Morgunblaðið - 14.06.1997, Side 43

Morgunblaðið - 14.06.1997, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ1997 43 BRÉF TIL BLAÐSINS MESSUR Á MORGUN Talið frá vinstri: Helga Björg Sigurðardóttir, Arna Björg Sævarsdóttir, Sæmundur Knútsson, María Albína Tryggvadótt- ir og Steinunn Thorarensen. A myndina vantar Þuríði Geirs- dóttur. „Það er þér að kenna hvernig hann er“ Frá nýútskrifuðum hjúkrunarfræð- ingum frá Háskólanum á Akureyri: „HANN [geðlæknirinn] sagði: „Ég get ekkert gert fyrir hann. Það er þér að kenna hvernig hann er“..ég stóð þarna eftir grátandi á gangin- um og hann fór bara sína leið...“ Þetta er lýsing móður á samskiptum hennar við lækni þegar hún leitaði eftir aðstoð fyrir geðklofa son sinn. Þetta er meðal annars það sem kom fram í rannsókn höfunda á upplifun foreldra af því að eiga að einstakling með geðklofa og af sam- skiptum þeirra við heilbrigðisstarfs- fólk og aðra. Það er sláandi að vita til þess að foreldrar alvarlega geð- veikra einstaklinga hafi fengið slík svör þegar þau leita eftir stuðningi og fræðslu frá fagfólki. í niðurstöð- um rannsóknarinnar kom fram að enn virðist vera til staðar getuleysi heilbrigðiskerfisins til að taka á vandamálum geðsjúkra. Foreldr- arnir nefndu að það virtist vera öðruvísi með geðsjúka en aðra sjúklinga, að fólk fengi öðruvísi aðstoð og að það þurfi mikið að vera búið að ganga á áður en ein- staklingurinn er tekinn í meðferð og heilbrigðiskerfið taki við. Dæmi eru um að foreldrar þurfi jafnvel að fara á fund ráðherra og land- læknis til að fá ásættanlega með- ferð eða einhveija úrlausn fyrir sjúklinginn. Einnig kom fram að foreldrarnir fundu stundum fyrir öryggisleysi þegar sjúklingur var inniliggjandi, að þá væri um athygl- isskort eða áhugaleysi starfsfólks að ræða. Þessu til stuðnings má nefna að foreldrarnir höfðu orðið varir við að eftirlit var ekki nægjan- legt. Sjúklingar sem þó væru undir eftirliti ættu það til að sökkva of djúpt í veikindi sín án þess að nokk- uð væri að gert. Svipting sjálfræðis Sjálfræðissvipting er oft hluti af meðferð alvarlega geðveiks ein- staklings. Hér á landi er reynt að virða óskir og vilja veika einstakl- ingsins og fortölum beitt áður en til sviptingarinnar kemur. Að þessu leytinu er gengið lengra í því að virða rétt sjúklinganna en hjá hin- um norrænu þjóðunum. Sjálfræðis- sviptingin fer þannig fram að að- standendur þurfa að sækja mál fyr- ir dómstólum gegn hinum geðsjúka einstaklingi með tilskildum kostnaði og „átökum". í niðurstöðum rann- sóknar höfunda kom í ljós að for- eldrunum fannst mjög átakanlegt að höfða mál gegn barni sínu, fannst það skelfileg tilhugsun og litu á það sem allra síðasta úrræðið svo eitthvað væri hægt að gera fyrir einstaklinginn sem hefur ekki innsæi í sjúkdóm sinn. Höfundar komust að því að víða er pottur brotinn hvað varðar fræðslu frá heilbrigðisstarfsfólki til aðstandenda t.d. um sjúkdóminn og gang hans. Einnig vantar fræðslu um það hvernig aðstand- endur eigi að bregðast við sjúkl- ingnum og jafnframt eigin tilfinn- ingum. Foreldrarnir töluðu um að þeir hefðu fengið ráðleggingar en þegar á reyndi var óframkvæman- legt að fara eftir þeim. Jafnframt töluðu foreldrarnir um að eina fræðslan hefði verið sú sem þeir leituðu eftir sjálfir. Lokanir Lokanir deilda og tilfæringar á alvarlega geðsjúkum einstaklingum eru mjög slæmar og geta oft haft afgerandi áhrif á meðferð og horfur til betra lífs. Röskun á lífi þessara einstaklinga getur valdið bakslagi í meðferð þeirra og í kjölfar þess geta aðstandendur einnig fundið fyrir óöryggi. Geðsjúkir einstaklingar eiga ekki upp á pallborðið hjá almenningi og foreldrarnir eru ekkert að hampa þvi að eiga geðsjúkt barn. Þar af leiðandi eru þessir foreldrar og geð- sjúk börn þeirra veikur þrýstihópur í baráttunni um fyrstu sætin í for- gangsröðun heilbrigðiskerfisins. Því má ætla að þess vegna hafi geð- deildum stupdum frekar verið lokað en öðrum deildum. Því fylgir mikið tilfinningalegt álag, svo sem sektarkennd, missir og jafnvel sálarkvalir að eiga alvar- lega geðsjúkt barn, og oft vill það verða svo að foreldrarnir bera hit- ann og þungann af því að annast sjúklinginn. Því mætti hafa hug- myndir og væntingar foreldranna til hliðsjónar við val á meðferð fyr- ir hinn geðklofa einstakling. I rannsóknarniðurstöðum höf- unda nefndu foreldrarnir að þeir vildu fá eitthvað raunhæft gert fyr- ir þessa einstaklinga. Þau sáu fyrir sér íbúðir eða lítil sambýli fyrir geðsjúka þar sem fagfólk er yfir og reynt væri að virkja einstakling- inn til að vera þátttakandi í hinu daglega lífi. Þau töldu það gott að hlustað væri á tillögur þeirra í þeim tilgangi að hafa alla meðferð sjúkl- ingsins og aðstandenda þannig að hún nýtist öllum til framdráttar. Höfundar greinarinnar eru hjúkrunarfræðingar frá Háskólan- um á Akureyri (HA). Þessi grein er byggð á niðurstöðum rannsóknar sem var gerð sem lokaverkefni til B.Sc. gráðu í hjúkrunarfræði við HA. Viðfangsefni rannsóknarinnar var að kanna hver sé upplifun for- eldra af því að eiga barn með geð- klofa og af stuðningi og stuðnings- leysi frá heilbrigðisstarfsfólki og öðrum. Tekin voru viðtöl við fimm mæður og einn föður sem greindu frá sinni reynslu. Titill rannsóknar- innar: Vonin lifir þó væntingarnar bresti, vísar til þess að vonin var sterkasta vopn foreldranna til að takast á við þessa reynslu og að væntingar þeirra brustu þegar barnið varð sjúklingur og stuðning heilbrigðiskerfisins skorti. ARNA BJÖRG SÆVARSDÓTTIR, HELGA BJÖRG SIGURÐARDÓTTIR, MARÍA ALBÍNA TRYGGVADÓTTIR, STEINUNN THORARENSEN, SÆMUNDUR KNÚTSSON, ÞURÍÐUR GEIRSDÓTTIR. Guðspjall dagsins: Hinn týndi sauður (Lúk. 15.) ÁSKIRKJA:Guðsþjónusta kl. 11. Hjörtur Hjartarson messar. Sókn- arprestur. BUSTAÐAKIRKJA:Guðsþjónusta kl. 11. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 10.30. Prestsvígsla. Herra Ólafur Skúla- son biskup íslands vígir eftirfarandi kandidata til prestsþjónustu: Lilju Kristínu Þorsteinsdóttur, sem skip- uð hefur verið sóknarprestur í Rauf- arhafnarprestakalli í Þingeyjarpróf- astsdæmi, og Hans Markús Haf- steinsson, sem skipaður hefur verið sóknarpestur í Garðaprestakalli í Kjalarnesprófastsdæmi. Sr. Jakob Á. Hjálmarsson þjónar. Dómkórinn syngur. Organleikari Marteinn H. Friðriksson. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón- usta kl. 14. Prestursr. Fjalarr Sigur- jónsson. Organisti Kjartan Ólafs- son. Félag fyrrverandi sókn- arpresta. GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11. Altarisganga. Prestur sr. Halldór S. Blöndal. Organisti Árni Arin- bjarnarson. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Félagar úr Mótettukór Hallgríms- kirkju syngja undir stjórn Harðar Áskelssonar. Sr. Ragnar Fjalar Lár- usson prófastur kveður söfnuðinn, en hann lætur af embætti innan skamms. Sóknarnefndin. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Bragi Skúlason. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl 11. Organisti Pavel Manasek. Sr. Tóm- as Sveinsson. LANGHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Jón Helgi Þórarins- son. Organisti Jón Stefánsson. Kór Langholtskirkju syngur. Kaffisopi eftir messu. Sóknarprestur. LAUGARNESKIRKJA: Vegna sum- arleyfa er minnt á guðsþjónustu í Áskirkju. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Altarisganga. Organleikari Kristín G. Jónsdóttir. Prestarnir. BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Samkoma ungs fólks með hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson. DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Altarisganga. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 20.30. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Organisti Lenka Mátéová. Prestarnir. GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti Hrönn Helgadótt- ir. Vigfús Þór Árnason. HJALLAKIRKJA: Vegna fram- kvæmda í Hjallakirkju og sumar- leyfa starfsfólks kirkjunnar er fólki bent á helgihald og þjónustu í Breiðholtskirkju eða öðrum kirkjum í Kópavogi. Prestarnir. KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Kór Kópavogskirkju syngur. Organisti Örn Falkner. Ægir Fr. Sig- urgeirsson. SEUAKIRKJA: Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Sr. Valgeir Ástráðsson préd- ikar. Sönghópurinn „Smávinir" flyt- ur tónlist í guðsþjónustunni. Organ- isti Kjartan Sigurjónsson. Sóknar- prestur. HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelfía: Almenn samkoma kl. 20. Ræðu- maður Hafliði Kristinsson. Allir hjartanlega velkomnir. Athugið breyttan samkomutíma. KLETTURINN: Kristið samfélag, Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði. Sam- koma sunnudag kl. 16.30. Jón Þór Eyjólfsson prédikar. Barnastarf á meðan á samkomu stendur. Allir velkomnir. MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár- stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta sunnudag kl. 20 og fimmtudag kl. 20. Altarisganga öll sunnudags- kvöld. Prestur sr. Guðmundur Örn Ragnarsson. KAÞÓLSKA KIRKJAN: KRISTSKIRKJA, Landakoti: Mess- ur sunnudaga kl. 10.30, 14 og 20 (á ensku). Laugardaga og virka daga messur kl. 8 og 18. MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8: Messa sunnudag kl. 11. Messa laugardag og virka daga kl. 18.30. GARÐABÆR, Holtsbúð 87: Messa sunnudag kl. 10 á þýsku. Laugar- dag og virka daga messa kl. 7.15. JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa sunnudag kl. 10.30. Messa virka daga og laugardaga kl. 18. KARMELKLAUSTUR, Hafnarfirði: Messa sunnudaga kl. 8.30. Messa laugardaga og virka daga kl. 8. BARBÖRUKAPELLA, Keflavík: Messa sunnudag kl. 14. STYKKISHÓLMUR, Austurgötu 7: Messa sunnudag kl. 10. Messa laugardag og virka daga kl. 18.30. ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8. Al- menn samkoma kl. 11. Ræðumaður Ásmundur Magnússon. Fyrirbæna- þjónusta/bænaklútar. Allir hjartan- lega velkomnir. FÆREYSKA SJÓMANNAHEIM- ILIÐ: Samkoma á morgun kl. 17. HJÁLPRÆÐISHERINN: Messurum helgina: Sunnudag kl. 19.30 bæna- stund. Kl. 20 Hjálpræðissamkoma. Hermannavígsla. Elsabet Daníels- dóttir talar. LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Kirkjudagur Karlakórs- ins Stefnis. Jón Þorsteinsson. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Kór Víðistaðasóknar syngur. Organleikari Úlrik Ólason. Sr. Sig- urður Helgi Guðmundsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 11. Sr. Þórhallur Hei- misson. FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Guðs- þjónusta kl. 11. Orgel- og kórstjórn Þóra Guðmundsdóttir. KARMELKLAUSTUR: Messa sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl. 8. Allir velkomnir. ÚTSKÁLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Önundur Björnsson. HVALSNESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Önundur Björnsson. KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík: Messa kl. 14. SELFOSSKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl. 14. Sóknarprestur. GAULVERJABÆJARKIRKJA: Messa nk. sunnudag kl. 14. Að- alfundur safnaðarins að lokinni messu. STRANDARKIRKJA, Selvogi: Tón- leikar kl. 16. Laufey Sigurðardóttir, fiðluleikari og Páll Eyjólfsson, gítar- leikari leika á hljóðfæri sín. [ lok tónleikanna verður stutt helgistund með ritningarlestri og bæn. Svavar Stefánsson. SKÁLHOLTSPRESTAKALL: Messa í Skálholtsdómkirkju kl. 11, 15. júní. Hljómsveitir barna úr Suzukiskólanum leika við messuna ásamt kennurum sínum. Sóknar- prestur. LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum: Sunnudag kl. 11 almenn guðsþjón- usta - messukaffi. firði: SKÁLMARNESMÚLAKIRKJA í Reykhólahreppi: Messa sunnu- daginn kl. 14. Kæru viðskiptavinir Um leið og við bjóðum Sigurbjörn Svansson hársnyrti og förðunarfræðing velkominn, viljum við láta ykkur vita að hann hefur hafið störf á stofunni okkar. FAXAFENI 9 108 REYKJAVÍK SÍMI 588 9299 Tjaldvagnaland SÉRVERSLUN MEÐ TJALDVAGNA, FELLIHÝSI OG FELLIHJÓLHÝSI 440 fm SÖLUTJALDI VIÐ EYJASLÓÐ 7 í REYKJAVÍK. tjaldvágnar SY-NING um hdgina áSelfossi við versiun KÁ VANPAÐIROG RÚMGÓÐIR SE@LA©ÍRDIN ÆQIR EYJASLÓÐ 7 107 REYKJAVÍK Sími 511 2203

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.