Morgunblaðið - 14.06.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.06.1997, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NATS gerir hættumat við Reykjavíkurflugvöll Lítil hætta af flug- umferð við völlinn AÐ MATI National Air Traffic Services Ltd. (NATS) stafar byggð við Reykjavíkurflugvöll lítil hætta af flugumferð við völlinn. Áhættan er vel innan þeirra marka, sem miðað er við á öðrum sviðum þjóð- lífsins. Ekkert tilefni er til að rýma byggingar við flugvöllinn eða breyta nýtingu þeirra. Þá fylgir lítil áhætta notkun svokallaðrar NA/SV flugbrautar. Mat NATS er byggt á gögnum um flugumferð um Reykjavíkur- flugvöll árið 1996. Tvö líkön eru notuð við gerð áhættumatsins, bandarískt og breskt, en breska líkanið byggist m.a. á rannsóknum á 464 flugslysum sem urðu við flugvelli i þróuðum löndum á árun- um 1970-1995. Tekið er tillit til stærðar og gerða flugvélanna sem fara um Reykjavíkurflugvöll. Heildarflugumferð um Reykja- víkurflugvöll er skipt eftir notkun- arhlutfalli hverrar flugbrautar fyr- ir sig og þá einnig eftir hlutfalli lendinga og flugtaka fyrir viðkom- andi braut. Auk þess er hlutfall véla yfir 4 tonnum á móti vélum undir 4 tonnum fundið fyrir hveija braut. Með þessu móti er tekið tillit til þeirra takmarkana sem eru á notkun norðaustur/suðvestur flugbrautarinnar. Þetta er gert á grundvelli gagna um notkunar- hlutfall flugbrauta á tímabilinu apríl 1996 til janúar 1997. Beðið var um mat á líkum á því að maður léti lífið á jörðu niðri miðað við líkindamörkin 1:10.000, 1:100.000 og 1:1.000.000. í ljós kom að hvergi við flugvöllinn er áhættan það mikil að hún næði til 1:10.000 markanna, en sterk rök eru talin fyrir því að tæma hús eða svæði sem notuð eru mik- inn hluta dagsins ef þau eru innan þessara marka. Þess vegna var NATS beðið að reikna í staðinn út 2:10.000, en það eru þau mörk sem skilgreind eru í snjóflóðamati Veðurstofu íslands sem viðunandi áhætta af völdum snjóflóða. Nokk- ur hús syðst í Kópavogi og óbyggð svæði í miðbænum og við Suður- götu falla undir þessi mörk. Þess ber að geta að dánarlíkur vegna slysa í umferð á vegum eru 8:10.000 eða ijórum sinnum hærri en viðunandi áhætta af völdum snjóflóða. Ahættusvæði uppa 1:1 000 000 Ahættusvæði uppa 1:100000 Þungt hald- inn eftir umferðarslys UMFERÐARSLYS varð á Höfn á Hornafírði um sexleytið í gærkvöldi þegar 10 ára drengur á reiðhjóli lenti á vörubíl. Drengurinn lærbrotnaði og hlaut höfuðhögg og kviðáverka. Hann var fluttur með sjúkraþyrlu á Sjúkrahús Reykjavíkur og var án meðvitundar um ellefuleytið í gærkvöldi. Hann var talinn alvarlega slasaður, en ekki í lífshættu. Slysið átti sér stað á Hafnar- braut. Drengurinn lenti á hjólbretti við afturdekk vörubílsins, kastaðist frá bílnum og missti meðvitund á slysstað. Vörubíllinn var á mjög hægri ferð þegar slysið átti sér stað. ------------------ Fyrsta um- ferðaróhappið í göngunum ÖLVAÐIR menn á bíl keyrðu ofan í Hvalíjarðargöngin að norðanverðu í gærmorgun. Þegar þeir voru komnir um 150 metra ofan í göng- in lentu þeir ofan í frárennslis- skurði sem grafinn er meðfram veggjunum til að hleypa burt vatni. Bíllinn sat fastur þar. Þá tóku þeir vinnuvél traustataki og ætluðu að losa bílinn, en hún lenti ofan í skurði líka. Starfsmenn komu að þeim, stoppuðu þá af og hringdu á lögregluna. Þetta er fyrsta umferðaróhappið í göngun- um, samkvæmt upplýsingum lög- reglu, og varð engum meint af. Hæsta lokaeinkunn úr hagfræðiskor HI frá upphafi Gat valið úr tilboðum um framhaldsnám GAUTI Bergþöruson Eggerts- son útskrifast úr Háskóla ís- lands 17. júní nk. og verður fyrstur nemenda til að útskrif- ast úr hagfræðiskori með ágæt- iseinkunn. Gauti fékk 9,11 lokaeinkunn. Hann hefur fengið tilboð um doktorsnám frá mörgum virt- um háskólum í Bandaríkjunum eins og Yale, Duke, MIT, Col- umbia og Johns Hopkins. Hann kaus Princeton. „Mér skilst að fimm háskólar séu hæst metnir í hagfræðinámi í Bandaríkjun- um,“ segir Gauti. „Princeton reyndist vera besti kosturinn í alþjóðahag- fræði sem ég ætla að sérhæfa mig í. Það var því ekkert sér- lega erfitt að ákveða sig. Það hafði að sjálfsögðu líka mikil áhrif að ég þarf ekki að reiða fram 1,7 milljón á ári í skóla- gjöld og að mér var boðinn framfærslulífeyrir að auki. Á síðari stigum býðst mér svo að aðstoða við kennslu." Lausnir að finna í hagstjórn Gauti segir að áhugi sinn á hagfræði hafi kviknað strax í menntaskóla: „Hagfræðin glím- ir við spurningar sem skipta máli. Hvernig stendur til dæmis á því að sumar þjóðir búa við allsnægtir en aðrar við ör- birgð? Ég fylli ekki hóp þeirra sem trúa því að okkur líði svona vel því að öðrum líði illa. Gróði eins þarf ekki að vera á kostn- að annars. Ef til vill felst svar- ið að hluta til í rangri umgjörð efnahagslífsins í fátækari ríkj- um og litlu athafnafrelsi. Kannski hefur hagfræðin ein- hver svör við spurningum af þessu tagi, þótt ég ætli mér nú ekki að frelsa heiminn." Hann hlær og bætir við: „Að minnsta kosti ekki einn míns liðs.“ Næst er það heimspekin Þegar Gauti er spurður að því hvað hann ætli að taka sér fyrir hendur að loknu doktors- GAUTI Bergþóruson Eggertsson segir áhugann á hagfræði hafa kviknað í menntaskóla. námi brosir hann út í annað. „Ef farið verður að niðurstöð- um lokaritgerðar minnar vill reyndar svo óheppilega til að hugsanlegum framtíðarvinnu- stöðum mínum á íslandi fækkar úr þremur í tvo,“ segir hann. „I ritgerðinni reyni ég að meta kosti og galla þess að ís- lendingar verði með í samevr- ópusku myntinni, evró, og sýn- ist kostirnir vega þyngra. Mun minna hlutverk stæði þá eftir fyrir íslenskan seðlabanka og litla vinnu þar að fá. Þá eru aðeins Þjóðahagsstofnun og Háskólinn eftir. En auðvitað veit maður aldrei hvað verður. Ég reikna reyndar með að ég ílengist erlendis.“ Sextíu ára flugsaga OPNUÐ verður í Perlunni í dag sýningin „60 ára samfelld sókn til framfara" þar sem Flugleiðir kynna atriði úr sögu félagsins og fyrir- rennara þess. Verður hún opin milli klukkan 14 og 18 til 17. júní. Á myndinni er Stinson Reliant, flugvél sömu gerðar og Loftleiðir notuðu á fyrstu árunum. Þýskt fhigfélag með vikuiegt flug til Islands Samkeppni harðnar á Þýskalandsmarkaði ÞYSKA flugfélagið Aerolloyd verð- ur með vikulegar ferðir til íslands í sumar og lendir fyrsta vélin á Keflavíkurflugvelli í kvöld. Aerollo- yd sérhæfir sig í leiguflugi og er það þýska ferðaskrifstofan Arktis Reisen Schehle, þ.e. ARS, sem stendur fyrir þessum ferðum. Aerolloyd er fjórða flugfélagið sem býður upp á ferðir á þessari leið. Hin eru LTU, Atlanta og Flug- leiðir. ARS er einn af stærstu ferðaheildsölum fyrir Island á þýska markaðnum. Vestfjarðaleið er umboðsaðili ferðaskrifstofunnar hérlendis. Sævar Skaptason hjá Vestfjarðaleið segir að ástæðan fyrir því að ARS hafi farið út í eigið leiguflug í sumar hafi verið sú að þannig gæti ferðaskrifstofan styrkt stöðu sína á þýska markaðn- um, verið óháð og boðið upp á hagstæðari verð. Einnig sé hag- kvæmara að bjóða upp á ferðir með einu flugfélagi en að dreifa þeim á mörg. Hann vill þó taka fram að ARS muni fljúga töluvert með Flugleið- um utanlands og eins með Flugfé- lagi íslands innanlands. Þá muni ARS ekki einvörðungu bjóða upp á ferðir með Vestfjarðaleið heldur einnig öðrum ferðaskrifstofum í umboðssölu. Vestfjarðaleið mun sjá um sölu á uppfyllingarsætum í ferðir til Frankfurt. i: i I I : l I I ! li
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.