Morgunblaðið - 14.06.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
AUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 19
ERLENT
Sameinuðu þjóðirnar
Hávaðarifrildi á
Watergate-ráðstefnu
25 ár liðin frá
einu örlagarík-
asta innbroti í
Bandaríkjunum
Mary Rob-
inson fari
með mann-
réttindamál
Washington. Reuter.
HEITT var í kolunum á ráðstefnu,
sem efnt var til í Washington í til-
efni af því, að 25 ár eru liðin frá
Watergate-hneykslinu, sem varð
Richard M. Nixon, þáverandi Banda-
ríkjaforseta, að falli. Á ráðstefnunni
voru ýmsir, sem komu mikið við
söguna á sínum tíma.
Þótt þátttakendurnir, jafnt þeir,
sem báru nokkra ábyrgð á Water-
gate-hneykslinu, og þeir, sem sóttu
þá til sektar, hafi gránað mikið í
vöngum á þessum aldarfjórðungi,
þá eru þeim atburðirnir svo ljóslif-
andi sem hafi þeir gerst í gær. Mál-
ið hófst 17. júní 1972 þegar nokkrir
menn voru staðnir að innbroti í aðal-
stöðvar Demókrataflokksins í Wat-
ergate-hótelinu og hafði loks þær
afleiðingar, að Nixon neyddist til að
segja af sér rúmum tveimur árum
síðar, 8. ágúst 1974.
Hélt uppi vörnum
fyrir Nixon
Meðal kunnustu þátttakenda voru
John Dean, fyrrverandi ráðgjafi Nix-
ons, þá aðeins 33 ára gamall, en
hann er nú bankamaður í Kaliforníu
með fjárfestingar sem sérgrein; Sam
Dash, aðalráðgjafi Watergate-
nefndar bandarísku öldungadeildar-
innar, og Leonard Garment, sem var
ráðgjafi Nixons um hríð. Dash er
nú prófessor við Georgetown-háskól-
NIXON þegar hann tilkynnti
afsögn sína.
ann en Garment vinnur hjá lögfræði-
stofu í Washington.
Slagurinn stóð á milli þeirra Dash,
sem sagði Nixon hafa gerst sekan
um „glæpsamlegt athæfí", og Gar-
ments, sem lýsti Nixon sem „einangr-
uðum manni“, sem hefði komið
mörgu góðu til leiðar fyrir þjóð sína.
Hæddist hann að Dean þegar hann
útskýrði hvers vegna hann hefði far-
ið fram á grið fyrir sjálfan sig áður
en hann vitnaði gegn forsetanum en
vitnisburður hans tengdi Nixon beint
við Watergate-málið. Sagði Garment,
að Dean hefði þá hagað sér eins og
„dæmigerður glæpamaður".
Óttuðust um líf Deans
Þeir Garment og Dash æptu hvor
á annan þegar sá síðarnefndi sagði,
að talin hefði verið ástæða til að
JOHN Dean, fyrrverandi
ráðgjafi Nixons.
óttast, að líf Deans væri í hættu,
ef Nixon og menn hans kæmust að
því, að Dean ætlaði að bera vitni
gegn þeim.
„Þetta er yfirgengilegt," hrópaði
Garment. „Nei, því miður ekki,“
hrópaði Dash á móti. „í guðanna
bænum, minnumst þess, að við erum
að tala um látinn mann,“ sagði Gar-
ment og hótaði að yfirgefa salinn.
Nokkrir blaðamenn, sem skrifuðu
mikið um Watergate-málið á sínum
tíma, klöppuðu fyrir því en Garment
sat þó áfram undir reiðilestri Dash.
„Þú vilt ekki horfast í augu við
staðreyndir þessa máls og reynir að
drepa þeim á dreif. Ekki veit ég
hvers vegna. Þú varst ekki sekur
um neitt. Hvers vegna þarftu að
halda uppi vörnum fyrir Watergate?"
spurði Dash og Garment svaraði
lágri röddu: „Vegna þess, að hér er
enginn annar til þess.“
Kenndi blaðamönnum um
Á ráðstefnunni voru leiknar upp-
tökur, sem Nixon lét gera og hugs-
aði sem sögulegar heimildir fyrir
komandi kynslóðir. Þær reyndust
lokasönnunin fyrir aðild hans að
hneykslinu. Heyra mátti hann kvarta
óstyrkri röddu yfir blaðamönnunum,
sem hundeltu hann í Watergate-mál-
inu og kenndi hann því, að hann
hefði ákveðið að flytja heim banda-
ríska herinn í Víetnam í áföngum.
„Ef það hefði ekki verið Watergate,
þá hefðu þeir bara fundið eitthvað
annað,“ sagði Nixon.
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
MARY Robinson, forseti írlands,
var í fyrradag skipuð yfirmaður
mannréttindamála hjá Sameinuðu
þjóðunum og bað Kofi Annan,
framkvæmdastjóri SÞ, hana að
láta af embætti
forseta fyrir ág-
ústlok til að taka
við starfinu.
Kjörtímabili
hennar lýkur
hins vegar ekki
fyrr en 2. des-
ember.
Robinson er
lögfræðingur og
MaryRobmson, sérfræðingur í
forseti Irlands. ,.,. ,
mannrettinda-
málum og um nokkurra vikna skeið
hefur verið talið víst að hún fengi
starfann. Annan sagði að hún
væri „framúrskarandi leiðtogi" og
mundi fylla starfið móði.
Þakkaði traustið
Robinson, sem er 53 ára, gaf
út yfirlýsingu þar sem hún þakk-
aði það traust, sem Annan sýndi
henni. „Ég er skuldbundinn öllum
þeim, sem hafa stutt framboð mitt,
einkum írsku stjórninni og emb-
ættismönnum í utanríkisráðuneyt-
inu, sem drógu ekki af sér í stuðn-
ingi sínum við mig,“ sagði í yfirlýs-
ingunni.
Robinson er þekkt fyrir að beij-
ast fyrir réttindum þeirra, sem
minna mega sín. Sagt er að hún
hafi breytt írska forsetaembætt-
inu, sem áður hafi snúist um að
klippa borða á blómasýningum og
opna félagsmiðstöðvar, og í valdat-
íð hennar hafi athyglin beinst að
óréttlæti heimsins.
Mannréttindasamtök
ánægð
Ýmis mannrétindasamtök, til
dæmis Amnesty International og
Human Rights Watch fögnuðu í
gær skipun Robinsons og skoruðu
jafnframt á hana að gera mann-
réttindamálin að einu meginvið-
fangsefni Sameinuðu þjóðanna á
næstu öld.
Rússland
Mannskæður eldsvoði
á elliheimili
Moskvu. Reuter.
SEXTÁN rússneskir ellilífeyris-
þegar létu lífið og einn fékk al-
varleg brunasár í eldsvoða á elli-
heimili í afskekktu þorpi við Úral-
fjöll í fyrrakvöld.
Það tók slökkvilið staðarins
þrjár klukkustundir að slökkva
eldinn. 34 vistmenn voru á elli-
heimilinu, sem var í viðarhúsi frá
19. öld, í þorpinu Kosja, um 230
km frá Jekaterinburg.
Velferðarkerfið í Rússlandi
hefur versnað mjög frá hruni
kommúnismans og mörg sjúkra-
hús og elliheimili eru í niður-
níðslu.
Það leynir sér ekki þegar planta hefur fengið MOLTU, lífræna jarðvegsbætinn frá SORPU.
MOLTA er rík af helstu næringarefnum plantna, hefur góða loftunar- og vatnsheldniseiginleika og
lífgar ófrjóan jarðveg við. Reynslan sýnir að MOLTA hentar vel í beð, við útplöntun, í trjárækt,
£ í matjurtagarðinn og sáningu.
I MOLTA fæst á endurvinnslustöðvum og í Gufunesi.
•ð
oc
= Þú stuðlar að endurvinnslu og náttúruvernd með því að skila garðaúrgangi í næstu endurvinnslustöð.
Mundu að hafa trjágreinar aðgreindar frá öðrum garðaúrgangi.
S©RPA
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs
MOLTA - lifandi dæmi um kosti endurvinnslu
Gufunesi, sími 567 66 77