Morgunblaðið - 14.06.1997, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 13
FRÉTTIR
□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□ □□ □□□
)□ □□□□□□□
Ný útvarpsstöð íslenska útvarpsfélagsins
Stjarnan sendir út klassískt
rokk þriggja áratuga
VINIR og velunnarar Hermanns
Ragnars Stefánssonar og fjöl-
skyldu hans hafa stofnað sjóð í
minningu Hermanns Ragnars, sem
lést 10. þessa mánaðar.
Er þeim vinsamlegu tilmælum
beint til þeirra, sem heiðra vilja
minningu hans, að láta minningar-
sjóðinn njóta þess.
Sjóðurinn er í vörslu Búnaðar-
banka íslands, Háaleitisútibúi við
Suðurlandsbraut 2, 105 Reykjavík,
nr. 0313-13-891107.
Minningarsjóð-
ur um Her-
mann Ragnar
Stefánsson
ÚTSENDINGAR útvarpsstöðv-
arinnar Stjörnunnar hófust í
gær. Að sögn Halls Helgasonar,
dagskrárstjóra Bylgjunnar og
Stjörnunnar, verður Stjarnan
tónlistarstöð, sem sendir út
klassíska rokktónlist frá árunum
1965 til 1985. Sendar verða út
fréttir frá fréttastofu íslenska
útvarpsfélagsins á klukkutíma
fresti. Fjórir þeirra, kl. 7,8,12
og 16, verða samtengdir Bylgj-
unni en aðrir verða með sérstök-
um Stjörnufréttum.
Að sögn Halls verður sérstaða
Stjörnunnar sú að hún skilgreinir
sig sem tónlistarútvarpsstöð með
ákveðið tónlistarval. Hann segir
slíkar stöðvar hafa verið í hvað
mestri sókn í Bandaríkjunum
undanfarin ár og telur þær eiga
erindi inn á markaðinn hér. „Við
erum búnir að taka nokkur þús-
und lög, íslensk og erlend, greina
þau með sérstakri aðferð, með
tilliti til takthraða, áleitni, aldurs
og fleiri atriða. Við notum síðan
tölvuforrit, sem hannað er í
Bandarikjunum fyrir tónlistar-
útvarpsstöðvar, til að raða saman
tónlistinni og ná fram þægilegu
flæði. Útkoman er sú að ef mað-
Menningarmálanefnd
Hafnarfjarðar
Tvær stöð-
ur 1 boði
BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar hefur
samþykkt tillögu um að auglýsa
nýja stöðu starfsmanns menningar-
málanefndar og stöðu umsjónar-
manns með listamiðstöðinni í
Straumi.
Tillagan gerir ráð fyrir að um-
sóknarfrestur um stöðu starfs-
manns menningarmálanefndar
verði til 20. júlí nk. og að ráðið
verði í stöðuna frá og með 1. sept-
ember. Gert er ráð fyrir að umsókn-
arfrestur um stöðu umsjónarmanns
með listamiðstöðinni í Straumi
verði til 1. júlí nk. og að ráðið verði
í stöðuna frá og með 15. júlí. Jafn-
framt er því beint til menningar-
málanefndar að gengið verði frá
því að umsjón og eftirlit með
Straumi sé tryggt þar til ráðið verð-
ur í stöðu umsjónarmanns.
Lúðvík Geirsson, bæjarfulltrúi
Alþýðubandalags, fagnaði í bókun
að tekið væri undir tillögu fulltrúa
Alþýðubandalagsins í bæjarstjórn.
í bókun Magnúsar Gunnarssonar,
bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks,
segir að það sé löngu tímabært að
málefni Straums verði leyst á far-
sælan hátt menningunni í Hafnar-
fírði til heilla.
ur á annað borð hefur gaman af
tónlistinni þá getur maður ekki
hætt að hlusta,“ segir Hallur.
Albert Ágústsson er rödd
Stjörnunnar en undirbúningur
að stofnun hennar hefur aðal-
lega verið í höndum Halls Helga-
sonar og Ágústs Héðinssonar.
Þeir fengu til liðs við sig ýmsa
tónlistarmenn, gamla útvarps-
menn og menn sem starfa við
hljómplötuútgáfu til að aðstoða
við samsetningu tónlistarefnis
og til að grafa upp sem mest af
íslensku efni.
Að sögn Halls er Stjörnunni
hleypt af stokkunum til að
bregðast við aukinni samkeppni
á útvarpsmarkaðnum og þar
ætli íslenska útvarpsfélagið sér
ekki minni hlut en það hefur
haft til þessa.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á FYRSTA degi útsendinga Sjörnunnar í gær. Frá vinstri: Hallur
Helgason, dagskrársljóri Sljörnunnar og Bylgjunnar, Ágúst Héð-
insson tónlistarstjóri og Albert Ágústsson dagskrárgerðarmaður.
/HREYSTI
Við kynnum
J E R
Amerískan bómullarfatnað síðan 1902
lUýjar hlaupabrautir, z*
æfingastödvar og J
þrekhjól *
Vandaðir
stuttermabolir
TOO% bómull
1 stk. kr. 890.-
2 stk. kr. 1.490
Barnabolir 3-12 ára kr. 550.-
2 stk. kr. 990.-
Vandaðar
peysur
1 stk. kr. 1.690.-
2 stk. kr. 2.990.-
PXO-FOOM
Space Saver
kr. 1.250
SOfW7l\ÍIM
um helgina
Laugardag 10 -18
Sunnudag 13-17
REYSTR
sportvöKunus
Fosshálsi 1 - 112 Reykjavík - Sími 577-5858 - Fax 577-5801
Æfingatæki - Hlaupabrautir - Þrektæki - Fæöubótarefni - Sportfatnaöur - Útivistarfatnaður - Leikfimifatnaður - Sundfatnaður - Sportskór - Bakpokar