Morgunblaðið - 14.06.1997, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 14.06.1997, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ iKji WÓBLEIKHÚSIÐ Sími 551 1200 Stóra sviðið kl. 20.00: FIÐLARINN Á ÞAKINU eftir Bock/Stein/Harnick I kvöld uppselt — á morgun örfá sæti laus — fim. 19/6 uppselt — fös. 20/6 — lau. 21/6 — fös. 27/6 — lau. 28/6. Síðustu sýningar leikársins. Litla sviðið kl. 20.30: LISTAVERKIÐ eftir Yazmina Reza í kvöld uppselt — á morgun uppselt — fim. 19/6 — fös. 20/6 nokkkur sæti laus — lau. 21/6 — fim. 26/6 — fös. 27/6. Síðustu sýningar leikársins. Miðasalan eropin mánudaga og þriðjudaga kl. 13-18, frá miðvikudegi til sunnu- dags kl. 13-20 og til kl. 20.30 þegar sýningar eru á þeim tima. Einnig er tekið á móti simapöntunum frá kl. 10.00 virka daga. © öperukvöld Ðtvarpsins Rás eitt, í kvöld kl. 19.40 Johann Adolf Hasse; Attilio Regolo Bein útsending frá óperunni í Dresden 1 aðalhlutverkum: Michael Volle, Helene Schneider- man, Markus Schfer, Derek Lee Ragin, Randall Wong, Carmen Fuggiss og Sibylla Rubens. Cappella Sagittariana hljómsveitin í Dresden leikur. Frieder Bernius stjórnar. Söguþráöur á síðu 228 í Textavari og á vefsíðum Útvarpsins: http://www/ruv.is Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI í kvöld kl. 23.30, örfá sæti laus sun 22. júní kl. 20.00, hátíðarsýning. Loftkastalinn, Seljavegi 2. Miöasala í síma 552 3000, fax 562 6775. Miðasala opin frá kl. 13-18. Lokað sunnud. Leikhúömatöeðill: A. HANSEN — ba?ði fyrir og eftir — HAFNARFJARÐARLEIKHUSIÐ J^HERMQÐUR OG HAÐVÖR Forsýning 15. júní kl. 20 Uppselt Frumsýn. 16. júní kl. 20. Uppselt 2. sýn. 19. júní kl. 20 3. sýn. 20. júní kl. 20. Örfá sæti 4. sýn. 21. júní kl. 20 Örfá sæti Miðasala mán.—fös. 13 — 19 og lau. 12-16. Veitingar eru í höndum Sólon Islandus. IftMitnmtum j yiWSWBOEMIfflWmHlfiiSlHB íiiil 1475 ________FÓLK í FRÉTTUM___ Buckley var allsgáður Þ- TÓNLISTARMAÐURINN Jeff Buc- kley var hvorki drukkinn né undir áhrif- um eiturlyfja þegar hann lést þann 29. júní, að sögn læknis sem krufði líkið. Jeff var sonur þjóðlagatrúbadorsins Tims Buckley, sem lést af heróín- neyslu árið 1975,28 ára, tveimur árum yngri en sonurinn varð. Jeff skaust upp á stjörnuhimininn með frumrauninni „Grace“ árið 1994 og hlaut hún mikið lof gagnrýn- enda. Hann drukknaði í Miss- issippi-ánni, en hann var stadd- ur í Memphis til að taka upp aðra liljómplötu sína sem átti að heita „My Sweetheart the Drunk“. Upptökur voru nýhafnar þegar slysið varð. Buckley og vinur hans Keith Foti höfðu verið að hlusta á tónlist við ána um kvöldið. Buckley „óð út í vatnið, lagð- ist á bakið og lét sig fljóta um syngj- andi,“ segir Richard True lögreglufull- trúi. „Þá sigidi bátur framhjá og vinur hans sneri sér til að forða útvarpstæk- inu frá því að blotna. Þegar hann leit aftur út á vatnið var Buckley horfinn." Foti tilkynnti hvarf vinar síns um kl. 22 þetta kvöld. Lögreglan leitaði dögum saman að líki söngvarans og voru notaðir bátar, þyrlur og kafarar. Farþegi á ferðamannaskipi kom svo auga á það 4.júní. Buckley hafði samið meira en tólf lög á plötuna „My Sweethe- art the Drunk“. Hann hafði mar- goft frestað upptökum til að fín- pússa lögin, en platan átti að koma út snemma á næsta ári. JEFF Buckley lést af slysförum. Morgunblaðið/HG ÞEGAR ráðuneytisstjórarnir Helgi Ágústsson og Árni Kolbeinsson mættu á veitingastaðinn Pavi- ljongen til strákanna á Sigurði gripu þeir tækifærið og skáluðu fyrir veittri aðstoð íslenzkra stjórn- valda. Fremst á myndinn sjást þeir Helgi og Árni, síðan koma árvökulir fulltrúar fréttastofu > Sjónvarpsins og Utvarpsins, en að baki þeirra skála skipverjarnir. FÉLAGARNIR Ingibergur Sigurðsson og Friðrik Sigurðsson voru ánægðir með móttökurnar í Bodö, „svo langt sem þær náðu.“ HELGI Ágústsson var á visss- an hátt við stjórnvölinn þó að ekki tæki hann yfir sljórn skipsins. SIGURÐUR Sigurðsson var orðinn „heimsfrægur“ í Bodö eftir allar myndirnar sem birtust af honum og Sigurði Einarssyni, föður hans, er þeir heilsuðust yfir lunningu skipsins við komuna til Bodö. ÚTGERÐARMAÐURINN Sigurður Einarsson gaf sér engan tíma á Paviljongen, enda var algengasta sjónin að sjá hann í farsímanum. Strákunum vel tekið í Bodö SKIPVERJARNIR á Sigurði VE kunna vel við sig í Bodö i Norð- ur-Noregi, þrátt fyrir að þeir hafi verið fluttir þangað nauð- ugir af norsku strandgæzlunni. Veðurblíðan í Bodö var með ein- dæmum og því sjálfsagt að skreppa frá borði og vinsæll við- komustaður var veitingastaður- inn Paviljongen í göngugötu bæjarins, rétt ofan við bryggj- una. Það þótti ekki amalegt að sitja þar í blíðunni, láta sólina baka sig og njóta þeirra veiga sem í boði voru. Strákarnir á Sigurði voru greinilega aufúsugestir hjá frændum okkar þarna norðan heimskautsbaugs, en Bodö er um 100 kílómetrum norðar en Grímsey. Meint brot þeirra á lög- um og reglum um stjórn og eftir- lit veiða innan lögsögu Jan May- en virtist ekki alvarlegt í augum flestra bæjarbúa enda er sjávar- útvegur lítill sem enginn á staðn- um. Strákarnir nutu því dvalar- innar eftir föngum og það var ekki laust við að þeir hefðu alveg geta hugsað sér eins og eitt kvöld í Bodö til viðbótar enda ekkert um að vera á síldarmiðunum. Dvölin var því eftir allt bara ánægjuleg, þó að niðurstaða málsins væri þeim öllurn mikil vonbrigði og fannst þeim norsk yfirvöld allt of einstrengingsleg í málin. Þeim þótti á hinn bóginn gott að finna hinn mikla stuðning íslenzkra stjórnvalda og voru mjög ánægðir með að ráðuneytis- sljórarnir Helgi Ágústsson úr utanríkisráðuneytinu og Árni Kolbeinsson frá sjávarútvegs- ráðuneytinu skyldu koma á stað- inn þeim til liðsinnis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.