Morgunblaðið - 14.06.1997, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Símtöl um alnetið
Hljóðinu
er enn
ábótavant
Singapore. Reuter.
ÞÓTT símtöl um alnetið séu ódýr
og örugg er þessari fjarskipta-
tækni enn ábótavant og bæta þarf
hljóðið verulega áður en símnot-
endur geta lagt hefðbundnum sím-
tækjum sínum, að sögn sérfræð-
inga á ráðstefnu fjarskiptafyrir-
tækja í Singapore í gær.
Ræðumenn á ráðstefnunni hafa
spáð því alnetið muni valda bylt-
ingu í fjarskiptum og að símafyrir-
tækin þurfi að bregðast skjótt við
ætli þau að halda markaðshlutdeild
sinni.
Nýr búnaður gerir fólki kleift
að hringja um allan heim á innan-
landstaxta í hveiju landi, þannig
að símtölin geta verið miklu ódýr-
ari.
Sérfræðingarnir sögðu hins veg-
ar að hljóðtækni alnetsins væri á
frumstigi og þeir sem nota alnetið
gætu ekki búist við jafnmiklum
hljóðgæðum og hefðbundin sím-
tæki bjóða upp á. „í símtölum um
alnetið er hljóðið svipað og í far-
símum, með örlítilli töf,“ sagði
Howard Bubb, forstjóri Dialogic,
sem framleiðir fjarskiptahugbúnað
fyrir tölvur.
„Þetta er svipað og símtöl milli
heimsálfa um gervihnött voru fyrir
áratug.“
Líkt og talstöð
með endurómi
Tölvufjarskipti henta mjög vel
til að flytja gögn og skilaboð aðra
leiðina en þegar táknunum er
breytt í hljóð verður útkoman eins
og í lítilli talstöð með endurómi,
þar sem aðeins einn getur talað í
einu.
Colin Williams, forstjóri alþjóða-
deildar bandaríska símafyrirtækis-
ins WorldCom, telur að lítil hljóð-
gæði slíkra fjarskipta geti tak-
markað notkun þessarar tækni á
næstu árum. Þetta vandamál geti
orðið til þess að fjarskiptafyrirtæki
verðleggi þjónustuna eftir hljóð-
gæðum en ekki fjarlægð.
Reuter
STJÓRNARHERMENN klæddir borgaralegum fatnaði gæta flugvallarins í Brazzaville, höfuðborg
Kongó. Franski herinn hefur notað flugvöllinn til að koma brott frönskum borgurum, sem dvalið
hafa í Kongó.
Friðardrög í sjö lið-
um samþykkt í Kongó
Reuter.
DRÖG að friðarsamkomulagi voru
samþykkt í Brazzaville í Kongó í
gær. Drögin eru í sjö liðum og sagði
Edmond Munungi, talsmaður Bem-
ards Kolelas borgarstjóra, að þar
væri meðal annars kveðið á um
eftirlitssveitir, sem yrðu undir um-
sjá svokallaðrar málamiðlunar-
nefndar.
„Báðir aðiljar eiga fulltrúa í
nefndinni þannig að við vonum að
þetta verði virt,“ sagði Munungi.
Atök hófust í Brazzaville milli
stuðningsmanna Pascals Lissoubas
forseta og forvera hans, Denis
Sassous Nguessos, fyrrverandi
marxistaleiðtoga, 5. júní eftir að
herinn umkringdi heimili þess síðar-
nefnda. Aðgerð hersins var hluti
af tilraun til að leysa upp einkaheri
Meðal annars
kveðið á um
eftirlitssveitir
Brazzaville
og gera upptæk óleyfileg vopn fyr-
ir kosningamar, sem halda á 27.
júlí.
Friðarviðræður
um helgina
Gert er ráð fyrir að Lissouba og
Nguesso hittist til friðarviðræðna í
Gabon á morgun og mun Omar
Bongo, forseti Gabon, verða við-
staddur.
Útgöngubann hefur verið sett að
kvöld- og næturlagi í Brazzaville
og sagði Munungi að í drögunum
væri gert ráð fyrir að því yrði smátt
og smátt aflétt. Einnig er gert ráð
fyrir því að óháðum stofnunum á
borð við Rauða krossinn verði
hleypt að til að sækja lík, koma á
símasambandi og fjarlægja vega-
tálma.
Sagt var að kyrrláttara hefði
verið í Brazzaville en undanfarna
daga og svo virtist sem dregið hefði
úr spennu. Ekki var hins vegar ljóst
hvort vopnahléð mundi halda.
Lissouba og Sassou Nguesso skip-
uðu báðir sveitum sínum að gera
hlé á átökum á miðvikudag. Á
fimmtudag kom hins vegar til blóð-
ugra átaka.
Geim-
þættir
geta vald-
ið fíkn
HÖRÐUSTU aðdáendur Geim-
stöðvarþáttanna, eða Star
Trek, fá sömu sálrænu og
stundum líkamlegu einkenni og
eiturlyfjafíklar, samkvæmt
fjögurra ára rannsókn sálfræð-
ings við Northumbria-háskóla.
„Rannsókn mín leiddi í Ijós
að um það bil 5-10% aðdáend-
anna fá sálræn einkenni fíkn-
ar,“ sagði sálfræðingurinn,
Sandy Wolfson. „Þeir fá frá-
hvarfseinkenni, verða æstir og
gramir, missi þeir af þætti og
viðnámsþrek þeirra eykst,
þannig að þeir þurfa sífellt
stærri skammta."
Wolfson nefndi sem dæmi
fertuga konu, sem gat ekki
slakað á í sumarfríinu vegna
þess að hún hafði áhyggjur af
því að hún hefði ekki stillt
myndbandstækið sitt rétt áður
en hún fór að heiman.
Ekki skaðleg fíkn
Niðurstaða rannsóknarinnar
var birt í aukablaði The Times
um menntamál í gær. Wolfson
sagði að slíkt atferli sannaði
ekki að þessi fíkn væri skaðleg,
því aðdáendur þáttanna væru
yfirleitt hamingjusamir.
Wolfson segir að margir
aðdáenda Geimstöðvarinnar
hafi eignast vini og sumir jafn-
vel fundið maka vegna áhugans
á þáttunum. Þeir geti einnig
verið vitsmunalega þroskandi.
Ólíkt mörgum öðrum sjón-
varpsþáttum sé öllum spurn-
ingunum ekki svarað í Geim-
stöðvarþáttunum, sem hvetji
áhorfendur oft til íhugunar og
umræðu um mál eins kynþátta-
fordóma. „Jafnvel í velskrifuð-
um sápuóperum er niðurstaðan
næstum alltaf svart-hvít, þar
sem vondu mennirnir fá makleg
málagjöld en Geimstöðin er oft
með margræðan endi, þar sem
gerðir persónanna valda þeim
sjálfum hugarangri.“
Svíar í stjórnar-
skrárvanda?
Verða hugsanlega að efna til tvennra
kosninga eða þjóðaratkvæðagreiðslu
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Sænska stjórnin stendur nú
frammi fyrir stjórnarskrárvanda í
kjölfar málamiðlunartillögu Hollend-
inga um lögreglu- og Iagasamstarf.
Að sögn Svenska Dagbladet er
lausnin annaðhvort að breyta stjóm-
arskránni eða efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Vandamálið hefur
komið upp nú er reka á endahnútinn
á ríkjaráðstefnu Evrópusambandsins
(ESB) og varðar grein stjórnarskrár-
innar um yfírþjóðlegt vald, sem sam-
þykkt var af sænska þinginu 1994,
áður en Svíar gerðust aðilar að ESB
1995.
Vandinn, sem lögfræðingar
stjórnarinnar hafa komið auga á er
sá að í þeirri grein stjórnarskrárinn-
ar, þar sem stjóminni er veitt heim-
ild til að yfirfæra ákvörðunarrétt til
ESB er talað um Evrópubandalagið,
EB, og ekki Evrópusambandið. Gall-
inn er sá að þegar ESB var stofnað
með Maastrichtsáttmálanum 1993
varð Evrópubandalagið hluti af ESB,
en ESB er meira en gamla EB. Hing-
að til hefur þessi stjórnarskrárgrein
ekki verið til trafala, því allt Evrópu-
samstarfið, sem felur í sér yfírþjóð-
legt vald, hefur heyrt B-hlutanum.
Á ríkjaráðstefnunni liggur nú fyr-
ir tillaga um að flytja samstarf á
sviði lögreglu- og lagalegra mála
úr 3. stoðinni, sem tilheyrir ESB
yfír í 1. stoðina, sem er gamli EB-
hlutinn og það ættu Svíar ekki í
vandræðum með. Það vilja hins veg-
ar hvorki Bretar né Danir, heldur
vilja þeir halda þessu samstarfi í 3.
stoðinni. Til að láta það þó eitthvað
heita hafa Hollendingar stungið upp
á að þar á móti verði samstarfíð
gert yfirþjóðlegt, en þá upphefst
vandi Svíanna, þar sem þeir væm
þar með að afhenda vald, sem stjórn-
arskráin leyfir ekki.
Ef þessi lausn Hollendinganna
verður ofan á þurfa Svíar annað-
hvort að breyta stjómarskránni, sem
aðeins er hægt að gera með sam-
þykki tveggja þinga og þá með kosn-
ingum á milli, eða að bera breyting-
una undir þjóðaratkvæðagreiðslu.
Miðað við þá andstöðu sem er í Sví-
þjóð gegn ESB er hvomg lausnin
þægileg. En von sænsku stjórnarinn-
ar er væntanlega að önnur lausn en
þessi verði ofan á.
Hagfræðingur Þróunarhjálpar Sameinuðu þjóðanna á íslandi
Bandaríkin hagnast vel
á Sameinuðu þjóðunum
HAGNAÐUR Bandaríkjamanna af
verslun við Sameinuðu þjóðimar og
þjónustu í tengslum við aðalskrif-
stofu þeirra í New York er meiri
en framlag Bandaríkjastjórnar til
þróunarmála. Þetta kom fram í
máli Erlings Dessaus, dansks hag-
fræðings Þróunarhjálpar Samein-
uðu þjóðanna, sem í vikunni var
staddur hér á landi til að kynna
nýja skýrslu um framþróun í heim-
inum.
í máli Dessaus kom fram að
Danmörk, Svíþjóð og Holland era
einu löndin sem hafa náð því tak-
marki að verja einu prósenti heild-
arárstekna sinna til þróunarmála.
Lönd innan Evrópusambandsins
verja að meðaltali þriðjungi þeirrar
upphæðar.
Dessau sagði að þær raddir
heyrðust gjarnan að þar sem Dan-
ir, Svíar og Hollendingar létu mest
af hendi rakna til þróunarmála,
ættu þeir umfram aðra að njóta
þeirra viðskipta sem þróunarstarfið
skapaði. Hins vegar hefði stofnunin
ekki góða reynslu af skilyrtri hjálp
og hún reyndi að hamla gegn því
að fjármagnsaðilar stjórnuðu því
hvernig fé væri varið. Hann sagði
að þróunarhjálp í fiskveiðum hefði
t.d. oft brugðist þar sem það vildi
brenna við að iðnvæddar fískveiði-
þjóðir einblíndu á stórfelldar veiðar
sem skildu fátæka fiskimenn, sem
í raun þyrftu mest á hjálpinni að
halda, eftir tómhenta i fjömborðinu.
Tengsl á milli stríðsátaka
og fátæktar
Dessau hefur reynslu af þróunar-
starfi víða, bæði í Asíu og Afríku.
Nú síðast hefur hann starfað á
átakasvæðum í Sómalíu og Afgan-
istan. Hann segir muninn á því að
starfa á stríðssvæðum og öðmm
neyðarsvæðum helst felast í því að
þar þurfi alltaf að vera að byija frá
grunni.
„Það em augljós tengsl á milli
fátæktar og stríðsátaka. Átök auka
á þá eymd sem fyrir er auk þess
sem þau útbreiða frekari fátækt.
Það er hins vegar ekki jafn ljóst
hvort eða hvernig fátækt ýtir undir
stríðsrekstur. Rök hafa verið færð
fyrir því að fátækt ýti undir
óánægju og átök en þó má einnig
sjá mörg dæmi um það að víðtæk
átök bijótist út án þess að um víð-
tæka fátækt sé að ræða. Eitt slikt
dæmi er Júgóslavía. En jafnvel þótt
fátækt eigi lítinn sem engan þátt í
því að átök bijótist út er alveg Ijóst
að það er ekki nóg að taka byssurn-
ar af ungu mönnunum, í Afganistan
til dæmis, og segja þeim að hætta
bardögum. Til þess að þeir sjái
raunverulegan ávinning í því verða
þeir að hafa að einhveiju að
hverfa.“
Dessau sagði að m.a. hefði verið
reynt að beita þróunarhjálp til að
binda enda á átökin i Sómalíu. Það
hefði langt frá því farið að vonum
en þó ekki mistekist að öllu leyti.
Þá benti hann á að Sameinuðu
þjóðirnar væm bundnar af því að
vera alþjóðastofnun. Vildi Þróunar-
hjálpin til dæmis veita fé til Austur-
Tímor ættu starfsmenn hennar ekki
annarra kosta völ en að snúa sér
til Indónesíu. „Við verðum að virða
ríkjandi valdhafa. í skýrslu sem
birt var á vegum Sameinuðu þjóð-
anna fyrir þremur árum var til
dæmis sérstök umfjöllun um mann-
réttindamál. Þetta vakti reiði nokk-
urra þjóðarleiðtoga, sem vom gagn-
rýndir í skýrslunni, og í framhaldi
af þvi reynum við nú að setja gagn-
rýni fram á annan óbeinni hátt.