Morgunblaðið - 14.06.1997, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 45
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
„EF ÞÚ ert í vafa, láttu
þá vaða,“ voru lokaorðin í
þætti gærdagsins. Tökum
upp þráðinn á þeim nótum.
Það eru allir utan hættu
og suður opnar í fyrstu
hendi á einu hjarta. Á vest-
ur að þegja eða stökkva í
tvö grönd til að sýna láglit-
ina?
Norður
♦ Á43
f D932
♦ 43
+ KD107
Vestur Austur
♦ - ♦ DG109752
V 1064 IIIIH + 8
♦ ÁDG106 111111 ♦ 95
♦ G8654 ♦ Á92
Suður
♦ K86
♦ ÁKG75
♦ K872
♦ 3
Kerfi NS er Precision, þar
sem opnunin er bundin við
11-15 punkta. Ef vestur
passar, gerist þetta:
Vestur Norður Austur Suður
1 hjarta
Pass 4 hjörtu 4 spaðar Dobl
m
Nú er vont að hafa ekki
notað tækifærið til að lýsa
spilunum. Kannski á austur
langan spaðalit, en hitt er
líka til í dæminu að hann
sé með 5-5-skiptingu í
spaða og láglit, eða 6-4.
Alla vega er ljóst að vestur
þarf að giska á hvort hann
eigi að sitja í flórum spöð-
um dobluðum, eða taka út
í fjögur grönd og biðja
makker að velja láglit. Og
ágiskun er nokkuð sem
menn vilja forðast sem
mest í brids.
Spilið er frá sömu landsl-
iðsæfingu og það sem við
sáum í gær, og í reynd
ákvað vestur að taka út.
Austur varð þá sagnhafi í
fimm laufum og fór þar 800
niður eftir tromp út. Í fjór-
um spöðum sleppur hann
300. Þögn vesturs í upphafi
kostaði AV 500 aukalega.
Með morgun-
kaffinu
Ást er...
göngutúrmeð ungviðinu
úti íguðsgrænni
náttúrunni.
TM Reg U.S P«l. Otf — all rights reserved
(c) 1097 Los Angeles Timos Syndicate
NEI, við hjónin rífumst
aldrei út af fjármálum.
Þetta smáræði sem hann
fær í laun er ekki þess
virði að rífast út af.
I DAG
Arnað heilla
GULLBRÚÐKAUP. í dag, laugardaginn 14. júní, eiga
fimmtíu ára hjúskaparafmæli hjónin Aðalbjörg Guðrún
Þorgrímsdóttir og Pálmi Ólafsson, frá Holti á Asum,
nú búsett í Flúðabakka 1, Blönduósi.
ÁRA afmæli. Mánu-
daginn 16. júní verð-
ur Ólöf Kristófersdóttir á
Útgörðum í Hvolhreppi
sextug. Hún tekur á móti
gestum á heimili sínu á af-
mælisdaginn frá kl. 18.
ÁRA afmæli. Fimm-
tugur verður 18. júní
nk. Pétur Emilsson, kenn-
ari, Bárugötu 15. Eigin-
kona hans er Sigrún Edda
Sigurðardóttir, verslun-
armaður. Pétur væntir
þess að vinir og vandamenn
gleðjist með sér í félags-
heimilinu Garðaholti,
Garðabæ, í kvöld frá kl. 20.
COSPER
JÚ, þetta er rétt hjá þér. Vagninn átti að fara í ibúðina
á hæðinni fyrir neðan ykkur.
HÖGNIHREKKVÍSI
STJÖRNUSPÁ
eftir Franecs Drake
Afmælisbarn dagsins: Þú
átt gott með að tjá þig í
orði ogriti. Þú ert ábyrgð-
arfullur og aimannatengsl
höfða til þín.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ættir ekki að lána óábyrg-
um aðila peninga. Sjálfur
þarftu að sýna aðgæslu í
fjármálum. Einhver vinur
þinn veldur þér vonbrigðum.
Naut
(20. apríl - 20. maí) trfö
Þú skalt ekki stinga málum
undir stól í dag né heldur
blanda þér í mál sem þér eru
óviðkomandi. Haltu þínu
striki.
Tvíburar
(21.maí-20.júní)
Þú átt erfitt með að gera
upp hug þinn og taka
ákvörðun er varðar framtíð
þína. Vertu ekki of harður
við sjálfan þig.
Krabbi
(21. júní — 22. júlí) HI8
Þér hættir til að vera of
eyðslusamur í samkeppni
þinni við nágrannanna.
Sýndu hófsemi. í kvöld skaltu
njóta gestrisni vina þinna.
Ljón
(23. júlf — 22. ágúst)
Þú kemur þér í vandræði ef
þú lætur hlutina reka á reið-
anum. Láttu gömul mál eiga
sig í bili og reyndu að takast
á við það sem skiptir mestu
máli núna.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Þú þarft að kljást við ólíka
einstaklinga í dag og finnst
þú tala fyrir daufum eyrum.
Bíddu, þar til betri aðstæður
gefast.
Vog
(23. sept. - 22. október)
íjárútlátin verða meiri en
þú bjóst við. Það er hægt
að gera sér glaðan dag, án
þess að kosta of miklu til.
Sþorödreki
(23. okt. -21. nóvember)
Láttu það liggja milli hluta
þó einhver mistúlki orð þín.
Sannleikurinn mun koma í
ljós um síðir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Ágreiningur gæti komið upp
varðandi fjölskyldumeðlim.
Sýndu aðgæslu í flármálum
heimilisins. í kvöld hefurðu
nóg að gera.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar)
Ekki eyða peningum í óþarfa
í dag. Þú færð nokkur heim-
boð og skalt vanda val þitt
og afþakka hin. Oft er flagð
undir fögru skinni.
Vatnsberi
(20.janúar- 18. febrúar) ðh.
Láttu ekki leti og sjálfs-
þægni ná tökum á þér þó
lítið sé að gera í vinnunni.
Þú gætir notað krafta þína
heimafyrir.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) SSS
Það reynir á þig í mannlegum
samskiptum í dag. Reyndu
þitt ýtrasta til að skilja sjón-
armið náunga þíns.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöi. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Vönduð gjöf við lokapróf úr
HÁSKÓLA
SEIKO RAYMOND WEIL ORIENT
Glæsileg arbandsúr - tæknilegar nýjungar
- úr með skeiðklukku og vekjara -
Garðar Ólafsson
úrsmiður, Lækjartorgi, sími 551 0081.
Umhverfisfræðslusetrið
/alviðra\ Í Alviðru
Dagskrá júní - ágúst 1997:
Opið hús - kynning á starfsemi umhverfisfræðslusetursins í Alviðru.
Alla virka daga kl. 13.00-16.00.
Gestum og gangandi boðið að koma í heimsókn og fá upplýsingar um staðinn og
starfsemina.
Ganga dagsins - gönguferð með leiðsögn.
Alla virka daga kl. 16.00-18.00.
Hressandi og fræðandi gönguferð um nágrenni Alviðru ásamt leiðsögn um náttúru
og umhverfi.
Helgardagskrá:
Veiðidagur fjölskyldunnar.
Sunnudaginn 15. júníkl. 9.00-19.00.
Gestum boðið upp á að renna fyrir lax ásamt kynningu á veiðisvæði Sogsins.
Sólstöðuganga.
Laugardaginn 21. júníkl. 18.00-22.00.
Gönguferð frá Alviðru upp Gönguskarð og inn á Inghól á Ingólfsfjalli.
Jónsmessuhátíð.
Þriðjudaginn 24. júníkl. 21.00-24.00.
Gönguferð í Öndverðarnes þar sem rifjaðar verða upp þjóðsögur og sagnir.
Jónsmessubálog gestum gefst færi á að velta sér um naktir í næturdögginni.
Pöddur og pasta.
Sunnudaginn 6. júlí kl. 14.00-18.00.
Skoðunarferð um nágrenni Alviðru þar sem leitað verður að skordýrum.
Sýni greind og að lokum boðið upp á gómsætan pastarétt.
Sumargagn.
Sunnudaginn 20. júlí ld. 14.00-18.00.
Kynning á landbúnaðarvörum í samvinnu við sunnlensk fyrirtæki, ásamt fræðslu
um vinnsluaðferðir.
Krydd í tilveruna.
Sunnudaginn 10. ágúst kl.14.00-18.00.
Fræðsla um kryddjurtir og nýtingu þeirra í matargerð.
Náttúruskreytingar.
Sunnudaginn 24. ágúst kl. 14.00-18.00.
Biómum safnað ásamt því að vinna skreytingar og fræða um þurrkun jurta.
Þátttaka er öllum heimil og gestum að kostnaðariausu.