skapar/28 Guðmundur tók mikinn þátt í stjórnmálum og var þingmaður Reykjavíkur fyrir Alþýðubandalagið 1979 til 1987, borgarfulltrúi á árun- um 1958 til 1962 og varaborgarfull- trúi 1962 til 1964. Guðmundur var í miðstjóm Sósíalistaflokksins 1953 til 1956 og í miðstjóm Alþýðubanda- lagsins óslitið frá 1956 til 1987. Guðmundur gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum um ævina. Hann sat í hafnarstjórn Reykjavíkur um árabil, var í stjórn Framkvæmda- nefndar byggingaráætlunar frá 1965 til 1977, stjórn Verkamanna- bústaða í Reykjavík 1974 til 1982, auk fjölmargra annarra nefnda og ráða á vegum verkalýðshreyfingar- innar. Guðmundur sat í síldarút- vegsnefnd 1991 til 1994. Þá var hann í stjórn SAA frá stofnun þeirra samtaka og í stjórn Verndar frá 1983 til 1989. Guðmundur sat allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem fulltrúi Alþingis og var einnig fulltrúi ASÍ hjá Alþjóðavinnumála- stofnuninni í Genf frá 1986 til 1991. Guðmundur sinnti nokkuð rit- störfum og eftir hann liggja einnig tvær endurminningabækur skráðar af Ómari Valdimarssyni, sem komu út 1989 og 1990. Einn helzti forystu- maður verkalýðshreyf- ingarinnar undanfarna áratugi, Guðmundur Jóhann Guðmundsson, fyrrverandi formaður Dagsbrúnar og Verka- mannasambands Is- lands og fyrrverandi alþingismaður, er lát- inn sjötugur að aldri. Guðmundur var stadd- ur í Bandaríkjunum síðastliðinn fimmtudag, 12. júní, þegar hann lést. Guðmundur fæddist 22. janúar árið 1927 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Sólveig Jó- hannsdóttir frá Svignaskarði í Borgarfirði og Guðmundur Halldór Guðmundsson sjómaður frá Hrafnseyrarhúsum í Arnarfirði. Eftirlifandi eiginkona Guðmundar er Elín Torfadóttir, fóstra og kenn- ari. Eignuðust þau fjögur börn sem öll eru á lífi en þau eru, Gunnar Örn dýralæknir, Sólveig fulltrúi, Guð- mundur Halldór deildarstjóri og Elín Helena fulltrúi. Guðmundur stundaði ýmis verka- mannsstörf á árunum 1941 til 1953 og var nokkur sumur lögregluþjónn á Siglu- firði. Árið 1953 varð Guðmundur J. starfs- maður verkamannafé- lagsins Dagsbrúnar og tók einnig sæti í stjórn félagsins. Guðmundur J. var varaformaður Dagsbrúnar frá 1961 til 1982 og formaður félagsins frá 1982 til 1996. Guðmundur var formaður Verka- mannasambands ís- lands frá 1975 til 1991. Hann átti sæti í mið- stjórn Aiþýðusambands Islands, stjórn fulltrúaráðs verkalýðsfélag- anna í Reykjavík frá 1953 og var um árabil í samninganefndum Verkamannasambandsins og Dags- brúnar. Guðmundur var einn af helstu forystumönnum íslenskrar verkalýðshreyfingar áratugum saman og þátttakandi í gerð margra stærstu kjarasamninga sem gerðir voru á vinnumarkaði. Guðmundur var meðal þefrra sem forystu höfðu um gerð svokallaðra þjóðarsáttarsamninga í febrúar ár- ið 1990.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.