Morgunblaðið - 14.06.1997, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.06.1997, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Rangfærslum Guðmundar Haga- lmssonar um Æsumálið svarað í HÉRAÐSFRÉTTABLAÐINU Vestra á ísafirði og í Morgunblað- inu þann 11. júní sl. birtist opið bréf til mín og Reynis Traustason- ar fréttastjóra á DV, ritað af Guðmundi Hagalínssyni, fyrrum bónda í Hrauni á Ingjaldssandi, um sjóslysið á Arnarfirði þegar Æsa ÍS 87 frá Flateyri fórst þar > í blíðskaparveðri. í þessari tíma- mótaritsmíð Guðmundar er farið samhengislaust um víðan völl. Rauði þráður greinarinnar virðist þó illgirni, heift og rangfærslur sem ekki er hægt að sitja undir. Það er því ekki úr vegi að reyna að tína til einhveijar staðreyndir hvað varðar þá hlið þessa bréfs sem að mér snýr, Reynir er áreið- anlega fullfær um að skýra sína hlið. Ég hef aldrei legið á þeirri skoð- un minni að sjóhæfni Æsunnar var léleg en ég hef ekki sagt að hún hafi verið hættuleg líkt og Guðmundur gerir mér upp með tilvitnun í DV þann 9. maí sl. en þar segi ég m.a. orðrétt: „Þetta skip var alltaf afar lélegt sjóskip og það hvarflaði ekki að mér að ganga á stöðuleika þess með því að eyða úr fremri tönkum þess.“ Skoðun mína um sjóhæfni skipsins setti ég fram jafnt við útgerð skipsins sem og aðra sem málið varðaði, að vísu yfirsást mér að nauðsynlegt væri að koma þessum upplýsingum til bóndans í Hrauni á Ingjaldssandi. Það sem Guð- mundur virðist ekki skilja er að sjómenn jafnt og aðrir verða að haga sér eftir aðstæðum hveiju sinni. Meðan ég var skipstjóri á skipinu var ég yfirleitt heppinn með áhöfn og hafði vélstjóra sem gjörþekkti skipið. Róbert vélstjóri passaði ávallt upp á það að vatnst- ankar skipsins væru hafðir fullir, með því fékkst 7 tonna kjölfesta fram í skipið. Þá sá vélstjórinn til þess, í samvinnu við skipstjóra, að sjó væri dælt í stafnhylki þeg- ar ástæða var til og bætti með því 7-8 tonnum við kjölfestuna fremst í skipinu. Það er alþekkt að dæla þurfi olíu, vatni og sjó á milli tanka í skipum eftir aðstæð- um hverju sinni til að auka sjó- hæfni þeirra. Til að mynda hafði Æsa enga aðra kjölfestu en þá sem var í tönkum skipsins og mikilvægt að nýta þá vel vegna hins mikla þunga uppi á þilfari sem óhjákvæmilega fylgir kúfisk- veiðum, enda hafði skipið botnt- anka, þ.e. olíu, vatn og stafn- hylki, sem tóku vel yfir 40 þúsund lítra. Rétt væri að Guðmundur rannsakaði hvernig birgðastaðan var á botntönkum skipsins, þann dag sem það fórst, m.a. olíutönk- um, úr því að hann virðist hafa óheftan aðgang að olíuafgreiðslu- nótum útgerðarinnar. Það hefur komið fram við sjópróf að dreng- urinn sem var vélstjóri á skipinu þennan örlagaríka dag, sonur Guðmundar, vissi ekki einu sinni hvað stafnhylki er eða til hvers það var notað, svo vitnað sé til sjóprófa þar sem Kristján Guð- mundsson, framkvæmdarstjóri sjóslysanefndar, yfirheyrir Hjört Rúnar Guðmundsson vélstjóra. Þar kemur fram orðrétt: „KG:, Var sjór í stafnhylki? HRG: Já, eða ég sá ekki mælin'gu á því, en ég las í véladagbók, ég veit ekki hvaða dag það var, dælt í stafnhylki í einhveijar mínútur. Ég hef aldrei pælt í þessum stafn- hylkjum. Ég veit ekki hvort það er kæruleysi í mér eða hvað, en ég hafði aldrei spáð í það. Ég hafði velt fyrir mér þessum krönum nið- ur í vélarrúmi til að dæla í stafn- hylkið, en ég hafði aldrei spáð í hvaða magn væri á þeim. KG: Það hafði verið dælt bæði í og úr því? HRG: í stafnhylki, það stóð i véladagbókinni fyrrver- andi vélstjóra, eða einhveijum fyrrverandi vélstjórum, eða hvað það hefur verið. Ég man ekki dagsetninguna á því, en ég man bara að ég rak augun í þetta, dælt í stafnhylki. Það hefur ekki lekið neitt úr þessu stafnhylki. Ég veit ekki hvar aftöppunin á Aðför að hjónabandinu IÐULEGA hefur verið bent á það órétt- læti að hjón og sam- býlisfólk fái miklu lægri ellilífeyri og bætur tengdar honum en einstaklingar sem búa einir. Þótt það sé að nokkru leyti rétt- lætanlegt, þar sem einhver fjárhagslegur ávinningur er að því að tveir búi saman, er þessi munur orðinn alltof mikill. Það hefur stöðugt sigið á ógæfu- hliðina hjá hjónum. 1. september 1987 var bætt við nýjum bótaflokki, sérstakri heimilisupp- bót og fylgdi sú útskýring að með þessu yrðu bætur almannatrygg- inga til einstaklinga, sem búa einir eða hafa sáralitlar tekjur, aldrei lægri en lágmarkslaun. En hvemig átti þá að tryggja hjónum lágmarkslaun? Þáverandi 5tryggingaráðherra, Guðmundur Bjarnason, lét þau ummæli falla að hjónum, sem væru illa stödd, yrði bætt það upp með svokallaðri heimildaruppbót eða frekari upp- bót. En aldrei birtist nein reglu- gerð þar að lútandi og þessi upp- bót er aðeins greidd þeim, sem hafa verulegan lyfja- og læknis- kostnað og er þá tekjutengd. Undanfarin ár hafa hjón ekki notið hærri tryggingabóta en 70% af því, sem einstaklingar fá, en með hækkun heimilisuppbótar til einhleypra 1. maí sl. er það komið ' niður í 66%. Er þessi mikli mismun- ur algjörlega óviðunandi. Það má . . samt ekki skilja orð mín svo, að við sjáum ofsjónum yfir því, sem einhleypir fá, síður en svo. Þeir fá ekki einu sinni lágmarkslaun, eins og talað var um, þegar sérstaka heimil- isuppbótin komst á 1987. Astandið er orðið svo alvarlegt hjá hjón- um, sem hafa ein- göngu tryggingabæt- ur og jafnvel smá- greiðslur úr lífeyris- sjóði, að fólk á áttræð- is- og jafnvel níræðis- aldri talar í fullri al- vöru um að skilja, að- eins til að komast af. Þetta fólk er algjör- lega í sjálfheldu, því þótt það sé heilsuhraust og gæti unnið er því Hjónabandið hefur verið kallað hornsteinn sam- félagsins. Margrét Thoroddsen spyr, hvort það sé einskis metið lengur. hafnað af vinnumarkaðnum. Er hjónabandið, sem talið hefur verið hornsteinn þjóðfélagsins, þá einskis metið lengur? Væri ekki full ástæða til að prestar landsins létu eitthvað frá sér heyra um hvernig vegið er að hjónabandinu, jafnt hjá ungum sem öldnum? Höfundur er í stjórn Félags eldri borgara ogfélagi í AHA-hópnum. Margrét Thoroddsen Tvö dæmi um misháar tryggingabætur einstaklings og hjóna: Dæmi 1 Hér er miðað við ellilífeyrisþega, sem hefur engar aðrar tekjur en trygg- ingabætur. 1. júní 1997 Einstaklingur: Hvort hjóna: Ellilífeyrir 14.186 kr. Tekjutrygging 26.101 kr. Heimilisuppbót 12.480 kr. Sérstök h.uppbót 6.104 kr. Samtals: 58.871 kr. 12.767 kr., 10% lægra 26.101 kr. 0 kr. 0 kr. 38.868 kr. (Jlæmi II Hér er miðað við eftirlaun úr lífeyrissjóði að upphæð kr. 26.755. Einstaklingur: Hvort hjóna: 14.186 kr. 12.767 kr. 26.101 kr. 22.489 kr. 12.480 kr. 0 kr. 0 kr. 0 kr. 52.767 kr. 35.256 kr. Tekjutrygging skerðist ekki hjá einstaklingnum en aftur á móti um 3.612 kr. hjá hvoru hjóna, þar sem skerðingarmökin hjá einstaklingi eru 26.755 kr., en hjá hvoru hjóna aðeins 18.729 kr. Ellilífeyrir Tekjutrygging Heimilisuppbót Sérstök h.uppbót Samtals: ISLENSKT MAL Baggalútur hefur nokkuð mismunandi merkingu: 1) „kúlulaga smásteinn úr ljós- grýti“ [líparíti]. 2) dordingull. 3) „drengsnáði“. Enn er þess að geta, sem áður er fram kom- ið hér í þáttunum, að Stefán Þ. Þorláksson vildi hafa þetta orð um erlendan einfæran ferðamann sem bograðist undir bakpoka. Hann kunni illa orðinu „bakpokalýður" um þess konar menn. Ekkert er nýtt undir sólinni, og sannast það hér enn, því að sá lærði Jón Guðmundsson úr Grunnavík (alias Jón Grindvic- ensis) þýddi orðið baggalútur „sá sem bograr undir byrði“. Sjá Islenska orðsifjabók As- geirs Blöndals. ★ Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli sýnir móðurmálinu hviklausa rækt. Hann sendir mér bréf sem hér fer á eftir með þökkum birt. Stundum er hann enn meiri vandlætari en umsjónarmaður, en bréf hans er ekki verra fyrir það: ,,Heill og sæll, Gísli! Eg held að það sé að verða liðin tíð að hafa stjórn á mönn- um og málefnum. Þeim fjölgar óðum sem nefna það stjórnun. Hversu gamalt er orðið stjórnun? Útvarpið sagði nýlega að menn biðu „hagstæðari veður- skilyrða". Ég hélt þeir væru að bíða betra veðurs. „Það er eftir enn að vinna ærið marga seiga þraut, það er eftir enn að fmna ýmsan góðan förunaut." Svo kvað skáldið [Jón Trausti] á morgni þessarar ald- ar. Nú hygg ég að meiri hluti þeirra sem skrifa í blöð vildu segja; það á eftir. Það leiðist mér að heyra. Og enn segir útvarpið okkur að maður sem fluttur var með- vitundarlaus í sjúkrahús hafi „gengist undir aðgerð þar“. Meðvitundarlaus göngumst við ekki undir neitt. En þegar í sjúkrahúsið kom var gert að sárum eða meiðslum mannsins. Ég held að ekki spillti að Umsjónarmaður Gísli Jónsson 905. þáttur minna menn á það að orðalag- ið að leggja eitthvað af mörk- um til hins eða þessa er frá þeim tíma að mörkin voru pen- ingar, 1 mark 8 skildingar, 12 mörk einn ríkisdalur. Það er sjálfsagt engin ástæða til að finna að því þó að leggja eitt- hvað af mörkum nái nú yfir allskonar liðsinni, svo sem góð- ar óskir og hverskonar liðs- yrði. Vera má þó að einhver kysi að orða mál sitt öðruvísi ef hann hefði upphaflega merk- ingu í huga. Með kveðju og þökkum.“ Ég reyni aðeins að svara spurningu H. Kr. Elsta dæmi, sem ég fékk um stjórnun í safni Orðabókar Háskólans, er úr Guðbrandsbiblíu, pr. 1584. Þar segir svo í Saltaranum (Davíðs sálmum): „Sólina deg- inum til stjórnunar, því að hans miskunnsemi varir eilíflegana.“ Skemmtilegt að sjá þarna áhersluviðskeytið -na aftan í eilíflega. Svo má geta þess að hliðarmyndin sljórnan er ævagömul. í guðsorðabókinni Stjórn (frá 13. öld) er þetta: „Var hans aptann í syndaligum lifnaði Sauls konungs og ferlig- um framferðum þess fólks, sem undir hans stjórnan var.“ ★ Mér sýnist sem verulegur árangur hafi náðst í baráttunni gegn „leiða“ í dönsku merking- unni = hafa forystu fyrir, fara fyrir. Ég held það sé áreiðan- lega minna um það tal nú en var, að þessi eða hinn „leiði“ framboðslista, eins og þar færu reikul börn eða örvasa gamal- menni. Þessu þarf að fylgja fast eftir, og ekki gera orðabækur okkar ráð fyrir dönsku merkingunni í sögninni að leiða, auk heldur ekki Slangurorðabókin. [En ég er varla búinn að skrifa þetta, þegar ég verð var við gagn- sókn.] En þá er það lýsingarháttur nútíðar af leiða sem oft er í lýsingarorðs stað. Menn hafa heyrst tala um „leiðandi“ félög eða fyrirtæki. Þarna er mjög auðvelt að setja „forystu“ (for- ustu) í staðinn. Það er jafnmörg atkvæði og „leiðandi". Þá gæt- um við til dæmis sagt að NN væri forystufélag á þessu sviði o.s.frv. Margt fleira kemur til greina. Einhveijum kynni að detta í hug að Eimskip væri aðalfélagið í millilandasigling- um, og þá erum við komin með tvö atkvæði í staðinn fyrir þijú. Mestu skiptir að reyna á þan- þol móðurmálsins og nýta sér auð þess í stað þess að klifa á erlendum slettum. Hugarleti sú, sem lýsir sér í klisjutali og tuggumáli, er ákaflega leiðin- leg, og menn ættu að setja metnað sinn í að láta ekki „hanka sig á grundvallaratrið- um“. Fyrst er að nenna að hugsa, og síðan er að læra að tala sem vandaðast og fjöl- breytilegast mál. Það er svo út af fyrir sig mikill vandi að kunna að „sletta“. Lesi menn bækur Halldórs Laxness og sjái og finni hvað hann gerir það af mikilli list. Hluti af stíl- töfrum hans er í því fólginn, en það geta fáir svo vel fari. Auk þess er ailt að því sannað, þó ei sé til fullnustu kannað, að snillingar mega, já, og allt að*því eiga, það sem oss, þessum nafnlausu, er bannað. ★ „Æ er þá einginn endir á vanitate, sagði Jón Marteins- son. Láttu mig í friði meðan ég er að borða þetta villidýr og drekka þennan borgundara. Síðan héldu þeir áfram að borða. Þegar þeir höfðu lokið villidýrinu og borgundaranum og kellíngin hafði borið fyrir þá púns í kollu sagði Jón Mar- teinsson: Nú skal ég segja þér hvernig biskupsdóttir er legin.“ (Halldór Laxness: íslands- klukkan.) Auk þess er tuggan „vakt- hafandi læknir“ orðin mjög hvimleið. Fyrra orðið er oftast óþarft, en einnig má segja vakt- læknir eða læknir á vakt. En Guðrún Guðlaugsdóttir fær plús fyrir að muna eftir orðinu gjö- full (Mbl. 8. júní) þegar dönsku- slettan „gefandi" ríður hvar- vetna húsum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.