Morgunblaðið - 17.09.1997, Síða 1
64 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
210. TBL. 85. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Sprengjutilræði á Norður-frlandi
IRA vísar
ábyrgð á bug
Ný ályktun flokks
Kohls um EMU
Þýðing-
armikil
stefnu-
breyting
Bonn. Reuter.
FLOKKUR Helmuts Kohls, kanzl-
ai-a Þýzkalands, tók í gær upp nýja
stefnu hvað varðar hið áformaða
Efnahags- og myntbandalag Evr-
ópu, EMU, að þvi leyti að hann Jief-
ur nú fallið frá fyrri ósveigjanleika í
túlkuninni á aðildarskilyrðum
EMU. Slík stefnubreyting stærsta
stjómarflokksins þýðir jafnframt
breytingu á stefnu ríkisstjórnarinn-
ar. Fram að þessu hefur Þýzkaland
beitt nágrannaríki sín i Evrópusam-
bandinu, ESB, þrýstingi, einkum
hvað snertir 3,0% hámarkið á fjár-
lagahalla, sem þýzka stjórnin hefur
viljað að verði virt út í æsar þegar
ákvörðun verður tekin um hvaða
ríki uppfylla skilyrðin fyrir stofnað-
ild að EMU og hver ekki.
Hinni breyttu stefnu er lýst í
skýrslu sem nokkri'r forystumenn
kristilegi'a demókrata, CDU, og
systurflokksins CSU hafa samið og
kynnt var í gær. í stað áherzlunnar
á að öll ríki sem vilji gerast aðilar að
EMU uppfylli til hins ýtrasta sett
aðildarskilyrði, eins og þau voru
ákveðin í Maastricht-sáttmálanum,
er í skýrslunni lögð meiri áherzla á
nauðsyn þess að hagkerfi Evrópu-
ríkja verði færð nær hverju öðru
með markvissum hætti.
Eykur líkur á að fleiri ríki
verði stofnaðilar EMU
Að mati stjórnmálaskýrenda hef-
ur hin nýja, „mýkri“ stefna, sem
felst í tillögum skýrslunnar, í för
með sér, að líkurnar hafi aukizt til
muna á að myntbandalaginu verði
hleypt af stokkunum á áformuðum
tíma, i ársbyrjun 1999, og að stærri
hópur ríkja verði úrskurðaður hæf-
ur til stofnaðildar að því en annars
hefði orðið raunin.
Clinton vill
aukin völd
Bondevik bjartsýnn
á stj óraarmyndun
Ósltí. Reuter.
KJELL . Magne Bondevik, leiðtogi
Kristilega þjóðarflokksins og einn
helsti sigurvegarinn í þingkosning-
unum í Noregi, sagði í gær, að hann
hygðist reyna að tryggja sér stuðn-
ing Hægriflokksins áður en hann
hæfíst handa við stjórnarmyndun.
Bondevik sagði, að hann væri
bjartsýnni en áður á, að miðflokk-
arnir gætu komið sér saman um
stjórn en hann kvaðst ekki vilja bera
ábyrgð á ríkisstjórn, sem ekki gæti
enst nema í skamman tíma. Taldi
hann líklegt, að stjórnarmyndunin
myndi taka einn mánuð.
Bondevik hét því, að stjórnar-
skiptin myndu hafa breytingar í for
með sér sem tekið yrði eftir.
Væntanlega samstarfsflokka
greinir á um margt, ekki síst í Evr-
ópumálunum, en Miðflokkurinn er
ekki aðeins andvígur Evrópusam-
bandsaðild, heldur einnig Evrópska
efnahagssvæðinu.
Vilja draga úr olíuvinnslu
Miðflokkarnir þríi-, Kristilegi
þjóðarflokkurinn, Vensti'e og Mið-
flokkurinn, eru hins vegar sammála
um að draga úr olíuvinnslunni en
fyrir því er ekki meirihluti á Stór-
þinginu.
Stjórnmálaskýrendur í Noregi
segja, að því loðnari sem hugsanleg-
ur stjómarsáttmáli miðflokkanna
verði, þeim mun líklegra sé að
stjórnin lifi, en aftur á móti verði hún
um leið þeim mun svipminni og getu-
lausari. Allur kraftur hennar færi í
að lifa frá einu málinu til annars.
Thorbjprn Jagland, fráfarandi for-
sætisráðherra Verkamannaflokks-
ins, ætlar að segja af sér 13. október
þegar hann hefur lagt fram fjárlaga-
frumvarpið en margh' búast við því,
að hann muni nota tímann á næst-
unni til að styrkja stöðu sína innan
flokksins og stokka upp í hópi tilvon-
andi nýrra ráðherra.
■ Mörg fótakefli/16
Washington. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
kynnti í gær lagafrumvarp, sem
ætlað er að veita forsetanum sérstök
völd til að gera viðskiptasamninga
fyrir hönd Bandaríkjanna, sem þing-
ið í Washington geti ekki breytt, að-
eins samþykkt þá eða hafnað þeim.
Margir höfðu beðið þess með eftir-
væntingu að frumvarpið liti dagsins
ljós, ekki sízt vegna þess að Clinton
varð að taka tillit til óska margra
samherja sinna innan raða
Demókrataflokksins, sem vilja
tryggja starfsöryggi bandarískra
launþega og að tillit sé tekið til um-
hverfisverndarsjónarmiða við gerð
slíkra samninga við erlend ríki.
í frumvarpinu er verndun starfa
og umhverfisins látin mynda hluta
kjarnaviðskiptasamninga að því leyti
sem slík mál snerta utanríkisvið-
skipti beinlínis.
Reuter
Versta hung-
ursneyðin í
hálfa öld
SAMKVÆMT upplýsingum þýzka
Rauða krossins látast 10.000 börn
úr hungri í Norður-Kóreu á mán-
uði og segir talsmaður samtak-
anna, sem er nýkominn frá suður-
og norðvesturhéruðum landsins,
hungursneyðina vera ineðal þeirra
verstu í nokkru landi í heiminum
frá lokum síðari heimsstyrjaldar.
Meðfylgjandi mynd var tekin í
barnaskóla í Hui-Chong héraði í
suðurhluta landsins, og var dreift
af starfsmönnum Rauða krossins
til fjölmiðla í gær. Þroskatruflanir
af völdum matvælaskorts gera það
að verkum að tíu ára börn líta ekki
út fyrir að vera eldri en þriggja til
fjögurra ára.
Talsmaður kristilegu hjálpar-
stofnunarinnar World Vision hélt
því fram í gær, að fórnarlömb
hungursneyðarinnar gætu þegar
verið orðin milli hálf og tvær millj-
ónir. Sérfræðingar í málefnum N-
Kóreu drógu þessar tölur í efa.
Belfast. Reuter.
SPRENGJA, sem augljóslega var
ætlað að spilla fyi'ir friðarviðræð-
unum á Norður-írlandi, sprakk í
smábæ nærri Portadown í gær.
Talsmenn Sambandsflokks mót-
mælenda vildu gera IRA, Irska lýð-
veldisherinn, ábyrgan og kröfðust
þess, að Sinn Fein, flokki n-írskra
lýðveldissinna, yrði vísað burt frá
samningaborðinu. IRA vísaði í gær
ábyrgð á sprengingunni á bug.
Nokkrar skemmdir urðu á lög-
reglustöðinni þegar sprengjan
sprakk en henni hafði verið komið
fyrir í sendibíl. Enginn slasaðist.
Grunur leikur á, að tilræðismann-
anna sé að leita meðal róttækra
lýðveldissinna, sem hafa sagt sig úr
lögum við IRA.
Mo Mowlam, Norður-írlands-
málaráðherra bresku stjórnarinnar,
sagði í gær, að sprengingin hefði
verið tilræði við friðarviðræðurnar
en koma yrði í veg fyrir, að tilræðis-
mönnunum tækist ætlunarverk sitt.
David Trimble, leiðtogi Sam-
bandsflokksins UUP, sem hefur
haldið sig fjarri viðræðunum í mót-
mælaskyni við að Sinn Fein skyldi
hafa verið boðin þátttaka í þeim,
hvatti í gær stjórnanda viðræðn-
anna, George Mitchell, til að út-
hýsa Sinn Fein. Gerry Adams,
leiðtogi Sinn Fein, sagði hins veg-
ar að sambandssinnar vildu nota
sprenginguna til að koma sér hjá
því að setjast sjálfir að samninga-
borðinu.
Reuter
LOGREGLUMENN ganga um vettvang sprengingar sem varð í smábænum Markethill nærri Porta-
down í gær. Sprengingunni var ætlað að spilla fyrir viðræðum um framtíð N-Irlands sem hófust í fyrradag.
81.000
svindlarar
Lagos. Reuter.
RUMLEGA áttatíu og eitt þús-
und námsmönnum í Nígeríu
hefur verið neitað um háskóla-
vist eftir að þeir voru felldir
fyrir að hafa svindlað á inn-
tökuprófi, að því er háskólayfir-
völd greina frá.
Fjöldi þeirra sem var felldur
er rúmlega einn fimmti af öllum
þeim 376 þúsund nemendum
um allt land er þreyttu inntöku-
prófið í háskólann, að því er
Bello Salim, prófessor og yfir-
maður nemendaskrár, sagði á
blaðamannafundi í Lagos í gær.
Sagði hann að hægt hefði ver-
ið að sýna fram á, svo ekki varð
um villst, að stórfellt og víðtækt
svindl hefði átt sér stað. Nefndi
hann dæmi um að nemendur
hefðu skipst á svörum, notað
óleyfileg gögn og látið annað
fólk taka próf fyrir sig. Aðrir
1.500 nemendm- voru felldir fyr-
ir að hafa ekki gefið fullnægj-
andi persónuupplýsingar á úr-
lausnareyðublöðum sínum.